Morgunblaðið - 08.07.2001, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Dundee-leikur á vísi.is
Sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15. Vit nr. 250
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Mánudag kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 249
FRUMSÝNING FRUMSÝNING
Hann heyrði að
það væri villt í LA.
hann vissi ekki hversu villt!
Geggjuð gamanmynd frá leikstjóra Ghostbusters!
Sýnd kl. 3.45, 5.30 og 8. Vit 234
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
Mán kl. 4 og 6. Vit nr. 236.
strik.is
KVIKMYNDIR.is
1/2
Hugleikur
Nýi Stíllinn
Keisarans
Sýnd kl. 2 og 3.45.
Mán kl. 3.45. Vit nr. 213.Sýnd kl. 10.20. B. i. 16. Vit nr. 238
Fjögur súpermódel
og ein venjuleg stúlka.
Strákurinn í næsta húsi
á ekki möguleika.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Mán. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 242.Sýnd kl. 6, 8 og 9.30. Vit nr. 235. B.i. 12 ára
PEARL HARBOR
7 desember 1941, skyndiárás sem breytti lífi þeirra að eilífu.
Sýnd kl. 1.45. Íslenskt
tal. Vit nr. 231
Dundee er mættur aftur, sprækari en nokkru sinni fyrr í þessari
sprenghlægilegu gamanmynd um ævintýri Krókódíla Dundee.
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Sýnd kl. 4 og 10.
Mán. kl. 6 og 10. B. i. 16.
KEANU REEVES JAMES SPADER
2 vikur á toppnum í
Bandaríkjunum.
Keanu Reeves og James Spader
eru fantagóðir í þessum frábæra
spennutrylli í anda SevenSýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Mán. kl. 6, 8 og 10. B. i. 16
Hluti myndarinnar var tekinn upp á Íslandi
Frábær hasarmynd sem fór
beint á toppinn í Bandaríkjunum
Stærsta ævintýri sumarsins er hafið
Loksins ný mynd frá
leikstjóra Fucking Ámal.
Sænsk snilld og óborganlegur
húmor sem kemur öllum í gott
skap. Tékkið á þessari.
TILLSAMMANS
betra er að
borða grautinn
saman en
steikina einn
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Mánudag kl.6, 8 og 10. B. i. 12 ára.
Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15.
Mánudag kl. 5.45, 8 og 10.15. B. i. 12 ára.
Sýnd kl. 6.
Mán kl. 6 og 8. Sýnd kl. 8.
ÓHT Rás 2
RIEN SUR ROBERT
Kínversk
kvikmyndahátíð
5.-9. júlí
Lótuslampinn kl. 4
Vegurinn heim kl. 6
Brotlending kl. 8
Bréfberarnir kl. 10
Mánudagur
Siglingakeppnin
kl. 10.30
1/2 Kvikmyndir.com
H.L. Mbl.
H.K. DV
Strik.is
ÓHT Rás 2
SV Mbl
FÁAR tónlistarstefnur eiga eins
greiða leið inn um hlustirnar hjá
fólki og fönkið sem sannast
kannski best á því hvernig fönk-
bylgjurnar rísa aftur og aftur, sjá
til að mynda glæsilega plötu Jagú-
ars sem kom út fyrir skemmstu.
Ekki er þó bara að tónlistarunn-
endur nærist á fönki frá áttunda
áratugnum, á við það sem Jagúar-
menn spila, heldur rúmast margar
stefnur innan fönksins og þar á
meðal afríkufönk.
Afríkufönkið, afrobeat, varð til í
næturklúbbum Lagos, höfuðborg-
ar Nígeríu, þar sem Fela Kuti réð
ríkjum með fjölskipaðri hljómsveit
sinni. Fela, sem tók sér afríska
millinafnið Anipulako sem ungur
maður, er látinn fyrir nokrum ár-
um, en hann er með fremstu tón-
listarmönnum heims á síðustu ára-
tugum og eftir hann liggur grúí
platna. Hann rak ýmsar hljóm-
sveitir í heimalandi sínu, allt frá
því hann stofnaði nígeríska útgáfu
af Koola Lobitos 1963 og spilaði
bræðing af djass og highlife. Fyrir
Fela vakti að búa til nýja afríska
tónlistarstefnu og kallaði hana
afrobeat til að undirstrika það, en
helstu hljómsveitir hans voru Afr-
ica 70 og Egypt 80.
Aukinn áhugi á Fela Kuti
Frá því Fela Kuti féll frá 1997
hefur áhugi á tónlist hans aukist
jafnt og þétt, ekki síst í kjölfar
þróttmikillar endurútgáfu á verk-
um hans. Sá áhugi hefur síðan orð-
ið til þess að hljómsveitir víða hafa
tekið afrobeat á dagskrá sína,
nefni einskonar útibú Jagúars sem
lék slíka tónlist á skemmtunum
fyrir nokkru, og þar á meðal New
York sveitin magnaða Antibalas,
sem sendi frá sér bráðskemmti-
lega skífu á Ninjatune fyrir
nokkru.
