Morgunblaðið - 08.07.2001, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 08.07.2001, Qupperneq 44
DAGBÓK 44 SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Eu- ropa kemur og fer í dag. Mercator I og Gali koma í dag. Guadelupe fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Gas Pioner kemur til Straumsvíkur í dag. Arnar Gemini og Sel- foss koma á morgun Viðeyjarferjan. Tíma- áætlun Viðeyjarferju: Mánudaga til föstudaga: til Viðeyjar kl. 13, kl. 14 og kl. 15, frá Viðey kl. 15.30 og kl. 16.30. Laug- ardaga og sunnudaga: Fyrsta ferð til Viðeyjar kl. 13 síðan á klukku- stundar fresti til kl. 17, frá Viðey kl. 13.30 og síðan á klukkustundar fresti til kl. 17.30. Kvöld- ferðir eru föstud. og laugardaga.: til Viðeyjar kl. 19, kl. 19.30 og kl. 20, frá Viðey kl. 22, kl. 23 og kl. 24. Sérferðir fyrir hópa eftir samkomulagi. Viðeyjarferjan sími 892 0099. Lundeyjarferðir dag- lega, brottför frá Viðeyj- arferju kl.10.30 og kl. 16.45, með viðkomu í Viðey u.þ.b. 2 klst. sími 892 0099. Mannamót Aflagrandi 40. Á morg- un kl. kl. 10 boccia, kl. 14 félagsvist, kl. 12.30 baðþjónusta. Gróður- setningaferð í Álfamörk í Hvammsvík 10. júlí kl. 13 þar sem eldri borg- arar og unglingar gróð- ursetja saman. Þetta er í þriðja sinn sem farið er, en til gróðurreitsins var stofnað á ári aldraðra undir kjörorðinu byggj- um brýr og eru allir eldri borgarar eindregið hvattir til að mæta og taka höndum saman við ungmennin. Ókeypis rútuferð, fólk hafi með sér nesti og góðan skó- fatnað. Skráning fyrir stór-Reykjavíkursvæðið í Aflagranda 40, sími 562-2571. Árskógar 4. Á morgun kl. 9-12 opin handa- vinnustofan, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13.30-16.30 opin smíða- stofan/útskurður, kl. 13.30 félagsvist, kl. 10- 16 púttvöllurinn opinn. Bólstaðarhlíð 43. Á morgun kl. 9-16 almenn handavinna, kl. 9.30-11 morgunkaffi/dagblöð, kl. 10 samverustund, kl. 11.15 matur, kl. 15 kaffi. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 á mánud. kl. 20.30. Fótaaðgerða- stofan opin frá kl. 10. Skrifstofan Gullsmára 9 er opin á morgun kl. 16.30–18, s. 554 1226. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Á morgun kl. 8 böðun, kl. 9 fótaað- gerð, kl. 9.30 hjúkrunar- fræðingur á staðnum, kl. 10 verslunin opin, kl. 11.20 leikfimi, kl. 11.30 matur, kl. 13 handa- vinna og föndur, kl. 15 kaffiveitingar. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18–20. Kl. 9 böðun og hárgreiðslu- stofan opin. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Púttæfingar á Hrafn- istuvelli þriðjudaginn kl. 14 til 16. Orlofið í Hótel Reykholti í Borg- arfirði 26.-31. ágúst nk. Skráning og allar upp- lýsingar í símum ferða- nefndar, 555 0416, 565 0941,565 0005 og 555 1703. Panta þarf fyrir 1. ágúst. Félagsheimilið Hraunsel verður lokað vegna sumarleyfa starfsfólks til 12. ágúst. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan er opin alla virka daga frá kl. 10–13. Matur í há- deginu. Sunnudagur: Dansleikur kl. 20. Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur: Brids kl. 13 Þriðjudag- ur dagsferð Þórsmörk – Langidalur. Stuttar léttar göngur. Nesti borðað í Langadal. Leiðsögn Þórunn Lár- usdóttir. Brottför frá Ásgarði, Glæsibæ, kl. 8. Eigum nokkur sæti laus. Ath. vinsamlegast sækið farmiða í síðasta lagi á mánudag. Ferð í Álfamörk, Hvammsvík, 10. júlí kl. 13, þar sem eldri borgarar og ung- lingar gróðursetja plöntur í reitinn sinn. Ókeypis far en takið með ykkur nesti. Brott- för frá Ásgarði, Glæsibæ, kl. 13. Vin- samlegast tilkynnið þátttöku. Dagsferð 14. júlí: Gullfoss – Geysir – Haukadalur. Fræða- setrið skoðað. Leiðsögn Sigurður