Morgunblaðið - 17.06.2001, Side 38
MINNINGAR
38 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hann Margrímur
mágur minn er látinn,
varð bráðkvaddur 9.
júní sl. aðeins 55 ára að
aldri.
Ég kynntist Mar-
grími árið 1959, þegar
ég kom á heimilið með Jóhönnu
systur hans. Við urðum strax bestu
vinir, þrátt fyrir aldursmuninn, sú
vinátta hélst síðan alla tíð. Mar-
grímur gerðist lærlingur hjá mér í
skriftvélavirkjun og unnum við að
þeirri iðn í mörg ár og bar aldrei
skugga á hvorki í vinnu né í einkalíf-
inu. Margrímur gerðist síðar húsa-
smiður, hann var handlaginn við allt
það sem hann tók sér fyrir hendur
og iðinn með afbrigðum, féll nánast
aldrei verk úr hendi. Það er kannski
engin tilviljun að hann lést við vinnu
í sumarbústaðnum sínum á Stóra-
Hofi.
MARGRÍMUR GÍSLI
HARALDSSON
✝ Margrímur Gíslivar fæddur í
Reykjavík 5. septem-
ber 1945, hann varð
bráðkvaddur 9. júní
sl. Útför Margríms
fór fram frá Foss-
vogskirkju föstudag-
inn 15. júní sl.
Þau eru ófá skiptin
sem hann leit aðeins
inn í bæði á Vestur-
berginu og nú síðast í
Háulindinni, í kaffi-
spjall, og gat orðið
býsna fjörugt við eld-
húsborðið þegar synir
mínir 3 voru staddir
þar líka. Það voru
mörg vandamálin leyst
þar. Barngóður var
hann og hændust held
ég öll börn að þessum
góða frænda sínum.
Söngurinn var hans
áhugamál seinustu ár-
in og söng hann bæði í Snæfellinga-
kórnum í Reykjavík og í Kór Óháða
safnaðarins í Reykjavík. Þar naut
hann sín.
Við Jóhanna eigum eftir að sakna
þess að fá hann ekki oftar í heim-
sókn og sama segja synir okkar og
þeirra fjölskyldur. En við treystum
því að öll munum við hittast á nýjan
leik.
Við þökkum öll samfylgdina gegn-
um árin og sendum sonum hans, El-
ínborgu elskulegu vinkonunni hans,
hennar börnum, og öllum öðrum að-
standendum okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Hvíl í friði kæri vinur.
Gunnar V. Magnússon.
Hvar söngur ómar sestu glaður,
það syngur enginn vondur maður.
Það eru ekki 3 ár liðin síðan
Maddi minn studdi við bakið á okk-
ar fjölskyldu við andlát tengdaföður
hans, föður okkar og maka Guðjóns
Guðmundssonar, tók utan um okk-
ur, kom fyrstur með stóran og fal-
legan blómvönd. Hann stóð eins og
bjargið sem haggaðist ekki. Óneit-
anlega minnti hann mann á bjargið
sem hægt var alltaf að treysta á.
Drengjunum sínum og fyrrverandi
eiginkonu reyndist hann alltaf mjög
góður faðir og maki. Ég gleymi ekki
Madda mínum á fimmtugsafmælinu
hans, þegar ég, börn mín og tengda-
börn, slógum saman í smoking,
skyrtu og linda handa honum í af-
mælisgjöf, hvað hann var barnslega
glaður og hrifinn, það var hugsað,
sem og gat komið sér vel, fyrir kór-
samkomur, sem hann hafði mjög
mikla ánægju af.
Ég sé hann fyrir mér við skírn
fyrir stuttu síðan þegar fyrsta afa-
barnið hans var skírt, þéttan og
myndarlegan á velli með sitt hvíta
hár og skegg. Það sópaði af honum.
Ég kveð að síðustu með kveðjunni
okkar, sem ég notaði alltaf á börnin
mín. Guð geymi þig! Hafðu þökk
fyrir allt og allt, Maddi minn.
Kveðja,
Þóra „tengdó“.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem.)
Hvíl þú í friði.
Indiana.
Kór Óháða safnaðarins er ekki
stór.
Stórt skarð er höggvið í okkar
raðir. Góður vinur og félagi er fall-
inn í valinn langt um aldur fram, að-
eins 55 ára. Það segir sig sjálft að
þegar slíkur atburður gerist verður
söknuður okkar og eftirsjá mikil.
