Morgunblaðið - 21.08.2001, Side 1
188. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 21. ÁGÚST 2001
SPRENGING í litlum leikfangabíl varð 62 ára konu
að bana og slasaði tvo drengi í borginni San Sebast-
ian í Baskalandi á Norður-Spáni í gærmorgun.
Annar drengjanna er 16 mánaða og slasaðist alvar-
lega, missti sjón á báðum augum og höfuðkúpu-
brotnaði. Bróðir hans hlaut minni háttar meiðsl.
Konan var amma þeirra. Að sögn lögreglu sprakk
leikfangið inni í bíl fjölskyldunnar.
Yfirvöld í Baskalandi sögðu að sprengiefni, lík-
lega byssupúðri, hefði verið komið fyrir í leikfanga-
bílnum og búið svo um hnútana að sprenging yrði
þegar kveikt væri á leikfanginu. Þótt hleðslan hafi
verið lítil hafi hún verið nógu öflug til að brot úr
málmhylkinu sem púðrið var í hafi skorið í sundur
slagæð í konunni og henni hafi blætt út.
Drengirnir og amma þeirra voru nýkomin frá
veitingahúsi frænku sinnar. Frænkan tjáði lögreglu
að einhverjir gestir á veitingastaðnum hefðu skilið
eftir tvö leikföng um helgina, þ. á m. bílinn, og hefði
hún gefið frændum sínum leikföngin. Frænkan var
í bílnum þegar sprengjan sprakk en slapp ómeidd.
Veitingahúsið er í elsta borgarhlutanum þar sem
margir unglingahópar, hliðhollir aðskilnaðarsam-
tökunum ETA, hafa aðsetur. Algengt er að þessir
hópar beri eld að bönkum og opinberum skrifstofu-
byggingum, og kasti eldsprengjum í lögreglubíla.
ETA varar ferðamenn við
Enginn hefur lýst sig ábyrgan fyrir sprengjunni í
leikfangabílnum. Í tilkynningu yfirvalda í Baska-
landi segir að ólíklegt sé að ETA hafi staðið að
sprengingunni, því hún sé ekki í samræmi við fyrri
aðferðir samtakanna. ETA hafa verið sökuð um 12
morð á þessu ári og hafa mörg verið framin með
bílsprengjum. Samtökin hafa alls banað um 800
manns í 33 ára langri baráttu sinni fyrir sjálfstæðu
Baskalandi á Norður-Spáni og í Suður-Frakklandi.
Fyrr á árinu vöruðu ETA við því að vinsælir
ferðamannastaðir yrðu skotmörk samtakanna og
hvöttu ferðafólk til að koma ekki til Spánar. San
Sebastian, sem er stærsta borgin í Baskahéruðun-
um, er mjög vinsæll ferðamannastaður. Síðastliðinn
laugardag sprakk bílsprengja í bænum Salou,
skammt frá Barcelona, en til Salou koma í viku
hverri um 50 þúsund ferðamenn. Enginn særðist al-
varlega í þeirri sprengingu.
Eftir tilræðið í Salou var boðað til fundar emb-
ættismanna í spænska innanríkisráðuneytinu og
starfsbræðra þeirra í héraðsstjórnum Baskalands
og Katalóníu til að ræða hvað sé til bragðs að taka
vegna undangenginna tilræða er beinast að
spænskri ferðaþjónustu. Sjö tilræðanna á þessu ári
hafa verið framin á miklum ferðamannastöðum.
Kona lést og barn slasaðist alvarlega í sprengingu á Norður-Spáni
Sprengiefni falið í leikfangi
Ekki vitað hvort ETA
átti hlut að máli
San Sebastian. AP.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ) hóf í gær fyrsta fund sinn
um ástandið í Miðausturlöndum í
næstum fimm mánuði. Ísraelar and-
mæltu fundarboðinu og því sem þeir
nefna „alþjóðavæðingu“ deilunnar
fyrir botni Miðjarðarhafs.
Meðal þeirra sem taka áttu til
máls í gær voru sendiherra Ísraels
hjá SÞ, Yehuda Lancry, og sendi-
maður Palestínumanna hjá SÞ,
Nasser al-Kidwa. Þetta er fyrsti
formlegi fundur ráðsins um deiluna
síðan í mars sl. er Bandaríkin beittu
neitunarvaldi gegn ályktun um að al-
þjóðlegir eftirlitsmenn yrðu sendir
til heimastjórnarsvæða Palestínu-
manna.
Bandaríkjamenn tóku afstöðu
með Ísraelum í gær og sögðust ekki
myndu styðja tilraunir arabaríkja til
að fá stuðning öryggisráðsins við
ályktun um deiluna fyrir botni Mið-
jarðarhafs, þ. á m. kröfu um alþjóð-
legt eftirlit.
Fatah-maður og börn hans féllu
Um tvö þúsund manns komu í gær
til útfarar Palestínumanns og
tveggja barna hans er létust í
sprengingu á Gaza-svæðinu, sem
Ísraelar og Palestínumenn kenna
hvorir öðrum um. Maðurinn var
félagi í Fatah-hreyfingu Yassers
Arafat, forseta heimastjórnar Pal-
estínumanna, og börn hans voru
fimm og sex ára. Margir sem komu
til útfararinnar hótuðu hefndum.
Talsmaður palestínsku öryggis-
lögreglunnar bar til baka fullyrðing-
ar Ísraela þess efnis, að maðurinn
hefði fallið fyrir sprengju sem ætl-
unin hafi verið að nota á ísraelskt
skotmark.
Öryggisráð
SÞ ræðir Mið-
austurlönd
Sameinuðu þjóðunum, Rafa á Gaza-svæðinu. AFP.
HJÚKRUNARKONA hjálpar slös-
uðum námaverkamanni út úr
sjúkrabifreið við sjúkrahús í bæn-
um Donetsk í Úkraínu. Um 1.000
slökkviliðs- og björgunarsveit-
armenn börðust í gær við að
slökkva eld í kolanámu í Donetsk í
austurhluta Úkraínu, sem hófst
með mikilli jarðgassprengingu á
sunnudag og varð að minnsta kosti
36 manns að bana. Tíu manns var
enn saknað í gær en leit að þeim var
hætt unz tekizt hefði að ráða nið-
urlögum eldsins, sem geisaði í
námagöngunum á allt að 1.300
metra dýpi. Hitastigið í eldinum
náði nokkur hundruð gráðum. 40
manns voru fluttir á sjúkrahús,
margir með mjög alvarleg bruna-
sár.
Leoníd Kútsjma, forseti Úkraínu,
sagði er hann heimsótti vettvang í
Zasyadko-námunni að þetta slys
væri „hræðilegur mannlegur harm-
leikur“. Sagðist hann myndu kalla
eftir aðstoð frá Bandaríkjunum og
öðrum vestrænum ríkjum og alþjóð-
legum fjármálastofnunum, svo að
hægt verði að fjármagna umbætur í
öryggismálum í námum landsins.
Hjá fulltrúum verkalýðsfélaga
námamanna kraumaði reiði. „Það
er sífellt verið að brjóta öryggis-
reglur vegna þess að forstjórarnir
hafa ekki áhuga á neinu öðru en að
halda framleiðslunni sem mestri,
hvað sem það kostar í mannslífum,“
sagði leiðtogi óháðra verkalýðs-
samtaka námamanna.
Í sambærilegri sprengingu í
sömu námu fyrir tveimur árum fór-
ust 50 manns. Það sem af er þessu
ári hafa 149 manns farizt í náma-
slysum í Úkraínu.
Reuters
Berjast við eld
á 1.300 m dýpi
ÓHÓFLEG áfengisdrykkja og
sérstaklega neysla á heima-
bruggi alls konar varð 16.853
Rússum að bana á fyrstu fimm
mánuðum þessa árs.
Í skýrslu, sem rússneska heil-
brigðisráðuneytið hefur gefið út,
segir, að dauðsföllunum hafi
fjölgað um 30% frá því á sama
tíma í fyrra. Ýmist er um að
ræða dauða af völdum áfengis-
eitrunar eftir óhóflega drykkju
eða vegna hættulegs heima-
bruggs að því er fram kemur í
dagblaðinu Ízvestía. Áfengið, að-
allega vodka, verður yfirleitt
25.000 til 30.000 Rússum að fjör-
tjóni á ári hverju.
Á fyrra misseri þessa árs
fækkaði Rússum um hátt í hálfa
milljón manna og eru nú 144,4
millj. Því er spáð, að Rússum
haldi áfram að fækka allan fyrri
helming þessarar aldar.
Rússar og áfengi
30% fleiri
falla í valinn
Moskvu. AFP.
ÞVOTTUR á skífum Big Ben-
klukkunnar á einum af turnum
þinghússins í London hófst í gær,
en þær voru síðast þvegnar fyrir
sex árum. Klukkuverkið er 147 ára
gamalt og heldur áfram að ganga
meðan á hreingerningunni stendur.
Hver skífa er sjö metrar í þver-
mál og í henni eru 312 rúður. Stóri
vísirinn er 4,2 metra langur og töl-
urnar eru 61 sm háar hver. Nafnið
Big Ben skírskotar til 14 tonna
klukku inni í turninum, sem slær á
klukkutíma fresti.
Reuters
Big Ben
þveginn