Morgunblaðið - 08.07.2001, Síða 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 2001 39
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Fella- og Hólakirkja. Samræmd
heildarmynd, sýning á glerlistaverk-
um og skrúða kirkjunnar opin kl. 13-
18.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20.
Tekið er við bænarefnum í kirkjunni
alla daga frá kl. 9-17 í síma 587-9070.
Hallgrímskirkja. Sumarkvöld við
orgelið. Tónleikar kl. 20. Iain Farr-
ington frá Englandi leikur verk eftir
C.M. Widor, D. Shostakovich, L.
Vierne og M. Mussorgsky.
Hafnarfjarðarkirkja. Æskulýðsstarf
yngri deild kl.20.30-22 í Hásölum.
Krossinn. Almenn samkoma að Hlí-
ðasmára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Al-
menn samkoma kl. 20 í umsjón Sam-
hjálpar. Lofgjörðarhópur Maritu
syngur. Vitnisburðir. Allir hjartan-
lega velkomnir.
Frelsið, kristileg miðstöð. Almenn
fjölskyldusamkoma sunnudaga kl. 17.
Lið-a-mót
FRÁ
Apótekin
Tvöfalt sterkara
með GMP gæðastimpli
100% nýting/frásog
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
FRÍHÖFNIN
Reykholt — Biskupstungur
Einstaklingar - félagasamtök.
Bjarkarbraut 24, Reykholti. Til sölu er 100,5 fm nýtt einbýlishús
með glæsilegum innréttingum. Eignin skiptist í 3 herb., stofu,
eldhús, sjónvarpshol, þvottahús, bað og útigeymslu.
Eignin er laus til afhendingar strax.
Í Reykholti er verslun, banki, sundlaug, íþróttahús
og margt fleira í göngufæri
Verð er 11,5 millj.
Upplýsingar gefur:
Heimir Guðmundsson, byggingameistari,
í síma 892 3742.
!
!!
"# $$%#
Þverholti 2 - 270 Mosfellsbæ - Sími: 586 8080 - Fax: 586 8081 - www.fastmos.is
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi bréf sem Lárus Blöndal,
stjórnarmaður í Lyfjaverslun Íslands
hf., hefur sent hluthöfum:
„Ágætu hluthafar í Lyfjaverslun
Íslands hf.
Ég hef nú starfað sem stjórnar-
maður í Lyfjaverslun Íslands hf. í um
þrjá mánuði í umboði hluthafa félags-
ins. Eins og ykkur er væntanlega
kunnugt um af fréttum þá hefur þessi
tími verið viðburðaríkur en ekki
ánægjulegur.
Erindi mitt við ykkur hluthafa í
Lyfjaverslun Íslands hf. varðar kaup
félagsins á hlutabréfum í Frumafli hf.
af einum stærsta hluthafa félagsins,
Jóhanni Óla Guðmundssyni, sem
valdi þrjá af fimm aðalmönnum í
stjórn félagsins og báða varamenn-
ina.
Ég tel sem stjórnarmaður í al-
menningshlutafélagi að hluthafar hafi
rétt til að vita hvað er að gerast í
félagi þeirra. Því vil ég rekja í stuttu
máli hvað hefur gerst innan stjórnar
félagsins og varðar þetta mál.
Verðmæti Frumafls
Á fundi 2. maí 2001 var þetta mál
fyrst tekið upp í núverandi stjórn
Lyfjaverslunar Íslands hf. og var þá
vísað til þess af Grími Sæmundsen,
stjórnarformanni og viðskiptafélaga
Jóhanns Óla, að samningaviðræður
væru þegar hafnar og voru hugmynd-
ir seljanda um verð þá kynntar. Ósk-
aði ég þá eftir því að stjórninni væru
kynntir útreikningar á verðmæti
hlutabréfanna í Frumafli hf. sem
stjórnarformaðurinn taldi virði
180.000.000 kr. hluta í Lyfjaverslun
Íslands hf. sem samsvaraði tæpum
milljarði kr. að markaðsvirði. Í ljós
kom að ekkert verðmat lá fyrir þann-
ig að eftir nokkrar umræður var
ákveðið að fá endurskoðanda félags-
ins, Birki Leósson, endurskoðanda
hjá Deloitte & Touche endurskoðun-
arskrifstofu, til að meta verðmæti
félagsins. Jafnframt tilkynnti stjórn-
arformaðurinn Grímur Sæmundsen
að hann ynni að greinargerð sem
hann myndi leggja fyrir stjórnina.
