Morgunblaðið - 20.06.2001, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2001 51
DAGBÓK
Á EVRÓPUMÓTINU í
Turku í Finnlandi árið 1989
varð Ísland í 16. sæti af 25
þjóðum. Það lið var þannig
skipað: Guðm. P. Arnarson,
Þorlákur Jónsson, Aðal-
steinn Jörgensen, Ragnar
Magnússon, Valur Sigurðs-
son og Jónas P. Erlingsson,
en Hjalti Elíasson var fyr-
irliði. Pólverjar unnu mótið
og þar voru fremstir í flokki
þeirra besta par – Adam
Zmudzinski og Cezari Bal-
iki. Þeir spiluðu þróað Pass-
kerfi á þeim tíma, þar sem
„opnað“ er á öll veik spil en
passað með 13 eða fleiri
hálspilapunkta! Þetta kemur
mjög „pólskt“ fyrir sjónir en
getur virkað vel. Hins vegar
misstu þeir geim á móti Ís-
landi eftir „sterka-pass-opn-
un“ Zmudzinski í suður:
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ 85
♥ KD4
♦ Á1085
♣ 9652
Vestur Austur
♠ KD764 ♠ G10
♥ -- ♥ G932
♦ KDG764 ♦ 32
♣K3 ♣DG874
Suður
♠ Á932
♥ Á108765
♦ 9
♣Á10
Vestur Norður Austur Suður
GuðmundurBalicki Þorlákur Zmudz-
inski
-- -- -- Pass *
1 grand ** Dobl Pass Pass
3 tíglar Pass Pass 3 hjörtu
Pass Pass Pass
* Opnun.
** Spaði og tígull eða
hjarta og lauf.
Zmudzinski varð fyrir
vonbrigðum þegar hann sá
blindan því fjögur hjörtu líta
vel út. En legan er ekki góð
og Zmudzinski fékk aðeins
níu slagi enda var hann ekk-
ert sérstaklega að vanda sig.
Valur Sigurðsson gerði
betur á hinu borðinu. Hann
opnaði á hjarta, vestur sagði
tvö hjörtu Michaels, sem
sýnir spaða og láglit, Jónas
P. Erlingsson hækkaði í þrjú
hjörtu og Valur í fjögur. Út
kom tígulkóngur. Valur
drap og trompaði strax tígul
sem er vönduð spila-
mennska. Síðan gaf hann
slag á spaða, stakk svo tvo
spaða með KD í borði og tíg-
ul heim. Þannig tryggði
hann sér sjö slagi á tromp til
hliðar við þrjá ása.
Þetta var einn af „góðu
leikjunum“ sem vannst 18-
12.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
LJÓÐABROT
UM HANA SYSTUR MÍNA
Sáuð þið hana systur mína
sitja lömb og spinna ull?
Fyrrum átti ég falleg gull.
Nú er ég búinn að brjóta og týna.
Einatt hefur hún sagt mér sögu.
Svo er hún ekki heldur nízk:
Hún hefur gefið mér hörpudisk
fyrir að yrkja um sig bögu.
Hún er glöð á góðum degi, –
glóbjart liðast hár um kinn, –
og hleypur, þegar hreppstjórinn
finnur hana á förnum vegi.
Jónas Hallgrímsson.
STAÐAN kom upp á EM
einstaklinga er lauk fyrir
skömmu í Ohrid í Makedón-
íu. Stefán Kristjánsson
(2371) stýrði svörtu mönn-
unum gegn Pavel Smirnov
(2521). Íslendingurinn knái
tefldi skákina af listfengi og
tókst að sýna fram á alla
helstu kosti frönsku varnar-
innar. Hann lauk skákinni
með 35...Hxd2+! 36.Hxd2
Da2+ 37.Kd3
Db1+ 38.Ke3
De1+ og hvítur
gafst upp enda
tapar hann hróki
eða verður mát.
Skákin tefldist í
heild sinni: 1.e4
e6 2.d4 d5 3.Rc3
Bb4 4.e5 Re7
5.a3 Bxc3+
6.bxc3 c5 7.Dg4
Kf8 8.h4 Da5
9.Bd2 Da4
10.Hc1 Rbc6
11.h5 h6 12.Rf3
b6 13.Hh3 Ba6
14.Bxa6 Dxa6
15.Rh4 cxd4 16.cxd4 Dc4
17.Hg3 Hg8 18.c3 Hc8 19.f4
f5 20.exf6 gxf6 21.Rg6+ Kf7
22.Dh3 Rf5 23.Hd3 Rce7
24.g4 Rd6 25.He3 Re4 26.f5
exf5 27.gxf5 Hce8 28.Dg4
Dc8 29.Hf3 Rg5 30.Rxe7
Hxe7+ 31.Kd1 Rxf3
32.Dxf3 Dc4 33.Kc2 He2
34.Hd1 Hgg2 35.Df4 o.s.frv.
