Morgunblaðið - 11.07.2001, Síða 15
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2001 15
Knaus húsbílar og hjólhýsi
– aðeins það besta!
Netsalan ehf.
Garðatorgi 3, 210 Garðabæ.
Símar 565 6241 og 544 4210
Fax 544 4211.
Þjónustuaðili
Síðasta
sölusýning
sumarsins
miðvikud.
fimmtud.
og föstud.
Opnunartími:
Virka daga frá kl. 10-18.
Laugardaga frá kl. 10-14.
Umboðs-
maður
Knaus á
Íslandi
verður á
staðnum
Verið flott og keyrið um á Knaus
TENGIVAGN, sem í voru um tíu
tonn af karfa, losnaði frá flutningabíl
á veginum milli Garðs og Sandgerðis
í gærmorgun og valt út í vegarkant-
inn. Engin meiðsli urðu á fólki við
óhappið en fiskurinn sem í vagninum
var dreifðist um svæðið. Óhappið
varð á tólfta tímanum í gærmorgun.
Greiðlega gekk að hreinsa veginn og
fjarlægja tengivagninn, að sögn lög-
reglu, en ekki er vitað til þess að
meira tjón hafi orðið af völdum
óhappsins, fyrir utan skemmdir á
tengivagninum.
Mildi þótti að vagninn lagðist á
hliðina í vegarkantinn í stað þess að
falla á hina akreinina í veg fyrir að-
vífandi umferð.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Mildi þótti að tengivagninn lagðist ekki á hliðina fyrir umferðina.
Tengivagn valt á hliðina
Sandgerði
HANNES Þ. Hafstein, björgunar-
bátur Björgunarsveitarinnar Sigur-
vonar í Sandgerði, kom til hafnar í
gær með færeyska bátinn Fuglfirð-
ing vélarvana í togi. Björgunarsveit-
armenn sóttu hann rúmar 100 sjó-
mílur vestur af Reykjanesi. Ferðin
tók rúman sólarhring og gekk að
óskum en nokkur bræla og veltingur
gerðu mönnum lífið leitt á heimleið
til Sandgerðis. Þetta er þriðja ferðin
sem farin er á Hannesi á skömmum
tíma þar sem sjóleiðin er yfir 100 sjó-
mílur.
Á morgun leggur báturinn aftur af
stað með leiðangursmenn í rann-
sóknarskip sem nú leitar að flakinu
af breska herskipinu Hood. Þegar
flakið finnst á hafsbotni munu björg-
unarsveitarmenn fara 260 sjómílna
ferð með eina eftirlifandi manninn úr
áhöfn skipsins sem lifði af þegar
Hood var sökkt.
Guðmundur Ólafsson, formaður
Björgunarsveitarinnar Sigurvonar í
Sandgerði, segir að áhöfnin af Hann-
esi Þ. komi bæði frá björgunarsveit-
inni í Sandgerði og Ægi í Garði en
alls voru sex með í för að þessu sinni.
Þeir voru kallaðir úr sinni vinnu í
landi en Hjálmar R. Hjálmarsson
vélstjóri er sá eini í áhöfninni sem er
fastráðinn og sér um bátinn dags
daglega. Þegar farið er í þjónustu-
leiðangra eins og þennan, að draga
skip í land, er áhöfnin á launum en
björgunarstörf eru jafnan unnin í
sjálfboðavinnu.
Að sögn Guðmundar var haft
samband við björgunarsveitina um
tíuleytið á mánudagmorgun frá
tryggingarfélagi Fuglfirðings, sem
er 200 tonna bátur og var á veiðum
rúmar 100 mílur frá landi, en varð
vélarvana og þurfti því aðstoð til að
komast í land. Klukkutíma síðar var
ákveðið að halda af stað til að draga
skipið í land og lagði Hannes Þ. af
stað frá Sandgerði um tvöleytið á
mánudag þegar búið var að gera
klárt fyrir túrinn.
