Morgunblaðið - 17.06.2001, Blaðsíða 52
DAGBÓK
52 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Brú-
arfoss kemur í dag.
Kommandor Amalie fer
í dag. Brúarfoss fer á
morgun. Helgafell,
Dettifoss og Lindholm
koma á morgun.
Hafnarfjarðarhöfn:
Ostankino og Oryik
koma í dag. Brúarfoss
kemur á morgun.
Mannamót
Norðurbrún, Furugerði
og Hæðargarður.
Fimmtudaginn 21. júní
verður farið að Ljósa-
fossvirkjun, lagt af stað
frá Norðurbrún kl.
12.30, síðan verða far-
þegar teknir upp í
Furugerði og Hæð-
argarði, ekið verður um
Mosfellsheiði og Þing
velli að virkjuninni þar
sem skoðaðir verða m.a.
munir í eigu Þjóð minja-
safns Íslands. Ekið
verður til baka um
Þrengslin. Farþegar
taki með sér nesti og
hlýjan fatnað. Skráning
í Norðurbrún, s.
5686960, Furgerði, s.
5536040, og Hæð-
argarði, s. 568 3132.
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl. 8.45 leikfimi, kl.
10 boccia, kl. 14 félags-
vist, kl. 12.30 baðþjón-
usta.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9–12 opin handa-
vinnustofan, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia,
kl. 13.30–16.30 opin
smíðastofan/útskurður,
kl. 13.30 félagsvist, kl.
10–16 púttvöllurinn op-
inn.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 almenn
handavinna, kl. 9.30–11
morgunkaffi/dagblöð,
kl. 10 samverustund, kl.
11.15 matur, kl. 15 kaffi.
Farið verður norður
Kjöl, fimmtudaginn 21.
júní kl. 8. Þingeyr-
arkirkja í A-Hún. skoð-
uð. Kvöldverður í
Hreðavatnsskála. Nesti
og góður klæðnaður.
Upplýsingar og skrán-
ing í síma 568-5052 fyrir
þriðjudaginn 19. júní.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan á Gullsmára
9 er opin á morgun kl.
16.30–18, s. 554 1226.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Á morgun
kl. 8 böðun, kl. 9 fótaað-
gerð, kl. 9.30 hjúkr-
unarfræðingur á staðn-
um, kl. 10 verslunin
opin, kl. 11.20 leikfimi,
kl. 11.30 matur, kl. 13
handavinna og föndur,
kl. 15 kaffiveitingar.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félag eldri borgara í
Garðabæ. Þjónustubók
2001–2002 er komin, og
geta félagar nálgast
hana á skrifstofu félags-
ins í Kirkjuhvoli. Skrif-
stofan er opin þriðju-
daga og fimmtudaga frá
kl 10.30 til 11.30, en
verður lokuð í júlí.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Á
morgun mánudag verð-
ur félagsvist kl 13.30.
Púttæfingar á Hrafn-
istuvelli á þriðjudögum
kl. 14 til 16. Þriggja
daga ferð til Horna-
fjarðar 3. júlí til 5. júlí.
Nokkrir miðar lausir.
Haustferðin 1. okt. nk.
til Prag, Búdapest og
Vínar, kynning verður
miðvikudaginn 27. júní
nk. kl. 14. Orlofið í Hót-
el Reykholti í Borg-
arfirði 26.–31. ágúst nk.
Skráning og allar upp-
lýsingar í Hraunseli,
sími 555-0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10 til 13. Matur í hádeg-
inu. Sunnudagur:
Félagsvist fellur niður.
Dansleikur kl. 20.
Caprí-tríó leikur fyrir
dansi. Mánudagur:
Brids kl. 13. Dans-
kennsla Sigvalda kl. 19
fyrir framhald og byrj-
endur kl. 20.30. Dags-
ferð 18. júní. Söguferð í
Dali, skoðaðir verða Ei-
ríksstaðir, Höskulds-
staðir í Laxárdal,
Hjarðarholt, Búð-
ardalur, Krosshólar og
landnámsbærinn
Hvammur. Brottför frá
Glæsibæ kl. 9. Leið-
sögumaður er Sigurður
Kristinsson. Dagsferð
10. júlí Þórsmörk –
Langidalur. Leiðsögn
Þórunn Lárusdóttir og
Pálína Jónsdóttir. Eyja-
fjörður – Skagafjörður –
Þingeyjarsýslur, 6 dag-
ar. 26.-31. júlí. Ekið
norður Sprengisand til
Akureyrar. Farið um
Eyjafjarðardali, Svarf-
aðardal, Hrísey,
Svalbarðsströnd o.fl.
