Morgunblaðið - 11.07.2001, Side 43
mótinu þar sem hann hafði
svart gegn Peter Acs (2509).
Svartur virðist ekki í mikilli
taphættu eftir 31...Dxg3+
32.fxg3 Hg7 en jafntefli er
stundum verra en tap í aug-
um Viktors. Hann reyndi því
31...Dxg5?? en eftir
32.Dxg5 gxh5 33.Ha8! sá
hann sér til skelfingar að
hann verður hróki undir og
gafst upp.
VIKTOR Kortsnoj (2643)
stendur á sjötugu og hafa
margir skákviðburðir verið
haldnir í ár í tilefni af því.
Helsti andstæðingur hans til
margra ára, Anatoly Karp-
ov, var fimmtugur á
árinu en hins vegar
hefur verið mun
minna gert úr því.
Viktori grimma gekk
illa til að byrja með á
EM einstaklinga í
Ohrid í Makedóníu
og allt útlit var fyrir
að loksins sæjust
einhver ellimerki á
kappanum. Hins
vegar tók hann sig á
og endaði mótið með
ásættanlegum ár-
angri. Staðan er frá
slæma kaflanum í
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2001 43
DAGBÓK
NORÐMENN og Íslending-
ar mættust í síðustu umferð
EM á Tenerife, en Norð-
menn höfðu þá fyrir löngu
tryggt sér öruggt sæti á HM
og voru að berjast um fyrsta
sætið við Ítali. Forskot Ítala
var umtalsvert – 16 vinnings-
stig – en gat þó horfið í einni
umferð. Síðasta umferðin var
mjög villt; mikið um spil á
slemmumörkunum og bar-
áttuspil á háu nótunum, sem
buðu upp á sveiflur. Fyrsta
sveiflan datt í dálk Íslands:
Austur gefur; enginn á
hættu. Áttum snúið.
Norður
Norður
♠ KD10873
♥ Á95
♦ 1042
♣ D
Vestur Austur
♠ 942 ♠ G5
♥ 87 ♥ 10642
♦ K5 ♦ DG873
♣ ÁK8763 ♣ 105
Suður
♠ Á6
♥ KDG3
♦ Á96
♣ G942
Í opna salnum voru Magn-
ús Magnússon og Þröstur
Ingimarsson í AV gegn Erik
Sælensminde og Boye
Brogeland í NS.
Vestur Norður Austur Suður
Magnús Boye Þröstur Erik
-- -- Pass 1 grand
Pass 2 hjörtu Pass 2 spaðar
Pass 4 lauf Pass 4 tíglar
Pass 4 spaðar Pass 4 grönd
Pass 5 spaðar Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
Þeir Erik og Boye eru
mjög slemmusæknir, eins og
sjá má af þessari sagnröð.
Eftir yfirfærslu í spaða gefur
Boye „splinter-sögn“ og býð-
ur upp í slemmudans. Erik
lætur ekki bjóða sér tvisvar
og niðurstaðan var þessi
vonda slemma.
En vond eða góð, stóra
spurningin er alltaf – vinnst
hún eða ekki? Magnús kom
út með laufás og skipti yfir í
tromp. Erik tók slaginn
heima og trompaði strax lauf.
Tía austurs var mjög athygl-
isvert spil og vonarglampi
kviknaði í augum Eriks.
Hann tók næst KD í trompi
og spilaði hjarta fjórum sinn-
um og henti einum tígli úr
borði. Svo kom laufgosi og
Magnús lét smátt spil án um-
hugsunar.
Nú fór Erik að huga að
kerfiskorti þeirra Magnúsar
og Þrastar: „Hvernig spilið
þið út frá ÁK?“ spurði hann
Þröst? „Kóngur biður um
talningu, ás um kall eða frá-
vísun,“ svaraði Þröstur og
Erik sá það staðfest á kerf-
iskortinu. Hann íhugaði mál-
ið drjúga stund, en ákvað svo
að spila Þröst upp á K10x og
trompaði laufgosann. Einn
niður, og það mátti þakka
þeirri vandvirki Magnúsar
að spila út laufás en ekki
kóng. 11 IMPar unnust á
þessu spili, en það dugði
skammt, því Norðmenn voru
í banastuði og tóku inn
hverja sveifluna á fætur ann-
arri og unnu leikinn 24-6. En
Ítalir gáfu ekki á sér högg-
stað og unnu sinn leik gegn
Tyrkjum 16-14, svo röðin á
toppnum breyttist ekkert.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þú leggur mikið upp úr
öryggi og vistlegu umhverfi
og ert því öðrum góð
fyrirmynd.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Dagdraumar eru góðir þeg-
ar þeir eiga við en raunveru-
leikinn er yfirleitt annar.
Hafðu þetta hugfast áður en
þú gengur að samningaborð-
inu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að fara ofan í saum-
ana á verkefni þínu áður en
þú hefst handa. Þú munt svo
sannarlega ekki tapa á því í
þetta sinn, frekar en áður.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Nú er komið að því að fjár-
festa arðinn af erfiði þínu.
