Morgunblaðið - 11.07.2001, Page 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2001 35
Fyrsta minningin
um Döggu, ömmusyst-
ur mína, gæti verið úr
jóla- eða páskaboði hjá
henni og Gissa manninum hennar á
Laugarnesveginum. Í raun og veru
var íbúðin pínulítil en samt var
rýmið einhvern veginn yfirdrifið
nóg, jafnvel nægjanlegt til að hægt
væri að fara í leiki og fíflast dálítið.
Það var andrúmsloftið sem þessi
góðu hjón sköpuðu. Það var það
sem gilti.
Eftir því sem árin liðu breyttist
mynd mín af henni, stækkaði og
fylltist eins og gengur. En kannski
stendur sú tilhneiging hennar hvað
mest upp úr að velta vöngum um
lífið og tilveruna. Umræður um hin
hversdagslegu málefni urðu henni
gjarnan tilefni til ályktana um al-
menn sannindi sem gilda í lífi okk-
ar hér á jörðinni. Og ef óskað var
gaf hún okkur unga fólkinu, á sinn
hógværa hátt, ráðleggingar um
framgöngu í lífsins ólgusjó. Ráð-
leggingarnar voru frekar eitthvað
um æðruleysi og umburðarlyndi en
veraldlegan metnað og hörku. Það
má kanski kalla vangaveltur henn-
ar heimspekilegan alþýðudóm, og
þó skólagangan hafi verið býsna
stutt og hún kannski ekki mikið
lesin, þá las hún lífið, fylgdist af
opnum huga með því sem gerðist í
kringum hana, og þá ekki síst hinu
mannlega atferli. Trúin og biblían
var rótföst í henni og eins og jesús
kenndi henni þá leit hún til ljóssins
og þess jákvæða í viðureign sinni
við gang lífsins í öllum sínum
myndum. Þó tel ég víst að hún hafi
DAGBJÖRT JÓNA
JÓNSDÓTTIR
✝ Dagbjört JónaJónsdóttir fædd-
ist í Bæjum á Snæ-
fjallaströnd 17.
ágúst 1912. Hún lést
á líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
1. júlí síðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Aðvent-
kirkjunni í Reykja-
vík 10. júlí.
þekkt eða haft innsýn
í dekkri hliðar lífsins
ekki síður hinar innri,
sálarlífið sem gerði
hana skilningsríka og
umburðarlynda
ábresti annarra. Hún
virðist stöðugt hafa
kappkostað að velja
hina jákvæðari sýn á
lífið, en okkur hlýtur
alltaf að standa eitt-
hvað val til boða í
þeim efnum, jafnvel
þótt aðstæður okkar
séu mismunandi.
Síðustu árin minnist
ég Döggu aðallega fyrir ódrepandi
dugnað hennar við gönguferðir um
bæinn, sumar sem vetur, ein eða í
hóp með öðrum. En þá var sjónin
farin mjög að daprast. Oft mætti ég
henni á gangi í bænum og varð þá
að kalla til hennar og segja deili á
mér til að hún þekkti mig. Fyrir
tveimur árum man ég sérstaklega
eftir að ég mætti henni á götu, þá
komin undir nírætt. Þetta var um
hávetur, þó nokkur snjór á göt-
unum og það snjóaði töluvert. Hún
taldi hálku og umferð ekkert
vandamál, hún væri með mann-
brodda svo tækju bílstjórarnir tillit
til hennar. Hún sagði það algera
nauðsyn fyrir sig að fara út á
hverjum degi. Annars yrði hún eitt-
hvað svo óróleg. Þannig neitaði hún
að gefa sig sljóleikanum á vald,
sem oft fylgir sjúkdómum ellinnar.
Þegar maður hugsar um græðgina
sem virðist hafa heltekið stóran
hluta þjóðarinnar er fró og von í
því að hugsa um þessa hógværu og
góðu konu sem eyddi orku sinni í
það sem henni fannst raunverulega
skipta mestu máli: að gera þeim
sem í kringum hana voru, ættingj-
um og öðrum, sem mest gott.
Kristinn G. Harðarson.
