Morgunblaðið - 17.06.2001, Side 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í HLAÐVARPANUM
Aukasýning 19. júní kl. 21.00
EVA - bersögull sjálfsvarnareinleikur
Föstudagurinn 29. júní
Felicidae
Styrktartónleikar til kaupa á tæki
fyrir Barnaspítala Hringsins
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Fös 22. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 23. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fim 28. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fös 29. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 30. júní kl. 20- NOKKUR SÆTI
PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler
Þri 19. júní kl. 20 - UPPSELT
Sýnt á Stóra sviði í tilefni 19. júní,
eftir sýningu flytur Ragnheiður
Eiríksdóttir, hjúkrunarfræðingur og
kynlífspistlahöfundur, erindi tengt
Píkusögum.
ATH. ekki er hleypt inn í salinn eftir
að sýningin hefst.
SÍÐUSTU SÝNINGAR Í SUMAR.
SÝNINGAR HEFJAST AÐ NÝJU Í HAUST
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Stóra svið
3. hæðin
HEDWIG KL. 20
Frumsýning fös 29/6 UPPSELT
lau 30/6 A,B,C,D,E,F,G,H&I kort gilda
örfá sæti laus
fös 6/7
Hádegisleikhús KL. 12
RÚM FYRIR EINN
fim 21/6 nokkur sæti laus
fim 28/6 nokkur sæti laus
FEÐGAR Á FERÐ KL. 20
mið 20/6 UPPSELT
fim 21/6 nokkur sæti laus
sun 24/6 nokkur sæti laus
Allar sýningar hefjast kl. 20.
Miðasalan er opin frá kl 10-14 alla virka daga og
frá kl 17-20 á sýningarkvöldum. Hópasala er í
síma 530 3042 og skrifstofusími er 530 3032 eða
530 3037.
midasala@leik.is — www.leik.is
Miðasölusími er 530 3030
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00:
!""#
!""
!""
!""#
!""
!""
$
%
& '(
)*$ ++ '
,% )
!""#
!-
./012--!3
!45/
.
56
-7!
8-7!
5
"
-9:/6-!
#!
;!
)/
"<=-9>49?#/4!-9><0:
stein. Á svið á slaginu 21.15 og síðan
skotheld dagskrá keyrð í gegn; 100%
skemmtanalist í gangi og sveitin
klöppuð upp tvisvar.
Fyrsta lagið var opnunarlag plöt-
unnar nýju, Mutter. Uppbyggingin
var löng og spennandi og voru með-
limir leiddir inn einn af öðrum sem lík
væru; tema sem er gegnumgangandi
á téðri plötu. „Mein Herz Brennt“ fór
svo loks í gang með látum en hjarta
söngvarans sprakk í bókstaflegri
merkingu og rauk af honum vel og
lengi.
Á eftir fylgdu fleiri lög af Mutter:
„Links 2 3 4“, „Adios“ „Feuer Frei“
og „Spieluhr“. Einblínt var á keyrslu-
lögin í upphafi og var það vel;
stemmningin mögnuð þannig upp á
glúrinn hátt. Rammstein er viðlaga-
væn sveit og áhorfendur sungu með
af hjartans lyst. „Weisses Fleisch“
var svo fyrsta lag af eldri plötum, en
það er að finna plötunni Herzeleid,
frumburði sveitarinnar.
Slagarapakki Rammstein er stór.
Lög eins og „Sensucht“, „Asche zu
Asche“, „Du hast“, „Sonne“ og
„Rammstein“ voru hrist fram úr
erminni við mikinn fögnuð, hopp og
hí og allar hendur á lofti; einatt með
tákni rokkarans (baugfingur, þumall
og langatöng krepptir, vísifingri og
litla putta otað út).
Þegar ballaðan „Nebel“ var leikin
var tímabært að gera salernishlé.
Kannski semja þeir hægu lögin í
þeim tilganginum? Segi bara svona.
Vert er og að minnast á öll auka-
tæki og tól en sýningarhluti tón-
leikanna var oft og tíðum afar til-
komumikill. Söngvarinn, Till
Lindemann, stóð í björtu báli á tíma-
bili og eitt sinn beitti hann eldvörpu
af miklu listfengi. Flugeldar flugu
fram í salinn og reglulega voru
sprengingar og eldgos.