Sjóveikin gerði mönnum lífið
leitt í miklum veltingi
Skipstjóri í ferðinni var Agnar
Júlíusson og Hjálmar var vélstjóri
en aðrir í áhöfninni voru þeir Sig-
urður Hákon Jónsson, Knútur Rún-
ar Jónsson, Brynjar Þór Magnússon,
og Sigurður Stefánsson. Siglingin út
að færeyska skipinu tók um átta
klukkustundir og vel gekk að koma
taug yfir í Fuglfirðing. Lagt var af
stað heimleiðis um hálfellefu á mánu-
dagskvöld og sigldu skipin inn í höfn-
ina rúmum 25 tímum eftir að lagt var
af stað, eftir ríflega 16 klukkustunda
stím heimleiðis. Þar sem færeyska
skipið var vélarvana þurfti nokkra
lagni við að koma skipinu klakklaust
inn í höfnina og leggja að bryggju, en
allt gekk að óskum og var skipið
bundið við höfn um þrjúleytið í gær.
Á heimleið lentu björgunarmenn í
norðaustan kalda og brælu sem olli
talsverðum veltingi auk þess sem
björgunarbáturinn veltur meira með
bát í togi. Að sögn Guðmundar er
skipið mjög gott í svona ferðir, þótt
það geti „oltið alveg djöfullega en
verður skárra eftir því sem veðrið
verður verra. Maður hefur orðið sjó-
veikur hérna, það er ekkert vanda-
mál,“ segir Guðmundur. Skipið ristir
aðeins 1,8 metra sem gerir það stöð-
ugra og betra í vondum sjó og ef
skipinu hvolfir lendir það alltaf á
réttum kili aftur.
Áhöfnin var sammála því að velt-
ingurinn hefði verði í meira lagi í
þetta skiptið, svo mikill að hörðustu
jaxlar urðu sjóveikir og hinir yngri
ennþá sjóveikari, þótt þeir segðust
því vanir. Sigurður Hákon var ald-
ursforsetinn um borð og sagði þá tvo
yngstu, Brynjar Þór og Knút, vera
aðalhetjurnar því þeir verði alltaf
sjóveikir en komi samt alltaf aftur í
túra. Þegar blaðamaður ræddi við þá
félaga að siglingu lokinni var þó ekki
að sjá að sjóveikin hefði gert þeim líf-
ið mjög leitt og sögðust allir til í aðra
ferð.
Þriggja sólarhringa ferð
Guðmundur segir að nokkuð hafi
verið um þetta langa túra hjá björg-
unarsveitunum undanfarið og fyrir
nokkrum vikum var t.d. náð í slas-
aðan mann út fyrir 100 sjómílna lín-
una. Þá segir Guðmundur að til
standi á morgun að fara með menn út
í rannsóknarskip vegna leitarinnar
að breska skipinu Hood, sem var
sökkt árið 1941 í seinni heimsstyrj-
öldinni. Seinna í sumar stendur síðan
til að fara 260 mílur út í haf með einn
þeirra þriggja sem komust lífs af
þegar breska herskipinu var sökkt
en þessi maður er sá eini þeirra sem
er enn á lífi. Nú stendur yfir leit að
flakinu af Hood á sama skipi og fann
Titanic á sínum tíma á hafsbotni.
„Það stendur til að fara þegar þeir
hafa fundið skipið með þennan eina
eftirlifandi mann af áhöfn Hood og
þar stendur til að halda minningarat-
höfn. Þetta verður þriggja sólar-
hringa ferð 260 mílur út í haf.“
Hannes Þ. Hafstein dró vélarvana færeyskt fiskiskip rúmar 100 sjómílur til Sandgerðis
Morgunblaðið/Eiríkur P.
Hannes Þ. Hafstein nálgast hafnarmynnið í Sandgerði með Fuglfirðing frá Færeyjum í eftirdragi.
Agnar Júlíusson skipstjóri ræðir við þá Brynjar Þór, Knút Rúnar og
Hjálmar vélstjóra undir þiljum á Hannesi að túr loknum.
Vel heppnuð ferð þrátt
fyrir kalda og velting
Guðmundur Ólafsson, lengst til vinstri, ræðir við nokkra úr færeysku
áhöfninni þegar Fuglfirðingur lagðist að landi.
Sandgerði