Morgunblaðið - 17.06.2001, Qupperneq 49
ÞJÓNUSTA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 49
FRANSMENN Á ÍSLANDI: Safn á Fáskrúðsfirði um veru
franskra sjómanna á Íslandi. Opið daglega í sumar kl.
10.30-17. Sími 475 1525 og 864 2728. Netfang: alber-
te@islandia.is
FRÆÐASETRIÐ Í SANDGERÐI, Garðvegi 1, Sandgerði,
s. 423 7551, bréfs. 423 7809. Opið alla daga kl. 13–17 og
eftir samkomulagi.
GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík er opið alla daga í sumar
frá kl. 9–19.
GOETHE-ZENTRUM: Laugavegur 18, 3. hæð, Reykjavík.
Opið þri. og mið. kl. 15–19, fim., fös. og lau. kl. 15–18. S.
551 6061. Fax: 552 7570. Sumarleyfi er frá 11. júní til 13.
ágúst.
HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnarfjarð-
ar opin alla daga nema þri. frá kl. 11–17.
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKA-
SAFN: Frá 21.5. til 19.8. er opið sem hér segir: mán.–fös.
kl. 9–17, lau. 10–14. Sun. lokað. Þjóðdeild og handrita-
deild lokaðar á laugard. S: 525 5600, bréfs: 525 5615.
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi:
Opið eftir samkomulagi. S. 482 2703.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Opið alla daga nema
mánudaga, kl. 14-17. Inngangur frá Eiríksgötu og
Freyjugötu. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu er
alltaf opinn.
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11–17, lokað
mán. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiðsögn:
Opið alla virka daga kl. 8–16. Bókasafn: Opið þri.–fös. kl.
13–16. Aðgangur er ókeypis á mið. Uppl. um dagskrá á
internetinu: http//www.natgall.is
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
THE REYKJAVÍK ART MUSEUM
Lisatsafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Flókagötu – 105
ReykjavíkSími/Tel: (354) 552 6131 Fax: (354) 562 6191
Netfang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:lista-
safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið
fimmtudaga–þriðjudaga 10–17 miðvikudaga 10–19
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið Tryggvagötu 17 –
101 Reykjavík Sími/Tel: 511 5155 Fax: 562 6191 Net-
fang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið föstu-
daga–miðvikudaga 11–18 Fimmtudaga 11–19
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105
Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: lista-
safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið maí–
september kl. 10–16 alla daga október–apríl kl. 13–16
alla daga
LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið dag-
lega kl. 12–17 nema mán.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið
alla daga nema mánudag kl. 14-17. Upplýsingar í s.
553 2906.
LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn alla
mið. kl. 12-18.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús,
Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax:
563 1799. reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán._föst.
kl. 10-16.
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safnið
er opið á sun., þri., fim og laug. kl. 13-17.
MENNINGAMIÐSTÖÐIN GERÐUBERG: Sýningatími í
sumar er kl. 12-19 virka daga. Lokað um helgar. Sími
575-7700.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri, Að-
alstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið alla daga frá 1.
júní til 15. sept. kl. 11-17.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskóg-
um 1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl. 11–17
til 1. september. Alla sun. frá kl. 14–17 má reyna sig við
gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borg-
ara. Safnbúð með minjagripum og handverksmunum.
Kaffi, kandís og kleinur. S. 471 1412, netfang minaus-
t@eldhorn.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/
Elliðaár. Opið á sun. kl. 15–17 og eftir samkomulagi. S.
567 9009.
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar
frá kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s.
422 7253.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið
frá 1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S.
462 3550 og 897 0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á öðrum
tíma eftir samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi
12. Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu
116 eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16.
NESSTOFUSAFN. Opið laugardaga , sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga frá kl. 13-17.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17.
Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán.
Kaffistofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17.
Skrifstofan opin mán.–föst. kl. 9–16. Sími 551–7030, bré-
fas: 552 6476. Tölvupóstur: nh@nordice.is – heimasíða:
hhtp://www.nordice.is.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafn-
arfirði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og sun.
til ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið alla daga frá kl. 13-17 fram til 30. september. Sími
sýningar 565 4242. Skrifstofa, Lyngási
7, 210 Garðabær, sími 530 2200. Netfang: sjominjasafn-
@natmus.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S.
581 4677.
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv.
samkl. Uppl. í s: 483 1165, 483 1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–18.
