Morgunblaðið - 11.07.2001, Qupperneq 34
MINNINGAR
34 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Margrét Guðmunds-
dóttir móðursystur mín
er látin, rúmlega átt-
ræð. Magga frænka
var alsystir móður
minnar, Valgerðar Guðmundsdóttur,
sem lést fyrir rúmlega 3 árum. Yngst
þeirra systkina er Hjörtur Magnús
Guðmundsson, sem lifir systur sínar.
Móðir þeirra var Lilja Hjartardóttir
húsfreyja, en hún lést af barnsfar-
arsótt við fæðingu fjórða barns síns
árið 1925. Lilja var dóttir sæmdar-
hjónanna Hjartar Jónssonar sjó-
manns og steinsmiðs og Margrétar
Sveinsdóttur húsfreyju, sem kennd
voru við bæ sinn Reynimel er stóð
við Bræðraborgarstíg. Frá þeim
hjónum er kominn stór ættbogi sem
teygir sig víða um grundir. Faðir
systkinanna var Guðmundur R.
Magnússon bakarameistari, ættaður
úr Æðey í Ísafjarðardjúpi, oft
kenndur við Sælgætisgerðina Fjólu
sem hann átti og rak á Vesturgötu
29. Seinni kona Guðmundar var
Svanhildur Gissurardóttir, myndar-
og sómakona frá Hvoli í Ölfusi og
áttu þau þrjú börn, Gissur Karl, sem
er látinn, Elsu Unni og Braga Krist-
in. Það má því segja að móðir mín og
alsystkini hennar hafi verið Reyk-
víkingar í þriðja ættlið, sem er ekki
mjög algengt um fólk sem er fætt á
árunum í kringum 1920.
Magga frænka var líka Reykjavík-
urdama fram í fingurgóma allt fram í
andlátið. Hún ólst upp í vesturbæn-
um og bjó þar, þangað til hún flutti
fyrir nokkrum árum á Hjúkrunar-
heimilið Eir í Grafarvogi, en áður
hafði hún verið um tíma á öldrunar-
deild Landakotsspítala. Það hittist
þannig á að í sömu viku og Valgerður
systir hennar var borin þaðan út lát-
in, þá flutti Magga frænka þangað
inn. Árin á Eir urðu henni bærileg,
þrátt fyrir veikindi síðustu ár, bæði
vegna þess að fjölskylda hennar og
vinir heimsóttu hana oft og ekki síst
fyrir ljúft og elskulegt viðmót starfs-
manna.
MARGRÉT
GUÐMUNDSDÓTTIR
✝ Margrét Guð-mundsdóttir
fæddist í Reykjavík
3. desember 1920.
Hún lést á Hjúkrun-
arheimilinu Eir 21.
júní síðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík 10.
júlí
Það var kært á milli
þeirra systra alla tíð,
þó að á stundum hefði
mátt halda annað. Báð-
ar voru skapstórar, sú
eldri hafði þó alltaf bet-
ur og lét stundum við
Möggu frænku eins og
hún væri barn sem
þyrfti að segja til og
fjasa svolítið út af.
Samt var hún á nálum
ef Magga hringdi ekki í
hana svo til á hverjum
degi og átti það til að
vera með hálfgerð ónot
ef henni fannst of langt
á milli símtala. Þá sat hún við síma-
borðið með símann klemmdan á milli
eyra og axlar, með kaffibolla í ann-
arri hendi og vindil í hinni, fæturnir
brugðnir í marga krossa og sagði
systur sinni til. Oftast var þó allt í
spekt á milli þeirra. Magga frænka
var sjálf glaðlynd og gestrisin og fal-
legt heimili hennar á Nýlendugötu
bar snyrtimennsku hennar fagurt
vitni. Hún var alltaf fín og vel til fara,
hafði verið í Englandi á sokka-
bandsárunum, meðal annars verið í
London árið sem Elísabet Englands-
drottning var krýnd og sagði sögur
af því, líkt og hún hefði sjálf verið í
innsta hring. Minjagripir frá
krýningunni eru enn til, bók með
gestalista og ættartöflum, gylltur
pönnukökudiskur með mynd drottn-
ingar og síðast en ekki síst munn-
þurrka sem drottning notaði sjálf –
að sögn.