Kristinsson og Pálína Jónsdóttir. Skráning hafin. Silfur- línan er opin á mánu- dögum og miðvikudög- um frá kl. 10–12 fh. í síma 588-2111. Uppl. á skrifstofu FEB kl. 10– 16 í s. 588-2111. FEB, Suðurnesjum, þriggja daga ferð á Strandir 15. til 17. júlí. Dvalið á Laugarhóli í Bjarnarfirði. Lagt af stað frá SBK kl. 10 sunnudaginn 15. júlí, takmarkaður sætafjöldi. Áhugasamair hafi sam- band við ferðanefndina . Gerðuberg, félagsstarf. Sund- og leikfimiæfing- ar á vegum ÍTR í Breið- holtslaug á þriðjudög- um og fimmtudögum kl. 9.30. Púttvöllurinn er opin virka daga kl. 9–18, Kylfur og boltar til leigu í afgreiðslu sund- laugarinnar. Allir vel- komnir. Veitingabúð Gerðubergs er opin mánudaga til föstudaga kl. 10-16. Félagsstarfið lokað vegna sumarleyfa frá 2. júlí-14. ágúst. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Á morgun kl. 9 hárgreiðsla, kl. 14 félagsvist. Gjábakki, Fannborg 8. Á morgun er handa- vinnustofan opin, leið- beinandi á staðnum frá kl. 9.30-12. Vegna for- falla eru tvö sæti laus á Vestfirði 16.-19. júlí uppl. í síma 554-3400. Hraunbær 105. Á morg- un kl. 10 bænastund, kl. 13 hárgreiðsla, kl. 13.30 til 14.30 gönguferð. Hvassaleiti 56–58. Á morgun kl. 9 böðun, fótaaðgerðir, kl. 13 spil- að. Norðurbrún 1. Á morg- un verður fótaaðgerða- stofan opin kl. 9–14, bókasafnið opið kl. 12– 15, ganga kl. 10. Handa- vinnustofur lokaðar í júlí vegna sumarleyfa. Vesturgata 7. Á morgun kl. 9 dagblöð og kaffi, fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15 almenn handavinna, kl. 10- 11 boccia, , kl. 11.45 matur, kl. 14.30 kaffi. Vitatorg. Á morgun kl. 9 smiðjan og hár- greiðsla, morgunstund og almenn handmennt, kl. 10 fótaaðgerðir, kl. 11.45 matur, kl. 13 leik- fimi og frjáls spil, kl. 14.30 kaffi. GA-fundir spilafíkla, eru kl. 18.15 á mánudög- um í Seltjarnarnes- kirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðsludeild SÁÁ, Síðu- múla 3-5 og í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg á laugardög- um kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis eru með fundi alla mánu- daga kl. 20 á Sólvalla- götu 12, Reykjavík. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Brúðubílinn, verður á kl. 14 við Skerjafjörð við Reykjavíkurveg. Minningarkort Minningarkort Kven- félagsins Seltjarnar eru afgreidd á bæjarskrif- stofu Seltjarnarness hjá Ingibjörgu. Minningarkort Kven- félags Háteigssóknar. Kvenfélagskonur selja minningarkort. Þeir sem hafa áhuga á að kaupa minningarkort vinsam- legast hringi í síma 552- 4994 eða síma 553-6697. Minningarkortin fást líka í Háteigskirkju við Háteigsveg. Minningarkort Kven- félags Langholtssóknar fást í Langholtskirkju, s. 520-1300 og í blómabúð- inni Holtablómið, Lang- holtsvegi 126. Gíróþjón- usta er í kirkjunni. Minningarkort Kven- félags Langholtssóknar fást í Langholtskirkju sími 520-1300 og í blómabúðinni Holta- blómið, Langholtsvegi 126. Gíróþjónusta er í kirkjunni. Minningarkort Kven- félags Neskirkju fást hjá kirkjuverði Nes- kirkju, í Úlfarsfelli, Hagamel 67 og í Kirkju- húsinu v/Kirkjutorg. Í dag er sunnudagur 8. júlí, 189. dagur ársins 2001. Seljumanna- messa. Orð dagsins: Velgjörðasöm sál mettast ríkulega, og sá sem gef- ur öðrum að drekka, mun og sjálfur drykk hljóta. (Orðskv. 