S. 435 1490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suður-
götu. Handritasýning opin:1. júní - 25. ágúst mánudaga -
laugardaga kl. 11.00 - 16.00
STEINARÍKI ÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl.
13–18 nema mán. S. 431 5566.
SVEINSHÚS, KRÍSUVÍK: Opið fyrsta sunnudag í mánuði
frá 3. júní til 2. sept. frá kl. 13-17. Áhugasamir geta pant-
að leiðsögn fyrir hópa á öðrum tímum. Uppl. í símum
861-0562 og 866-3456.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu
lokaðar vegna endurbóta á húsnæði.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýning-
ar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla daga
frá kl. 11–17. Sími 545 1400.
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl. 10–
19. Lau. 10–15.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14–
18. Lokað mán.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1. júní
– 1. sept. Uppl. í s. 462 3555.
NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum-
ar frá kl. 11–17.
ORÐ DAGSINS
Reykjavík s. 551 0000.
Akureyri s. 462 1840.
HUGVEKJA
Á EYÐISANDI við opið haf
stendur lítil kirkja. Hún hefur
staðið þarna – á brimströnd út-
hafsins – í þúsund ár. Ekki sama
kirkjan, því kirkjuviðir fúnuðu í
tímans rás. En sama kirkjan samt
sem áður, byggð aftur og aftur á
sama bjargi trúarinnar.
Lítil sandvík milli sjávarklappa
skammt frá kirkjunni heitir Eng-
ilsvík. Til er forn helgisögn um
heiti víkurinnar. Reyndar eru
sagnirnar fleiri, en allar svipað
efnis. Fyrir langalöngu, þegar
skrautbúin skip flutu fyrir landi,
sigldi ungur maður til Noregs til
að sækja húsavið. Hann lendir í
hafvillu – sjávarháska. Heitir hann
þá að gefa við sinn til kirkjubygg-
ingar þar sem hann ber að landi
heilu að höldnu. Birtist honum þá
sýn. Fyrir stefni skipsins sést ljós-
engill. Sjófarandinn siglir eftir sýn
sinni um bugðótt sund milli boða-
skerja. Þar skammt fyrir ofan var
hin fyrsta Strandarkirkja reist.
Við núverandi Strandarkirku er
fagurt listaverk eftir Gunnfríði
Jónsdóttur til minningar um
kraftaverkið við Engilsvík.
Jón Hnefill Aðalsteinsson, pró-
fessor, segir í bók sinni, „Strand-
arkirkja – helgistaður við haf“
(Háskólaútgáfan 1993): „Saga
Strandarkirkju og áheita á hana
er snar þáttur í sögu íslenzkrar
menningar. Þar mætast kirkjan
og þjóðin og eiga margvísleg, lær-
dómsrík samskipti. Tekist er á um
trú og helgi, kenningu og opinber-
un, kirkjuskipan og kraftaverk.
Um er að ræða átök og ágreining
sem snertir kviku mannlífs og
trúarlífs.“ Þetta er lítil bók barma-
full af forvitnilegri fræðslu.
Í bók Jóns Hnefils segir m.a.:
„Kirkju á Strönd er fyrst getið í
kirknatali Páls biskups Jónssonar
frá því um 1200 eins og áður sagði.
Heimildir eru fyrir því að kirkjan
á Strönd, sem var aðalkirkja Sel-
vogsþinga, hafi verið helguð Mar-
íu og Tómasi erkibiskupi“. Höf-
undur færir fyrir því sterkar líkur,
að ekki sé fastar að orði kveðið, að
kirkjan á Strönd hafi risið á 11.
eða 12. öld.
Á seinni öldum er Strand-
arkirkja fyrst og fremst þekkt
sem kirkja góð til áheita. Jón
Hnefill segir: „Sú trú hefur verið
við lýði í rúmar tvær aldir að
Strandarkirkja yrði vel við áheit-
um og einnig að það væri hið
mesta happaverk að víkja góðu að
henni. Talið var að þeir sem slíkt
gerðu yrðu einstakir lánsmenn.
Sagnir um einstök áheit svo
nokkru nemi verða þó ekki raktar
lengra aftur en til síðari hluta 18.
aldar…“.
