Morgunblaðið - 11.07.2001, Side 6
DÓMSÁTT varð í máli norska loðnu-
skipsins Magnarson sem tekið var
fyrir hjá sýslumanninum á Ísafirði í
gær. Útgerðinni var gert að greiða
1,8 milljónir króna í sekt sem rennur í
landhelgissjóð. Einnig var um-
framafli skipsins, um 670 tonn af
loðnu, gerður upptækur. Ætla má að
verðmæti aflans sem gerður var upp-
tækur sé um 5 milljónir króna. Refs-
ingin er því alls hátt á sjöundu milljón
króna. Ekki var gerð krafa í ákæru
sýslumanns um að veiðarfæri skips-
ins yrðu gerð upptæk.
Þá verða ákærur að öllum líkind-
um gefnar út í dag á hendur skip-
stjórum þeirra þriggja norsku loðnu-
skipa sem Ægir, varðskip Land-
helgisgæslunnar, færði til hafnar á
Seyðisfirði á mánudag vegna meintra
ólöglegra veiða innan landhelginnar.
Skýrslutökum og yfirheyrslum yfir
skipstjórunum lauk á Seyðisfirði í
gærkvöldi.
Ekki tilkynnt um
89% heildarafla
Í ákæru sýslumannsins á Ísafirði
kom fram að tvisvar hefði verið til-
kynnt um rangan afla og að tveimur
klukkutímum eftir síðari tilkynn-
inguna, þegar skipið var stöðvað,
hefði vantalinn afli numið um 89% af
heildarafla skipsins. Tilkynnt hafði
verið að aflinn um borð væri 80 tonn.
Þegar aflanum var landað í gær-
morgun í Bolungarvík að beiðni
norsku útgerðarinnar kom svo í ljós
að 750 tonn af loðnu voru í skipinu.
Skipstjórinn féllst á sáttina og setti
tryggingu fyrir sektinni, að sögn
Ólafs Helga Kjartanssonar, sýslu-
manns á Ísafirði. Skipstjóranum voru
þá afhent skjöl og skipsbækur og
honum leyft að fara. Skipið sigldi í
gærkvöldi frá Ísafirði og hélt aftur á
miðin.
Einar Jónatansson, framkvæmda-
stjóri Gnár í Bolungarvík, þar sem
loðnunni var landað, segir að strax í
gær hafi verið hafist handa við að
vinna mjöl og lýsi úr aflanum. Hann
segir að norsku útgerðinni verði
greitt fyrir 80 tonn, eða það sem skip-
stjórinn gaf upp til Landhelgisgæsl-
unnar, og að ríkissjóður fái greiðslu
fyrir umframaflann. Í lögum um veið-
ar erlendra skipa í landhelgi Íslands
kemur fram að andvirði upptæks afla
skuli renna í landhelgissjóð.
Kyrrsetningu aflétt á
Seyðisfirði
Kyrrsetningu á norskum loðnu-
skipum, sem færð voru til hafnar á
Seyðisfirði, verður væntanlega aflétt
í dag, að sögn Loga Guðbrandssonar,
dómara í Héraðsdómi Austurlands,
en krafa um kyrrsetningu var tekin
fyrir í dómnum síðdegis í gær. Logi
segir að ekki hafi verið ágreiningur
um þetta atriði heldur frekar um
fjárhæðir trygginga og mun dóm-
stóllinn úrskurða um þær í dag. Þá
var einnig dómkvaddur matsmaður
fenginn til að meta verð aflans í skip-
unum.
Skipin voru kyrrsett í fyrrakvöld á
Seyðisfirði og fóru skýrslutökur og
yfirheyrslur fram í gær. Við þinghald
fyrir héraðsdómi fór lögmaður
norsku útgerðanna, Jónas A.Þ. Jóns-
Dómsátt á Ísafirði í máli norsks loðnuskips vegna landhelgisbrots
1,8 milljóna
sekt og afli
upptækur
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Plássið var ekki mikið í Seyðisfjarðarhöfn fyrir norsku loðnuskipin þrjú
og var eitt þeirra bundið við varðskipið Ægi.
son, fram á að kyrrsetningu skipanna
yrði aflétt og þeim leyft að sigla úr
höfn með aflann til Noregs. Fór
ákæruvaldið þá fram á 30 milljóna
króna tryggingu gegn því að kyrr-
setning yrði heimiluð.
