Morgunblaðið - 08.07.2001, Side 6
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 1/7–7/7
NÁTTÚRUVERND rík-
isins telur að mat á um-
hverfisáhrifum álvers í
Reyðarfirði sýni að álver-
ið muni valda mjög mikilli
mengun og að ekki verði
um sjálfbæra nýtingu á
vatnsorku að ræða. Þetta
kemur fram í umsögn sem
Náttúruvernd hefur skilað
til Skipulagsstofnunar.
ÞÝSKUR ferðamaður
lést í sundlauginni á Skóg-
um undir Eyjafjöllum á
mánudagskvöld. Tildrög
slyssins eru í rannsókn hjá
lögreglunni á Hvolsvelli
sem nýtur aðstoðar heil-
brigðisnefndar Suðurlands
og Vinnueftirlits ríkisins.
KAUPÞING hefur selt
21 milljón að nafnverði
eða 9,38% hlut í Trygg-
ingamiðstöðinni hf. til
Ovalla Trading. Söluverð
hlutarins er 1.102,5 millj-
ónir.
BRÝN þörf er á að
styrkja lánastarfsemi
Byggðastofnunar að mati
Theodórs A. Bjarnasonar,
forstjóra stofnunarinnar.
Lánsumsóknum hefur
fjölgað um 23% á milli ár-
anna 1999 og 2000 og það
sem af er árinu er aukn-
ingin 26%. Áætlað er að
aðeins 30-40% umsókna
fái jákvæða afgreiðslu.
Lánsfé þessa árs sam-
kvæmt fjárlögum er upp-
urið.
BORGARRÁÐ sam-
þykkti að endurskoða
álagningarprósentu fast-
eignagjalda með það að
markmiði að endurskoðað
fasteignamat leiði ekki til
þess að heildarálögur á
Reykvíkinga hækki.
Þroskaþjálfar í óform-
legum viðræðum
FULLTRÚAR úr samninganefnd
Þroskaþjálfafélags Íslands og samn-
inganefnd ríkisins hafa átt í óformleg-
um viðræðum síðustu daga varðandi
kjaradeilu þroskaþjálfa sem starfa hjá
ríkinu, eftir að viðræður deilenda
sigldu í strand hjá ríkissáttasemjara á
þriðjudag. Sólveig Steinsson, formað-
ur Þroskaþjálfafélagsins, sagði við-
ræðurnar hafa strandað á launaliðnum
þar sem raunhækkun heildarlauna sé
ekki nægjanleg. Gunnar Björnsson,
formaður samninganefndar ríkisins,
segir nefndina hafa boðið þroskaþjálf-
um sambærilegt launakerfi og aðrir
háskólamenn hafi samið um, en sé
ekki tilbúin til að bjóða meira en aðrir
háskólamenn hafi samið um. Verkfall-
ið bitnar á um ellefu hundruð þroska-
heftum einstaklingum, sem annað
hvort missa þjónustu alveg eða að
hluta til. Næsti fundur í deilunni hefur
verið boðaður 11. júlí nk.
„Vér mótmælum allir!“
Fáir atburðir Íslandssögunnar eru
jafn ofarlega í vitund íslensku þjóð-
arinnar og þjóðfundurinn árið 1851.
Hundrað og fimmtíu árum síðar hafa
þrjú orð sem þar voru mælt sterka
skírskotun: „Vér mótmælum allir!“ Í
þessum orðum kristallast sjálfstæðis-
barátta Íslendinga. Hinu erlenda valdi
var ögrað og krafti hleypt í sóknina
eftir sjálfstæði. Á þjóðfundinum settu
Íslendingar, með Jón Sigurðsson í far-
arbroddi, fram kröfur sem sjálfstæð-
isbaráttan byggðist á þar til hún var
unnin. „Hvar skyldi nútíminn í póli-
tískri sögu okkar Íslendinga byrja, ef
ekki þarna? Á þessari stundu var
kveðið upp úr með það, að við vildum
vera Íslendingar en ekki Danir,“ sagði
Halldór Blöndal, forseti Alþingis, í
ávarpi á hátíðarsamkomu á Sal
Menntaskólans í Reykjavík þar sem
150 ára afmælis þjóðfundarins var
minnst.
INNLENT
Milosevic formlega
ákærður
SLOBODAN Milosevic, fyrrverandi
forseti Júgóslavíu, stóð einsamall
frammi fyrir saksóknurum og dómur-
um í stríðsglæpadómstóli Sameinuðu
þjóðanna í Haag sl. þriðjudag þegar
honum voru formlega birtar ákærur
fyrir stríðs-
glæpi í
tengslum við
baráttu her-
sveita hans í
Kosovo fyrir
tveimur ár-
um. Neitaði
Milosevic að
svara ákær-
unni og sagði
dómstólinn
ólöglegan og
til þess eins
gerðan að
búa til fals-
aða réttlætingu á stríðsglæpum Atl-
antshafsbandalagsins (NATO) í Ko-
sovo.
