Morgunblaðið - 08.07.2001, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 2001 27
TILBOÐ ÓSKAST
í Jeep Wrangler árgerð 1997, vél 4 cyl. 2,5 lt.
m/blæju (ekinn 49 þús. mílur),
Kia Sportage 4x4 árgerð 1999
(ekinn 13 þús. mílur) og aðrar bifreiðar,
er verða sýndar að Grensásvegi 9
þriðjudaginn 10. júlí kl. 12-15.
14 SÆTA RÚTA
Tilboð óskast í 14 sæta Ford Econoline
Super Club rútu árgerð 1992.
NORTHWESTERN FLUGVÉLATÖGGUR
Ennfremur óskast tilboð í
Northwestern flugvélatögg árgerð 1968,
sem er í heillegu standi.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16
UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA
SALA VARNARLIÐSEIGNA
Á AKRANESI voru þrír drengir
sem unnu fyrir hönd síns bekkjar, 7.
HE í Brekkubæjarskóla. Það voru
þeir Sigurður Kári Ásbjörnsson,
Viðar Engilbertsson og Örnólfur
Þorleifsson. Þeir útbjuggu vegg-
spjald þar sem fram koma ýmsar
gagnlegar og skemmtilegar upplýs-
ingar um Færeyjar auk mynda.
Hópurinn vann verkið undir dul-
nefninu „Dansandi geitur – fljúg-
andi kýr“. Hrönn Eggertsdóttir,
umsjónarkennari bekkjarins, fylgir
bekknum til Færeyja. Hún segir
þátttöku nemenda sinna í verkefna-
vinnunni hafa verið mikla og góða.
„Úr okkar bekk fóru fimm verkefni
og þar af komust þrjú í úrslit,“ sagði
hún.
Hrópað húrra
Að mati Hrannar hafa nemend-
urnir grætt mikið á verkefnavinn-
unni. „Þau veltu Færeyjum mikið
fyrir sér, lágu yfir upplýsingum og
höfðu mikinn áhuga á efninu. Þau
voru samt alveg róleg og höfðu eng-
ar sérstakar væntingar um sigur,“
sagði hún og bætti við að gleðin
hefði verið mikil þegar tilkynnt var
um úrslitin. „Þeir eru hetjur í
bekknum, blessaðir strákarnir, og
búið að hrópa húrra fyrir þeim og
klappa.“ Hrönn segir að krakkarnir
hafi unnið verkefnin sjálfir að
mestu. „Mér finnst gott að þau
fengu sjálf að ákveða hvernig verk-
efnin áttu að vera. Það var um
margar leiðir að velja, t.a.m. máttu
þau ráða hvort þau ynnu ein eða í
hópum,“ sagði hún og bætti við að
ávinningurinn væri þannig marg-
þættur með áherslu á sjálfstæði í
vinnubrögðum og samvinnu auk
þekkingarinnar sem þau hefðu viðað
að sér.
Örnólfur tekinn tali
Blaðið náði tali af Örnólfi Þor-
leifssyni, einum drengjanna í vinn-
ingshópnum frá Akranesi. Hann
sagði heiti hópsins, Dansandi geitur
– fljúgandi kýr, bara hafa oltið upp
úr þeim piltunum. „Æ, þetta var
bara eitthvað upp úr honum Viðari,
örugglega bara út í loftið,“ sagði
hann. Að hans mati gekk vel að
vinna verkefnið og dró frekar úr því
að mikil vinna hefði farið í það. „Við
fórum á Netið og á bókasafnið til að
leita að upplýsingum. Svo fluttum
við gögnin bara yfir í Word og skrif-
uðum niður,“ sagði hann um hvar
þeir drengir hefðu leitað fanga og
hvernig verkefnið var unnið.
Fá kannski skerpukjöt
Örnólfur sagði bekkinn hafa
glaðst mjög yfir
fregnunum um
fyrirhugða
Færeyjaför og
blásið hefði ver-
ið til hátíðar í
tilefni af því.
„Kennarinn
bauð öllum í
pitsuveislu og
svo fengum við
ís á eftir,“ sagði
hann. Örnólfur
sagði að hann
og allur bekk-
urinn, utan
kannski eins
drengs sem oft
hefði farið til
Færeyja áður, hlökkuðu mikið til
fararinnar. „Við gistum hjá krökk-
unum sem eru í skóla þar og svo
verður örugglega farið í ferðir líka.