11, 25.) ÉG hef undanfarið fylgst með greinum í Velvakanda um hundahald. Mikill hiti hefur verið í þessum skrif- um eins og ávallt þegar slík mál ber á góma. Oft finnst mér þeir sem eru á móti dýrum ansi grimmir og óréttlátir við eigendur dýra. Þeir virðast hafa lít- inn skilning á því hversu mikils virði dýrin eru eig- endum sínum. Það má segja að dýrin séu oft eins og börnin þeirra og ég hef horft á fullorðna mann- eskju gráta þegar hún neyddist til að láta svæfa dýrið sitt. Þeir sem eru á móti dýrum hafa allt á hornum sér, benda sífellt á lög og reglur sem eflaust væri þörf á að endurskoða. Þegar ég las grein konunn- ar á Kársnesinu skellihló ég. Hún sá hundaskít út um allt og stéttin hjá henni var sem hundaklósett. Af orð- um hennar að marka er engu líkara en stéttin hjá henni sé mikill uppáhalds- staður hunda til að hægja sér á. Og allan þennan hundaskít sem hún sér út um allan bæ hef hvorki ég eða aðrir séð. Hún vildi ekki mæta hundi dýravinar sem skrifaði í Velvakanda fyrir stuttu, en í ljós kom að sá hundur var dáinn. Grát- broslegt það. Þegar jarð- vist okkar lýkur vonumst við öll eflaust eftir að kom- ast í paradís og þar sem guð skapaði dýrin líka, gætu þau vel verið þar. Hefur konan á Kársnesinu hugsað út í það? Hún blandar pólitík inn í þetta mál og segir hún og aðrir sem á móti hundum eru myndu athuga hvaða flokk- ur mundi taka málstað þeirra fyrir næstu kosning- ar. Fólk í stjórnmálum eru líka dýravinir og sumir eiga eflaust líka dýr og ég veit ekki betur en forsætisráð- herra sé mikill dýravinur. Ég efast ekki um að hann skilji aðra dýravini. Um- ræðan um hundahald og gagnvart dýrahaldi al- mennt minna orðið einna helst á sápuóperu, þar sem hundaeigendur, hundaand- stæðingar og að sjálfssögðu dýrin leika aðalhlutverkið. Finnst mér að þessi um- ræða mætti vera í öðrum farvegi. Ég vil að lokum segja við þetta fólk sem er svona mikið á móti dýrum að það hefði gott af því að kynnast þeim. Dýrin hafa líka sál og tilfinningar eins og maðurinn og þau eignast oft marga góða vini. Ég tek líka undir skrif fólksins sem segist ekki vilja mæta konunni á Kársnesinu, mig langar nefnilega ekki til þess heldur. Sigrún. Réttindi málleysingja MIG langar til þess að lýsa vanþóknun minni á því fólki sem lítur á hunda og ketti sem einhvern óþverra. Þetta eru gæludýr sem öll- um fjölskyldumeðlimum þykir vænt um. Þetta eru fjölskyldumeðlimir. Dýrin eiga að hafa rétt, það á ekki að níðast á réttindum þess- ara málleysingja. Ég sá ná- granna minn skvetta úr vatnsfötu yfir lítið kattar- grey, sem gekk yfir gras- flötina hjá henni. Og mig langar líka að benda á að þeir sem búa í fjölbýlishús- um, t.d. unglingar, valda oft tjóni og þá er sáralítið gert. Svenlausar nætur, útældar lyftur, útkrotaðir veggir og fleira, enginn getur gert neitt. Það eina sem gert er, er að það er tekin skýrsla –búið. Dýravinur. Tilmæli til bæjarstjór- ans í Hafnarfirði MIG langar til að vekja at- hygli á því, að í Hafnarfirði getum við eldri borgarar ekki fengið sleginn blettinn okkar eins og var gert fyrir þremur árum. Það eru vin- samleg tilmæli til bæjar- stjórans okkar, hans Magn- úsar, að hann sjái sér fært um að koma þessu í lag. Með kveðju Eldri borgari úr Hafnarfirði. Strætisvagnar Reykjavíkur MIG langar að senda Lilju Ólafsdóttur hjá Strætis- vögnum Reykjavíkur kveðju. Ég hef notað strætó frá 1950 og finnst mér hafa orðið mikil breyt- ing til hins betra hin síðari ár. Tillitssemi hefur aukist til muna hjá strætó og einn- ig þjónustulundin og ég er óskaplega þakklát fyrir þá þjónustu sem ég fæ hjá þeim. Þorbjörg. Tapað/fundið Barnagleraugu töpuðust BARNAGLERAUGU töp- uðust á leikvelli á bak við blokk í Breiðvangi 1-11 í Hafnarfirði, fimmtud. 