Morgunblaðið - 08.07.2001, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.07.2001, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ SJÖUNDI bekkur Lýsuhólsskóla vann saman að einu verkefni enda eru þau bara fimm í bekknum. Þau skrifuðu ýtarlega ritgerð með upp- lýsingum um Færeyjar og var hún faglega frá gengin, gormabundin og ríkulega myndskreytt. Rósa Er- lendsdóttir, umsjónarkennari bekkj- arins, sagði að krakkarnir hefðu orð- ið mjög glaðir við fréttirnar um að hafa borið sigur úr býtum og að þeir fengju að fara til Færeyja. Ekkert verið að slugsa „Þau vissu líka að þau höfðu unnið gott verk, það var svolítið gaman að því. Þess vegna bjuggust þau alveg eins við sigri, þótt ekki þyrðu þau að vona. Það var kannski helst ég sem sagði þeim að vera nú ekki allt of bjartsýn,“ sagði Rósa. Aðspurð sagði hún ekki enn búið að ákveða hvort farið yrði í haust eða næsta vor. „Verkefnið var unnið af mikilli eljusemi og það var unnið til sigurs, ekkert verið að slugsa,“ sagði hún, „skólinn er nýbúinn að fá gormavél sem við notuðum við verkið og krakkarnir eru mjög tölvufærir.“ Mikil vinna lögð í verkið Iðunn Hauksdóttir er ein krakk- anna fimm sem fara til Færeyja. Hún segir þau hafa lært mjög mikið á að setja saman verkefnið. „Við unnum í þessu bæði eftir skóla og í skólanum, síðan sátum við við tölv- urnar og lásum í bókum og leituðum uppi efni til að nota,“ sagði Iðunn. Hún sagði þó að annað skólastarf hefði ekki þurft að líða fyrir þessa miklu vinnu sem fór í verkefnavinn- una því mikið af henni hefði verið unnið utan venjulegs skólatíma. Þá segir Iðunn að þeim hafi gengið vel að vinna saman enda sé bekkurinn lítill og samhentur eftir því. Þakkar tækjakosti velgengnina „Samt hittumst við ekkert mjög mikið fyrir utan skólatímann því það er frekar langt á milli okkar,“ bætti hún við. Það er á Iðunni að skilja að velgengnina megi að nokkru leyti þakka tækjakosti skólans. „Við þurftum stundum að vera tvö saman með tölvu en núna erum við komin með alveg nóg þannig að við getum verið ein og sér.“ Iðunn gefur lítið út á hvort þau séu orðin algjörir Fær- eyjasérfræðingar en telur þó að tungumálaörðugleikar ættu ekki að þvælast fyrir þeim. „Ég get kannski hlustað á fólkið, en ekki víst að ég geti talað,“ sagði Iðunn áður en spjallinu var slitið. Þjassi, hópur Lýsuhólsskóla úr Snæfellsbæ Greinilega var mikið lagt í verkefni krakkanna í Lýsuhólsskóla. Forsíða verkefnis 7. bekkjar Lýsuhólsskóla. Bekkjarmynd af 7. bekk Lýsuhólsskóla; f.v. Gísli, Sigurjón, Sigurbjörg, Iðunn og Snædís. VEGLEG verðlaun voru í boði fyrirbesta verkefnið í samkeppni sjö-undubekkinga þriggja byggðar-laga síðastliðinn vetur. Nemendurhér gerðu kynningarefni um Fær- eyjar og um leið gerðu nemendur í Færeyjum kynningarefni um Ísland. Bekkirnir kepptu svo innbyrðis í hvoru landi fyrir sig og innan byggðarlaganna. Verðlaunin fyrir besta verk- efnið voru ekki af verri endanum því í hverju byggðarlagi var öllum bekknum sem besta verkefnið kom frá, auk kennara og eins for- ráðamanns að auki, boðið í heimsókn til vina- bæjarins í hinu landinu. Samningur um aukin samskipti Að þessu sinni voru það Akranes, Snæfells- bær og Fjarðarbyggð sem tóku þátt fyrir Ís- lands hönd og vinabæirnir Sörvágur, Vest- manna og Sandavágur í Færeyjum. Samkeppnin er á vegum FITUR sem er fær- eysk-íslenskur samningur og heyrir undir Samgönguráðuneytið. Markmið samningsins er að auka samskipti landanna en keppnin fer