Ekið suður Kjalveg um
Hveravelli til Reykja-
víkur. Leiðsögn Þórunn
Lárusdóttir. Eigum
nokkur sæti laus. Ath:
Vegna mikillar aðsókn-
ar í hringferð um Norð-
austurland viljum við
biðja þá sem eiga pant-
að að koma og greiða
inn á ferðina sem fyrst.
Silfurlínan er opin á
mánu- og mið-
vikudögum frá kl. 10 til
12 fh. í síma 588-2111.
Upplýsingar á skrif-
stofu FEB kl. 10 til 16 í
síma 588-2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Á morgun kl. 9-16.30
vinnustofur opnar frá
hádegi, spilasalur opinn,
kl. 15.30 almennur dans
hjá Sigvalda. Allir vel-
komnir, ekkert skrán-
ingargjald. Veitingar í
kaffihúsi Gerðubergs.
Fimmtudaginn 21. júní
er Jónsmessufagnaður í
Skíðaskálanum í Hvera-
dölum, m.a. ekið um
Heiðmörk o.fl., veglegt
kaffihlaðborð að hætti
hússins. Söngur og dans
undir stjórn Ólafs B.
Ólafssonar harmoniku-
leikara. Miðvikudaginn
27. júní ferðalag í Húna-
þing vestra m.a. staldr-
að við í Víðigerði, ekinn
Vatnsneshringurinn.
Kaffiveitingar á
Hvammstanga með
eldri borgurum. Allir
velkomnir. Uppl. og
skráning 575-7720.
Félagsstarf aldraðra,
Háteigskirkju. Spilað í
Setrinu mánudaga kl.
13–15, kaffi. Miðviku-
dagar kl. 11–16 bæna-
stund, súpa í hádeginu,
spilað frá kl. 13–15,
kaffi.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Á morgun kl.
9–16.30 opin vinnustofa,
handavinna og föndur,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 14
félagsvist.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun er handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum frá
kl. 9–17.
Hraunbær 105. Á morg-
un kl. 9 perlusaumur og
kortagerð, kl. 10 bæna-
stund, kl. 13 hár-
greiðsla, kl. 13.30 til
14.30 gönguferð.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 böðun,
fótaaðgerðir, kl. 10
boccia, kl. 13 spilað.
Norðurbrún 1. Á morg-
un verður fótaaðgerða-
stofan opin kl. 9–14,
bókasafnið opið kl. 12–
15, ganga kl. 10.
Vesturgata 7. Á morg-
un kl. 9 dagblöð og kaffi,
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15 almenn
handavinna, kl. 10- 11
ganga Halldóra og Sig-
valdi , kl. 11.45 matur,
kl. 12.15-13.15 dans, kl.
13.30- 14.30 dans kl.
14.30 kaffi.
Vitatorg. Á morgun kl.
9 smiðjan og hár-
greiðsla, kl. 9.30 bók-
band, morgunstund og
almenn handmennt, kl.
10 fótaaðgerðir, kl.
11.45 matur, kl. 13 leik-
fimi og frjáls spil, kl.
14.30 kaffi.
Tómstundastarf eldri
borgara í Reykjanesbæ,
fer sína árlegu sum-
arferð miðvikudaginn
20. júní. Fyrir valinu í
ár var ferð að Sól-
heimum í Grímsnesi.
Lagt verður af stað kl
13 frá SBK. og komið
við í Hvammi og Selinu.
Þeir sem hafa áhuga á
að fara með í þessa ferð,
láti skrá sig í síma 861-
2085 eða 421-4322.
GA-fundir spilafíkla
eru kl. 18.15 á mánudög-
um í Seltjarnar-
neskirkju (kjallara), kl.
20.30 á fimmtudögum í
fræðsludeild SÁÁ, Síðu-
múla 3-5 og í Kirkju
Óháða safnaðarins við
Háteigsveg á laug-
ardögum kl. 10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis eru
með fundi alla mánu-
daga kl. 20 á Sól-
vallagötu 12, Reykjavík.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Brúðubílinn
Brúðubíllinn verður á
morgun kl. 10 við Ljós-
heima.
Í dag er sunnudagur 17. júní, 168.
dagur ársins 2001. Lýðveldisdag-
urinn. Bótólfsmessa. Orð dagsins:
Sá sem ætlar að finna líf sitt, týnir
því, og sá sem týnir lífi sínu mín
vegna finnur það.
(Matt. 10, 39.)
