Morgunblaðið - 17.06.2001, Síða 44
Höfnin verður við álverið, eins og sést á þessari mynd. Fyrirhugað byggingarsvæði er 5 km austan við Búðareyri.
!
FYRIRHUGUÐ höfn á Mjóeyri við
álverið í Reyðarfirði verður stærsta
höfn á Austurlandi og mun ellefu
hektara svæði fara undir hana.
Höfnin verður gerð í tveimur áföng-
um og verður viðlegukantur 380
metra langur eftir síðari áfanga, en
260 eftir þann fyrri. Skýrsla um mat
á umhverfisáhrifum hafnarinnar er
nú til athugunar hjá Skipulagsstofn-
un og hefur almenningur frest til 6.
júlí næstkomandi til að gera athuga-
semdir.
Hafnarsjóður Fjarðabyggðar hef-
ur umsjón með framkvæmdinni og
er heildarkostnaðurinn við fyrsta
áfanga talinn rúmur milljarður. Þar
af er hlutur ríkisins 450 milljónir
króna. Áætlað er að framkvæmdir
við höfnina hefjist árið 2003 og ljúki
síðla árs 2004. Ráðgert er að síðari
áfangi framkvæmda hefjist árið 2010
og að kostnaður við hann verði um
300 milljónir króna. Höfnin er hluti
af Noral-verkefninu sem felur í sér
vatnsaflsvirkjun við Kárahnjúka og
álver á Reyðarfirði.
Talið er að 225 þúsund fermetrar
af fylliefni verði notaðir við hafnar-
gerðina og segir í matsskýrslu að
mestur hluti þess falli til vegna
dýpkunarframkvæmda. Viðbótar-
efnisins sem upp á vantar, um 70
þúsund fermetra, er áætlað að afla
með dælingu úr sjó í næsta nágrenni
Mjóeyrar og úr áreyrum Sléttu sem
rennur í botni Reyðarfjarðar. Stórir
hnullungar í grjótvörn verða fengnir
með sprengingu klappar á iðnaðar-
lóðinni.
Núverandi dýpi við viðlegukant-
inn er frá 2 m upp í 14 m og verður
135 þúsund fermetrum af seti dælt
upp til að ná 14,3 m viðlegudýpi. Það
verður notað sem fylling baklands
hafnarsvæðisins.
Hætta á mengunarslysum eykst
Skipakomum um Reyðarfjörð
mun fjölga með tilkomu stóriðju sem
eykur hættu á mengunar- og sjóslys-
um í firðinum. Skip með súrálsfarm
verða með allt að 60 þúsund tonna
burðargetu og 230 metrar að lengd,
en einnig er gert ráð fyrir skipum
með 25–45 þúsund tonna burðar-
getu.
Í hættumati á siglingarleiðum eru
settar fram tillögur um hvernig megi
auka öryggi á siglingarleiðinni um
fjörðinn og mynni hans. Boðar og
sker verða staðsett nákvæmlega á
sjókorti sem gert verður af svæðinu.
Þá verður hafnarleiðsögn komið upp
og mun Hafnarsjóður Fjarðabyggð-
ar sem sér um rekstur hafnarinnar
koma sér upp dráttarbáti með 15–20
tonna togkrafti sem verður búinn
slökkvibúnaði.
Reyðarfjarðarhöfn er flokkuð sem
aðalhöfn vegna viðbragða við bráða-
mengun sjávar. Þar er því mengun-
arvarnarbúnaður og segir í mats-
skýrslunni að haft verði samráð við
Hollustuvernd ríkisins um hvaða
mengunarbúnaður verði í höfninni á
Mjóeyri þurfi þess við.
Reyðfirðingar verða
varir við hávaða
Í matsskýrslunni segir að hávaða-
stig vegna byggingar og reksturs
hafnarinnar verði innan viðmiðunar-
marka í byggðinni innar í firðinum.
Hávaði verður þó greinanlegur
handan fjarðar í stilltu veðri og sagði
Valgeir Kjartansson, verkfræðingur
hjá Hönnun hf., á kynningarfundi
um matsskýrsluna á Reyðarfirði að
íbúar í firðinum muni á kyrrlátum
kvöldum verða varir við fram-
kvæmdir við höfnina.
Umhverfisvöktun er fyrirhuguð
vegna þeirrar starfsemi sem mun
fara fram innan hafnarlóðarinnar.
Mælingar verða gerðar á þung-
málmum og lífrænum efnum sem
eru þrávirk. Þær verða gerðar bæði í
sjávarseti og í lífverum í nánasta ná-
grenni við höfnina.
Þá segir í skýrslunni að meginnið-
urstaða mats á umhverfisáhrifum
vegna byggingar og reksturs hafn-
arinnar sé að áhrif á lífríki séu ekki
mikil og að þau séu staðbundin við
það svæði sem fer undir fram-
kvæmdirnar. Þó fer einn af fjórum
fundarstöðum rauðþörungsins sjáv-
arkræðu á Austfjörðum, sem er
kuldafælinn þörungur, undir hafnar-
svæðið.
