Morgunblaðið - 21.08.2001, Qupperneq 33
Einelti hefur mörg andlit
Jón segir fámenna skóla hafa
marga kosti. „Hér þekkjast allir,
bæði börn og fullorðnir, og skóla-
samfélag Suðurhlíðarskóla er bæði
náið og heimilislegt. Við höfum góða
yfirsýn yfir það sem er að gerast í
skólanum og það er auðveldara að
fylgjast með því þegar skólareglur
eru brotnar,“ segir hann. Að sögn
Jóns hefur Suðurhlíðarskóli tekið við
nokkrum nemendum sem hafa orðið
fyrir einelti í fjölmennum skólum.
„Sum þessara barna eru mjög nið-
urbrotin þegar þau koma hingað, en
auðvitað er það misjafnt. Við fengum
eitt sinn dreng til okkar sem var
hættur að mæta í skólann og foreldr-
ar hans tjáðu mér síðar meir að stór
breyting hefði orðið á öllu heimilislíf-
inu eftir að hann skipti um skóla. Það
vildi svo heppilega til að hann eign-
aðist strax mjög góðan vin í bekkn-
um og honum fór að líða vel í skól-
anum. Það er auðvitað ekki sjálfgefið
að alltaf takist svona vel til, en mjög
ánægjulegt þegar það gerist,“ segir
Jón.
Skólinn tekur á eineltismálum um
leið og þau uppgötvast, þeir sem í
hlut eiga eru kallaðir til viðtals og
samband haft við foreldrana. Jón
segir að birtingarmyndir eineltis séu
margar og oft geti það verið mjög
dulið. „Það er ekki eingöngu um það
að ræða að verið sé að berja einhvern
– einelti getur meðal annars birst
sem höfnun eða þá að nemandi er
settur í félagslega einangrun. Við
reynum alltaf að ræða þessi mál við
börnin og gerendurnir verða að
skilja hvað einelti er og hvaða afleið-
ingar það hefur.“
„Auðvitað geta komið upp eineltis-
mál hjá okkur eins og í öðrum skól-
um en fámennið hefur þann kost að
það er auðveldara að taka á því,“
segir Jón og bætir við að nauðsyn-
legt sé að hafa skráðar reglur um
agamál almennt. Hann bendir á að
agi sé ekki meðfæddur, frekar en
kurteisi. „Sjálfsaga og kurteisi þurfa
börn að læra heima hjá sér – barn
sem ekki sýnir foreldrum sínum
virðingu og kurteisi heima fyrir er
ekki líklegt til þess að gera það við
kennarann þegar það kemur í skól-
ann. Við sem foreldrar og uppalend-
ur þurfum ávallt að hafa það í huga
að við erum fyrirmyndirnar og börn-
in fara meira eftir því hvernig við
komum fram hvert við annað en hvað
við segjum þeim að gera. Það er
mjög mikilvægt að samstarf milli
heimilis og skóla sé gott og börnin
finni þetta sjálf.
Nýlega las ég grein í dönsku blaði
um að kennarar þar í landi kvarti
mikið yfir því að foreldrar sýni þeim
ekki stuðning og samstöðu. Illt um-
tal foreldra um kennarann innan
veggja heimilisins hefur auðvitað
áhrif á hegðun barns og viðmót þeg-
ar það mætir í kennslustund. Þess
vegna er mikilvægt að samvinna for-
eldra og kennara sé sem best,“ segir
Jón.
Nemendum á að líða vel
Að sögn Jóns er félagslíf nemenda
við Suðurhlíðarskóla nokkuð og
nemendafélag er þar starfandi.
„Auðvitað er félagið ekki fjölmennt,
en nemendur hafa verið duglegir að
hafa hér ýmsar uppákomur,“ segir
hann. Vináttutengsl hafa skapast
milli Suðurhlíðarskóla og aðventista-
skóla í Finnlandi og Jón segir frá því
að fyrir tveimur árum hafi finnsku
nemendurnir tekið af skarið og farið
í Íslandsferð til þess að heimsækja
nemendur skólans. Þessi ferð þótti
takast svo vel að síðastliðið vor kom
annar hópur frá sama skóla í heim-
sókn. „Nú er mikill hugur í okkar
nemendum að skella sér í vorferð til
Finnlands á næsta ári,“ segir Jón og
býst við að vinnan að þessu takmarki
verði mjög áberandi í félagslífi eldri
nemenda í vetur. Hann segist
hlynntur nemendasamskiptum af
þessu tagi enda sé þroskandi fyrir
börn að kynnast því hvernig fólk hef-
ur það í öðrum löndum.
„Í Suðurhlíðarskóla eru alls konar
nemendur – bæði þeir sem hafa
framúrskarandi námshæfileika og
hinir sem teljast slakir nemendur –
en við stefnum að því að laða fram
hæfileikana sem búa í hverjum og
einum þannig að allir fái notið sín og
nemendum líði hér vel. Ef nemend-
um líður ekki vel í skólanum njóta
þeir sín ekki, hvorki í náminu né
öðru,“ segir Jón að lokum.Skólaferðalag á Grjóteyri í Kjós vorið 2000.
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001 33
Tölvur og
vinnuumhverfi
N Á M S A M H L I ‹ A S T A R F I
Skeifan 11 b · Sími 568 5010 · Fax 581 2420
skoli@raf.is · www.raf.is
Tölvur og vinnuumhverfi 1 er hnitmiðað nám fyrir byrjendur þar sem
farið er vandlega í grunnatriði tölvunotkunar. Lögð er áhersla á að
kynna möguleika forritanna og kenna rétt vinnubrögð. Námið hentar
þeim vel sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaðinum og öðlast
hagnýta tölvuþekkingu.
2. H L U T I
• Tölvuvinnsla
• Fingrasetning
• Windows umhverfið
• Word ritvinnslan
• Excel töflureiknirinn
• Internetið
• Tölvupóstur
• Raunhæf verkefni
1. H L U T I
Framhaldsbraut fyrir þá sem hafa lokið við Tölvur og
vinnuumhverfi 1 eða hafa góða grunnþekkingu á
Windows, Word og Excel og vilja bæta við hæfni sína.
Þessi námsbraut hentar þeim vel sem notað hafa tölvur
um lengri eða skemmri tíma en vilja auka við þekkingu
sína og öðlast meira öryggi.
Að námi loknu eiga þátttakendur að vera færir um að
leysa flóknari verkefni með hjálp tölvunnar.
• Word framhald
• Excel framhald
• PowerPoint
• Umbrotsforrit kynnt
Hvort nám fyrir sig er 120 kennslustundir.
Námið tekur 12 vikur.
Kennt er tvisvar sinnum í viku.
• Internetið
• Tölvupóstur
• Samsteypa:
Word/Excel
Nánari upplýsingar í síma 568 5010
Draumavél
heimilanna!
Vegleg brúðargjöf!
Ísaumuð svunta
með nöfnum og
brúðkaupsdegi fylgir!
5 gerðir - margir litir
Borgartúni 20 - sími 562 2901 og 562 2900
60 ára frábær reynsla.