Rannsókn og skýrslutöku í máli
eins af skipunum þremur lauk í gær-
kvöldi og liggur fyrir að ákæra í því
máli verði gefin út í dag. Þá lauk
skýrslutöku yfir hinum skipstjórun-
um tveimur seint í gærkvöldi og búist
við að ákærur verði einnig gefnar út í
þeim málum. Ekki er deilt um aflatöl-
ur hjá norsku skipunum á Seyðisfirði,
líkt og gert var í tilfelli Magnarson á
Ísafirði, heldur hvort þau hafi verið
innan íslensku eða grænlensku land-
helginnar að loðnuveiðum. Varð-
skipsmenn halda hinu fyrrnefnda
fram en þeir norsku telja sig hafa
verið innan grænlensku landhelginn-
ar.
Jónas A.Þ. Jónsson lögmaður seg-
ir í samtali við Morgunblaðið að
Norðmennirnir séu afar ósáttir við
hvað rannsóknin hefur tekið langan
tíma. Tveir sólarhringar hafi liðið frá
því að Ægir tók skipin síðdegis á
sunnudag þar til þinghald fór fram í
gær.
„Mér fannst Landhelgisgæslan
hafa æði drjúgan tíma til að koma
nauðsynlegum skýrslum til embættis
sýslumanns. Af þeim sökum fór ég þá
leið að krefjast þess að kyrrsetning
skipanna yrði felld úr gildi, enda mik-
ið aflaverðmæti í húfi,“ segir Jónas.
Líklega ákært í máli norsku loðnu-
skipstjóranna á Seyðisfirði í dag
Ljósmynd/Jón Hallfreð Engilberts
Ivar Taranger, skipstjóri norska loðnuskipsins Magnarson, skoðar
málsgögn í brúnni í gærkvöldi, skömmu áður en skipið lagði úr höfn.
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞESSI fallega alparós á heimili í
Eikjuvogi. „Mér fannst eiginlega að
allur heimurinn þyrfti að sjá hana,“
segir garðeigandinn, Anna Garð-
arsdóttir, og bendir á að hún sé svo
vel falin hjá þeim að fáir njóti þess-
arar dásemdar.
Aðspurð segir hún að það hljóti
að vera um tíu ár síðan þau gróð-
ursettu alparósina. Tveimur árum
seinna hefði hún verið hálfslöpp og
garðyrkjumaðurinn hugðist taka
hana, en Anna vildi gefa henni
tækifæri í eitt ár enn. „Þegar kom
fram á næsta ár byrjuðu að koma
smáknúppar, svo hefur þetta verið
að aukast. Ég er ekki búin að telja
þá núna, en þeir eru örugglega á
annað hundrað,“ segir hún.
Að sögn Önnu snýr alparósin í
suður, en á sama tíma plöntuðu þau
annarri alparós, jafnstórri, hinum
megin við hús og í dag eru þrír
knúppar á henni. Anna segir að
heitur pottur sé við hlið alparós-
arinnar og stundum renni heitt af-
gangsvatn á hana, en spurning sé
hvort þessi ylur hafi eitthvað með
fegurð rósarinnar að gera. „Við er-
um hérna inni í Eikjuvogi og það er
svo skjólsælt hér. Gróður virðist
dafna ágætlega á þessu svæði, hér
er til dæmis mikið um há tré,“ segir
Anna að lokum. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tilkomu-
mikil
alparós í
Eikjuvogi
ÁFORMUM Goða hf. um að leggja
niður sláturhúsið á Breiðdalsvík var
harðlega mótmælt á opnum fundi
bænda og áhugafólks um málefni
sláturhússins á mánudag. Hrepps-
nefnd Breiðdalshrepps og Félag
sauðfjárbænda á Suðurfjörðum Aust-
fjarða boðuðu til fundarins í kjölfar
yfirlýsinga í fjölmiðlum um að stjórn
Goða hf. hafi samþykkt að leggja nið-
ur sauðfjárslátrun á Breiðdalsvík.