Það var mannbætandi og fyllti
mann bjartsýni að hitta hana
Döggu frænku. Það var sama
hversu dökk ský héngu yfir manni
er maður kom í heimsókn ætíð var
sólin komin upp og henni tókst að
blása skýjunum í burtu. Í hennar
augum voru allir svo lánsamir og
hún sá alltaf það góða og jákvæða
við allt og alla. Ætíð var hún uppá-
búin að manni fannst í pilsi og
blússu eða kjól og alltaf á háum
hælum, með fína skartgripi, svo vel
tilhöfð og öllum fyrirmynd. Í gegn-
um huga minn rennur sú mynd
sem ég hef af henni, aldrei klædda
síðbuxum. Hún hafði það fyrir
venju að leggja sig á hart gólfið
með lítinn kodda og teppi yfir sér,
er maður vakti máls á því að það
væri kanski betra að liggja í rúm-
inu sagði hún ætíð að það gerði sér
gott að liggja á gólfinu, ef til vill
hefur það verið því að þakka,
hversu bein hún var í baki og bar
höfuðið hátt. Við Kári og strákarnir
áttum með henni góða stund á
heimili hennar áður en hún var
lögð inn á sjúkrahús nú undir það
síðasta. þar sem hún lá sárlasin,
steig upp af gólfinu um leið og við
komum inn. Óðara stokkin af stað
fram í eldhús til að finna til kaffi og
meðlæti handa okkur, fór svo til að
sækja nammi í poka, því að ekki
mátti gleyma að gauka að börn-
unum. Við áttum við hana gott
spjall um lífið og tilveruna þar sem
hún enn og aftur vakti máls á því
að við værum svo heppin með
drengina okkar og okkur sjálf,
ótrúlegt að það þurfi ætíð að minna
mann á það hvað maður er lán-
samur í raun og veru. Ættum við
ekki öll að reyna að temja okkur
slíkan hugsunarhátt í því nútíma-
þjóðfélagi sem við nú lifum í.
Dagga frænka vissi alveg hvert
stefndi og sagði okkur að hún væri
hvorki hrædd né kvíðin, ó guð hvað
mér fannst þú hugrökk, elsku besta
frænka, að geta sagt þetta svona
rólega og yfirvegað, þar sem þú
hélst í hönd mína meðan þú sagðir
þetta og tárin runnu niður vanga
minn. Ég hét sjálfri mér því þegar
við kvöddum þig að reyna að til-
einka mér þennan jákvæða hugs-
unarhátt, þó ekki væri nema brot
af honum.
Elsku besta frænka, nú vitum við
að þér líður vel og þér er batnað og
við sjáumst svo í Nangíjala.
Ragnhildur, Kári, Hörður,
Brynjar og Elvar.
Kveðja frá Set-
bergsskóla
Hafdís Hlíf Björns-
dóttir settist í 10 ára
bekk í Setbergsskóla
nú í ársbyrjun. Oft kvíða nemendur
því að skipta um skóla og svo var
einnig með Hafdísi Hlíf. Það leið þó
ekki á löngu þar til hún var orðin
heimavön. Henni var vel tekið og hún
varð fljótt vinur allra í bekknum.
Hafdís Hlíf gerðist félagi í skóla-
kórnum og sinnti af trúmennsku
þeim verkefnum sem skólastarfið
krafðist. Hennar verður sárt saknað
af nemendum 5.-KE sem og öðrum í
skólanum okkar, sem fengu að kynn-
ast henni.
Sem loftbára rísi við hörpuhljóm
og hverfi í eilífðargeiminn,
skal þverra hver kraftur og kulna hvert
blóm –
– þau komu til þess í heiminn.
En þó á sér vonir hvert lífsins ljós,
er lúta skal dauðans veldi,
og moldin sig hylur með rós við rós,
er roðna í sólareldi.
Oss er svo léttgengt um æskunnar stig
í ylgeislum himinsins náðar,
HAFDÍS HLÍF
BJÖRNSDÓTTIR
✝ Hafdís HlífBjörnsdóttir
fæddist í Reykjavík
7. júlí 1990. Hún lést
í Húsafelli 21. júní
síðastliðinn af völd-
um heilahimnubólgu
og fór útför hennar
fram frá Áskirkju 2.
júlí.
og fyrir oss breiða braut-
irnar sig
svo bjartar og rósum
stráðar.
Vér leikum oss, börnin,
við lánið valt,
og lútum þó dauðans
veldi,
því áður en varir er allt
orðið kalt
og ævinnar dagur að
kveldi.
(Einar Benediktsson.)
Við viljum votta for-
eldrum, systkinum og
öðrum ættingjum og
vinum Hafdísar Hlífar dýpstu sam-
úð, og þakka fyrir þær góðu stundir
sem við áttum með henni.
Starfsfólk og nemendur
Setbergsskóla.
„Takk fyrir veturinn, Ásta. Hafðu
það gott í sumar.“ Með þessum orð-
um kvöddu stúlkurnar mig í spánska
dansinum í vor. Þá höfðu þær nýlokið
við ballettsýninguna sína í Borgar-
leikhúsinu og við höfðum hist til að
horfa á myndbandið af sýningunni. Á
meðal þessara stúlkna var Hafdís
Hlíf.
Hafdís var í ballett hjá mér í Ball-
ettskóla Sigríðar Ármann í fimm vet-
ur.
Hafdís Hlíf kom mér fyrir sjónir
sem ákveðin stúlka sem vissi hvað
hún vildi. Hún var fljót að tileinka sér
námsefnið, athugul og útsjónarsöm.