Á næsta fundi 22. maí 2001 lá fyrir
greinargerð frá endurskoðanda fyr-
irtækisins þar sem hann í stuttu máli
mat fjárfestinguna á núvirði
125.000.000 til 143.000.000 kr. eftir
því hvort miðað væri við 9% eða 10%
ávöxtunarkröfu. Almennt er nú miðað
við 15% ávöxtunarkröfu af fjárfest-
ingum af þessu tagi sem gæfi að sjálf-
sögðu mun lægri niðurstöðu. Í báðum
tilvikum var miðað við að áætlanir
seljanda myndu standast fullkomlega
og vextir af fjárfestingalánum væru
7,5% sem eru töluvert undir því sem
nú gerist, sérstaklega þegar um 100%
fjármögnun er að ræða eins og í þessu
tilviki. Í þessari greinargerð kom
jafnframt fram að verulegar skekkjur
væru í reiknilíkani seljanda aðallega
varðandi skatta, endurnýjun á tækj-
um auk vaxtakostnaðar.
Útreikningar formannsins
Á þessum sama fundi lagði stjórn-
arformaðurinn, Grímur Sæmundsen,
fram sína greinargerð. Í henni kom
fram að hann taldi verðmæti samn-
ingsins vera kr. 360.000.000 en síðan
segir hann:
„Við mat á viðskiptavild verkefn-
isins voru stækkunarmöguleikar á
Sóltúni, þ.e. 4. hæð og/eða frekari
framkvæmdir á Sóltúnsreitnum
metnar á 130 milljónir króna.
Samkeppnisforskot vegna annarra
verkefna í heilbrigðisþjónustu en
öldrunarverkefna var metið á 50
milljónir króna.
Þá var viðskiptavild vegna eins
sambærilegs verkefnis til viðbótar
metin á 360 milljónir króna.
Þetta gerir samtals 900 milljónir
króna. Verkefnið er til sölu fyrir 860
milljónir króna.“
Rétt er að taka fram að ekkert ligg-
ur fyrir um það að leyfi fáist til að
byggja við Sóltún 2, ekkert liggur fyr-
ir um að það fáist annað verkefni fyrir
öldrunarþjónustu, hvað þá að það sé
væntanlegt á næstunni. Þá hefur ekki
verið sýnt fram á að kaup á Frumafli
tryggi eða geri sérstaklega líklegt að
slíkir samningar náist þar sem allar
líkur eru á að þessi þjónusta verði
boðin út ef yfirleitt verður framhald á
einkavæðingu á þessu sviði sem hefur
a.m.k. í bili verið stöðvuð að sögn nú-
verandi heilbrigðisráðherra. Þá er
ljóst að ætlað verðmæti samningsins í
verðmati Gríms er ekki í neinu sam-
ræmi við núvirðisútreikninga endur-
skoðanda Lyfjaverslunar Íslands hf.
Það er auðvitað ljóst að mat stjórn-
arformannsins á viðskiptavild Frum-
afls ehf. að fjárhæð 540 milljónir
króna er algerlega út í loftið og ekki í
neinu samræmi við reglur eða venjur
um mat á slíkum verðmætum. Ef tek-
ið er mið af útreikningi endurskoð-
anda Lyfjaverslunar þá er ljóst að
verið er að greiða tæplega 800 millj-
ónir króna fyrir viðskiptavild Frum-
afls ehf. sem er auðvitað hrein fjar-
stæða þegar tekið er mið af því að
fyrirtækið hefur ekki einu sinni tekið
til starfa.
Á þessum fundi barðist stjórnar-
formaðurinn, Grímur Sæmundsen,
hart fyrir því að samningurinn næði
fram að ganga miðað við 180.000.000
kr. greiðslu að nafnverði hlutafjár í
Lyfjaverslun. Ég gat ekki séð að
stjórnarformaðurinn væri að hugsa
um hagsmuni Lyfjaverslunar Íslands
hf. í sínum málflutningi. Ég er starf-
andi hæstaréttarlögmaður og tel mig
því þekkja þær skyldur sem stjórn-
armenn í almenningshlutafélögum
hafa gagnvart hluthöfum félagsins.