Flýttu þér samt hægt því til-
boðin eru margvísleg og
margt er að varast í þessum
efnum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er erfitt að gera svo öll-
um líki og reyndar er það
sjaldan besti kosturinn.
Hafðu það í huga þegar þú
ákveður hvaða tökum þú
beitir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Einhver óánægja gæti kom-
ið upp varðandi ákvarðanir
þínar í starfi. Hafðu hægt
um þig þar til öldurnar lægir
og þú ert aftur á lygnum sjó.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ert með óþarfaáhyggjur
af fjárhagnum, því hann er
ekki eins slæmur og þú held-
ur. Skoðaðu málið vandlega
svo þú fáir stöðuna á hreint.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Eitthvað á eftir að koma þér
svo á óvart að þú munt undr-
ast eigin viðbrögð. Láttu
það þó ekki slá þig út af lag-
inu heldur haltu þínu striki.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú hefur lengi velt vöngum
yfir ákveðnu atriði og nú er
komið að því að hrökkva eða
stökkva. Það versta sem þú
gerir er að taka enga
ákvörðun.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ert þreyttur og eitthvað
annars hugar í vinnunni og
ættir að koma þér snemma í
háttinn til að vera betur
undir morgundaginn búinn.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þér býðst tækifæri til að
leiðbeina öðrum og ættir
ekki að hugsa þig tvisvar
um. Þú skalt ekki efast um
hæfileika þína, láttu frekar
reyna á þá.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert í ójafnvægi og veist
ekki í hvorn fótinn þú átt að
stíga. Notaðu heilbrigða
skynsemi og beittu þig aga
því þá mun þér farnast vel.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það gæti verið tilbreyting í
því að breyta ferðatilhögun
þinni í og úr vinnu. Það er
hollt að hrista öðru hverju
upp í sinni daglegri rútínu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
70 ÁRA afmæli. Í dagmiðvikudaginn 11.
júlí er sjötugur Karl Sig-
urðsson, Melavegi 9,
Hvammstanga. Af því tilefni
tekur hann ásamt eiginkonu
sinni, Jóhönnu Birnu, á móti
gestum á heimili sínu laug-
ardaginn 14. júlí frá kl. 20–
22.
50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 11.
júlí, verður fimmtugur Ind-
riði H. Ívarsson, Sveighúsi
1, Reykjavík. Af því tilefni
taka Indriði og eiginkona
hans, Kristjana Steinþórs-
dóttir, á móti gestum á af-
mælisdaginn kl. 18–21 í
Síðumúla 11.
Hlutavelta
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu kr. 3.577
til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita Ester N. Hall-
dórsdóttir, Sirrý Laufdal Haraldsdóttir, Herdís Arngríms-
dóttir og Tanja Karen Salmon.
Morgunblaðið/Þorkell
LJÓÐABROT
HÁVAMÁL
Gáttir allar,
áðr gangi fram,
um skoðask skyli,
um skyggnask skyli,
því at óvíst er at vita,
hvar óvinir
sitja á fleti fyrir.
Gefendr heilir!
Gestr er inn kominn,
hvar skal sitja sjá?
Mjök er bráðr,
sá er á bröndum skal
síns um freista frama.
Elds er þörf,
þeims inn er kominn
ok á knéi kalinn;
matar ok váða
er manni þörf,
þeim er hefr um fjall farit.
– – –
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Léttur málsverður á eftir.
Háteigskirkja. Kærleiksmáltíð kl. 12
á hádegi í Setrinu. Að henni lokinni
er dægradvöl fyrir eldri borgara.
Spiluð félagsvist og brids. Kvöld-
bænir og fyrirbænir í dag kl. 18.
Neskirkja. Bænamessa kl. 18. Sr.
Halldór Reynisson.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund
í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir
velkomnir. Tekið á móti fyrirbæna-
efnum í kirkjunni og í síma 567-0110.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar,
starf fyrir foreldra ungra barna kl.
10-12 í safnaðarheimilinu.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund
í hádeginu kl. 12.00, altarisganga og
fyrirbænir. Léttur hádegisverður kl.
12:30-13.
Landakirkja Vestmannaeyjum.
Helgistund á Hraunbúðum kl. 11.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut
58. Samkoma í dag kl. 20.30. Mar-
grét Jóhannesdóttir talar og Þórður
Búason syngur einsöng. Allir hjart-
anlega velkomnir.
Kletturinn, kristið samfélag. Bæna-
stund kl. 20. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía.
Grunnfræðsla kl. 20, þar sem kennd
eru undirstöðuatriði kristinnar trú-
ar. Allir hjartanlega velkomnir.
