Morgunblaðið - 17.06.2001, Síða 46
FRÉTTIR
46 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Um er að ræða fallega 5
herbergja íbúð á 3ju hæð
efstu ásamt bílskúr. Parket
og flísar á gólfum. fallegar
innréttingar. Fallegt útsýni.
Suðursvalir. Áhv. 6,5 millj
húsbréf. Verð 12, 7 millj.
SPÓAHÓLAR 2 REYKJAVÍK
OPIÐ HÚS Í DAG SUNNUDAG MILLI KL. 14 OG 17.
ÍBÚÐIN ER LAUS STRAX..
Skeifan fasteignamiðlun,
Suðurlandsbraut 46, sími 568 5556
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Land, tvíbýli og vélageymsla
Vorum að fá í einkasölu Þrándarlund í
Gnúpverjahreppi á bökkum Þjórsár
(u.þ.b. klst.akstur frá Reykjavík). Um
er að ræða u.þ.b. 8 ha lands, gott 220
fm íbúðarhús (möguleiki á tveimur
íbúðum) og 100 fm vélageymslu/verk-
stæði með stórum innkeyrsludyrum.
Hitaveita, glæsilegur garður, heitur
pottur o.m.fl. Einstakt tækifæri fyrir
hvers kyns athafnafólk! Áhv. 6 millj.
hagst. lán. V. 15,9 m. 3055
Vogar Vatnsleysuströnd -
einbýli Mjög fallegt einbýlishús í
Vogunum. Húsið er 136 fm auk 46 fm
bílskúrs. Fjögur svefnherb. Flísalagt
baðh., stórt eldhús með eikarinnrétt-
ingum og góðu skápaplássi. Þvottahús
með bakútgangi. Sólarverönd. Til
greina koma skipti á eign í Kópavogi
eða Hafnarfirði. 2985
BORGIR
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
F A S T E I G N A S A L A
OPIÐ HÚS Í DAG, 17. JÚNI, FRÁ KL. 17-19
SÓLVALLAGATA 39
- VESTURBÆ
Rúmgóð 110,5 fm íbúð á jarð-
hæð með suðurverönd. 3 góð
svefnherbergi með eikarparketi,
stofa og hol með gegnheilu
kirsuberjaparketi. V. 12,9 m.
4272
TIL LEIGU Í SKÚTUVOGI 2
Í GLÆSILEGRI NÝBYGGINGU UM 1800 FM VERSLUNARHÚSNÆÐI
Á JARÐHÆÐ OG 1800 FM SKRIFSTOFU- EÐA VERSLUNARHÚSNÆÐI Á 2. HÆÐ.
EINNIG UM 1000 FM VERSLUNARHÚSNÆÐI Á JARÐHÆÐ Í
ELDRI HLUTA HÚSSINS. HÚSIÐ ER FJÖLNOTAHÚS OG BÝÐUR
UPP Á MIKLA NÝTINGARMÖGULEIKA.
NÆG BÍLASTÆÐI. TIL AFHENDINGAR STRAX.
ALLAR FREKARI UPPL. VEITIR ÁSBYRGI FASTEIGNASALA.
Suðurlandsbraut 54
við Faxafen, 108 Reykjavík, sími 568 2444, fax 568 2446.
Sumarbústaður í Þrastarskógi
Til sölu fallegur 50 fm sumarbústaður, með um
15 fm svefnlofti, á gróinni og trjávaxinni
eignarlóð í Kringlumýri 17, (Skjól), í Norður-
kotslandi í Þrastarskógi.
Í bústaðnum eru auk svefnloftsins forstofa, 2
svefnherb., snyrting og rúmgott samveru-rými.
Þar er eldhús, borð- og setustofa. Verönd er
umhverfis allan bústaðinn og leiktæki á lóð.
Um er að ræða heilsársbústað, sem byggður
var ‘81-’82, með rafmagni og köldu vatni. Lagt
hefur verið fyrir heitu vatni innanhúss og í
bústaðnum er ofnalögn með rafhitun og er
bústaðurinn tilbúinn til að taka inn hitaveitu
sem væntanleg er síðar á árinu.
Ásett verð er 6,2 m. kr. Eigendur verða á staðnum í dag, 17. júní, frá kl. 13-17.
Upplýsingar í s. 421 2887 og 892 7901.
BRAUTSKRÁNING nemenda frá
Tækniskóla Íslands fór fram laug-
ardaginn 2. júní síðastliðinn. Alls
útskrifuðust 38 nemendur og fór at-
höfnin fram í Árbæjarkirkju.
Átján nemendur úr frum-
greinadeild luku raungreinadeild-
arprófi en það jafngildir stúdents-
prófi af raungreinasviði.
Frumgreinadeild gefur iðn-
aðarmönnum og öðrum sem hafa
reynslu úr atvinnulífinu tækifæri til
þess að setjast aftur á skólabekk og
öðlast réttindi er opna allmargar
leiðir til frekara náms á há-
skólastigi.
Þrír byggingatæknifræðingar út-
skrifuðust frá byggingadeild að
þessu sinni en það er sjö anna nám
og veitir B.Sc.-gráðu. Þá luku fjórir
nemendur fyrsta hluta rafmagns-
tæknifræðináms en þeir þurfa að
leita út fyrir landsteinana til þess að
ljúka námi sínu.
Alls útskrifuðust þrettán nem-
endur úr rekstrardeild skólans. Út-
skrifaðir voru fimm iðnrekstr-
arfræðingar en það er tveggja ára
diploma-nám, ýmist með sérhæf-
ingu á sviði markaðs eða reksturs.
Þá lauk einn nemandi B.Sc.-gráðu í
alþjóðamarkaðsfræði en það er árs
viðbótarnám eftir iðnrekstrarfræði.
Loks útskrifuðust sjö vörustjórn-
unarfræðingar með B.Sc.-gráðu en
það er einnig eins árs viðbótarnám
eftir iðnrekstrarfræðipróf.
Þegar deildarstjórar höfðu af-
hent nemendum prófskírteini sín
tók við tónlistaratriði tveggja nem-
enda við Tónlistarskóla Reykjavík-
ur. Margrét Sigurðardóttir söng
þrjú lög við undirleik Víkings Heið-
ars Ólafssonar píanóleikara.
Nánast helmingur
með viðurkenningar
Sautján útskriftarnemendur, eða
næstum helmingur hópsins, hlutu
viðurkenningar frá Tækniskóla Ís-
lands fyrir þátttöku sína í kynning-
armálum skólans, jafnt innan skól-
ans sem utan.
Í lok athafnarinnar flutti rektor
Tækniskóla Íslands, Guðbrandur
Steinþórsson, ávarp. Þar kom með-
al annars fram að hann vonast til
þess að Tækniskólinn hafi veitt út-
skriftarnemunum nauðsynlegan
grunn til að byggja framtíð-
ardrauma sína og markmið á, hvort
heldur sem er til frekara náms eða
starfa í atvinnulífinu.
Mynd/Jóhannes Long
Brautskráning Tækniskóla Íslands
FIMMTÁN aðilar fengu styrki úr
Þjóðhátíðarsjóði en þeim var nýlega
úthlutað fyrir árið 2001 í 24. sinn. 2,2
milljónum króna var úthlutað en alls
bárust 91 umsókn að fjárhæð um 71,1
milljón króna.
Tilgangur sjóðsins er að veita
styrki til stofnana og annarra aðila, er
hafa það verkefni að vinna að varð-
veislu og vernd þeirra verðmæta
lands og menningar, sem núverandi
kynslóð hefur tekið í arf, segir í
fréttatilkynningu frá Þjóðhátíðar-
sjóði.
Þeir aðilar sem hlutu 200.000 króna
styrk voru: Félag um þjóðlagasetur
sr. Bjarna Þorsteinssonar, til að gera
umbætur á þjóðlagasetrinu á Siglu-
firði, Kaupfélag Hrútfirðinga, til
framhalds á endurbyggingu Rishúss
á Borðeyri, Héraðsskjalasafnið Ísa-
firði til kaupa á filmuskanna fyrir lit-
filmur frá 6. og 7. áratugnum, Hið ís-
lenska bókmenntafélag til að skrá
fyrir Annála 1400–1800, og Land-
vernd til merkingar staða í Árnes-
hreppi sem hafa sögulegt gildi eða eru
merkar náttúruminjar.
Örnefnastofnun Íslands hlaut
160.000 króna styrk til vinnu við gerð
örnefnakorta yfir Skeiðahrepp í Ár-
nessýslu og minjavörður Austurlands
hlaut 140.000 króna styrk til að end-
ursmíða kross í Njarðvíkurskriðum
milli Njarðvíkur og Borgarfjarðar
eystri. 150.000 króna styrk hlutu síð-
an Þjóðminjasafn Íslands, mynddeild,
til vinnu sérmenntaðra pappírsfor-
varða til viðhlítandi frágangs ljós-
myndasyrpna frá 19. öld, og Skútu-
staðahreppur til lagfæringa á
Dimmuborgum m.a. með gerð göngu-
stíga og merkingu leiða.
100.000 kr. styrk hlutu Listasafn
Íslands til kaupa á skimunarbúnaði til
rannsókna á málverkum m.a. vegna
forvörslu og viðgerða, Landsbókasafn
Íslands til viðgerðar á handriti ÍB 70
4to, kvæðabókar ritaðrar árið 1693,
Finnur Sigfús Illugason til að halda
áfram ítarlegri söfnun heimilda um
örnefni í Skútustaðahreppi, Fugla-
verndunarfélag Íslands til verndunar
íslenska arnarins, Búðarhreppur til
að lagfæra aðkomu að franska graf-
reitnum á Fáskrúðsfirði og Engi-
hlíðahreppur til merkingar eyðibýla á
Laxárdal A-Húnavatnssýslu.
Í stjórn sjóðsins eru Hulda Valtýs-
dóttir blaðamaður, Birgir Ísl. Gunn-
arsson seðlabankastjóri, Jónína
Mikaelsdóttir rithöfundur, Hulda
Kristinsdóttir kjólameistari og Björn
Teitsson skólameistari. Ritari sjóðs-
stjórnar er Sveinbjörn Hafliðason
lögfræðingur.
24. úthlutun styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði
Fimmtán fengu 2,2 milljónir