Aðaldómari réttarins, Richard May,
færði inn yfirlýsingu um sakleysi fyrir
hönd Milosevic. Var réttarhöldunum
síðan frestað, en næsti liður þeirra fer
fram í lok ágúst. Auk ákæra um glæpi
gegn mannkyninu vegna átakanna í
Kosovo, þar sem hermenn Milosevic
börðust gegn Kosovo-búum af al-
bönskum uppruna, er þess vænst að
dómstóllinn ákæri Milosevic í október
nk. fyrir glæpi sem framdir voru í
Króatíu og Bosníu-Herzegóvínu.
Fréttaskýrendur telja ólíklegt að
rétturinn taki vel í þær fullyrðingar
Milosevic að eini glæpur hans hafi ver-
ið að standa uppi í hárinu á NATO.
Hann viðurkenndi lögmæti dómstóls-
ins í Haag þegar hann sem forseti Ser-
bíu undirritaði Dayton-samkomulagið
1995 um lok stríðsins í Bosníu. Sam-
kvæmt samningnum var stjórn hans
skuldbundin til samstarfs við dómstól-
inn.
Milosevic gengur í
réttarsalinn í
Haag á þriðjudag.
CARLOS Menem, fyrr-
verandi forseti Argentínu,
var formlega ákærður á
miðvikudaginn fyrir að
hafa verið höfuðpaurinn í
„ólöglegum félagsskap“
sem seldi með ólöglegum
hætti vopn til Ekvador og
Króatíu á síðasta áratug.
Var jafnframt gefin út
skipun um að Menem
skyldi handtekinn. Hann
hefur viðurkennt að hafa
heimilað útflutning vopna
til Panama og Venesúela,
en kveðst ekki hafa haft
hugmynd um að vopnin
yrðu flutt áfram til Ekva-
dor og Króatíu.
SAMTÖK olíuútflutn-
ingsríkja, OPEC, sam-
þykktu á fundi í Vín á
þriðjudaginn að halda
framleiðslu á olíu í ríkj-
unum óbreyttri þótt horfur
séu á að Írakar hefji olíuút-
flutning að nýju. Á fund-
inum var rætt um þann
möguleika að draga úr
framleiðslu til að koma í
veg fyrir verðhrun vegna
mikilla birgða og minnk-
andi eftirspurnar.
HUNDRAÐ fjörutíu og
fimm manns létu lífið þeg-
ar rússnesk farþegaþota
fórst í aðflugi við borgina
Irkútsk í Síberíu á þriðju-
daginn. Enginn komst lífs
af. Þotan var þriggja
hreyfla, af gerðinni Tupo-
lev TU-154 og var í eigu
rússnesks flugfélags. Var
hún á leið frá Jekater-
ínborg í Úralfjöllum til
Vladívostok á austur-
strönd Rússlands og átti að
millilenda í Irkútsk til að
taka eldsneyti.
ERLENT
OPIÐ Í DAG
13-17
BT SKEIFAN
Í FULLUM
GANGI
„VIÐ Vatnsfellsvirkjun er í fyrsta
sinn í virkjunarsögu landsins unnið
að gerð stíflu með steyptri klæðn-
ingu vatnsmegin í stað hefðbundinn-
ar kjarnastíflu,“ segir Björn A.
Harðarsonar staðarverkfræðingur.
Hann segir að sérstætt byggingar-
lag stíflunnar ráðist af skorti á hefð-
bundnu hráefni en jarðvegurinn við
virkjunina samanstandi að mestu af
móbergi og mjög kostnaðarsamt sé
að flytja fínkornótt efni til stíflugerð-
ar á svæðið.
„Það var þó gert við tvær minni
stíflur. Við gerð skurða er jarðveg-
urinn alla jafna skafinn með stórum
gröfum þannig að mjög lítið hefur
þurft að sprengja. Undirlag aðalstífl-
unnar er svo styrkt með því að dæla
sementsefju í holur í jarðveginum.
Þá er stíflugarðurinn hlaðinn í
nokkrum þrepum svo hann verði
nægilega þéttur í sér. Steyptu hlið-
ina er mikil kúnst að gera en hún er
gerð úr steyptum flekum sem
steypumótið er dregið hægt upp af á
meðan steypt er,“ sagði Björn og
bætti við að allt að 10 tíma tæki að
steypa hvern fleka.
