Morgunblaðið - 20.06.2001, Blaðsíða 18
LANDIÐ
18 MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SAGT var frá því í Morgunblaðinu
fyrir nokkru að knattspyrnumalar-
völlur í Borgarnesi hefði verið stytt-
ur um 15–20 metra og að ekki væru
allir sáttir við þá ráðstöfun. Helga
Halldórsdóttir, fulltrúi sjálfstæðis-
manna í bæjarstjórn og formaður
íþrótta- og tómstundaráðs, segir að
alls ekki sé verið að sverfa að ímynd
Borgarness sem íþróttabæjar með
styttingu malarvallarins. Margt sé á
döfinni í íþróttamálum og verið sé
að frumhanna framtíðarsvæði við
Hyrnutorg, þar sem gert er ráð fyr-
ir malarvelli.
Í Borgarnesi eru glæsileg íþrótta-
mannvirki þegar á heildina er litið.
Íþróttamiðstöðin stendur þar með
fjölbreyttri aðstöðu svo sem 25 m
útisundlaug með heitum pottum,
gufubaði auk þriggja vatnsrenni-
brauta og er orðin þekktur við-
komustaður ferðamanna. Þess má
geta að 112 þúsund manns koma í
sundlaugina á ári hverju. Einnig er
12 m innisundlaug, þreksalur,
íþróttasalur auk almennrar æfinga-
aðstöðu fyrir leikfimi og þolfimi.
Vestan íþróttamiðstöðvarinnar er
vallarsvæði sem samanstendur af
tveimur grasvöllum og aðstöðu til
frjálsra íþrótta á aðalvellinum og
með tartanefni á hlaupabrautum.
Vallarsvæðið var tilbúið í núverandi
mynd um 1997.
Framundan er að gera sandgras-
völl, malarvöll, og verið er að athuga
með stækkun íþróttahússins. Helga
upplýsir að til standi að gera um 20
til 40 m sandgrasvöll á lóð Grunn-
skólans. Stefnt er að því að þessi
völlur verði upphitaður og nýtist
þannig allt árið. Landfræðilega er
Borgarnes þannig að mjög erfitt er
að gera sandgrasvöll í fullri stærð.
„Draumurinn er setja upp tvo–þrjá
minni velli til viðbótar s.s. uppi í
Bjargslandi og víðar en hvað varðar
títtnefndan malarvöll við Hyrnutorg
er verið að gera frumhönnun á
svæði með 40x60 m malarvelli. Þar
yrði jafnframt aðstaða fyrir húsbíla
og fyrir ýmsar uppákomur, til dæm-
is tónleikahald. Tjaldstæði er einnig
þarna á skipulagi, en ekki verður
byrjað á framkvæmdum fyrr en
næsta sumar og stafar það af skorti
á fjármagni,“ segir Helga.
Á undanförnum árum hefur ber-
lega komið í ljós að íþróttahúsið er
of lítið til að mæta þörf heimamanna
fyrir aðstöðu. Of margir flokkar al-
menningsíþrótta komast ekki að
fyrr en seint á kvöldin og núverandi
salur nær ekki stærð löglegs hand-
boltavallar. Aðspurð svarar Helga
því til að á næstunni verði skoðað
hvort skynsamlegra sé að byggja
við eldra húsið eða byggja nýtt
íþróttahús þá væntanlega sjávar-
megin við íþróttamiðstöðina.
Ennfremur eru áform um að
koma á fót íþrótta- og tómstunda-
skóla í tengslum við einsetningu
Grunnskólans sem í upphafi yrði
rekinn af Borgarbyggð.
Skorður fjárlagarammans
oft erfið glíma
Viðbygging við skólann sem gerir
einsetningu skólans mögulega verð-
ur tilbúin í sumar. Þessi bygging
ásamt gatnagerð taka til sín 200
milljónir sem er tæplega helmingur
af tekjum Borgarbyggðar. Þegar til
stærri áfanga kemur, t.d. byggingar
nýs íþróttahúss, þyrftu fleiri að
koma að því eins og t.d. Íþróttasjóð-
ur ríkisins. Í Borgarbyggð eru
íþróttamál þriðji stærsti málaflokk-
urinn. Árið 1999 fór í þennan mála-
flokk upphæð sem samsvaraði 17
þús. krónum á íbúa. Samsvarandi
tölur fyrir önnur sveitarfélög voru
Akranes 14 þús., Sandgerði 21 þús.,
Grindavík 20 þús., Reykjanesbær 10
þús. Eitt af markmiðum Borgar-
byggðar er að auka styrkveitingar
til félaga s.s. UMSB, Skallagríms og
annarra sambærilegra félagasam-
taka sem hlúa vel að starfi yngri
flokka. Helga tók þátt í vinnuhópi í
þeim tilgangi að samræma styrki til
íþróttafélaganna og einstakra deilda
innan þeirra. Vinnuhópurinn lagði
til að ekki yrði úthlutað af gömlum
vana, styrkveitingin yrði auglýst og
að baki umsóknum yrðu að liggja
rökstudd skýr markmið.