Þessi látalæti náðu þó algeru há-
marki í Sadó-masó lofsöngnum
„Bück Dich“. Í miðju lagi dró Linde-
mann fram stæðilegan gervilim og
hóf að gæla við hann sem mest hann
mátti. Úr honum sprautaðist svo
rauður vökvi, sem Lindemann beindi
að áhorfendum og fékk hann sér svo
gúlsopa sjálfur. Mjóslegni hljóm-
borðsleikarinn Flake var svo eitthvað
að skottast í kringum havaríið.
Allra síðasta lagið var svo hið stór-
fenglega „Wollt Ihr Das Bett In
Flammen Sehen“. Nokkuð var tekið
að draga af fólki þá, enda súrefni af
skornum skammti. Gæslufólk hefði
nú mátt vera duglegra að sprauta
vatni á fólkið.
Tónleikarnir fóru vel fram og ég
verð að viðurkenna að ég átti von á
meiri látum, meiri geðveiki. Í stað
þess var meiri bræðralagsandi í
gangi og flestir með sælubros á
vörum að tónleikum enduðum. Það
má með sanni segja að rokkið hafi
unnið stórsigur í Höllinni á föstu-
dagskvöldið.
„BANG, Bang!“, segir í texta lags-
ins „Feuer Frei!“ sem er að finna á
þriðju hljóðversskífu Rammstein,
Mutter. Þessi orð lýsa ágætlega því
sem fram fór síðastliðinn föstudag í
Laugardalshöllinni. Þar urðu ríflega
6.000 rokkþyrstir Íslendingar vitni
að alvöru rokksýningu, heljarinnar
kabarett þar sem eldvörpur, gervi-
limur, flugeldar, bálkestir og spreng-
ingar voru á meðal atriða. Það var
ekki um að villast, Rammstein voru
mættir í bæinn. Biðin langa loks á
enda.
Hin goðsagnakennda sveit Ham
hitaði upp fyrir þá þýsku og var það
vel við hæfi, enda tónlist sveitanna
um margt svipuð; grípandi gítarstef
og bylmingsþung keyrsla. Er Ham
var kominn í fimmta lag var mér orð-
ið fullljóst hvaða pælingum þeir voru
í. Þetta var ekki slagarakvöldið sem
margir vildu efalaust upplifa, sveitin
staðráðin í að láta áhorfendur ekki fá
það sem þeir vildu. Ég geri mér það í
hugarlund að á ferðinni hafi verið
persónuleg uppáhöld meðlima og því
var ekkert „Svín“, ekkert „Youth“;
hins vegar „Manifesto,“ „Dimitri“ og
röð af hægum lögum. Ég viðurkenni
fúslega að ég var orðinn óþolinmóður
á tímabili, leiddist jafnvel enda gír-
aður upp í hausaskak og hraða. En
menn eru sannarlega komnir á
hættulega braut þegar þeir fara
miðla málum í listsköpuninni, eitt-
hvað sem Ham létu ekki hanka sig á
þetta kvöldið.
Lokalagið var svo hið sígilda
„Partíbær“ og þar lét aufúsugestur
sjá sig, sjálfur Flosi Þorgeirsson
mættur á gítarinn! Ham kláruðu sína
pligt með sóma og sann en áhorfend-
ur voru ekkert sérstaklega með á
nótunum; ekki ef miðað er við nýaf-
staðna hljómleika Ham á Gauki á
Stöng sem fram fóru fyrr í vikunni.
Nei, fólk var fyrst og fremst komið til
að sjá Rammstein, það var greinilegt.
Það er oft sagt um Þjóðverja að
þar sé allt á hreinu; járnagi og skipu-
lag á öllum og öllu. Hvort um sleggju-
dóm sé að ræða eður ei sáust þessi
einkenni afar vel á tónleikum Ramm-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Um 6.000 manns börðu Rammstein augum á föstudagskvöldið.
RAMMSTEIN!!!
TÓNLIST
H l j ó m l e i k a r
Tónleikar Rammstein í Laugardals-
höllinni, föstudaginn 15. júní, 2001.
Um upphitun sá Ham.