Í matsskýrslunni segir að hvorki
hafi fundist jarðfræðimyndanir né
plöntutegundir eða gróðursamfélög
sem beri að vernda. Tvennar forn-
minjar eru í hættu vegna fram-
kvæmdanna, þær verða huldar með
uppfyllingu og segir í matsskýrsl-
unni að reynt verði að raska þeim
ekki að öðru leyti.
Skýrsla um mat á umhverfisáhrifum vegna hafnargerðar í Reyðarfirði
Heildarkostnaður við hafn-
argerð um 1,3 milljarðar
FRÉTTIR
44 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TALIÐ er að allt að 20–30% fólks
þjáist reglulega af iðraólgu en það
er óróleiki í meltingarvegi sem get-
ur verið allt frá ógleði niður í
krampakennda verki með nið-
urgangi eða harðlífi. Sjúkdómurinn
er mun algengari hjá konum en
körlum, en 80% þeirra sem leita sér
lækninga vegna iðraólgu er konur.
Orsakir iðraólgu eru ekki kunnar að
fullu, en vitað er að streita, kvíði,
depurð og t.d. misnotkun í æsku hafi
áhrif þar á.
Erfitt hefur reynst að lækna þetta
ástand en iðraólga getur verið mjög
hvimleiður kvilli og haft mikil áhrif
á félagslíf og atvinnuþátttöku þeirra
sem eru hvað verst haldnir.
Dr. Michel Delvaux, meltingar-
sérfræðingur hjá Sjúkrahúsunum í
Toulouse í Frakklandi, hélt fyr-
irlestur um nýjungar í lyfjameðferð
við iðraólgu, á lokadegi þings nor-
rænna meltingarsérfræðinga sem
fram fór nýlega í Reykjavík. Í fyr-
irlestri sínum sagði Delvaux frá
fjölda lyfja sem hafa verið þróuð, en
ekki fengist skráð.
Delvaux segir mjög erfitt að finna
lækningu við sjúkdómnum þar sem
orsakir hans séu óljósar og erfitt
fyrir lækna að vita hvort lækn-
inguna sé að finna í heilanum eða
meltingarfærunum.
Hann segir að þunglyndislyf hafi
sýnt mikinn árangur en að margir
læknar séu tregir við
að vísa þeim á sjúk-
linga og að margir
sjúklingar vilji sömu-
leiðis ekki taka þau.
Hann segir að meðferð
hjá sálfræðingi geti
verið mjög árangursrík
hvað iðraólgu varðar
og að meiri áherslu
þurfi að leggja á sál-
ræna þáttinn sem og að
kenna sjúklingum að
lifa með iðraólgu og
hjálpa sér sjálfir.
Delvaux segir það
hafa sýnt sig að sjúk-
lingum, sem aðeins eru
gefin gervilyf sem viðmiðunarhópur
þegar ný lyf eru prófuð, fari mikið
fram einungis við það að hitta lækni
reglulega sem sýnir þeim umhyggju.
„Þetta getur valdið vandamálum
við að fá lyf skráð. Helmingur þeirra
sjúklinga, sem aðeins fá lyfleysu,
sýnir batamerki og áttum við von á
að þeim sjúklingum myndi hraka
smám saman aftur, meðan þeim sem
fengu lyfið myndi halda áfram að
líða betur. Það gerðist hins vegar
ekki og þó að sum lyfin hafi sýnt 15–
25% betri árangur en gervilyfin hef-
ur það ekki verið nóg fyrir lyfjaeft-
irlitið til að fá lyfin skráð,“ segir
Delvaux.
Hér á Íslandi eru tvö lyf á mark-
aðinum, fyrir utan
þunglyndislyf, sem
læknar geta gefið sjúk-
lingum með iðraólgu.
Þetta eru lyfin spasm-
erin og duspatalin, en
Delvaux segir að ekki
hafi verið sýnt vís-
indalega fram á að þau
geri gagn, þótt vitað sé
að þau hjálpi mörgum
sjúklingum og segist
Delvaux trúa því að
þau hjálpi. Hann segir
að eitt lyf sem hafi
fengist skráð, alosetr-
on, hafi reynst vel en
að það hafi verið tekið
af markaðinum eftir að sjúklingar
létust eftir notkun þess.
„Þarna var um að ræða læknamis-
tök. Læknarnir vísuðu lyfinu á
ranga sjúklinga en lyfið var aðeins
skráð fyrir konur með iðraólgu sem
hafa niðurgang.“ Delvaux segir að
20% sjúklinga með iðraólgu fái harð-
lífi og niðurgang til skiptis og að
sumir slíkir sjúklingar hafi fengið
lyfið, sem hafi leitt til alvarlegs
harðlífis. Skera þurfti upp nokkra
sjúklinga í kjölfarið og létust þrír
þeirra. Lyfinu var alls vísað 500 þús-
und sinnum á 350 þúsund sjúklinga.
„Iðraólga er ekki lífshættulegt
ástand og verða því allar tilraunir að
vera öruggar og sýna árangur.