Margrímur var einstaklega glað-
sinna og gefandi. Þær voru ófáar
gleðistundirnar sem við áttum sam-
an. Skemmst er að minnast rausn-
arlegs heimboðs hans og Ellu fyrir
fáeinum vikum. Margrímur var ætíð
hrókur alls fagnaðar og dró venju-
lega ekki af sér í þeim efnum. Sam-
verustundir í leik og starfi eru
ógleymanlegar, fyrir þær viljum við
þakka. Minningin um Margrím mun
lifa með okkur félögum hans um
langa framtíð.
Við biðjum aðstandendum hans
Guðs blessunar og styrks á erfiðum
stundum.
Kór og kórstjóri Óháða
safnaðarins.
Þegar samferða-
menn hverfa af sjón-
arsviðinu bregður
fólki í brún, þótt við
vitum að það á fyrir okkur öllum að
liggja að deyja einhverntíma
bregður okkur við þá vissu að eiga
aldrei eftir að eiga samneyti við
þann látna framar. En þegar náinn
ættingi deyr eru tilfinningarnar
sterkari – bæði söknuður og
hryggð. Þannig varð okkur innan-
brjósts þegar fréttir bárust um að
Lalla frænka lægi fyrir dauðanum,
minningarbrot flögruðu um hugann
Við sem höfðum svo nýlega
skemmt okkur saman í brúðkaupi,
sem haldið var í fjölskyldunni,
Lalla í heimsókn á Hagamelnum
hjá mömmu, en hún keyrði alltaf
ÓLÖF
SÍMONARDÓTTIR
✝ Ólöf IngibjörgSímonardóttir
(Lalla) fæddist á
Stokkseyri 1. júní
1916.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Suðurlands
laugardaginn 9. júní
síðastliðinn. Ólöf var
jarðsett frá Selfoss-
kirkju laugardaginn
16. júní sl.
sjálf á „Lödunni“ sinni
frá Selfossi. Næstum
hálfrar aldar minn-
ingar um góðu frænk-
una í útlöndum sem
sendi svo oft bréf og
kort með útlendum
frímerkjum Eftir-
vænting jólanna í þá
daga hófst með pakka
frá Danmörku sem
innihélt dýrindis daga-
töl, sem ekki þekktust
á Íslandi þá. Dýrðar-
ljóminn hvarf ekki af
Löllu frænku við að
hún flytti til Íslands
eftir 40 ára dvöl í landi kóngsins,
þar sem allir ættingjar og vinir er
þangað lögðu leið sína áttu athvarf,
heldur kynntumst við betur mann-
kostum hennar, kraftinum, stjórn-
seminni, skipulagningunni, gjaf-
mildinni, ræktarseminni en umfram
allt umhyggjunni sem hún sýndi
öllum er hún þekkti.
Hinsta kveðja okkar er fátækleg
miðað við allar þær góðu minningar
sem hún skilur eftir. Guð styrki
alla þá sem elskuðu Löllu frænku.
Albína og Þórdís
Unndórsdætur.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
!
" # ! " #
$ % " #
&' ! (
(
)
&
)*&)
+ + !
"#$%&#
!""
' ( ( )***
+,* ( )***
* ( )*-
(. ( )*-
/,* (-
*0
00 - 000.
! ""# $
%
&' (
!!
)'
*
+
%
,,
'
* !"
#
$ !
# # !"
% & #'
( #
) # !"
# * # !"
+ # ,
- - .
! "
! # $ % &'
( ! "
) * ++
# ! "! $ %&' %!' '"!
(&)!* $ '"! %!'
+$ $ '"! ,-& '&! . "
!")!" $ "&!'- $ '"!
$+ /'&!0
við Nýbýlaveg, Kópavogi
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892
www.utfararstofa.is
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður, í samráði við aðstandendur
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Kistur
Krossar
Duftker
Gestabók
Legsteinar
Sálmaskrá
Blóm
Fáni
Erfidrykkja
Tilk. í fjölmiðla
Prestur
Kirkja
Kistulagning
Tónlistarfólk
Val á sálmum
Legstaður
Flutn. á kistu milli landa
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
! " "#$%#$&'!$#
!# #$ "#$%#$&&( )*
& +$$,
# ' "#$%#$&'!$# - # !. &&(
/ 0$ #$ #% #&&(
!1#
%$ "#$%#$&&(
# ! &'!$#
"#$%#$ 2 -&&(