Morgunblaðið - 17.06.2001, Page 26
26 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Þjóðar hátíð, hann er skrýddur,
höfuðstaðurinn.
Níræður er nákvæmlega
núna Háskólinn.
Fjallið mikla – Esja orðin
innan borgar skjól.
Arnarhólnum heldur grænum
höfuðborgar sól.
Dáðrík Jóns er Sigurðssonar
sérstök ögur-stund.
Öldin heil og hálf er síðan
hann sat mikinn fund.
Kúgun þjóðar þeir andmæltu
Þjóðfundarins menn.
Áhrif Jóns þar skiptu sköpum,
skila þau sér enn.
Brautryðjandinn hér á hæstan
heiðursmanna sess,
sannkallaður sómi Íslands
sverð og skjöldur þess.
Óréttlæti móti mælum
meðan heitt er blóð.
Lofum Guð, hans gjafir dagsins
göfga Íslands þjóð.
Pétur Sigurgeirsson biskup
Sögurík
þjóðhátíð
Morgunblaðið/Sigurður JökullÞjóðfundarmynd í Alþingishúsi.
MIKIL umræða hefurátt sér stað undan-farið um fornleifa-uppgröftinn á horniAðalstrætis og
Túngötu, þar sem áformað er að
reisa hótel árið 2003. Í janúar sem
leið var hafist handa við rannsókn-
ir á svæðinu og hafa fornleifafræð-
ingar afhjúpað fjölda forvitnilegra
hluta, þar á meðal skála frá land-
námsöld og stétt frá tímum Inn-
réttinga Skúla Magnússonar land-
fógeta.
Viðfangsefni fræðimanna
Saga fornleifarannsókna á þessu
svæði er mjög áhugaverð og telja
margir að þarna sé um bæjarstæði
Ingólfs Arnarsonar að ræða. Fyrir
40 árum skrifaði Helgi Hjörvar rit-
höfundur og útvarpsmaður fjölda
lærðra greina í Morgunblaðið þar
sem hann viðraði möguleikann á
því að á þessu götuhorni væri upp-
haflegt bæjarstæði Ingólfs Arnar-
sonar. Bæði vísaði Helgi til land-
fræðilegrar stöðu stæðisins og þess
hversu staðsetningin er kjörin fyr-
ir landnámsbæ. Þá styður hann sig
meðal annars við mál Eiríks Briem
fræðimanns sem skrifaði árið 1886
um það að bær Ingólfs hefði staðið
„syðst við Aðalstræti vestanvert,
undir brekkunni, gegnt austri.“
Ennfremur samdi Helgi ásamt
mörgum af fremstu sagnfræðing-
um og rannsóknarmönnum þjóð-
arinnar ályktun sem hófst svo:
„Vér, sem undir þetta ávarp ritum,
beinum því til Alþingis og ríkis-
stjórnar, forráðamanna Reykjavík-
ur og allrar þjóðarinnar, að bæj-
arstæði Ingólfs Arnarsonar við
Aðalstræti verði friðlýst sem þjóð-
legur helgistaður.“ Ennfremur seg-
ir þar: „Efalaust verður að telja, að
bær Ingólfs í Reykjarvík hafi stað-
ið við sunnanvert Aðalstræti að
vestan, andspænis þeim stað þar
sem síðar var kirkjan og gamli
kirkjugarðurinn.“ Fyrir þá sem
ekki þekkja til staðhátta lá gamli
kirkjugarðurinn þar sem nú er lítið
torg við hlið Landssímahússins á
horni Aðalstrætis og Kirkjustrætis.
Undir ávarpið skrifuðu meðal ann-
arra Helgi Hjörvar sjálfur, Krist-
ján Eldjárn, þjóðminjavörður og
síðar forseti Íslands, Tómas Guð-
mundsson skáld, Sigurður Nordal,
prófessor og rektor Háskóla Ís-
lands, og Þorkell Jóhannesson há-
skólarektor. Í raun bendir Helgi á
að flestir helstu fræðimenn síðustu
tveggja alda, sem eitthvað hafa um
málið fjallað, hafi verið á sama
máli um stöðu bæjarins.
Vissulega höfðu þeir mun skýr-
ari mynd af landslagi Reykjavíkur
en menn hafa nú til dags, þegar
land miðbæjarins er þakið bygg-
ingum hvert sem auga er litið.
Einnig sagði Helgi að fullvíst væri
talið að bær Ingólfs hefði staðið
„óhreyfður í 875 ár, þar til þegar
Skúli reif síðasta bæ Reykjavík-
urbóndans að mestu og reisti á
hinu ævaforna bæjarstæði verk-
smiðjuhús sín“.