Hefði lyfinu aðeins verið vísað á þá
sjúklinga, sem það var ætlað, hefði
þetta aldri gerst,“ segir Delvaux.
Hann segist bjartsýnn um að á
næstu árum eigi eftir að koma fram
lyf sem geti hjálpað sjúklingum með
iðraólgu. „Við höfum lært mikið á
síðustu árum og sjáum fram á nýjar
leiðir fyrir framtíðarrannsóknir. Við
höfum ekki lagt árar í bát þrátt fyrir
allt, það er verið að rannsaka lyf
sem verða tilbúin til prófunar eftir
nokkur ár og reynast þau vonandi
betur,“ sagði hann.
Kjartan Örvar, sérfræðingur í
meltingarsjúkdómum, segir að
rannsókn sem gerð var á Íslandi
staðfesti háa tíðni iðraólgu hér á
landi. Hann segir allt benda til þess
að sjúkdómurinn hafi svipaða út-
breiðslu hér og á öðrum Vestur-
löndum. Kjartan segir að langflestir
sjúklingar geti lifað með sjúkdóm-
inum og leitt hann hjá sér. Viss hóp-
ur hafi þó svo slæm einkenni að þeir
þurfi mikillar athygli við vegna
verkja, en hefðbundin verkjalyf
gagnast þessum sjúklingum illa.
Segir hann að þeir eigi alls ekki að
nota þau vegna hættu á að þeir verði
háðir lyfjunum.
Fjarvistir frá vinnu eru, að sögn
Kjartans, mjög óreglubundnar og
oft stuttan tíma í einu. Hann segir þó
að yfir árið geti þetta verið mjög
margir veikindadagar.
Franskur læknir á þingi norrænna meltingarsérfræðinga í Reykjavík
Erfitt hefur reynst
að finna lyf við iðraólgu
Dr. Michel Delvaux
Dæmdar
bætur fyrir
ólögmæta
frelsissvipt-
ingu
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt fyr-
irtæki og íslenska ríkið til að
greiða manni 150.000 króna bætur
og 250.000 krónur í málskostnað í
héraði og fyrir Hæstarétti vegna
ólögmætrar frelsissviptingar í
tengslum við ólögmæta endurupp-
töku fjárnáms sem gert hafði verið
í eignum hans.
Að boði sýslumannsins í Hafn-
arfirði var maðurinn sviptur frelsi í
rúman sólarhring í tengslum við
endurupptöku fjárnámsins. Um-
rætt fyrirtæki hafði krafist endur-
upptökunnar án þess að í beiðninni
kæmi fram í hvaða tilgangi hún
skyldi fara fram. Hæstiréttur telur
að ekki hafi verið fyrir hendi skil-
yrði til að verða við beiðninni og að
sýslumanni hafi borið að hafna
henni þegar í stað af sjálfsdáðum.
Því hefði gerðin verið endurupp-
tekin án heimildar í lögum.
Þá hefði lengd frelsissviptingar-
innar verið úr hófi og af gögnum
málsins yrði ekki annað ráðið en að
varðhaldstíminn hafi ekki verið
nýttur nema að litlu leyti til að afla
upplýsinga um eignir mannsins.
Þótti Hæstarétti fyrirtækið og
sýslumaður hafa sýnt af sér gá-
leysi, sem meta yrði þeim til sakar.
Þar sem lagastoð hafi brostið fyrir
endurupptökunni var fallist á að
frelsissvipting mannsins hafi verið
ólögmæt og að hann ætti rétt til
bóta af þeim sökum. Maðurinn
krafðist 1,5 milljóna í bætur en var
dæmd tíund þess eða 150.000 krón-
ur.
Varað við
erlendum
farand-
sölu-
mönnum
ERLENDIR farandsölumenn
hafa síðustu daga falboðið
búsáhöld, m.a. pottasett sem
seld eru á miklu hærra verði
en í verslunum hér á landi.
Mennirnir munu jafnvel hafa
farið fram á um 100.000 krón-
ur fyrir 5-6 potta.
Samtök verslunarinnar
sendu í gær frá sér frétta-
tilkynningu þar sem varað er
við mönnunum. Líkur bendi til
að þeir hafi ekki leyfi til að
stunda þennan rekstur og
dregið er í efa að þeir greiði
tilskilin opinber gjöld. Allt
bendi því til að hér sé um
ólöglega starfsemi að ræða. Í
fréttatilkynningunni er enn-
fremur minnt á að skilafrestur
á þessum vörum er ekki virtur
en samkvæmt lögum um hús-
göngusölu er skilafrestur 14
dagar.
Stefán G. Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka versl-
unarinnar sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hann
hefði frétt af mönnunum á höf-
uðborgarsvæðinu og á Ísafirði
og Akureyri. Svipað mál hefði
komið upp fyrir nokkrum ár-
um en þá hefðu tyrkneskir
teppakaupmenn verið á ferð-
inni.
Hjá lögreglunni í Kópavogi
fengust þær upplýsingar í gær
að nokkrar kvartanir hefðu
borist vegna mannanna. Engin
formleg kæra hefði þó verið
lögð fram.