28. júní sl. Uppl. í s. 555-3192 eða 864-3192. Dísarpáfagaukur í óskilum GRÁR og gulur dísarpáfa- gaukur fannst á Laugavegi sl. mánudag. Uppl. í s. 552- 3621 (Dýralæknastofa Dagfinns). VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Sápuópera Víkverji skrifar... ELLEFU ára dóttir vinar Vík-verja var ein heima á dög- unum þegar dyrabjöllunni var hringt og þegar hún fór til dyra stóð þar útsendari Íslandspósts með pakka til móður hennar. Þótt aðeins væri um venjulegan pakka að ræða – ekki ábyrgðarpóst eða neitt slíkt – var ekki að tala um að dóttirin gæti tekið á móti honum. Móðirin yrði að gera það sjálf. Gesturinn hélt því á braut, en skildi eftir tilkynningu sem þyrfti að sýna þegar náð yrði í pakkann á næsta pósthús. Daginn eftir fóru svo húsbónd- inn, þ.e. eiginmaður pakkaeigand- ans, og áðurnefnd ellefu ára dóttir þeirra hjóna, í bíltúr. Óku sem leið lá frá heimili þeirra að pósthúsinu, þar sem dóttirin fór inn með til- kynninguna góðu, afhenti hana og fékk pakkann í staðinn eins og ekkert væri sjálfsagðara, á meðan pabbinn beið úti í bíl. Reglur eru reglur. x x x Vin Víkverja hefur lengi dreymtum að eignast gítar en aldrei látið verða af því. En hann hefur misserum saman fylgst með aug- lýsingum slíkra gripa, og er alltaf jafnundrandi þegar ein þeirra, frá Gítarnum ehf. við Stórhöfða, birt- ist á prenti. Þar er greint frá opn- unartilboði, þar sem „rafmagnsgít- ar, magnari m/effekt, ól og snúra“ eru sögð hafa kostað 40.400 krónur áður, en nú 27.900 krónur. Vinurinn tekur reyndar sérstak- lega fram að strangt til tekið sé alls ekki farið með rangt mál í aug- lýsingunni, en fullyrðir hins vegar að hún hafi birst óbreytt með jöfnu millibili í að minnsta kosti tvö ár. x x x Víkverji lærði það einhverntíma að á íslensku væri talað um fylki í Kanada en ríki í Banda- ríkjunum – enda köllum við síð- arnefnda landið ekki Bandafylkin, þó svo það virðist hafa tíðkast um tíma í gamla daga skv. plöggum sem Víkverji hefur lesið. Nokkuð hefur hins vegar borið á því upp á síðkastið að enska orðið State hafi verið þýtt fylki en ekki ríki, þegar fjallað er um einstaka hluta Bandaríkjanna, bæði í sjón- varpsþáttum og myndum, kvik- myndum og talsvert í fréttatímum sjónvarpsstöðvanna. Víkverji hefur jafnvel heyrt fréttamenn menntaða í Bandaríkjunum tala um fylki þar í landi. Ætli þetta sé gert af ásettu ráði og jafnvel talið í lagi nú orðið? Þýðendur eða fréttastofur geta kannski svarað því. x x x Börn eru oft býsna orðheppin.Við erum stödd í afgreiðslu Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs í Þorlákshöfn. Feðgar sem eru að kynna sér aðstöðuna þar og kanna hvort þeir og aðrir fjölskyldumeð- limir séu ekki örugglega bókaðir í ferjuna, vegna fyrirhugaðrar ferð- ar til Eyja eftir nokkra daga hafa komist að því að allt er klappað og klárt, en sonurinn er spenntur að sjá bátinn. Hann er einhvers stað- ar á leiðinni og faðirinn ákveður að þess vegna bíða um stund í þeirri von að hann komi fljótlega að landi. Sonurinn, sem er fjögurra ára, verður hins vegar fljótlega nokkuð óþolinmóður og segir stundarhátt: „Pabbi, hvenær kemur eiginlega þessi Eyjólfur?“ 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 lúpulegur, 8 leyfir, 9 hinn, 10 starfsgrein, 11 daufa ljósið, 13 dræsur, 15 rusl, 18 vel verki far- inn, 21 bókstafur, 22 látin af hendi, 23 bál, 24 gæf- an. LÓÐRÉTT: 2 reikar, 3 stúlkan, 4 ásókn, 5 alda, 6 feiti, 7 konur, 12 flana, 14 iðka, 15 fokka, 16 sundrast, 17 er ólatur við, 18 él, 19 fiskur, 20 magurt. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 kotra, 4 hagur, 7 líkur, 8 innir, 9 arð, 11 nóra, 13 saur, 14 kappa, 15 mark, 17 glit, 20 hal, 22 kutar, 23 jarls, 24 arnar, 25 teina. Lóðrétt: 1 kúlan, 2 tekur, 3 aura, 4 hlið, 5 ginna, 6 rýrir, 10 rupla, 12 akk, 13 sag, 15 mýkja, 16 rótin, 18 lerki, 19 tuska, 20 hrár, 21 ljót. K r o s s g á t a

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.