Íslensk hönnun
byggingarvirkja
Björn segir að gerð og smíði virkj-
unarinnar hafi verið boðin út af hálfu
Landsvirkjunar og starf sitt fælist í
yfirumsjón og samræmingu verka.
„Eftirlitið var líka boðið út og ég er
starfsmaður fyrirtækjanna sem tóku
það að sér, Lahmeyer International,
VSÓ Ráðgjafar og Almennu verk-
fræðistofunnar hf. Í dag eru t.a.m.
sjö verktakafyrirtæki að störfum við
auk fjölda undirverktaka. Gerðar
eru gríðarlegar kröfur til mannvirkis
eins og þessa hér sem á að standa um
aldur og ævi,“ sagði hann og bætti
við að gaman væri að segja frá að öll
byggingarvirki á svæðinu væru ís-
lensk hönnun en Hönnun hf. í
Reykjavík væri aðalhönnuður virkj-
unarinnar.
Björn sagði kostnað við virkjunina
nema um sjö milljörðum og þótti það
nú ekkert svakalegt í samanburði við
rísandi verslanamiðstöð í Kópavogi
sem hann taldi að ætti að kosta um
10 milljarða. „Þarna er ólíku saman
að jafna,“ sagði Björn, „enda hlýtur
að felast meiri arðsemi í því að búa til
peninga með orkusölu en að rétta þá
milli handa í verslunum.“
Erfiðara að fá fólk til starfa
Í sumar segir Björn að starfi yfir
300 manns við gerð virkjunarinnar
og sagði hann að væru taldar saman
vinnustundir jöfnuðust þær örugg-
lega á við 700 til 800 manna þorp.
Hann sagði jafnframt að stöðugt yrði
erfiðara að fá menn til starfa. „Enda
verðum við að bjóða betri kjör en
aðrir. Þarna kemur margt til, breytt
þjóðfélagsmynstur með pabbana
meira heimavið en áður og svo auð-
vitað þensla á vinnumarkaði.“ Þá
sagði Björn sérstætt við smíði þess-
arar virkjunar að slysatíðni hafi ver-
ið mun lægri en við aðrar fram-
kvæmdir af þessari stærðargráðu.
„Engu að síður hafa hér orðið slæm
slys, þar má telja banaslys á síðasta
ári og svo hefur nokkrum sinnum
þurft að kalla til þyrlu Landhelgis-
gæslunnar,“ sagði hann. Björn sagði
mjög mikið lagt upp úr öryggi starfs-
manna og nefndi að á svæðinu væri
sjúkrastöð og hjúkrunarfræðingur
öllum stundum til taks og jafnframt
kæmi læknir reglulega. Þá sagði
hann að björgunarlið væri ávallt til
reiðu, auk sjúkrabifreiðar og
slökkviliðs. „Svo er einn starfsmaður
í fullu starfi öryggisfulltrúa af hálfu
eftirlitsins sem gengur úr skugga
um að fyllstu öryggiskröfum sé fylgt
á vinnusvæðinu auk fjölda öryggis-
fulltrúa á vegum verktakanna,“
sagði Björn.
Augnmeiðsl og minni áverkar
Elín Pétursdóttir hjúkrunarfræð-
ingur segir þær vera þrjár sem
skipti á milli sín vikunum. „Þetta er
mikil viðvera, við megum aldrei fara
svo langt frá að við séum meira en 10
mínútur aftur á staðinn. Hér er unn-
ið öllum stundum og ekki hægt að
segja til um hvenær eitthvað getur
borið út af. Þetta er mjög hættulegt
vinnuumhverfi,“ sagði hún. Elín
staðfesti þó að hingað til hafi minna
verið um slys við þessa virkjun en
fyrri virkjanir. Þar talar hún af
reynslu því hún starfaði sem hjúkr-
unarfræðingur bæði við Blöndu-
virkjun og Sultartanga. „Við Sultar-
tanga var helst hrunhætta en hér er
fallhætta,“ sagði hún og bætti við að
mest væru það minniháttar skeinur
og skrámur sem upp kæmu en einnig
kæmi fyrir að menn fengju sand eða
annað í augun. Elín sagði viðveru
hjúkrunarfólks skipta miklu fyrir
líðan starfsfólks og mikilvægt fyrir
fólk að vita að hugað væri að öryggi
þess og vellíðan á vinnustað.
Vatnsfellsvirkjun við Þórisvatn á brún hálendis Íslands
Morgunblaðið/Þorkell
Menn að vinnu við uppsetningu annars rafals virkjunarinnar þar sem beljandi flaumurinn á eftir að streyma.
Gríðarlegar kröfur
gerðar til mannvirkisins
Morgunblaðið/Þorkell
Nýmæli við gerð virkjunarinnar er að vatnshlið aðalstíflunnar er steypt.