Morgunblaðið - 20.06.2001, Blaðsíða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2001 25
Ertu
meðvitaður
um gæði
Sjáðu merkið
Ofnæmisprófað
100% ilmefnalaust
ww
w.
cli
niq
ue
.co
m
HAFNARSTRÆTI 5,
101 REYKJAVÍK,
SÍMI 552 9070
Nú flæða litirnir inn
Rakaefnablöndur sem bæta útlit varanna með ferskum lit, endurnýja rakastig
varanna, og hlífa vörunum með SPF 15 sólarvörn og andoxunarefnum.
12 nýir stórkostlegir litir sem innihalda háþróuð rakaefni, sem auka rakastig
varanna til lengri tíma.
Snyrtistofan Ágústa býður upp á létta förðun, og ráðgjafi frá Clinique verður með
húðgreiningu miðvikudag, fimmtudag og föstudag frá kl. 12—16.
Tímapantanir í síma 552 9070.
Glæsileg sumartaska sem inniheldur: Dramatically different moisturizing lotion 15
ml., sparkle skin body scrub 40 ml., moisture on call rakakrem 7 ml. og tvöfaldan
varalit 59/29 3,7 g. fylgir kaupum á Clinique vörum fyrir kr. 3.500 eða meira
þessa dagana.
með nýju Moisture Surge SPF 15 varalitunum frá Clinique
Baðaðu varirnar í athygli.
HAMRAHLÍÐARKÓRINN undir
stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur hélt
fimm tónleika í Danmörku frá 16. til
19. júní. Fyrstu tónleikarnir voru á
Lálandi, þá í Pálskirkju í Kaup-
mannahöfn á þjóðhátíðardaginn og
á opna sviðinu í Tívolí í fyrradag og
síðar sama kvöld í listasafni Carls-
berg sjóðsins, Glyptotekinu. Að
sögn Bjarna Sigtryggssonar fulltrúa
í íslenska sendiráðinu í Kaupmanna-
höfn var margt gesta í hinum glæsi-
legu salarkynnum listasafnsins,
meðal annarra sendimenn erlendra
ríkja og danskir og íslenskir gestir í
boði íslensku sendiherrahjónanna.
Að sögn Bjarna var kórnum afar
vel tekið og gestir báru hann lofi
fyrir vandaðan söng og líflega fram-
komu, auk þess sem það vakti hrifn-
ingu gesta hve söngkonur báru fal-
legar og fjölbreyttar útgáfur
íslenska þjóðbúningsins.
Kórinn lagði mikið í það að
gera stundina eftirminnilega
Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri
Hamrahlíðarkórsins segir kórferð-
ina hafa gengið stórkostlega vel.
„Þessi mikli fagri salur, Glyptotekið
hefur að geyma listaverk og högg-
myndir frá því fyrir Krist, og þó ég
segi sjálf frá voru tónleikarnir þar í
gærkvöldi á heimsmælikvarða, þótt
mér finnist maður sem Íslendingur
oft lítill og smár. Kórinn var búinn
að leggja svo óskaplega mikið í það
að geta gert þetta vel og eftirminni-
lega.“
Að sögn Þorgerðar voru tónleik-
arnir haldnir í samvinnu danska út-
varpsins og íslenska sendiráðsins í
Kaupmannahöfn, en fulltrúar
danska útvarpsins sem voru á
staðnum eru að vinna að dagskrá
um íslenska tónlist. „Það var mjög
margt um manninn miðað við að
maður er hvorki heimsnafn né
heimamaður í Danmörku; salurinn
var fullsetinn. Íslenski sendiherrann
hafði líka boðið erlendum fulltrúum
og embættismönnum á tónleikana í
tilefni af þjóðhátíðardeginum, í stað
þess að hafa móttöku.“
Fyrr um daginn söng Hamrahlíð-
arkórinn á útisviðinu í Tívolíinu.
„Það var alveg óskaplega gaman.
Við vorum svo heppin, það var svo
margt fólk og veðrið gott; steikjandi
sólskin. Þar sungum við aðra dag-
skrá; lög sem hæfðu betur útisen-
unni og sólskininu.“
Að morgni 17. júní hélt kórinn
helgistund með íslenska prestinum í
Kaupmannahöfn, þar sem kórinn
söng eingöngu íslenska trúarlega
tónlist. „Við sungum þó auðvitað
einnig þjóðsönginn okkar og annað
verk, Vorkvæði um Ísland, sem Jón
Nordal samdi í tilefni af 50 ára lýð-
veldisafmæli okkar við ljóð Jóns
Óskars.