Svo fáum við kannski að smakka
skerpukjöt,“ sagði Örnólfur og
bætti við að lokum að tungumálið
myndi örugglega ekki vefjast fyrir
honum því hann hefði einu sinni haft
Færeyinga fyrir nágranna og hefði
alveg skilið það sem þeim fór á milli.
Dansandi geitur – fljúgandi
kýr frá Akranesi
Sigurður Kári Ásbjörnsson, Örnólfur Þorleifsson og Viðar Engilbertsson kölluðu
hópinn sinn Dansandi geitur - fljúgandi kýr.
Veggspjaldið góða sem drengirnir þrír úr 7. HE í
Grundarskóla unnu.
VINNINGSVERKEFNIÐ
úr grunnskóla Eskifjarðar
hefur þá sérstöðu að vera
unnið af einum nemanda,
Herdísi Huldu Guðmanns-
dóttur, sem með sigrinum
kom öllum bekknum sínum til
Færeyja. Hún skilaði inn litlu
forriti sem sýnir heimasíðu
sem hún bjó til með margvís-
legu efni um eyjarnar.
Róbert Haraldsson, um-
sjónarkennari bekkjarins,
segir alla í bekknum hafa tek-
ið þátt í keppninni, ýmist með
einstaklings- eða hópverkefn-
um. „Þau eyddu þónokkrum
tíma í þetta og mikill áhugi
var fyrir hendi, enda er þetta
mikill keppnisbekkur.“ Hann
segir jafnframt að öll þessi
verkefnavinna skili sér vel í
auknum áhuga á viðfangsefn-
inu meðal nemendanna. „Það
er líka mikil ánægja með að fá
að fara í þessa ferð í bekknum
og krakkarnir hlakka mikið til. Þetta
er spennandi, ég held að Herdís hafi
hringt í mig tíu sekúndum eftir að
hún fékk bréfið með úrslitunum,“
sagði Róbert.
Bjó sjálf til heimasíðu
Herdís Hulda skilaði verki sínu á
tölvudiski undir dulnefninu C. Hún
segir að mikill tími hafi farið í að út-
búa verkefnið og skaut hún á 48
vinnustundir í það heila. Herdís skrif-
aði síðuna sjálf og notaði til þess
HTML-kóða. Hún segir að mikill tími
hafi farið í að vinna með myndirnar á
síðunni. „Ég þurfti að gera litlar
myndir og síðu með stórum myndum.
Svo þurfti ég stundum að breyta
þeim í „gif“ myndir og síðan í „jpg“
aftur,“ sagði Herdís. Síðurnar segist
hún hafa skrifað að mestu í Notepad
og að hluta með FrontPage, svo seg-
ist hún hafa notað Paint Shop Pro í
myndvinnsluna.
Æfir fótbolta í Neskaupstað
„Ég skannaði inn myndir sem
pabbi átti síðan hann fór í skóla-
ferðalag til Færeyja og síðan lét vin-
kona mín mig hafa nokkrar myndir
frá því að hún fór til Færeyja og svo
náði ég í nokkrar á Netinu,“ sagði
Herdís Hulda. Þá sagði hún að pabbi
hennar hefði átt forrit (WebExe) sem
tók allar síðurnar og breytti þeim í
skrá sem fara mætti með hvert sem
er og skoða í tölvu án þess að vera
með netvafra eða tengingu við Netið.
Herdís segist vera búin að heyra í
flestum bekkjarfélögum sínum og að
þeir séu mjög ánægðir með þróun
mála. „Ég hitti þau samt ekki svo
agalega mikið núna meðan ég er í
sumarfríi, eða ekki strákana sko,“
segir hún en bætir við til skýringar að
hún æfi fótbolta á Norðfirði og þess
vegna hitti hún þá minna en ella.
C úr sjöunda bekk
grunnskóla Eskifjarðar
Herdís Hulda skilaði verkefni sínuá tölvudiski en hún bjó til heima-síðu um Færeyjar.
Herdís Hulda í garðinum heima hjá sér
á Eskifirði.