Stöldrum við brotabrot úr máli
tveggja biskupa um Strandar-
kirku:
Pétur biskup Sigurgeirsson
segir: „Strandarkirkja er með
áheitum sínum, sögu og uppruna
meðal merkustu mustera þessa
lands… Að sönnu er fyrirheitið
um bænheyrslu Guðs óháð hvers
konar heitfé. Eðli kærleika Guðs
er að gefa án þess að vænta endur-
gjalds. Það kann því að orka tví-
mælis kenningarlega séð, hvort
áheit eigi heima í lútersku kirkj-
unni. En þá er þess að geta, að
kærleikur Guðs í manninum er
sama eðlis… Ég held að margir
séu mér sammála, er ég lýsi þeirri
skoðun minni, að íslenzka kirkjan
væri fátæklegri og svipminni, ef
ekki nyti þeirra trúaráhrifa og
þess helgiljóma, sem stafar frá
litlu, látlausu kirkjunni á örfoka
ströndinni, þar sem úthafsaldan
brotnar sem fyrr við fjöruborðið í
Engilsvík.“
Sigurbjörn biskup Einarsson
segir: „Hér á Strönd eignaðist
Kristur helgidóm, sem stóð á
sama vígða grunni meðan aldir
féllu á aldir ofan eins og öldurnar
rísa og brotna við skerin hér fyrir
utan. Allt var í heiminum hverfult,
en kirkjan stóð, það reis alltaf önn-
ur á grunni þeirrar, sem úr sér
gekk og ofan var tekin…Strand-
arkirkja hefur verið áheitabarn
allrar þjóðarinnar og nálega allir
söfnuðir landsins hafa notið þess,
að hennar er minnst í bænarhug,
þegar Drottinn er beðinn
ásjár…Þetta er Strandarkirkjan
gamla fyrst og fremst í þeirri
merkingu, að hún er enn í sínum
nýja búningi þakkargjörð nýrrar
kynslóðar og reist til vegsemdar
þeim Drottni, sem er líkn vor allra
og lífgjöf…“.
Þjóðkirkjunni má gjarnan líkja
við Strandarkirkju. Lítil kirkja á
ströndu alheimsins. Drottni vígð.
Leiðarljós gegn um brim og boða
mannlífsins. Það er þessi kirkja,
kirkjan okkar, sem Davíð skáld
frá Fagraskógi hefur í huga í
þjóðhátíðarljóði á Þingvöllum árið
1930: „Í þúsund ár bjó þjóð við
nyrstu voga. – Mót þrautum sín-
um gekk hún, djörf og sterk. – Í
hennar kirkju helgar stjörnur
loga, – og hennar líf er eilíft
kraftaverk!“
Gleðilega þjóðhátíð!
Morgunblaðið/Ingibjörg
Strandarkirkja í Selvogi.
Strandarkirkja
og Engilsvík
Vert er að minnast sterkra og marg-
þættra tengsla kirkju og þjóðar á
þjóðhátíðardegi. Stefán Friðbjarnarson
staldrar við sérstæðan þátt í þessum
tengslum, Engilsvík og Strandarkirkju.
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Ólöf Erla Hauksdóttir 435 0095
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669
Búðardalur Víðir Kári Kristjánsson 434 1148
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Ingibjörg Ólafsdóttir 478 8962
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Björn Ingólfsson 463 3131 463 3118
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343
Hólmavík Jón Ragnar Gunnarsson 451 3333
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Stella Steingrímsdóttir 451 2618 894 8469
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Bára Sólmundsdóttir 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786
Innri-Njarðvík Arnheiður Guðlaugsdóttir 421 5135 862 0375
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Jónína M. Sveinbjarnardóttir 566 6082 868 7654
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913
Laugarvatn Ólöf Þórhallsdóttir 486 1136 862 1924
Mos./ Teigahv. Jóna M. Guðmundsdóttir 566 6400
Neskaupstaður Sigrún Júlía Geirsdóttir 477 1812 477 1234
Neskaupstaður Sveinbjörg Guðjónsdóttir 477 1841 896 0326
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962
Neskaupstaður Bjarney Ríkharðsdóttir 477 1687
Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Stefanía Jónsdóttir 465 1179
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/868 0920/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123
Sandgerði Jóhanna Konráðsdóttir 423 7708
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey Jónsdóttir 452 2879 868 2815
Stokkseyri Halldór Ásgeirsson 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Gunnhildur Eik Svavarsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Jón Einarsson 456 2567
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281
Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
Lágmúla 7, sími 55 12345
Til sölu verslunin
Fjarðarsport í versl-
unarmiðstöðinni
Firðinum.
Stöðug og góð
velta.
Upplýsingar hjá
Stóreign í síma
55 12345.
TIL SÖLU