Hún naut þess að dansa, einkum ef
tónlistin var hröð og dansinn sam-
settur af sem flestum sporum. Í jóla-
tímum þegar brugðið var á leik fór
hún á kostum í frjálsri túlkun og lát-
bragði og söng af innlifun okkur til
mikillar ánægju. Minningin um Haf-
dísi Hlíf mun alltaf verða sterk í mín-
um í huga. Í ballettskólanum verður
hennar sárt saknað.
Blessuð sé minning Hafdísar Hlíf-
ar.
Ásta Björnsdóttir.
Þegar ég sest niður
og skrifa þessa kveðju
til æskuvinar míns,
leikfélaga og frænda,
Varða, finnst mér með
hann, eins og með aðra leikfélaga
okkar, að hann hafa verið kallaður
alltof fljótt en það er einu sinni
þannig að enginn veit hvenær kallið
kemur.
Líf Varða var ekki alltaf dans á
rósum og mætti það verða mörgum
ungum mönnum fyrirmynd nú á
dögum allsnægta. Þegar Varði var
fjögurra ára missti hann móður
sína og fjölskyldan splundraðist.
Þremur systkinum hans var komið
fyrir hjá frændfólki og vinum en
Varði var eftir í Krossnesi hjá föð-
ur sínum. Menn geta ímyndað sér
hvernig það er að alast upp móð-
urlaus drengur. En í Varða bjó sá
efniviður sem kom honum áfram í
lífinu, en það vitum við sem þekkt-
um hann að góðmennskan og rétt-
lætiskenndin voru hans aðalsmerki.
Fermingarárið sitt var Varði hjá
Láru systur sinni á Njálsgötunni í
Reykjavík en þá lá faðir hans bana-
leguna á Landspítalanum. Upp frá
því fer Varði til sjós og um tvítugt
stofnar hann heimili og fer síðar í
Stýrimannaskólann og verður
stýrimaður og skipstjóri hjá öðrum
og síðar við eigin útgerð.
Varði var mjög farsæll skipstjóri,
fór vel með alla hluti og átti sér-
ÞORVARÐUR
JÓHANN LÁRUSSON
✝ Þorvarður Jó-hann Lárusson
fæddist í Krossanesi
í Eyrarsveit 24. maí
1938. Hann lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 24. júní
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Grundarfjarðar-
kirkju 30. júní.
staklega gott með að
umgangast sinn mann-
skap. Fyrir tíu árum
fékk hann hjartaáfall
sem var byrjunin á
þeim veikindum sem
hann hefur barist við
og höfðu að lokum yf-
irhöndina.
Um leið og við Guð-
rún kveðjum góðan vin
viljum við votta eigin-
konu hans, börnum og
öðrum aðstandendum
okkar dýpstu samúð.
Megi Guð blessa ykk-
ur í sorg ykkar.
Lárus Guðmundsson,
Guðrún Andersen.
Á Jónsmessunótt lést Varði,
mágur minn og góður vinur.
Í áraraðir hefur þessi harðdug-
legi skipstjóri barist við sjúkleika
sinn af þrautseigju, bjartsýni og
ótrúlegu æðruleysi, hann hefur far-
ið í stórar og erfiðar aðgerðir hvað
eftir annað og ávallt haft betur þar
til nú.
Varði var góður maður, við mun-
um vera mörg sem söknum vinar í
stað, því hann var sérlega vinsæll
og vel látinn hjá öllum, svo indæll
og elskulegur sem hann var, og
alltaf tilbúinn að hjálpa og leggja
lið ef einhver þurfti aðstoðar við.
Ég er þakklát fyrir að hafa
kynnst Varða og átt hann að vini,
það eru hlýjar og góðar minningar
sem við eigum um hann.
Eygló systir mín þarf enn að sjá
á eftir eiginmanni eftir langvarandi
veikindi. Megi góður Guð styrkja
hana og alla í stóru fjölskyldunni
þeirra í sorginni.
Við vottum ykkur okkar dýpstu
samúð.
Svandís.
(
9
#:
##
;<6=-*)=9>**?@59A5*B-5C
2"(&
D&
" $& # & -
(
## #:&&
;<6=-*)=9>*?@59A5*B-5C
('
& !# 5
'-
&D'( &
??-
,(
*
E
-
.
% ##"9&
>:!
50
'
:D !
E!
7
" "
%' #!%&"
" !#
%' #!%&"-
E!
7
*
;--2-
*F
'( #&
50 -
*
/
*
F
(9
F
"(F
+ '
!
+ + # ! !"-
0
.
! "'&$& &
"&
#
=
!
#$#%&&
+%"
%' #!%&"
"
&"##( * "& (
& G("
;0"
* "&-