Ræddi ég við meðstjórnarmenn mína
um ábyrgð þeirra og eftir tveggja
tíma þref var samþykkt að fá verðmat
frá viðskiptabanka fyrirtækisins,
Búnaðarbanka Íslands, þannig að
stjórnarmenn hefðu einhvern grunn
til að byggja ákvörðun sína á. Var
ákvörðun síðan frestað þar til áætlað
var að niðurstaða Búnaðarbankans
lægi fyrir 25. maí 2001.
Mat Búnaðarbankans
hentaði ekki
Eftir að stjórnarformaðurinn hafði
rætt við Búnaðarbanka Íslands hf.
frestaði hann fundi til 29. maí 2001
þegar matið átti að liggja fyrir. Bún-
aðarbankinn er viðskiptabanki fyrir-
tækisins og var ég þess fullviss að
hann myndi ráða okkur stjórnar-
mönnum heilt um það hvað væri
skynsamlegt að gera varðandi þessi
viðskipti, út frá hagsmunum félags-
ins. Taldi ég nauðsynlegt að fá fram
hans viðhorf í þessu máli og gerði
engar athugasemdir við það að fund-
inum yrði frestað þar til mat hans
lægi fyrir, deginum áður en ég færi í
sumarleyfi í þrjár vikur með fjöl-
skyldu minni.
Hinn 29. maí 2001 kl. 15:35 sendi
svo stjórnarformaðurinn stjórnar-
mönnum tölvupóst þar sem sagði
m.a.:
„Vegna fjarveru stjórnarmanna á
næstunni er rétt að fresta Frumafls-
málinu þangað til allir aðalmenn geta
verið viðstaddir afgreiðslu þess.
Stjórnarfundur sem hugsanlega yrði
boðaður áður mundi því ekki taka
ákvörðun um það mál.“
Grímur Sæmundsen hringdi síðan í
mig síðdegis 29. maí sl. þar sem hann
tilkynnti mér að Búnaðarbanki Ís-
lands hf. treysti sér ekki til að meta
verðmæti hlutabréfanna í Frumafli
hf. Seinna um kvöldið hringdi hann
nokkrum sinnum þar sem hann
reyndi að fá mig til að taka þátt í því
að samþykkja þessi kaup án þess að
nokkurt mat lægi fyrir. Að sjálfsögðu
hafnaði ég því enda hafði ég þá kynnt
mér vel útreikninga endurskoðanda
félagsins. Nú veit alþjóð að Búnaðar-
bankinn treysti sér mjög vel til að
verðmeta verðmæti Frumafls hf.
Vandamálið var það eitt að Grímur
Sæmundsen, stjórnarformaður
Lyfjaverslunar Íslands hf., vildi ekki
taka við mati bankans – honum fannst
það of lágt. Ekki þarf að geta sér til
um hvaða hagsmuni hann hafði þar í
huga – hann opinberaði sig sem
samningamann fyrir Jóhann Óla Guð-
mundsson en ekki sem fulltrúa hlut-
hafa félagsins.
Í síðasta símtali okkar Gríms það
kvöld kom fram sá ásetningur hans
að halda fund daginn eftir að ég færi
utan og samþykkja samninginn við
Frumafl hf. Ég gerði honum þá þegar
grein fyrir því að með þeirri ráðstöf-
un væri hann að efna til átaka við mig
og fjölda annarra hluthafa Lyfja-
verslunar Íslands hf. sem hefðu sömu
skoðun á málinu. Kl. 23:00 barst mér
síðan formlegt fundarboð á fund sem
fyrirfram lá fyrir að ég gæti ekki sótt.
Ágætu hluthafar. Hér hefjast þau
átök sem staðið hafa yfir undanfarnar
vikur í Lyfjaverslun Íslands hf.
Eftir að þetta fundarboð barst mér
átti ég ekki annara úrkosta en að
bregðast hart við og gerði ég það með
því að krefjast þess ásamt Aðalsteini
Karlssyni og Guðmundi A. Birgis-
syni, hluthöfum í Lyfjaverslun Ís-
lands hf., að boðaður yrði hluthafa-
fundur sem tæki afstöðu til kaupanna
á Frumafli ehf. Með því töldum við
okkur tryggja það að stjórn félagsins
gæti ekki tekið þessa ákvörðun enda
almennt talið að stjórn hlutafélags
geti ekki tekið ákvörðun um málefni
sem löglega hefur verið krafist að
hluthafafundur fjalli um. Stóð heldur
ekki á því að Grímur Sæmundsen
lýsti því yfir í fjölmiðlum að aldrei hafi
staðið annað til en að hluthafafundur
tæki endanlega ákvörðun í þessu
máli.