Kaupfélagið
komi að málinu
Í ályktun fundarins segir: „Fund-
urinn leggur þunga áherslu á mikil-
vægi sláturhússins á Breiðdalsvík
með tilliti til atvinnu, þróunar byggð-
ar og þjónustu við bændur og telur
það skyldu stjórnar KHB [Kaup-
félags Héraðsbúa] að gera allt sem
mögulegt er til að leysa þetta mál á
farsælan hátt.“ Þá ályktaði fundurinn
einnig á þá leið að þegar yfirráð
fengjust yfir sláturhúsunum gætu
fleiri aðilar en Kaupfélagið komið að
stofnun félagsskapar um rekstur
þeirra.
Fram kemur að Sveinn Þórarins-
son, varaformaður Kaupfélags Hér-
aðsbúa, hafi sagt á fundinum að
Kaupfélagið myndi leita allra leiða til
að tryggja áframhaldandi slátrun í
húsum sem áður voru í eigu þess, en
sláturhúsið á Breiðdalsvík mun, þar
til fyrir tæpu ári, hafa verið í eigu
Kaupfélagsins áður en það var sam-
einað Goða hf.
Mikil áhrif á
byggðarlagið
Í greinargerð frá fundinum eru
áréttuð þau miklu áhrif sem það
myndi hafa á byggðarlagið að leggja
niður sláturhúsið. „Miklar líkur eru
til að einhverjir hætti sauðfjárbúskap
í kjölfarið. Í byggðarlögum þar sem
byggðin stendur tæpt eins og á þessu
svæði, getur einn sem hættir hrundið
af stað skriðu sem ekki verður stöðv-
uð,“ segir í þar. Jafnframt kemur
fram í tilkynningu frá fundinum að
Lárus Sigurðsson, oddviti Breiðdals-
hrepps og formaður Félags sauðfjár-
bænda á Suðurfjörðum Austfjarða,
telji Goða hf. hafa misst allt traust
meðal bænda og aðrir aðilar verði því
að koma að málum og að bændur
verði að stjórna afurðastöðvum sín-
um sjálfir.
Sláturhúsið á Breiðdalsvík
Áformum
Goða hf. harð-
lega mótmælt
Iðnaðarráðherra til
Ungverjalands
Semja á við
Ungverja í
orkumálum
VALGERÐUR Sverrisdóttir iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra hefur
þekkst boð efnahags- og orkumála-
ráðherra Ungverjalands um að fara
þangað í opinbera heimsókn í haust.
Ráðherrann, dr. Matolcsy György,
er í heimsókn hér á landi þessa dag-
ana ásamt hópi embættismanna í
boði íslenskra stjórnvalda. Skoðaðar
eru orkuveitur og -fyrirtæki víðs
vegar um land.
Valgerður sagði í samtali við
Morgunblaðið að í Ungverjalandi
yrði undirritað samkomulag um
samstarf landanna í orkumálum.
Ungverjaland er eitt helsta jarðhita-
svæði á meginlandi Evrópu en ekki
hefur tekist að nýta jarðvarmann til
fullnustu. Valgerður sagði Ungverja
sjá Íslendinga sem áhugaverða sam-
starfsaðila í þeim efnum.
♦ ♦ ♦
Tvær milljónir
til Evu
Klonowski
RÍKISSTJÓRN Íslands samþykkti
á fundi sínum í gær að verða við
beiðni International Commission on
Missing Persons, ICMP, og veita
tveimur milljónum króna til áfram-
haldandi starfs réttarmannfræð-
ingsins Evu Klonowski með nefnd-
inni í Bosníu. Starf nefndarinnar
felst í því að bera kennsl á jarðnesk-
ar leifar sem fundist hafa í fjölda-
gröfum eftir stríðið þar í landi.
Ríkisstjórn Íslands hefur áður
styrkt nefndina er repúblikaninn
Bob Dole veitti nefndinni forstöðu,
en hann fór þess sjálfur á leit við
ríkisstjórnina að hún styrkti starf
ICMP. Guðmundur Árnason, skrif-
stofustjóri í forsætisráðuneytinu,
segir að í bréfi nefndarinnar komi
fram ánægja með framlag Evu.