fram bæði hér heima og í Færeyjum og tengist vinabæjum viðkomandi byggðarlaga. Í stjórn FITUR sitja þrír fulltrúar frá hvoru landi og mun keppnin vera eitt stærsta verkefni sem ráðist hefur verið í undir merkjum samnings- ins. Næsta vetur er ráðgerð keppni með svip- uðu sniði á Siglufirði, Garðabæ og Austur- Héraði og í vinabæjunum Eidi, Torshavn og Runavik í Færeyjum. Að sögn forráðamanna FITUR var mark- miðið með keppninni að kynna íslenskum börnum Færeyjar og færeyskum börnum Ís- land, vekja áhuga þeirra og auka þekkingu á sögu, landafræði, menningu og íbúum land- anna. Þegar upp er staðið er þess vænst að vinnan skili sér í auknum áhuga á gagnkvæm- um ferðalögum milli landanna. Fá inni hjá fjölskyldum í vinabænum Valið var eitt verkefni í hverju byggðarlagi og fá þau öll verðlaun, jafnt á Íslandi sem í Færeyjum. Að sögn Guðbjarts Hannessonar, skólastjóra Grundarskóla á Akranesi, sem hef- ur umsjón með verkefninu ber nefndin kostn- að af ferðalögum nemendanna og fylgdar- manna þeirra en bæjarfélögin sem taka á móti gestunum sjá um kostnað vegna fæðis og gist- ingar. „Sá háttur verður hafður á að börnin fá inni hjá fjölskyldum í vinabæjarfélaginu,“ seg- ir hann. Gunnar Sigurðsson, bæjarfulltrúi á Akranesi, á sæti í nefndinni en hann telur kostina við verkefni á borð við þetta mikla. „Verkefnið virkjar mun stærri hóp en hægt væri með að styrkja einstaka hópa til heim- sókna milli landanna. Þarna náum við til ungra krakka á mótunarskeiði sem eru opin og mót- tækileg fyrir vitneskju um annað land. Svo virkjum við auðvitað alla sem tengjast börn- unum og verkefnið hefur þannig víðtæk áhrif út í samfélagið,“ sagði Gunnar. Hann sagði jafnframt að búið væri að skipuleggja áfram- haldandi samkeppni og heimsóknir milli vina- bæja allt til ársins 2004. „Reyndar gildir samn- ingurinn [FITUR] ekki nema til ársloka 2002 en ég tel næsta öruggt að framhald verði á þessu. Heimsóknirnar vegna keppninnar í vet- ur fara fram núna í haust og næsta vor en það er samkomulagsatriði milli vinabæjanna hver heimsækir hvurn á undan,“ sagði Gunnar. Verkefnin sem urðu fyrir valinu Verkefnin sem voru hlutskörpust að þessu sinni komu frá Lýsuhólsskóla í Snæfellsbæ, Brekkubæjarskóla á Akranesi og frá grunn- skóla Eskifjarðar úr Fjarðarbyggð. Það eru því 42 börn á leið til Færeyja auk fylgdarfólks, fimm börn frá Snæfellsbæ, 16 frá Eskifirði og 21 frá Akranesi. Alls var 12 bekkjum boðið að taka þátt í keppninni hér heima og gat hver bekkur sent inn mörg verkefni. Jafnframt réðu nemendurnir því sjálfir hvort verkefnin voru unnin í hópvinnu eða sem einstaklings- verkefni. Þau voru því næst send inn undir dulnefni og valdi matsnefnd í hverju byggð- arlagi fimm verkefni í úrslit. Gunnlaugur V. Snævarr, íslenskukennari, var svo fenginn til að velja úr þeim hópi eitt verðlaunaverkefni frá hverju byggðarlagi. Dulnefni aðstandenda verkefnanna sem að lokum stóðu uppi sem sig- urvegarar voru: Þjassi frá Snæfellsbæ, Dans- andi geitur – fljúgandi kýr frá Akranesi og C úr Fjarðabyggð. Samkeppni um Færeyjaferð Síðastliðinn vetur var hleypt af stokkunum ritgerðar- og verkefnasam- keppni meðal 11 og 12 ára grunnskólanema á Íslandi og í Færeyjum þar sem í verðlaun voru ferðir til viðkomandi landa. Að þessu sinni tóku þátt, í hvoru landi fyrir sig, þrjú byggðarlög sem tengjast vinabæjaböndum. Nefnd vinnur að auknum samskiptum Íslands og Færeyja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.