Leynifundur í skjóli nætur
Annað kom síðan á daginn þegar
meirihluti stjórnar Lyfjaverslunar Ís-
lands hf. ákvað á næturfundi aðfara-
nótt 12. júní sl. að kaupa allt hlutaféð í
Frumafli ehf. af Jóhanni Óla Guð-
mundssyni. Var ég ekki boðaður á
þann fund þrátt fyrir að formanni
stjórnarinnar hafi sérstaklega verið
tilkynnt um það með hvaða hætti
fundarboðum skyldi komið til mín
meðan ég væri staddur erlendis en ég
hafði gert ráðstafanir til að komast til
Íslands með skömmum fyrirvara.
Hins vegar fékk ég fréttir af fund-
inum í gegnum Örn Andrésson
stjórnarmann sem boðaður var á
hann með 30 mínútna fyrirvara en
Örn var eini stjórnarmaðurinn sem
greiddi atkvæði gegn kaupunum.
Eins og öllum er væntanlega ljóst
gripum við til þess ráðs að krefjast
lögbanns á það að Jóhann Óli færi
með eða ráðstafaði þeim hlutum í
Lyfjaverslun sem hann fékk sem
greiðslu fyrir Frumafl ehf. Mér er
hreint ekki skemmt yfir þeim ákvörð-
unum sem sýslumaðurinn í Reykjavík
tók eða þeim úrskurði sem nú er
genginn í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Ég hef talið mig vera að verja hags-
muni almennra hluthafa í þessu fyr-
irtæki með þeirri einföldu kröfu að
lagt sé hlutlaust mat á þau verðmæti
sem kaupa átti af Jóhanni Óla Guð-
mundssyni, þeim sama manni sem
valdi meirihluta stjórnar félagsins.
Það getur varla talist óeðlileg krafa
þegar um viðskipti við nátengda aðila
er að ræða. Hafa verður í huga að ef
Frumafl ehf. er keypt of háu verði er
ljóst að það hlýtur að leiða til þess að
eign þeirra hluthafa sem fyrir eru
rýrnar sem því nemur.
Gætum hagsmuna okkar
Ágætu hluthafar. Ég bað ekki um
þessi átök sem eru í stjórn Lyfja-
verslunar Íslands hf. en taldi mér
skylt sem stjórnarmanni í almenn-
ingshlutafélagi að bregðast við með
þeim hætti sem ég gerði. Nú hefur úr-
skurður héraðsdóms verið kærður til
Hæstaréttar en óvíst er hvort niður-
staða hans muni liggja fyrir þegar
hluthafafundurinn hefst 10. júlí nk.
Mikið meira er ekki hægt að gera að
svo stöddu en afdrif þessa samnings
um Frumafl ehf. munu væntanlega
ráðast á þessum hluthafafundi. Það er
þó ljóst að hluthafar í Lyfjaverslun
Íslands hf. hafa af því mikla hagsmuni
hvernig máli þessu lyktar og því hljót-
um við sameiginlega að leggja okkar
lóð á vogarskálina með því að nýta at-
kvæðisrétt okkar á hluthafafundin-
um.
Að lokum vil ég að það komi fram
að flestir stærstu hluthafar í Lyfja-
verslun Íslands hf. fyrir utan Jóhann
Óla, Grím Sæmundsen og þeirra fyr-
irtæki, hafa bundist samtökum um
það að hrinda þessari atlögu að Lyfja-
verslun Íslands hf. Með því að Jóhann
Óli fái að neyta atkvæðisréttar fyrir
þá hluti sem hann fékk frá félögum
sínum í stjórn Lyfjaverslunar Íslands
hf. þá er sú barátta erfið en alls ekki
óvinnandi. Þegar þetta er ritað höfum
við fengið mörg hundruð umboða af-
hent frá hluthöfum í Lyfjaverslun Ís-
lands hf. sem vita hvernig þeir geta
varið sína hagsmuni. Þá sem ekki
hafa veitt okkur umboð hvet ég til að
hafa samband við okkur og/eða að
mæta á hluthafafundinn nk. þriðju-
dag og hafa þannig áhrif á framgang
mála og nýta þannig samtakamáttinn
til að koma í veg fyrir að kaupin á
Frumafli gangi eftir.“
Opið bréf til hluthafa
í Lyfjaverslun Íslands hf.