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 fress, 4 fuglar, 7
hvelfda, 8 niðurgangur-
inn, 9 veiðarfæri, 11 pen-
inga, 13 kraftur, 14 lærir,
15 Ísland, 17 fljót, 20
kona, 22 á kú, 23 knappt,
24 leturtákn, 25 óbeit.
LÓÐRÉTT:
1 haltra, 2 glennir upp
munninn, 3 svelgurinn, 4
raup, 5 kústur, 6 vitlausa,
10 gufa, 12 elska, 13
slöngu, 15 hugmyndarík-
ur, 16 gerjunin, 18 geð-
vonska, 19 virðið, 20
skjótur, 21 þyngdarein-
ing.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 nærklæðin, 8 grind, 9 tælir, 10 dúr, 11 saggi,
13 ilmur, 15 hjörs, 18 aðrar, 21 kið, 22 sudda, 23 angan,
24 þrákálfar.
Lóðrétt: 2 æfing, 3 koddi, 4 æstri, 5 illum, 6 uggs, 7 þrár,
12 ger, 14 lið, 15 hása, 16 öldur, 17 skark, 18 aðall, 19
rugla, 20 rann.
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
VÍKVERJA þykir ákaflega væntum börnin sín og hefur ætíð tal-
ið sér trú um að aðrir foreldrar séu
sama sinnis. Og trúir því enn þótt
margir hagi sér eins og þeim sé alveg
sama um afkvæmin. Þetta er ótrúleg
fullyrðing, en engu að síður sönn.
Víkverji er ætíð jafnundrandi þeg-
ar hann sér börn í bíl með foreldrum
sínum, eða einhverjum öðrum, án
þess að þau sitji bundin í þar til gerð-
an barnastól eða setu. Og stundum
sér Víkverji börn meira að segja í
framsæti bifreiða og ekki einu sinni
með öryggisbelti. Hvers konar ótrú-
legt kæruleysi er hér á ferðinni hjá
sumum foreldrum þessa lands? Ger-
ir fólk sér virkilega ekki grein fyrir
því hverslags heimska það er að láta
börnin komast upp með svona lagað?
Auðvitað má búast við því að börn-
in maldi í móinn, þegar foreldrarnir
vilja njörva þau niður í bílstól. En
það er glæpur gagnvart barninu að
leyfa því að ráða för þegar öryggið er
annars vegar. Auðvitað hefur Vík-
verji lent í því að reyna að skýra út
fyrir börnum sínum hvers vegna
nauðsynlegt er að nota öryggisbelti
eða sitja í þar til gerðum stólum, en
það á ekki að taka langan tíma.
Börnin sætta sig á endanum við til-
mæli foreldranna. Enda er ekki fyrr
farið af stað en búið er að koma börn-
unum í skilning um mikilvægi örygg-
isbúnaðarins.
Foreldrar! Í guðs bænum verndið
börnin ykkar í umferðinni.
x x x
VÍKVERJI er vanafastur maður.Hann hefur stundum dvalist á
Akureyri á þjóðhátíðardaginn og
jafnan skynjað vel þá skemmtilegu
stemmningu sem því fylgir að
Menntaskólinn á Akureyri braut-
skrái stúdenta þann dag.
Góður vinur Víkverja er stúdent
frá MA og segir það einhverja
dásamlegustu daga lífs síns – biðina
frá próflokum að brautskráningu um
árið. Veðrið hafi verið yndislegt í
höfuðstað Norðurlands á þessum
tíma (eins og alla jafna, að mati
heimamanna!) og líf og fjör í hópi ný-
stúdentanna síðustu dagana áður en
þeir héldu út í „alvöru lífsins“ eins og
stundum er sagt. Það er skemmti-
legur og góður siður hjá MA að
brautskrá stúdenta sína á þjóðhátíð-
ardaginn og Víkverji vonar að þeirri
hefð verði aldrei breytt.
BIKARKEPPNIN er eittskemmtilegasta knattspyrnu-
mót sumarsins.
Það sannast stundum oft á hverju
keppnistímabili að ekkert er öruggt
fyrirfram í knattspyrnu, frekar en
öðrum íþróttum, og aldrei betur en í
bikarkeppninni. Í vikunni komust
tvö „stór“ lið í hann krappan gegn
„litlum“ liðum en höfðu reyndar bet-
ur í bæði skiptin. Valsmenn, sem
leika í efstu deild, mörðu sigur á 2.
deildarliði Hauka með marki í blá-
lokin og Fylkismenn, sem voru
nærri því orðnir Íslandsmeistarar
síðastliðið haust og eru eflaust með
eitt besta lið landsins, voru stál-
heppnir að merja sigur á 3. deild-
arliði KFS frá Vestmannaeyjum.
