Morgunblaðið - 08.07.2001, Síða 42

Morgunblaðið - 08.07.2001, Síða 42
42 SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ                            !       "             ! #$"% BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Ágæti kollega. ÉG sá viðtal við þig í Mbl. fyrir skemmstu, þar sem þú varst staddur á fundi Reyðaráls um matsskýrslu um fyrirhugað álver í Reyðarfirði. Orð þau sem þú lætur falla í viðtal- inu, komu mér á óvart og ollu mér nokkrum vonbrigðum. Ég hef litið á þig sem umhverfisverndarmann og minnist þess, að þú skrifaðir fyrir nokkrum árum athyglisverða grein í Kirkjuritið (1.h. 1999), sem þú nefnd- ir Líf í ljósi Guðs, þar sem þú fjallar um umhverfismál í ljósi kristinnar trúar. Í greininni ræðir þú um „Ábyrgð mannsins og vanda hans við að varð- veita sköpun Guðs, náttúruna og um- hverfi mannsins“, svo vitnað sé orð- rétt í grein þína. Nú finnst mér kveða nokkuð við annan tón hjá þér, hvað sem veldur. Þess vegna sendi ég þér þessar línur svona til „eins góðs kynningarmerkis í Kristi“. Þú segir mikla nauðsyn á að fá stóriðju á Austurlandi til að bæta upp einhæft atvinnulíf og stöðva fólksflótta. „Við sjáum enga aðra vaxtar- brodda,“ segir þú í viðtalinu. Já, ljótt er, ef satt reynist, og illa er þá komið fyrir íbúum austfirskra byggða, ef þeir sjá ekkert annað til úrlausnar í atvinnumálum fjórð- ungsins en heilsuspillandi stóriðju. Er svona mikið atvinnuleysi á Aust- fjörðum? Ég hef ekki heyrt þess get- ið. Hefur ekki þurft að flytja inn er- lent verkafólk til að vinna í fiskvinnslustöðvunum þar, hvað veldur því? Vissulega erum við sammála um að fjölbreytnin mætti vera meiri í at- vinnulífi Asturlands, eins og raunar víðast annars staðar á landsbyggð- inni. Þó hygg ég, að á því sviði hafi ým- islegt áunnist á síðustu árum, m.a. hvað varðar uppbyggingu ferðaþjón- ustu í fjórðungnum, aukna náms- möguleika ungs fólks í heimabyggð og ýmis sóknarfæri tengd menntun og hátækni. Í viðtalinu kemur fram, að heilu fjölskyldurnar hyggi á brottflutning verði ekkert að gert. Trúir þú því að álver í Reyðarfirði muni snúa þeirri þróun við, eða hvað er fyrirhugað að fastir starfsmenn verði margir þegar verksmiðjan er fullbyggð og komin í notkun? Nokk- ur hundruð manns, stendur hér í matsskýrslunni. Hefur þú trú á að íbúum Austurlands muni fjölga stór- lega, að ungt fólk muni flytjast aust- ur í stórum stíl til að vinna í álveri? Er það reynslan frá öðrum löndum, t.d. Noregi? Þú minnist á mengun frá fyrirhug- uðu risaálveri og telur að hún verði í lágmarki „og að ekki sé ástæða til að hætta við framkvæmdir vegna henn- ar“. Mér virðist þú sem sé sammála matsskýrslu Reyðaráls, þar sem segir að mengun frá álverinu verði innan viðmiðunarmarka. En hvar liggja mörkin þau, hver setti þessi mörk, kannski Guð al- máttugur? Eru það mörkin, sem ríkisstjórn Íslands sækist eftir að fá viðurkennd sem undanþágu frá Kyoto-bókuninni til að sleppa þannig við að leggja fram sinn skerf til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda jarðar, sem allir vísindamenn viðurkenna nú að eru farin að ógna lífi og framtíð jarð- arinnar. Það er þó viðurkennt samkv. matsskýrslunni, að fyrirhugað álver muni senda frá sér 520.000 tonn af koldíoxíði árlega út í andrúmsloftið strax í fyrsta áfanga og síðan bætist við 250 þúsund tonn, þegar fullbyggt verður. Slík losun er meiri en barst frá öll- um fiskiskipaflota Íslendinga fyrir rúmum áratug. Einhvern tíma hefði þetta nú verið nefnt á íslensku máli mikil aukning, þ.e.a.s ef menn vilja tala mannamál á annað borð. En þetta „samræmist stefnu ísl. stjórnvalda,“ segir í matsskýrslunni. „Okkur er sagt, að þetta verði full- komnasta álver á landinu,“ segir þú í viðtalinu, og að allt verði gert til að draga úr mengun, svo sem kostur er. En bætir svo við, að í öllum stríðum sé einhver herkostnaður. Hefur þú gert þér grein fyrir her- kostnaðinum, sem fylgja mun Kára- hnjúkavirkjun og álveri í Reyðar- firði, kollega góður? Hefur þú gert þér grein fyrir gífurlegri umhverf- isröskun á hálendinu, röskun sem gæta mun um allt Fljótsdalshérað frá innstu dölum og út til sjávar? 60 ferkílómetrum lands, sem verður sökkt, þar af rúmlega helmingur gróið land, verulegri hættu á sand- og aurfoki úr lóninu, þegar hluti af því tæmist, vatnaflutningnum sem engin fordæmi eru fyrir hér landi, er Jökulsá á Dal og mörgum öðrum vatnsföllum verður beint í Lagar- fljót, breytingum á vatnasviði Fljóts- ins, sem valda munu vatnsborðs- hækkun um tugi sm, fimmföldun svifaurs, kólnun og versnandi lífs- skilyrðum ásamt útlitsbreytingu vatnsins, þannig að það mun verða eins og dökkleitur drullupollur. Og hvað með breytingar á strönd Héraðsflóa og lífríkinu þar? Finnst þér þetta ekki bara tals- vert mikill herkostnaður? Eða er hann kannski líka „innan viðmiðun- armaka“. Veist þú yfirleitt, hvað þú ert að tala um? Þú lætur þess getið, að sem prest- ur getir þú sagt, að okkur beri „að varðveita Guðs góðu sköpun og bera virðingu fyrir henni“. Undir það tek ég heils hugar með þér. En hvernig finnst þér það sam- ræmast áformum, sem fyrirhuguð eru í stóriðjumálum á Austurlandi? Er þar verið að vinna á þeim nót- um? Ekki trúi ég því heldur, að þú kennir það af stólnum, að hamingja okkar sé komin undir því að eignast sem flest og græða sem mest. Þá þekki ég þig illa ef svo er. Erum við ekki sammála um að það sé græðgin, hin óseðjandi græðgi mannsins, sem oftast er undirrót eyðileggingar á náttúrunni, hvort sem er hér á landi eða annars staðar í heiminum. Ber okkur ekki, sem ráðsmönnum yfir hinu góða sköpun- arverki Guðs, að gæta þess vel og spilla engu, þó ekki væri nema vegna ókominna kynslóða í landinu, að skila landinu ekki verra í hendur eft- 520.000 tonn Opið bréf til sr. Sigurðar R. Ragnarssonar í Neskaupstað Frá Ólafi Þ. Hallgrímssyni:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.