Morgunblaðið - 08.07.2001, Side 1

Morgunblaðið - 08.07.2001, Side 1
MORGUNBLAÐIÐ 8. JÚLÍ 2001 153. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 Nútímamaður í eigin heimi 10 „Vér mótmælum allir“ 20 Að eilífu sumar 22 B ELLEFU manns létust af völdum skyndilegs fárviðris í Strasbourg í Frakklandi á föstudagskvöld, þeg- ar stórt tré brotnaði og lenti á hópi fólks sem var á útitónleikum. Yfir áttatíu slösuðust, tuttugu þeirra lífshættulega með háls- og höfuðmeiðsl, að því er lögregla greinir frá. Harmleikurinn varð um klukkan tíu að staðartíma, eða um klukkan átta að íslenskum tíma, í úthverfi Strasbourg. Geysaði veðrið í um 10 mínútur og mun vindhraði hafa farið yfir 40 metra á sekúndu. Skipuleggjendur tónleikanna höfðu stöðvað þá og beðið áheyr- endur að leita skjóls undan snar- versnandi veðrinu. En er áheyr- endurnir höfðu hópast undir segldúkshimin brotnaði tréð af völdum kröftugs skýstróks, að því er BBC hefur eftir lögreglu, og féll á segldúkinn. Tíu manns, sex karlar og fjórar konur, létust samstundis. Allir voru um 18 ára aldur. Ellefta fórn- arlambið lést af meiðslum sínum á sjúkrahúsi í gær. Að sögn lögreglu tók næstum þrjár klukkustundir að ná öllum líkunum undan trénu. Um 100 slökkviliðsmenn og 30 læknar sinntu björgunaraðgerðum. Varað við hvassviðri BBC greinir frá því að varað hafi verið við kröftugu hvassviðri á leið vestur yfir Frakkland á föstu- dagskvöldið. Mikil rigning og vind- ur hafi truflað lestarsamgöngur á þessu svæði og valdið umferðar- teppu við Metz, Nancy og Dijon. Í Belfourt, skammt suður af Strasbourg, hafi fyrirhuguðum úti- tónleikum verið aflýst vegna þess að lögregla óttaðist um öryggi þeirra 20 þúsund áheyrenda sem mættir voru á tónleikana. AP Lögreglumaður í Strasbourg skoðar tréð sem brotnaði. Ellefu létust í harm- leiknum í Strasbourg KARL Bretaprins hefur gefið í skyn að hann muni ef til vill ganga aftur í hjónaband, að því er fram kemur á fréttavef BBC. Í viðtali við breska dagblaðið The Daily Mail var Karl spurður hvort hann hygðist kvæn- ast vinkonu sinni, Camillu Parker Bowl- es, og svaraði hann: „Hver veit hvað Guð ætlast fyrir? Maður getur ekki verið viss um neitt.“ Frá því að hjónabandi Karls og Díönu prinsessu af Wales lauk 1996 hefur breska kon- ungsfjölskyldan haldið því fram að væntanlegur erfingi krún- unnar hefði engin áform um að giftast Parker Bowles. En í þarsíðustu viku sáust prinsinn og Parker Bowles kyssast í fyrsta sinn opinberlega, þegar Karl smellti kossi á vanga vin- konu sinnar er hann kom sem gestur í veislu til hennar. Fréttamaður BBC, er fylgist með málefnum konungsfjöl- skyldunnar, segir að spurning- in um annað hjónaband sé lang- viðkvæmasta málið sem Karl standi nú frammi fyrir. Óljós svör prinsins í viðtalinu kunni að benda til þess, að konungs- fjölskyldan telji slíkt ekki úti- lokað. Útilokar ekki ann- að hjóna- band Karl Bretaprins Yfirvöld hafa nú, fjórða árið í röð, bannað Óraníumönnum að fara hefð- bundna leið, á þeim forsendum að svo mikil óvild ríkti á milli deiluaðila að hætta væri á að átök brytust út ef gengið yrði hefðbundna leið. Óeirðir