Skipulagsvandi
Þessar hugmyndir Helga um
bæjarstæði Ingólfs fengu byr undir
báða vængi á árunum 1971–75 þeg-
ar upp var grafinn skáli frá land-
námsöld og ekki síður nú í vor,
þegar eldri skáli var grafinn upp
við hlið hans. Þessar geysimerki-
legu uppgötvanir renna styrkum
stoðum undir þá hugmynd að land-
námsbær Ingólfs hafi verið reistur
á þessum stað. Því hefur hann mik-
ið sögulegt gildi fyrir Reykjavík og
Reykvíkinga alla. Vegna hinnar
bjargföstu vissu sinnar um stað-
setningu bæjarstæðisins hvatti
Helgi ráðamenn til þess að fullt til-
lit yrði tekið til bæjarstæðis Ing-
ólfs þegar ákvörðun yrði
tekin um frambúðarskipu-
lag miðbæjarins. Helgi var
mikill áhugamaður um
skipulagsmál og fegrun
miðbæjarins og gagnrýndi í
grein í Morgunblaðinu
ráðamenn þjóðarinnar
harðlega fyrir að raska
gamla kirkjugarðinum í
nafni framfara. Þá hvatti
hann til þess að Landssímahúsið
yrði rifið vegna þess hversu mikið
það spillti fegurð miðborgarinnar.
Helgi gagnrýndi bæjarstjórn
Reykjavíkur og skrifaði með hæðn-
istón: „Það er einna líkast mein-
semi við bæjarstjórnina að land-
námsmaðurinn skuli gerast sannur
að því að hafa reist sín bæjarhús
svona alveg í sjálfum miðbænum,
án þess að leita nokkurs leyfis,
nema hjá guði sínum. Og taka þar
að auki allar dýrustu lóðirnar.“
Umræða um
meðferð sögunnar
Í Reykjavíkurbréfi Morgun-
blaðsins laugardaginn 15. júlí 1961
erframtaki Helga um friðun bæj-
arstæðis Ingólfs fagnað. Þar segir
meðal annars: „Enn sýnist færi á
að marka bæjarstæði fyrsta land-
námsmanns Íslands og frumbyggja
Reykjavíkur með virðulegum hætti
og haga byggingum í næsta ná-
grenni með hliðsjón af því.“ Þessi
orð vekja vissulega athygli í dag,
þegar mikið er rætt um hvernig
skuli búa um þessar leifar og
næsta umhverfi þeirra.
Menn hafa að sjálfsögðu mis-
munandi skoðanir um skipulag
svæðisins. Þarna er um verðmætt
byggingarsvæði að ræða og eru
hagsmunir borgarinnar að um-
hverfi miðbæjarins sé bæði smekk-
legt og fallegt. Byggingaraðilar
segjast stefna að því að hótelið falli
vel að miðbænum vegna þess að
leitast verði við að láta það vera í
stíl við gömlu húsin í Kvosinni. Á
hinn bóginn koma skoðanir þess
efnis að vernda beri fornleifarnar
og veita þeim þann sess sem sögu-
legum minjum sæmi. Í því tilliti er
gert ráð fyrir að í kjallara hótels-
ins verði almenningi gert kleift að
skoða rústirnar. Þetta fyrirkomu-
lag er sagt njóta síaukinna vin-
sælda þegar vernda skal fornar
minjar á dýrum byggingarsvæðum.
Til margs ber að líta þegar farið
verður í framkvæmdir á þessu
svæði og mun varfærni verða lyk-
ilorðið í því starfi sem framundan
er.
Fornminjar og skipu-
lagsmál í miðborginni
Fornleifauppgröfturinn
í Aðalstræti hefur vakið
mikla forvitni og um-
ræðu jafnt meðal
fræðimanna sem al-
mennings. Svavar
Knútur Kristinsson
leit í gömul skrif Helga
Hjörvar um skipulags-
mál í Aðalstræti og velti
fyrir sér framtíð bæjar-
stæðisins forna.
Innan hálfhringsins á myndinni taldi Helgi Hjörvar algerlega víst að bæjarstæði
Ingólfs væri staðsett. Fornleifauppgröfturinn fer nú fram á Aðalstræti 16–18.
Morgunblaðið/Jim Smart
Fornleifauppgröfturinn í Aðalstræti þar sem fundist hafa menjar frá landnámsöld. Þarna töldu Helgi Hjörvar og fleiri fræðimenn að Ingólfur hefði reist sér bæ.
Ein af greinum Helga Hjörvar um bæjarstæði
Ingólfs í Morgunblaðinu.