Antibalas, sem má víst snara úr
spænsku sem skothelt, er fjórtán
manna sveit ættuð frá Brooklyn og
hljóðfæraskipan segir sitt um hvað
er í gangi á sviðinu; saxófónar,
básúnur, gítarar, fjölsnært
slagverk, trommur, kongatromm-
ur, shekere, rafbassi, orgel og
trompetar, en alls eru trommu- og
slagverksleikararnir fjórir.
Stofnandi og leiðtogi sveitarinn-
ar, saxófónleikarinn Martin Perna,
segir að upphaflega hafi suður-
amerísk hrynskipan verið að segja
allsráðandi í tónlist Antibalas, en
smám saman hafi tónlistin þróast í
hreint afrobeat. „Sá merkimiði er
þó reyndar ekki ýkja nákvæmur,
enda hefur tónlistin farið margar
ferðir frá Afríku til Karíbahafs og
aftur til baka og þegar við bætist
að við erum sjálf að leggja af okk-
ur í lögin verður býsna erfitt að
ætla að skilgreina hana í hörgul.“
Það hefur reynar sitt að segja um
tónlstina hve ólíkur uppruni hljóð-
færaleikaranna er, því þeir eru
ættaðir frá Suður-Ameríku,
bleiknefjar, afríkumenn og af as-
ískum uppruna.
Rætur Antibalas eru í hljóm-
sveitinni Daktaris, en sú gekk svo
langt í afrobeatáhuga sínum að
mikil vinna var lögð í að ná sama
hljóm á upptökurnar og í frum-
stæðum hljóðverum í Lagos á átt-
unda áratugnum. Þegar Daktaris
lagði upp laupana tók stór hluti
sveitarinnar sig til og stofnaði nýja
hljómsveit með liðsmönnum salsa-
sveitarinnar Soul Explosion.
Engum háðir
Áðurnefndur Martin Perna
stýrði Daktaris og segir að fráfall
Felas hafi meðal annars orðið til
þess að hann ákvað að láta verða
af því að setja á stofn afrobeat-
sveit. Að sögn lenti hann snemma í
erfiðleikum við að fá menn til að
helga sig hljómsveitinni, þó aldrei
hafi vantað tónlistarmenn til að
spila á tónleikum og skemmtunum.
Á endanum urðu fastir liðsmenn
sveitarinnar fjórtán sem getið er,
en Perna segist hafa lagt mikla
áherslu að fá inn í hljómsveitina
tónlistarmenn sem allir hefðu eitt-
hvað til málanna að leggja.
Liður í starfi Antibalas er að
menn vilja ekki vera neinum háðir
svo þeir leggja áherslu á að gera
hlutina sjálfir, smíðuðu eigin hljóð-
ver, stofnuðu eigin útgáfu, Afro-
sound, til að gefa út plötur vestan
hafs og svo má telja. Það er reynd-
ar í takt við þá yfirlýstu stefnu
liðsmanna að breyta heiminum, en
að þeirra mati er tónlistin besta
verkfærið til þess.
Afrosound gaf út fyrstu smá-
skífu sveitarinnar, Liberation Afro
Beat, Vol. 1, sem var síðar endur-
útgefin endurbætt og loks gefin út
í þriðja sinn fyrir atbeina Ninja
Tune útgáfunnar bresku, en þaðan
berst hún hingað til lands. Alltaf
batnaði skífan við hverja útgáfu og
nú svo góð að varla verður betur
gert í fjöri og lífsgleði. Fela Kuti
vinir sakna þess að ekki sé meira
sungið á skífunni, þó Fela hafi eig-
inlega ekki sungið, en afrobeatið
er á sínum stað, kraftmikil klifandi
og þéttur blástur.
Að sögn Perna stendur til að
auka söng til muna á næstu skífum
Antibalas, ekki síst til að koma á
framfæri eindregnum pólitískum
skoðunum hljómsveitarmeðlima. Í
ljósi þess að leikið er afrobeat
kemur kannski ekki á óvart að sá
söngur, sem þó er, er á pidgin-
ensku og yoruba, en einnig syngja
þeir liðsmenn á spænsku þegar sá
gállinn er á þeim.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Skothelt afrískt
fönk
Fela Kuti er helst minnst fyrir tónlistarstefnuna
sem hann bjó til og kallaði afrobeat. Árni Matt-
híasson segir frá bandarísku sveitinni Antibalas
sem fetar í fótspor Felas.