hafa brotist út í tengslum við göng- una á hverju ári síðan 1995, og oft leitt til frekari óeirða víðs vegar á Norður-Írlandi. BBC hefur eftir Sir Ronnie Flan- agan, yfirmanni lögreglunnar, að lögreglumenn muni „ekki hika“ við að svara hvers kyns óeirðum sem brjótast kunni út í dag. Aftur á móti hefði lögreglan upplýsingar um að helstu bardagasveitir sambands- sinna (sem eru mótmælendur) hygðu ekki á ofbeldisverk í Portadown. Svonefnt Gönguráð hefur þegar úrskurðað að Óraníureglan fái ekki að ganga um miðbæ Londonderry, norðaustur af Belfast, á fimmtudag- inn kemur, eins og fyrirhugað var. Verður gangan að fara að mestu um þau hverfi bæjarins þar sem mót- mælendur búa. Göngur mótmælenda eru haldnar árlega til þess að minnast fornra sigra mótmælenda á kaþólskum. Eru margar aldir liðnar síðan sigrar þessir unnust og segja kaþólskir að göngurnar séu úreltar og óþarfa ögr- un. Mótmælendur segja aftur á móti að göngurnar séu tjáning á menning- ararfleifð þeirra og það sé réttur þeirra að fá að halda göngur á al- mannafæri. Á morgun, mánudag, og á þriðju- dag bjóða Berti Ahern, forsætisráð- herra Írlands, og Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, deiluaðil- um til viðræðna á Englandi. Eiga þær að snúast um fjögur meginat- riði, sem öll tengjast. Í fyrsta lagi fækkun í herliði Breta á N-Írlandi, í öðru lagi umbætur á lögregluliðinu, í þriðja lagi afvopnun herskárra hópa og í fjórða lagi leiðir til að halda gangandi öllum stjórnarstofnunum. Sambandssinnar, sem vilja að N- Írland verði áfram breskt yfirráða- svæði, krefjast þess að Írski lýðveld- isherinn (IRA) leggi niður öll vopn í samræmi við friðarsamninga er gerðir voru 1998. Fyrir hálfum mán- uði urðu mestu óeirðir er brotist hafa út á N-Írlandi í þrjú ár. Hafa Bretar sent aukinn herafla þangað og eru nú alls um 15 þúsund breskir her- menn á N-Írlandi. Mikill viðbúnaður vegna göngutíðar mótmælenda á N-Írlandi Gönguleið Óraníuregl- unnar lokað Belfast. AFP. ÁRLEG göngutíð mótmælenda í Óraníureglunni á Norður-Írlandi hefst í dag og í gær voru hermenn og lögregla að reisa vegatálma og koma fyrir gaddavír þar sem ganga Óraníureglunnar á að fara um. Hefur leiðinni frá Drumcree- kirkju til Garvaghy-vegar í Portadown, vestur af Belfast, verið lokað. Flestir íbúar við Garvaghy eru kaþólskir. AÐ minnsta kosti sex slösuð- ust, þar af einn lífshættulega, þegar naut stungu þá í fyrsta nautahlaupi ársins á götum Pamplona á Spáni í gærmorg- un, að því er hjúkrunarfólk greindi frá. Sex naut, fimm til sex hundruð kílóa þung, hlupu um þröngar götur borgarinnar og mörg hundruð manns hlupu á undan þeim og reyndu að forðast að verða fyrir hornum nautanna eða lenda undir fót- um þeirra. Tuttugu og níu ára bandarísk kona hlaut heila- skaða og djúpt sár á læri þeg- ar naut stakk hana og 22 ára Breti slasaðist alvarlega. Fjórir Spánverjar slösuðust minna. Hlaupið tók um fimm mín- útur, en að því loknu var farið með nautin á leikvang þar sem fella átti þau í ati síðdeg- is. Sex stungnir á Spáni Pamplona. AFP. Strasbourg. AFP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.