Ég minnist þess að þegar ég var
barn og unglingur, þá kom Magga
frænka oft í heimsókn til okkar og þá
hlógu systurnar oft dátt að einhverju
sem aðrir skildu ekki, en báðar áttu
þann góða eiginleika að geta hlegið
að eigin mistökum og sáu oft það
fyndna og skemmtilega í tilverunni.
Einhverju sinni lá ég sem barn á
Landakotsspítala. Þá var uppi kenn-
ing um það að það væri óhollt fyrir
börn að fá foreldra sína í heimsókn,
það kæmi þeim í geðshræringu og
spítalastarfið yrði erfiðara fyrir
bragðið. Magga frænka var þá boðin
og búin að koma í heimsókn til mín,
jafnvel á hverjum degi. Þá dekraði
hún við mig og færði mér alls kyns
smáhluti og glingur.
Magga frænka giftist Torfa Ólafs-
syni árið 1955, en hann lést fyrir
tveimur árum. Hjónaband þeirra var
farsælt og það var gaman að heim-
sækja þau og oft glatt á hjalla. Torfi
var ákaflega barngóður maður og
hafði gaman af því að hjala við þau,
þó að grunnt væri á stríðni og galsa.
Yngri systur minni, Margréti, þótti
mjög vænt um Torfa og elti hann á
röndum þegar hann var nálægur.
Milli þeirra ríkti fölskvalaus ást
barns og fullorðins manns, líkt og
maður les um í sögum. Möggu og
Torfa varð sjálfum ekki barna auðið,
en fyrir hjónaband hafði Magga
eignast soninn Magnús Hákonarson,
sem ólst upp að mestu hjá föður-
ömmu sinni. Í byrjun áttunda ára-
tugarins urðu þáttaskil í lífi Möggu
frænku og Torfa, en þá kom inn í líf
þeirra lítill sólargeisli í formi dótt-
urinnar Jónu Guðbjargar. Þessi
breyting á högum varð þeim öllum
þremur til gæfu, þau reyndust henni
bestu foreldrar og sjálf er hún þeim
báðum til sóma, vel gerð og ágæt
manneskja. Það er aðdáunarvert
hversu vel Jóna hefur annast móður
sína undanfarin ár í veikindum henn-
ar.
Magga frænka varð áttræð í des-
ember á síðasta ári. Af því tilefni var
haldin veisla sem nokkrir ættingj-
anna sóttu. Þá var Magga frænka í
essinu sínu, lék við hvern sinn fingur
og tók vel undir þegar Skarphéðinn
Hjartarson, bróðursonur hennar,
söng henni til heiðurs. Síðan þá dró
af henni smátt og smátt þar til hún
lést 21. júní sl. Með Möggu er gengin
góð og elskuleg frænka, en líka má
segja að gömul kona hafi fengið hvíld
frá veikindum og Elli kerlingu. Ég
sendi Jónu, Sverri, Magga, Línu og
fjölskyldum þeirra innilegar samúð-
arkveðjur. Megi minning Möggu
frænku lengi lifa.
Sigríður Ásta Hallgrímsdóttir.
Margs er að minnast þegar maður
lætur hugann reika til baka á Ný-
lendugötuna til Möggu á Nýle eins
og við kölluðum hana. Alltaf var ný-
bakað brauð eða kökur, ég tala nú
ekki um ef við fórum upp í bústað til
Möggu og Torfa, þar var gott að
koma, þvílíkur ævintýraheimur sem
það var. Börnunum í fjölskyldunni
gleymdi hún aldrei og fannst þeim
gott að koma upp á Eir að heim-
sækja Möggu ömmu á Nýle.
