Morgunblaðið - 17.06.2001, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
HARALDUR Örn Ólafsson náði fyr-
ir viku á tind Denali-fjalls, hæsta
fjalls Norður-Ameríku. Hann sagði
það ótrúlega tilfinningu að vera á
tindinum. „Ég var þarna kannski í
hálftíma og tók myndir. Útsýnið er
reyndar með ólíkindum því fjallið
stendur svo hátt í umhverfinu. Það-
an sér alveg ofan í sjó og á láglendi
og stórglæsileg fjöll í nágrenninu.
Þetta var dálítið eins og að vera í
flugvél og horfa niður, en ein-
staklega sterk og mögnuð upp-
lifun,“ sagði Haraldur Örn.
Morgunblaðið/Erik Fryman
Haraldur Örn Ólafsson, vígalegur á tindi Denali-fjalls.
Fyrsti
tindurinn
að baki
GERT er ráð fyrir blandaðri byggð
og útivistarsvæði í Viðey, samkvæmt
grunnáætlunum um breytingar á að-
alskipulagi Reykjavíkurborgar fyrir
tímabilið 1996–2024 sem lagðar voru
fram í vikunni. Þá er gert ráð fyrir
hjólreiða- og göngubrú út í Viðey frá
Gufunesi til að eyjan verði aðgengi-
legri og nýtist betur sem útivistar-
svæði, að sögn Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur, borgarstjóra í Reykja-
vík, sem leggur áherslu á að hér sé
um umræðutillögur að ræða sem eigi
eftir að fá frekari meðferð áður en
ákvarðanir varðandi þær verði tekn-
ar.
„Fram hefur komið sú hugmynd
að á austurenda Viðeyjar, þar sem
talsverð byggð var áður, mætti hugs-
anlega koma fyrir gömlum húsum
borgarinnar sem flytja þarf af skipu-
lagsástæðum en þá þyrfti jafnvel að
skilyrða hvernig mætti nota þau,“
segir borgarstjóri.
Í tillögunum er gert ráð fyrir að á
hluta athafnasvæðis á Gufunesi verði
blönduð þétt byggð, m.a. þyrfti
Áburðarverksmiðjan að víkja, að
sögn Ingibjargar Sólrúnar, en hún
segir staðinn mjög skemmtilegan
fyrir íbúðarbyggð.
„Síðan er hugmyndin sú að lögð
yrði brú út í Viðey frá Gufunesi en
þannig myndi eyjan nýtast betur
sem útivistarsvæði, ekki síst fyrir
byggðina í Grafarvogi og Borgar-
holti. Brúin yrði fyrst og fremst
göngu- og hjólreiðabrú en bílaum-
ferð yrði aðeins leyfð í þeim tilgangi
að flytja aðföng, en einnig fatlaða og
aldraða og myndi hún þannig auð-
velda aðgengi þeirra út í eyjuna frá
því sem nú er.“
Hún segir að ef sátt yrði um tillög-
urnar tæki aðalskipulagið gildi í
haust og þá yrði fljótlega hægt að
byrja að vinna að framkvæmdum.
Samkvæmt tillögunum er gert ráð
fyrir blandaðri byggð á flugvallar-
svæðinu með einu miðsvæði fyrir
þekkingargarða og öðru fyrir at-
vinnustarfsemi sem ekki keppir við
starfsemi miðborgar. „Gert er ráð
fyrir að sú niðurstaða, sem varð í at-
kvæðagreiðslunni um flugvöllinn,
endurspeglist með einhverjum hætti
í aðalskipulaginu og að eftir 2016
geti menn farið að huga að meiri nýt-
ingu svæðisins,“ segir Ingibjörg.
Kringlumýrarbraut í
göng undir Miklubraut
Þá er í grunnáætluninni gert ráð
fyrir að Kringlumýrarbraut verði
lögð í göng undir Miklubraut en
þannig yrði umferð af Miklubraut
beint niður í Sætún. Miklabraut frá
Reykjahlíð að Snorrabraut yrði lögð
í stokk.
Gert er ráð fyrir nýrri stofnbraut
frá Hringbraut að Kringlumýrar-
braut í Fossvogsdal, sem síðar mun
halda áfram í göngum undir Kópa-
vogsháls og tengjast Reykjanes-
braut. Gert er ráð fyrir að stofn-
brautin verði að stórum hluta í
göngum undir Öskjuhlíðinni.
Grunnáætlanir um breytt aðalskipulag Reykjavíkur
Gert ráð fyrir bland-
aðri byggð í Viðey
Reiknað með
aukinni nýtingu
flugvallarsvæðis
eftir 2016
HÓPUR vísinda-
manna í Bandaríkjun-
um hefur fundið
sterkar vísbendingar
um ís skammt undir
yfirborði reikistjörn-
unnar Mars. Eru nið-
urstöðurnar byggðar
á samanburði mynda
frá könnunarfarinu
Mars Global Surveyor
af gígum á yfirborði
reikistjörnunnar við
svonefnda gervigíga á
Íslandi. Benda vísindamennirnir á í
nýrri grein í tímaritinu Geophysical
Research Letters, að þessir gígar lík-
ist mjög gervigígum nyrst í Lakagíg-
um sem mynduðust í Skaftárelda-
hrauni.