Tónleikar í minningu
Göggu Lund
Á laugardaginn var svo okkar
mikli dagur þegar mitt unga fólk fór
í pílagrímsferð í heimabæ Göggu
Lund í Danmörku. Þar héldum við
minningartónleika um Göggu, og
það var stund sem á aldrei eftir að
líða okkur úr minni. Þetta var svo
sterk stund og full af virðingu og
mikið af tilfinningum í þessu. Þetta
unga fólk mitt sem eðlilega þekkti
ekki Göggu nema örfáir, sem kynnt-
ust henni sem börn; þau lögðu svo
mikið í þetta. Allt prógrammið var
valið með tilliti til Göggu. Það kom
fólk víða að; fólk sem þekkti Göggu
og þekkti til hennar. Hún hefði orð-
ið 101 árs á þessu ári, og hennar
kynslóð er eðlilega farin, en það er
enn til margt fólk sem þekkti hana
eins og börn vina og ættingja, og
þetta fólk kom víða að.“
Ísland í orði og tónum
Lokatónleikar kórsins voru í
Sorgenfri kirkjunni í gærkvöldi.
Kirkjan er víðfræg og þekkt fyrir
afbragðs góðan hljómburð. Þegar
Morgunblaðið ræddi við Þorgerði í
gærdag var hún ekki búin að skoða
kirkjuna. „Ég fer þangað núna á
eftir, að æfa kórinn fyrir kvöldið og
hlakka mikið til. Þarna eru oft gerð-
ar upptökur, vegna hljómgæðanna í
salnum. Við eigum von á fjölda
manns. Við vitum að Stúlknakór
danska útvarpsins kemur á tón-
leikana og fleiri músíkhópar. Pró-
grammið sem við fórum með hingað
til Danmerkur köllum við Ísland í
orði og tónum, því að við hugsum
þetta sem kynningu á íslenskri kór-
tónlist. Aftur á móti erum við að
velja úr þessu prógrammi lög sem
hæfa hverju tilefni og hverjum stað
sem við syngjum á. Í kvöld verðum
við meðal annars með tónsmíðar
samdar við ljóð Halldórs Laxness.
Þar á meðal verðum við með tón-
smíðaperlu eftir danska tónskáldið
Vagn Holmboe sem hann samdi við
elegíu Ólafs Kárasonar úr Heims-
ljósi, „Þótt form þín hjúpi graflín.“
Brøste sá um Tívolítónleikana
Þorgerður segir ferðina búna að
vera mikið ævintýri. „Jú, og það var
auðvitað sérstakt ævintýri að
standa hér frammi og minnast
Göggu, sem setti sterk og mikil spor
á okkar menningarlíf öll þessi ár
sem hún lifði með okkur á Íslandi,
og krökkunum finnst eðlilega mikil
upphefð í því. Svo var líka ævintýri
að syngja í Tívolí. Þegar Brøste
gamli, pabbi bjartsýnisverð-
launanna, frétti af því að við værum
á leiðinni til Kaupmannahafnar
spurði hann hvort við gætum ekki
sungið í Tívolíinu, og það var hann
sem stóð fyrir þeim tónleikum. Og
svo þessir tónleikar í þessum stór-
kostlega og listræna ramma í
Glyptotekinu; - þetta eru miklir við-
burðir og það er mikið þakkarefni
að hafa fengið að gera þetta allt með
svona góðum hópi. Unga fólkið er
svo samstillt. Við höfum enga far-
arstjóra með okkur; - við höfðum
ekki efni á því. En þau leggja sig
svo fram og passa vel upp á hvert
annað og sjá til þess að allt gangi
upp sem best.“
Hamrahlíðarkórinn minnist Göggu Lund í Danmörku
„Gerði þetta vel
og eftirminnilega“
Helgi Ágústsson sendiherra og Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri að
loknum tónleikunum í Glyptotekinu. Fjölmenni sótti tónleikana.
Hamrahlíðarkórinn syngur í Glyptotek-hátíðarsalnum í Kaupmannahöfn í fyrradag.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Brúðhjón
A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r