Gott er sjúkum að sofa,
meðan sólin er aftanrjóð,
og mjallhvítir svanir syngja,
sorgblíð vögguljóð.
Gott er sjúkum að sofa,
meðan sólin í djúpinu er,
og ef til vill dreymir þá eitthvað,
sem enginn í vöku sér.
(Davíð Stefánsson.)
Arna Bára, Jóhann og synir.
Lilja ólst upp á Gilsá. Hún bjó
lengst af í foreldrahúsum og vann
öll almenn störf, bæði þar og víðar
í sveitinni. Einnig sótti hún vinnu á
Akureyri. Árið 1946 veiktist systir
hennar, Lára í Gullbrekku, og kom
LILJA
JÓHANNESDÓTTIR
✝ Lilja Jóhannes-dóttir fæddist 16.
júní 1917 á Gilsá í
Saurbæjarhreppi.
Hún lést 3. júlí síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Jóhannes Frímanns-
son bóndi á Gilsá, f.
25. mars 1880 í Gull-
brekku, d. 15. mars
1963, og Ólína
Tryggvadóttir, f. 24.
september 1877 á
Gilsá, d. 15. mars
1965. Lilja var yngst
sjö systkina sem öll
eru látin, Lára, f. 8. júní 1902,
Tryggvi, f. 9. júlí 1903, Garðar, f.
17. desember 1904, Frímann, f. 30.
nóvember 1906, Helga f. 24. júlí
1908 og Anna Margrét, f. 9. októ-
ber 1914. Lilja var barnlaus og
var aldrei í hjúskap.
Útför Lilju fer fram frá Akur-
eyrarkirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.30.
Lilja þangað að sinna
heimilisstörfum þar
sem hún hjúkraði
jafnframt systur sinni.
Í heimili voru þá eig-
inmaður hennar,
Magnús Tryggvason
bóndi, og synir þeirra
tveir, Sverrir og
Haukur Júlíus. Upp
frá því hvíldu heimilis-
störf í Gullbrekku
mikið á Lilju og alfar-
ið síðustu 30 ár. Í júní
2000 fluttist hún til
Akureyrar ásamt
systursyni sínum,
Hauki Magnússyni, en þau tvö
höfðu verið ein í heimili síðustu
tuttugu og tvö árin í Gullbrekku.
Þá var ellin farin að vinna á henni
eftir mjög vinnusama ævi, en Lilju
féll aldrei verk úr hendi. Lilja var
alla tíð nægjusöm og ævistarfi sínu
varði hún til þess að láta gott af sér
leiða.
Það er fyrst nú við þessi skrif,
þegar ég rýni í orðin, Lilja í Gull-
brekku, að ég sé hvaða fegurð og
friður hvílir þar yfir. Fóstra mín
hefur sannarlega verið mér lilja í
gullbrekku. Megi Guð gefa þér feg-
urstu drauma hjarta þíns.
Ólafur Rúnar Ólafsson.
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upp-
lýsingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletrað-
ur, en ekki í greinunum sjálf-
um.
Formáli
minning-
argreina
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
0
.6
.
(7 &
&'#
&("
,
1 2
"
,
28"#!%&"
%# ##(
'(!("
-
(# ##( 5
(# ##(
2"
(# ##(
* "
(# ##( -
0
(
(
+
6
/*
66 9 &
:
"&" &
3
%
"
3 ##(
(
0 #5 ! -
0
( +
;1
;. 6 < =
+%" "#"9&
:>?
"5"&
4(
5+
3
6
!
7
# &
23 ##(
(
# !%&"
@"!#
,"#!%&" * )#
+%"&##(
#5#& ,"
(
0 #5 !"
A&"" -
0
@
-
B
2"#')# ,"
?C
" #&
*
5
!
8
!
5
!
#$#%&&
B0%
% #!%&"
.5A%"
" ##(
&$&"
" ##( ,("
;"$ #!%&"
(
#"3 "-