Víkverji efast um að margur knatt-
spyrnunnandinn hafi einu sinni
heyrt á þetta Eyjalið minnst fyrir 32
liða úrslit bikarkeppninnar!
Já, hún er skemmtileg knatt-
spyrnan.
x x x
AÐ ENDINGU finnst Víkverjavið hæfi að óska Íslendingum
nær og fjær til hamingju með
þjóðhátíðardaginn.
MARTIN A. Fischer hafði
samband við Velvakanda
og bað um aðstoð við að
leita að konu sem hann
kynntist hér á landi á
stríðsárunum. Martin var
hermaður í Bandaríska
hernum og dvaldist í her-
búðum, Camp Belvoir, rétt
fyrir utan Reykjavík á ár-
unum 1943-44. Konan sem
hann er að leita að heitir
Fanney Vilhelmsdóttir.
Þeir sem gætu gefið Mart-
in einhverjar upplýsingar
geta haft samband við
hann á Hótel Sögu, en þar
dvelst hann fram á mið-
vikudag, eða skrifað hon-
um:
Martin Fischer,
Northbridge L.P.,
408 Vine Street,
Philadelphia, Pa. 19106,
U.S.A.
Þakklæti
ÉG vil þakka Kristjáni í
versluninni Marco og
starfsfólki hans fyrir frá-
bæra þjónustu og heiðar-
leika.
Sigríður.
Víkingslækjarætt
ER einhver sem á 3. bindið
af Víkingslækjarætt
(rómv. III)?
Vinsamlegast hafið
samband við Leif Sveins-
son í síma 551-3224 eða í
faxnúmeri 551-3227.
Rúm fyrir tvo
KONA hafði samband við
Velvakanda og langaði að
athuga hvort einhver ætti
kojur, fyrir tvo unga
drengi, sem hann vill losna
við. Vinsamlegast hafið
samband í síma 588-8244.
Þakklæti
OKKUR langar að þakka
fyrir góð garðaverk í
Hólmgarðinum. Elín
flokkstjóri á sérstakar
þakkir skildar fyrir vel og
fallega unnin störf.
Gömul hjón í Hólm-
garðinum.
Dýrahald
Dimmalimm er týnd
DIMMALIMM er kol-
svört læða. Hún stökk úr
bíl við Mjódd fimmtudag-
inn 17. maí sl. Dimmalimm
er með rauða ól. Ef ein-
hver getur gefið einhverj-
ar upplýsingar um ferðir
hennar, vinsamlegast hafið
samband í síma 557-2405.
Köttur
í óskilum
KÖTTUR hefur verið á
þvælingi í kringum Miklu-
braut 72 í svolítinn tíma.
Hann er svartur á hryggn-
um og skotti, hvítur á kvið,
í andliti og á fótum.Upp-
lýsingar hjá Jónu í síma
561-2229.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Konu
leitað
STAÐAN kom upp á Evr-
ópumóti einstaklinga sem
er nýlokið í Ohrid í Mak-
edóníu. Hvítt hafði úkr-
aínski alþjóðlegi meistarinn
Evgeny Miroshnichenko
(2520) gegn Jóni Viktori
Gunnarssyni (2366).
20.Bxh7+! Athyglisverð
fórn en leiðir hún til vinn-
ings? 20...Kf8 20...Kxh7
hefði einnig leitt til taps þar
sem eftir 21.Dh5+ Kg8
22.Hh3! er svarti ómögulegt
að svara tvöfaldri máthótun
hvíts. 21.Bxg7+! Kxg7
22.De5+ og svartur gafst
upp enda verður hann mát
eftir t.d. 22...Kxh7 23.Dh5+
Kg7 24.Hg3+ Kf8 25.Dh6#.
Skákin tefldist í heild sinni:
1.e4 e6 2.d4 d5 3.Rd2 c5
4.exd5 Dxd5 5.dxc5 Bxc5
6.Rgf3 Rf6 7.Bd3 O-O 8.De2
Rc6 9.Re4 Be7 10.O-O Rd4
11.Rxd4 Dxd4 12.Bd2 Rxe4
13.Bxe4 Dxb2 14.Hab1 Dd4
15.Hfd1 Da4 16.Bc3 e5
17.Bxe5 Be6 18.Hxb7 Bc5
19.Hd3 Hfe8 o.s.frv.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.