LAUGARDALSHÖLL
Arnar Eggert Thoroddsen
PLÖTUKAUPMAÐURINN á horn-
inu, Kiddi Kanína í Hljómalind,
hvílist aldrei. Nú, nýbúinn að halda
tveggja daga tónleikaveislu í Laug-
ardalshöll, er hann í óðaönn að
skipuleggja næstu tónleikasyrpu.
En fyrst: Var hann sáttur við æv-
intýrið í Höllinni?
„Það heppnaðist bara æðislega
vel. Það stóð nánast á sléttu, ég
kom meira að segja út í örlitlum
plús,“ svarar Kiddi. „En þetta voru
bara svo fallegir og góðir tónleikar.
Blonde Redhead bara hreinsaði út
úr hausnum á mér. Ég varð þó fyrir
vonbrigðum með mætinguna á þá
tónleika en þeir voru mikil upplifun
fyrir mig og ég er ofsalega ánægð-
ur. Ég var jafnvel að spá í að reyna
að gefa þessa tónleika út að ein-
hverju leyti.“
Á miðvikudaginn býður Kiddi
Kanína tónlistaráhugamönnum upp
á þann valkost að sjá fyrrum söngv-
ara Dead Kennedys og „pönkgúrú-
inn“ Jello Biafra á tónleikum – eða
hvað á annars að kalla það? „Orð-
leikarnir? Þetta er „spoken word“
uppákomu-fyrirlestur. Við getum
eiginlega ekki talað um tónleika,“
segir Kiddi. „Hann verður bara
einn með hljóðnemann. Hann er bú-
inn að vera í Svíþjóð, eitthvað í
tengslum við leiðtogafundinn.
Hann mun örugglega predika gegn
kapítalismanum, alheimsvæðing-
unni, risasamsteypunum, kúgun og
hégóma hverskyns. Það hefur verið
hans vörumerki í gegnum tíðina.
Það er alltaf að verða erfiðara og
erfiðara að vera lítill. Bara eins og
við finnum hérna heima.“
Jello Biafra grípur hvert tæki-
færi til þess að viðra skoðanir sínar,
sem oftast stangast á við gildi nú-
tíma vestrænna þjóðfélaga. Hann
er afar líflegur á sviði og hefur gef-
ið út nokkra geisladiska með ræð-
um sínum, ljóðum og fyrirlestrum.
„Jello Biafra er átrúnaðargoð
pönkara, hip-hopara og harð-
kjarnarokkara. Hann á inni hjá öll-
um þessum kynslóðum. Hann er að
meina það sem hann er að segja,
það fer ekkert á milli
mála. Hann er kúreki og
töffari. Dead Kennedys
hefur fylgt þjóðinni frá
árdögum pönksins. Hann
getur talað stundum upp
undir fjórar klukku-
stundir. Húsið verður
opnað kl. 21 og það er
rétt að benda fólki á að
mæta snemma. Hann fær
bara að byrja þegar hann
vill, ég veit ekki hvað
hann ætlar að tala lengi
en hann hefur þrjá tíma
úr að moða.“
Uppákoman verður á
Gauk á Stöng á miðvikudaginn,
miðaverð er 1000 kr. og er forsala
þegar hafin í Hljómalind.
Kiddi ætlar svo að gera sitt til
þess að lífga upp tónlistarlífið í
Reykjavík út árið. Hljómsveitin frá-
bæra Modest Mouse leggur t.d. leið
sína hingað eftir spilamennsku á
Hróarskelduhátíðinni og heldur
tónleika í byrjun júlí á Gauk á
Stöng ásamt Maus.
Nánari fréttir um framtíðarupp-
ákomur Hljómalindar verður að
finna á nýjum vef búðarinnar,
www.hljomalind.is, en á þessu ári
er á stefnuskránni m.a. að halda
tónleika með Will Oldham, Low,
Fantomas (ný hljómsveit Mike
Pattons söngvara Faith No More og
fyrrum trommara Slayer) og Pär
Lindh Project frá Svíþjóð. Athygl-
isvert það.
Kúreki
og töffari
Jello Biafra forðum daga á sviði með pönk-
sveitinni Dead Kennedy’s.
Hljómalind flytur inn pönkgoðið Jello Biafra