Morgunblaðið - 08.07.2001, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
V i ð s k i p t a h u g b ú n a ð u r
á h e i m s m æ l i k v a r ð a
Borgar túni 37
Sími 569 7700W W W. N Y H E R J I . I S
Þú getur tilkynnt aðsetursskipti á
www.postur.is
Veit Pósturinn hvar þú býrð
BALDUR Rafnsson, bóndi á Vatt-
arnesi, hefur umsjón með eynni
Skrúði og nytjar hefðbundin hlunn-
indi í eynni. Umhverfi Skrúðs er
ævintýralegt, ekki síst þegar haf-
þokan læðist inn og leggst yfir sjó-
inn. Upp úr þokunni stendur Hala-
klettur, yst á Reyðarfjalli.
Fáskrúðsfjörður er til vinstri við
fjallið og Reyðarfjörður til hægri.
Hlunnindi nýtt í Skrúði
Morgunblaðið/RAX
/ B-1
FRAMKVÆMDIR við verslunar-
miðstöðina í Smáralind eru á áætlun
að sögn Pálma Kristinssonar, fram-
kvæmdastjóra Smáralindar, en til
stendur að verslunarmiðstöðin verði
opnuð 10. október næstkomandi.
Búið er að ná samningum um leigu
á 85% af verslunarrýminu og segir
Pálmi að viðræður séu í gangi um
rúmlega 10% til viðbótar. Hann gerir
ráð fyrir að 98% rýmisins verði ráð-
stafað þegar verslunarmiðstöðin
verður opnuð og segir að alls verði
um 70 til 80 verslanir í Smáralind.
Pálmi segir að íslenski markaðurinn
sé kröfuharður og að því sé ekki farið
í viðræður við hvern sem er. „Þetta
snýst ekki um að ná ákveðnu hlutfalli
í leigu gólfpláss, heldur að opna
verslunarmiðstöð sem verður í
fremsta flokki í heiminum,“ segir
Pálmi.
Í Morgunblaðinu í gær var sagt frá
því að náðst hefðu samningar við
spænsku tískuverslunarkeðjuna
Zöru. Pálmi segir að í kjölfarið hafi
þurft að endursemja og breyta stað-
setningu sex til sjö verslana sem búið
var að hanna og taka niður milli-
veggi, en verslun Zöru mun ná yfir
rúmlega 1.500 fermetra rými. Ýmis
mál hafi því verið í biðstöðu meðan
samningaviðræður stóðu yfir, en að
nú verði hægt að hefjast handa.
Stór hluti leigurýmisins er tilbúinn
til afhendingar, að sögn Pálma, og er
byrjað að innrétta fyrstu smærri
verslanirnar. Byrjað var að innrétta
stærstu búðirnar um áramótin.
„Í aðalatriðum er allt á áætlun hjá
okkur,“ segir Pálmi. Hann segir að
það sé einna helst í Vetrargarðinum
sem framkvæmdir séu á eftir áætlun.
„En við höfum trú á því að það takist
að vinna það upp og ljúka því á tíma,“
segir Pálmi og bendir á að aðrir hlut-
ar séu á undan áætlun.
Tregðu hefur gætt í láns-
fjármögnun til smærri verslana
Pálmi segir að sú lægð sem gætt
hefur í efnahagslífinu hafi haft áhrif á
Smáralind, sem og aðra. Fyrst og
fremst segir hann að meiri tregðu
hafi gætt í bankakerfinu gagnvart
lánsfjármögnun smærri verslana við
innréttingarkostnað. „Þar af leiðandi
hafa mál tekið lengri tíma en annars
og ýmis smærri mál dottið út, sem
skiptu ekki sköpum. Fjölmargir hafa
verið í viðræðum við okkur, forvitn-
ast og lýst yfir áhuga. Ástandið í
þjóðfélaginu hefur slegið á ýmis slík
mál sem í sjálfu sér voru ekki endi-
lega mál sem við reiknuðum með,“
segir Pálmi. „Uppistaðan af kaup-
mönnum og verslunareigendum hjá
okkur eru mjög öflugir aðilar og
standa sterk fyrirtæki þeim að baki,“
segir Pálmi.
Talið er að heildarkostnaður
Smáralindar, með fjárfestingum
verslunareigenda, verði í kringum
níu til tíu milljarðar króna. Þar af er
hlutur Smáralindar í kringum átta
milljarðar á áætluðu verðlagi í októ-
ber. „Þar kemur til verðbólga sem
hefur haft áhrif á okkur líka og leitt
til þess að byggingarkostnaður hefur
hækkað sem nemur verðhækkunum
á byggingarvísitölu.“ Pálmi segir að
ráðgert sé að kostnaðurinn verði um
5% meiri, en gert var ráð fyrir í upp-
hafi.
Alls nær húsnæði Smáralindar yfir
63 þúsund fermetra.