Sumarbrids
Mánudaginn 25. júní var spilaður
Mitchell tvímenningur með þátttöku
16 para. Spilaðar voru 8 umferðir
með 4 spilum á milli para. Meðalskor
var 168 og efstu pör í hvora átt voru:
NS
Daníel Sigurðss. – Vilhjálmur Sigurðss. 190
Eggert Bergss. – Þórður Sigfúss. 183
Guðlaugur Sveinss. – Magnús Sverriss. 180
AV
Pétur Péturss. – Bjarni H. Einarss. 237
Guðjón Sigurjónss. – Rúnar Einarss. 192
Haraldur Ingas. – Hafþór Kristjánss. 180
Skor Péturs og Bjarna jafngildir
70,54% skori og er það hæsta skor
sem hefur náðst í sumar. Þeir eru því
efstir í Prósentuverðlaunaleik sum-
arbrids en verðlaunin þar eru ókeyp-
is keppnisgjald í tvímenning Arkar-
mótsins 2001.
Þriðjudaginn 26. júní var spilaður
Mitchell tvímenningur með þátttöku
18 para. Spilaðar voru 8 umferðir
með 4 spilum á milli para. Meðalskor
var 216 og efstu pör í hvora átt voru:
NS
Þórir Sigursteinss. – Hrólfur Hjaltas. 254
Geirlaug Magnúsd. – Torfi Axelss. 238
Unnar Guðmundss. – Jón Jónmundss. 237
AV
Pétur Péturss. – Bjarni H. Einarss. 263
Árnína Guðlaugsd. – Sigrún Pétursd. 254
Gylfi Baldurss. – Steinberg Ríkarðss. 239
10 pör tóku þátt í Verðlaunapott-
inum og rann hann allur, 6000 kr., til
Þóris og Hrólfs.
Fimmtudaginn 28. júní var spilað-
ur Monrad Barómeter með þátttöku
14 para. Spilaðar voru 7 umferðir
með 4 spilum á milli para. Efstu pör
voru:
Ólöf H. Þorsteinsd. – Svala Pálsd. +28
Gísli Steingrímss. – Sigurður Steingr.s. +28
Eðvarð Hallgrímss. – Þorsteinn Berg +13
Hermann Friðrikss. – Hlynur Angant.s. +11
Jónína Pálsd. – Randver Ragnarss. +8
Föstudaginn 29. júní spiluðu 18
pör Mitchell tvímenning með Mitch-
ell skiptingum. Spilaðar voru 9 um-
ferðir með 3 spilum á milli para. Með-
alskor var 216 og hæsta skor náðu:
NS
Eyþór Haukss. – Eggert Bergss. 251
Daníel Sigurðss. – Vilhjálmur Sigurðss. 245
Halldóra Magnúsd. – Soffía Daníelsd. 236
AV
Gunnar Þórðars. – Pétur Hartmannss. 279
Guðmundur Pálss. – Júlíus Snorras. 232
Sveinn R. Þorvaldss. – Erlendur Jónss. 220
Páll Valdimarss. – Eiríkur Jónss. 220
Miðnætursveitakeppnin féll niður
vegna útleigu á salnum en umsjón-
armaður Sumarbridge vill koma á
framfæri að þetta verður í síðasta
skiptið í sumar sem slíkt kemur fyrir.
Sumarleikur Úlfars Eysteinsson-
ar og Sumarbridge 2001
Fyrsti sigurvegarinn í sumarleik
Úlfars og Sumarbridge er Vilhjálm-
ur Sigurðsson jr. Hann skoraði flest
bronsstig frá 19. til 29. júní, alls 68
bronsstig. Hann hlýtur glæsilegt
gjafabréf á veitingastaðinn Þrír
frakkar. Hæstir í fyrsta sumarleikn-
um voru:
Vilhjálmur Sigurðsson JR 68
Erlendur Jónsson 60
Eggert Bergsson 55
Jón Viðar Jónmundsson 55
Heimasíða Sumarbridge 2001 er
www.islandia.is/svenni
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n
Styrkir
og
verndar
NAGLASTYRKIR
Snertilinsur
- fyrir útivistarfólk -
6 linsur í pakka,
prófun, meðferðarkennsla,
vökvi og box.
frá 7.500.- kr.
sólgleraugu fylgja með! sími 551 1945
Nýbýlavegi 12,
Kópavogi,
s. 554 4433.
Kvartbuxur
Vinsælu kvartbuxurnar með
uppábrotinu eru komnar.
Kr. 1.990.
Pantanir óskast sóttar
Bikarkeppni BSÍ
Önnur umferð bikarkeppninnar
og hafa borist úrslit í tveimur leikj-
um.
Heimilistæki – Stefán Garðarss. 129–59
Guðni Ingvarss. – Kristján Kristjánss. 98–94
Síðasti spiladagur 2. umf. er
sunnudagurinn 22. júlí.
Sveitarforingjar sigursveitanna
eru minntir á að skila úrslitum inn til
skrifstofunnar að leik loknum.