Lokastaða íslensku kepp-
endanna varð þessi: 69.-89.
Hannes Hlífar Stefánsson 7
vinninga af 13 mögulegum,
118.-147. Jón Viktor Gunn-
arsson og Bragi Þorfinns-
son 6 v., 173.-181. Stefán
Kristjánsson 5 v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Árnað heilla
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Lágafellskirkju
þann 24. júní sl. af sr. Þór
Haukssyni Dóra Ósk
Bragadóttir og Haukur
Hafliðason. Heimili þeirra
er í Hraunbæ 74, Reykjavík.
70 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 20.
júní, verður sjötug Hrefna
Einarsdóttir, Reykjanes-
vegi 16, Ytri-Njarðvík.
Eigimaður hennar er Gutt-
ormur A. Jónsson. Af því til-
efni vænta þau þess að laug-
ardaginn 23. júní komi
ættingjar og vinir og geri
sér glaðan dag með þeim og
fjölskyldu þeirra í safnaðar-
heimilinu í Innri-Njarðvík
kl. 16.
60 ÁRA afmæli. Nk.föstudag, 22. júní,
verður sextugur Ólafur Ing-
ólfsson, Arnarhrauni 48,
Hafnarfirði. Af því tilefni
taka hann og kona hans,
Svanhildur Guðmundsdótt-
ir, á móti gestum í sumar-
húsi sínu á Eyri í Ingólfs-
firði laugardaginn 23. júní
nk. kl. 18.
Hlutavelta
Þessir duglegu krakkar söfnuðu kr. 1.500 til styrktar
Rauða krossi Íslands. Þau heita Egill, Haukur, Andri, Eydís
og Þórey.
Morgunblaðið/Arnaldur
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert maður frelsis og æv-
intýra en ert jafnframt lag-
inn við að nýta þér þau tæki-
færi sem bjóðast.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert einum of fastur á þinni
meiningu og þarft að brjóta
odd af oflæti þínu og hlusta á
það sem aðrir hafa fram að
færa. Aðeins þannig kemstu
áfram.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gefðu þér allan þann tíma
sem til þarf í að útfæra hug-
mynd þína og þá fyrst get-
urðu sett kraft í að fram-
kvæma hana. Sinntu vinum
þínum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hver er sinnar gæfu smiður.
Settu þína eigin heilsu ofar
öllu öðru því að öðrum kosti
áttu margt á hættu sem erfitt
getur verið að finna lausn á.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft að hafa mikið fyrir
hlutunum sem er allt í lagi ef
þú bara gætir þess að skila
vel unnu verki. Gefðu þér all-
an þann tíma sem þú þarft til
þess.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er ástæðulaust að láta
smámunina vefjast fyrir sér.
Hertu upp hugann og drífðu
hlutina af. Þá geturðu með
góðri samvisku lyft þér upp í
góðra vina hópi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Vertu ekki of bráður í biðinni
eftir umbun fyrir starf þitt.
Þinn tími kemur þótt síðar
verði svo þú getur látið þér
líða vel á meðan þú bíður.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Gættu þess að segja ekkert
það sem þú kannt að iðrast
seinna meir. Ef þig endilega
langar að láta hlutina flakka
gerðu það þá í einrúmi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er margt sem þú ert ekki
sáttur við þessa dagana en
vertu þolinmóður og láttu þér
vel lynda meðan þú bíður eftir
betri tíð með blóm í haga.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það getur reynst erfitt að
byggja upp hlutina ef þú hef-
ur ekki allan hugann við það
verk. Gefðu þér tíma til að
sinna þínum nánustu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það eru einhver atriði sem þú
þarft að fara betur í gegnum
áður en þú tekst á við ný verk-
efni. Sýndu fyrirhyggju í fjár-
málum sem og öðrum málum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er oft erfitt að vera í for-
svari fyrir stórum hópi
manna en ef þú heldur rétt á
spöðunum ætti forysta þín að
skila þér og þínum góðum ár-
angri.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ef þér finnst brotið á þér áttu
ekki að hika við að standa á
rétti þínum og láta til þín
heyra. Mundu að réttlætið
sigrar alltaf að lokum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
strets-
gallabuxur
tískuverslun
v. Nesveg, Seltjarnarnesi.
sími 561 1680.
Kringlunni - sími 588 1680.
Ryðfríar
Blómagrindur
y fríar
Blómagrindur
með hengi
Tilboðsverð
kr. 2.900
áður kr. 3,595
Klapparstíg 44
Sími 562 3614
Sími 594 6000
Sumartilboð
Tveir fyrir einn
síðbuxur, stretsgallabuxur
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Fákafen),
sími 553 0100.
Opið virka daga kl. 10–18, laugardaga kl. 10–16.
KRINGLUKAST
50% afsláttur
Margar tegundir af barna-,
dömu- og herraskóm
KRINGLAN
sími 568 6062