Framkvæmdir við 63 þúsund fermetra verslunarmiðstöðina Smáralind í Kópavogi á áætlun
Búið að leigja
um 85% versl-
unarrýmis
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Stór hluti Smáralindar er nú tilbúinn til afhendingar og eru eigendur byrjaðir að innrétta verslanirnar.
Heildarkostnaður verður á
bilinu 9 til 10 milljarðar króna
ÞRIÐJI óformlegi sáttafundur samn-
inganefnda Þroskaþjálfafélags Ís-
lands og ríkisins hófst klukkan 14 í
gær. Í fyrradag var fundað frá kl. 11
til 16:30 og situr aðeins hluti úr hvorri
samninganefnd fundina.
Að sögn Guðnýjar Stefánsdóttur,
upplýsingafulltrúa Þroskaþjálfafé-
lagsins, hefur ekki verið gefið upp
hvernig deilunni miðar, um hvað sé
verið að ræða eða hvort eitthvað sé
hugsanlega að gerast. „Bara það að
þessir óformlegu fundir skuli vera
haldnir er afskaplega gott. Það þýðir
að það er ekki allt strand í þessari
deilu svo lengi sem þau halda áfram
er eitthvað að gerast,“ segir Guðný.
Samninganefndirnar hafa ekki gef-
ið upp hvor þeirra átti frumkvæðið að
þessum óformlegu fundum. Sá fyrsti
var á fimmtudag, sama dag og hátt á
annað hundrað manns skoraði á deilu-
aðila að setjast hið fyrsta að samn-
ingaborðinu, en eftir að samningavið-
ræður sigldu í strand 3. júlí frestaði
ríkissáttasemjari viðræðunum til 11.
júlí. Guðný segir að áskorunin hafi
örugglega haft áhrif þar á, sem og
hversu sterk viðbrögð hafa orðið í
þjóðfélaginu vegna þess hve verkfall
þroskaþjálfa hefur dregist á langinn.
Guðný segir að fundirnir hafi ekki
farið fram í húsi ríkissáttasemjara.
Hann hafi þó lýst því yfir að hann sé
tilbúinn hvenær sem er, að nóttu sem
degi, til að hefja viðræður að nýju,
komist málið á það stig.
Þriðji óformlegi fundur-
inn í þroskaþjálfadeilunni
FORSTJÓRI Lyfjaverslunar Ís-
lands hf., Sturla Geirsson, skorar á
meirihluta stjórnar félagsins að leit-
að verði leiða til að falla frá þeim
samningi sem gerður hefur verið við
Jóhann Óla Guðmundsson, um kaup
á Frumafli ehf. Jafnframt verði fallið
frá öllum málaferlum.
Þetta kemur fram í áskorun sem
Sturla hefur sent Morgunblaðinu
þar sem hann segir að grípa verði til
aðgerða vegna þeirrar stöðu sem
komin sé upp í framhaldi af ákvörð-
un meirihluta stjórnar félagsins að
kaupa Frumafl ehf. af Jóhanni Óla
fyrir hlutabréf í Lyfjaverslun Ís-
lands að nafnverði 180.000.000 kr.
Í áskoruninni segir að gert hafi
verið fyllilega trúverðugt í fjölmiðl-
um að verðið sem meirihluti stjórnar
hafi reitt fram sem gagngjald fyrir
öll hlutabréf í Frumafli ehf. sé allt of
hátt og að Jóhann Óli hafi knúið
kaupin í gegn í skjóli þess að skipa
meirihluta stjórnar á síðasta aðal-
fundi félagsins. „Viðbrögðin hafa
verið afar sterk og stefna í að stór-
skaða bæði Lyfjaverslun Íslands hf.
og Frumafl ehf.,“ segir í áskorun-
inni.
Sturla segir hættu á atgervisflótta
starfsmanna frá samstæðunni þar
sem nánast öllum starfsmönnum
finnist að stjórnarmeirihlutinn hafi
hvorki gætt hagsmuna félagsins,
starfsmanna né hluthafa.
„Nú er það ljóst að Jóhann Óli tel-
ur sig vera með gildan samning í
höndunum varðandi söluna á Frum-
afli ehf. og eigi rétt á skaðabótum
verði samningnum rift. Jafnvíst má
telja að margir hluthafar félagsins
telji sig eiga rétt á skaðabótum
vegna þessa máls náist ekki að snúa
því til baka. Stefnur og dómstóla-
stríð virðist því vera framundan
hverjar sem lyktir málsins verða, og
vertíð fyrir lögfræðinga. Öll þessi
mál og önnur sem mögulega munu
koma fram verða skaðleg fyrir
Lyfjaverslun Íslands ehf.,“ segir í
áskoruninni.
Sturla bendir á að í ljósi þessa
muni það endurgjald sem Jóhann Óli
taldi sig fá fyrir Frumafl efh. verða
mun minna í raun. Helstu stjórnend-
ur innan fyrirtækisins lýsa sig sam-
þykka áskorun forstjórans.
Forstjóri Lyfjaverslunar Íslands vegna kaupa á Frumafli
Fallið verði frá kaup-
samningi og málaferlum
Áskorun/38