Margt á döfinni
í íþróttamálum
Borgarnes
ÞESSAR ungu stúlkur eru búnar að
setja sínar kýr út og gera við girð-
ingar eins og góðir bændur gera á
vorin. Stúlkurnar heita Alda Grave
og Elsa Hrönn Sveinsdóttir og eru í
sveit á Stóru-Þúfu á Snæfellsnesi.
Fátítt er að sjá börn í dag leika
sér með kjálka, leggi og horn en
sem betur fer kunna fáeinir krakk-
ar það enn þá.
Morgunblaðið/Daniel Hansen
Alda Grave og Elsa Hrönn Sveinsdóttir hugsa um kýrnar sínar.
Kýrnar komnar á beit
Eyja- og Miklaholtshreppur
Malarvöllurinn í Borgarnesi er mjög mikið notaður af ungum sem öldnum. Til stendur að bæta enn frekar íþróttaaðstöðuna í bænum.
SKÓLASLIT Grunnskólans í
Ólafsvík fóru fram við hátíðlega
athöfn í Ólafsvíkurkirkju. Próf-
skírteini voru afhent og við-
urkenningar veittar fyrir góðan
námsárangur. Sérstaka athygli
vakti árangur Helgu Hilmars-
dóttur, nemanda í 10. bekk, en
hún hlaut fjölda viðurkenninga
fyrir framúrskarandi náms-
árangur. Helga fékk 9,5 í ein-
kunn í þremur samræmdum próf-
um og 9 í því fjórða og
meðaleinkunn hennar þegar allar
námsgreinar eru taldar var 9,4.
Helga segist alltaf hafa átt gott
með að læra og þakkar einkum
samviskusemi góðan náms-
árangur. „Mér finnst ég samt
ekki eyða miklum tíma í lærdóm-
inn og hef aldrei haft sérstakar
áhyggjur af prófum.“ Af áhuga-
málum Helgu ber helst að nefna
tónlistina en hún hefur á síðustu
árum lært á klarinett við Tónlist-
arskóla Ólafsvíkur og þykir snjall
spilari. Í sumar stundar Helga
vinnu við Fiskiðjuna Bylgju í
Ólafsvík en stefnir á að hefja nám
við Menntaskólann í Reykjavík
næsta haust. „Mér leist betur á að
fara í bekkjarkerfið og þar sem
áhugi minn er meira í tungumál-
unum ætla ég í máladeild,“ segir
Helga og bætir við: „Það verður
fínt að breyta til og flytja til
Reykjavíkur.“ Þegar spurt er um
frekari framtíðaráform segir hún:
„Fyrst er að klára menntaskólann
og svo spáir maður í framhaldið.“
Dúx-
inn í
Ólafsvík
Ólafsvík
Ljósmynd/Elín Una Jónsdóttir
Helga Hilmarsdóttir heldur hér
á viðurkenningum sem hún fékk
fyrir frábæran námsárangur.
UMFERÐARRÁÐ, Stykkishólms-
bær og lögreglan buðu öllum
krökkum í Stykkishólmi á aldrinum
5–7 ára í Umferðarskólann. Skólinn
er tveggja daga námskeið, þar sem
farið er yfir mikilvægustu umferð-
arreglurnar. Framundan er sum-
arið þar sem börnin eru meira í
umferðinni og því betra að byrja
snemma að hamra á því að sýna
varkárni og passa sig á bílunum. Í
Umferðarskólanum voru verkefni
sem krakkarnir áttu að leysa, sýnd-
ar voru fróðlegar kvikmyndir og
föndrað. Skólinn var vel sóttur af
þessum aldurshópi og kennslan lif-
andi og skemmtileg. Í Stykkishólmi
eykst umferð yfir sumartímann
mjög mikið þar sem margir ferða-
menn heimsækja bæinn og því eins
gott að fara varlega í umferðinni
fyrir litla fætur.
Læra umferðarregl-
urnar fyrir sumarið
Stykkishólmur
17. JÚNÍ var haldinn hátíðleg-
ur hér í Dölum eins og venja er.
Dagskrá var frá morgni til
kvölds og var þátttaka góð eins
og endranær.
Um morguninn var skemmt-
un niðri við höfnina og var þar
ýmislegt í boði, grillaðar pyls-
ur, hestaferðir og bátsferðir,
bæði var hægt að fara á seglbát
og gúmmíbáta. Einnig gátu
börnin látið mála sig í framan.
Eftir hádegi var skemmtunin
formlega sett og var hún haldin
við sundlaugina á Laugum.
Byrjað var á skrúðgöngu frá
tjaldsvæðinu að sundlauginni.
Sr. Óskar Ingi Ingason flutti
hugvekju. Sturla Böðvarson
samgönguráðherra flutti hátíð-
arræðuna að þessu sinni, þar
sem hann lagði áherslu á að Ís-
lendingar varðveittu sjálfstæði
landsins og framseldu það ekki
til annarra. Síðan var farið í
leiki og sprell og var sundlaug-
in óspart notuð við mikla hrifn-
ingu viðstaddra. Hátíðarkaffi
var svo í boði á Hótel Eddu hér
á Laugum og var það glæsilegt
kaffiborð.
Hátíðarhöld
í Dölum
Búðardal
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir