Morgunblaðið - 21.08.2001, Side 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞJÓÐMINJAVÖRÐUR segir það
rangt að Þjóðminjasafnið hafi afsal-
að sér lóð á Norðurtúni rétt við
Nesstofu þar sem áður var fyrir-
hugað að reisa lækingaminjasafn þó
að ákveðið hafi verið að leggja bygg-
inganefnd safnsins niður. Í bréfi for-
manns bygginganefndarinnar til
bæjarstjóra Seltjarnarness segir
hins vegar að hugmyndir um bygg-
ingu safnhússins hafi verið lagðar til
hliðar og að nefndin muni ekki nýta
byggingaréttinn á reitnum.
Forsaga málsins er sú að árið
1997 var efnt til samkeppni um
hönnun lækningaminjasafns á lóð-
inni. Voru það arkitektarnir Ásdís
H. Ágústsdóttir og Sólveig Berg
Björnsdóttir hjá Yrki sf. sem urðu
hlutskarpastar og luku þær hönnun
safnsins að fullu.
Framkvæmdum
einungis frestað
4. júlí í sumar greindi Morgun-
blaðið frá áformum um að reisa 60
rúma hjúkrunarheimili á umræddri
lóð. Í kjölfar fréttarinnar reit
Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminja-
vörður bæjarstjóra bréf þar sem
hún gerir athugasemdir við þessi
áform þar sem ekki hafi verið fallið
frá hugmyndum um byggingu lækn-
ingaminjasafnsins heldur hafi fram-
kvæmdum einungis verið frestað
vegna fjárskorts.
Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri
segir það hins vegar ljóst að með
bréfi frá því í júlí í fyrra hafi bygg-
inganefnd lækningaminjasafnsins
afsalað sér lóðinni. Í bréfinu, sem
Morgunblaðið hefur undir höndum,
er greint frá því að ekki hafi tekist
að tryggja fjármögnun verksins og
því hafi verið talið óráðlegt að fara
út í framkvæmdina á meðan á end-
urbótum og viðgerðum á húsi Þjóð-
minjasafnsins við Suðurgötu stæði.
Í bréfinu er sagt frá því að ekki sé
líklegt að fjármagn fengist til bygg-
ingar safnsins á næstu árum og því
hafi verið áveðið að nýta þá fjár-
muni sem fyrir hendi voru til að
kaupa geymsluhúsnæði fyrir muni
safnsins. „Af framansögðu má ljóst
vera að lagðar hafa verið til hliðar
hugmyndir um byggingu hins glæsi-
lega nýja safnhúss sem hannað hef-
ur verið í Nesi. Bygginganefnd Nes-
stofusafns hefur ekki frekara
hlutverki að gegna og hættir störf-
um á næstunni,“ segir í bréfinu.
Loks segir í niðurlagi bréfsins:
„Bygginganefnd Nesstofusafns mun
þannig ekki nýta byggingarrétt á
reit þeim, sem úthlutað var til að
byggja lækningaminjasafn í ná-
grenni Nesstofu.“
Ekki í samráði
við Þjóðminjasafnið
Í bréfi sínu til bæjarstjóra frá því
í sumar segir þjóðminjavörður að
með bréfinu hafi formaður bygg-
inganefndar í raun verið að tilkynna
að nefndin sem slík myndi ekki hafa
frekar með lóðina að gera. Vísar
hún til Björns Bjarnasonar mennta-
málaráðherra, sem hafi sagt í Nes-
stofu í ágúst í fyrra að sín skoðun
væri sú að tilkoma geymsluhúsnæð-
isins að Bygggörðum 7 breytti ekki
því að byggja þyrfti nýja safnhúsið.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Margrét að það hafi ekki verið
skilningur Þjóðminjasafnsins að bú-
ið væri að leggja til hliðar áform um
að byggja lækningaminjasafnið um
alla framtíð heldur væri einungis
um frestun að ræða vegna fram-
kvæmda við Þjóðminjasafnið. „Þetta
er ekki í samráði við okkur, okkar
skilningur var sá að það væri ennþá
í framtíðaráformum að byggja þetta
hús og það var ekki rætt um annað
við okkur,“ segir hún.
Sigurgeir segir ekki hafa verið
hægt að skilja annað af bréfi for-
manns bygginganefndarinnar frá í
fyrra að fallið hafi verið frá bygg-
ingaráformunum. „Enda sýnist
manni að fjárhagsgrundvöllur slíkr-
ar stofnunar hafi verið mjög veikur
frá byrjun. Reyndar kemur í ljós við
nánari rannsókn að lóðinni hefur
aldrei verið formlega úthlutað til
þeirra. Það virðist alla vega hafa
verið formgalli á því þannig að við
finnum engar bókanir um að þetta
hafi verið formlega gert,“ segir
hann. „En hefði þetta verið einhver
alvara í þessu þá væri byrjað að
byggja þetta núna,“ segir hann.
Ekki fjallað um nýja byggingu
í nefndum bæjarins
Sú gagnrýni hefur komið frá
fulltrúum minnihlutans í bæjar-
stjórn Seltjarnarness að meirihlut-
Þjóðminjavörður ósáttur við hjúkrunarheimili
við Nesstofu þar sem lækningaminjasafn átti að rísa
Segir safnið aldrei
hafa afsalað sér lóðinni
Seltjarnarnes
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri afhenti síðastliðinn
föstudag viðurkenningar fyrir frá-
gang lóða og endurbætur á hús-
næði í borginni.
Viðurkenningar fyrir frágang
lóða voru veittar vegna fjölbýlis-
húsa og fyrirtækja þar sem frá-
gangur þykir framúrskarandi og
þær hlutu fjölbýlishúsin Gullengi 13
og Flétturimi 2-8, Verðbréfastofan
hf., Suðurlandsbraut 18 og RÚV,
Efstaleiti 1.
Viðurkenningar fyrir endur-
bætur á húsnæði hlutu eigendur
þriggja eldri húsa borgarinnar sem
vel hafa staðið að endurbótum á
þeim. Þær húseignir sem við-
urkenningar hlutu voru steinbær-
inn Götuhús að Vesturgötu 50,
gamli prestabústaðurinn að Landa-
koti og loks var eigendum Tóm-
asarhaga 55 veitt viðurkenning fyr-
ir endurbætur á húsi sínu.
Nefndir skipaðar af skipulags- og
byggingarnefnd borgarinnar völdu
úr þær lóðir og hús sem skara þóttu
framúr á þessum sviðum.
Morgunblaðið/Þorkell
Handhafar fegrunarviðurkenninga Reykjavíkur ásamt borgarstjóra.
Viðurkenningar fyrir
fegrun lóða og húsa
Reykjavík
HUGMYNDAVINNA vegna hugs-
anlegrar menningarmiðstöðvar í
Grafarvogi, sem starfrækt yrði á
vegum borgarinnar og kirkjunnar,
stendur nú yfir. Að sögn Regínu
Ásvaldsdóttur framkvæmdastjóra
Miðgarðs er málið á undirbúnings-
stigi en um þessar mundir fara
fram viðræður milli Miðgarðs og
kirkjunnar í Grafarvogi þar sem
skoðuð er þörf á húsnæði fyrir
slíka starfsemi í framtíðinni.
Ef af verður mun menningar-
miðstöðin að sögn Regínu rísa við
Spöngina í Grafarvogi og þar yrði
fjölskylduþjónusta Miðgarðs og
kirkjusel starfrækt auk þess sem
hugmyndir eru uppi um félags-
starf aldraðra og bókasafn á
staðnum.
Viðræður um menning-
armiðstöð í Grafarvogi
Grafarvogur