Íslenskur jarðvísindamaður, Þor-
valdur Þórðarson, eldfjallafræðingur
við Háskólann á Hawaii, er einn vís-
indamannanna, sem rituðu greinina
en samanburðurinn er m.a. byggður á
niðurstöðum rannsókna hans á Ís-
landi.
Greint var frá þessum niðurstöðum
í nokkrum fjölmiðlum í Bandaríkjun-
um og Ástralíu fyrir helgina og birtar
myndir af gígasvæðinu á Mars til
samanburðar við gígasvæðið í Skaft-
áreldahrauni, skammt frá Innri-Eyr-
um. Er m.a. rætt við Þorvald um jarð-
fræðirannsóknir hans á Íslandi.
Í tímaritinu New Scientist segir að
þessar niðurstöður bendi sterklega til
þess að ís hafi verið mjög grunnt und-
ir yfirborði plánetunnar og haft er eft-
ir Alfred McEwen, við háskólann í
Arisona, að líkur hafi aukist á að þar
megi enn finna ís. Þykja þessar nið-
urstöður ennfremur mjög þýðingar-
miklar þar sem um er að ræða gíga á
hraunasvæði, nálægt miðbaug plán-
etunnar, þar sem auðveldara verði að
afla upplýsinga við rannsóknir.
Gígarnir sem myndaðir hafa verið
á Mars þykja bæði líkir íslensku
gervigígunum að lögun og stærð og er
það talið renna styrkum stoðum undir
þá tilgátu að ís hafi verið aðeins
nokkra metra undir yfirborði reiki-
stjörnunnar. Gervigígar myndast
þegar glóandi hraun streymir yfir
vatn eða mýrlendi og við snögga kæl-
ingu þrýstist gufa úr kvikunni með
sprengingu sem myndar þessa sér-
stæðu gíga.
Skv. frétt ABC-sjónvarpsstöðvar-
innar í Ástralíu eru allar líkur taldar á
að þessar uppgötvanir muni ýta enn-
frekar undir kenningar um líf á Mars.
Sveinn Jakobsson jarðfræðingur
sagði í gær að um athyglisverðar nið-
urstöður væri að ræða og myndirnar
af yfirborði Mars væru ótrúlega líkar
gervigígunum á Íslandi.
Íslendingur í hópi vísindamanna
sem finna merki um ís á Mars
Gígar á Mars líkj-
ast mjög gervi-
gígum á Íslandi
Gígasvæði á yfirborði Mars, til vinstri, þykir
líkjast mjög gervigígum sem mynduðust í Skaft-
áreldahrauni, en mynd af þeim er til hægri.
TÖLUVERÐ brögð hafa verið
að því að erlend togskip á
Reykjaneshrygg fari inn fyrir
200 mílna landhelgismörkin við
úthafskarfaveiðar, samkvæmt
frásögnum skipstjóra íslenskra
togara sem eru við karfaveiðar
á Reykjaneshrygg.
Þeir hafa gert Landhelgis-
gæslunni viðvart um athæfi er-
lendu skipanna og segist Haf-
steinn Hafsteinsson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, taka
fullt mark á frásögnum ís-
lensku sjómannanna. Hann
segir að gerðar verði viðhlít-
andi ráðstafanir vegna þessa.
Þórður Magnússon, skip-
stjóri á Þerney RE, segir um 60
erlenda togara á veiðum við
landhelgislínuna á Reykjanes-
hrygg og segir þá fara frjáls-
lega um landhelgismörkin.
„Hættur að ergja sig“
,,Það eru útlendingar á lín-
unni og eru farnir að fara svo-
lítið frjálslega með hana og fara
3 til 4 mílur inn fyrir. Það er
ekkert verið að spá í þessa
landhelgislínu. Við erum búnir
að láta vita af þessu og höfum
gert það í mörg ár því þetta er
ekki nýtt, en það er sjaldan sem
maður sér viðbrögð við því.
Maður er hættur að ergja sig á
þessu. Það þýðir ekkert að vera
að stressa sig á því þótt verið sé
að stela hérna úr kartöflugörð-
unum okkar, þegar þeir sem
eiga að passa þetta hafa ekki
pening eða áhuga á að skoða
þetta,“ sagði Þórður.
Að sögn Hafsteins flaug flug-
vél Landhelgisgæslunnar ný-
lega yfir veiðisvæðið og virtist
þá allt vera í lagi. Einnig hefði
varðskip farið nýlega á þessar
slóðir án þess að nokkuð at-
hugavert kæmi í ljós. „En við
tökum svo sannarlega mark á
því þegar okkar menn eru að
kvarta yfir þessu og munum
sinna því og gera viðhlítandi
ráðstafanir. Við höfum alltaf
hlustað á okkar menn og mun-
um svo sannarlega gera það
líka núna,“ sagði hann.
Dræm aflabrögð eru hjá ís-
lensku skipunum sem eru á út-
hafskarfaveiðum á Reykjanes-
hrygg. „Það er svona eitt tonn á
togstundina. Þetta er afskap-
lega dapurt, það virðist ekkert
ætla að rætast úr þessu,“ sagði
Þórður á Þerney.
Útlending-
ar sagðir
veiða innan
línunnar
Lítill karfaafli á
Reykjaneshrygg