Morgunblaðið - 21.08.2001, Síða 35
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001 35
UNDANFARIÐ hef-
ur töluvert borið á um-
ræðu um auglýsingar í
Ríkisútvarpinu. Ýmsir
hagsmunahópar hafa
um langt skeið gert há-
værar kröfur um það að
Ríkisútvarpið hyrfi af
auglýsingamarkaði, að
það eigi ekki að keppa
við einkarekin fjöl-
miðlafyrirtæki á þess-
um vettvangi. Frétta-
stofa Stöðvar 2 og
Bylgjunnar hefur farið
mikinn í umfjöllun sinni
eins og svo oft áður þeg-
ar málefni Ríkisút-
varpsins ber á góma.
Ginnkeyptir pólitíkusar hafa síðan
verið fengnir til þess að hrópa út áróð-
urinn að hætti ,,Hússins á Hálsinum“.
Þetta er í sjálfu sér gömul tugga sem
yfirleitt lætur bóla á sér þegar harðna
fer á dalnum eins og allir miðlar í
landinu hafa upplifað undanfarið, í því
tilliti er Ríkisútvarpið engin undan-
tekning.
Sumir ganga jafnvel svo langt að
kenna Ríkisútvarpinu um það að
einkareknu miðlarnir þurfi að draga
saman seglin og fækka starfsfólki.
Röksemdafærsla af þessu tagi er út í
hött og er að sjálfsögðu lituð hags-
munum. Það þætti ekki góð pólitík ef
Goði kenndi Sláturfélagi Suðurlands
alfarið um rekstrarerfiðleika sína og
heimtaði síðan í kjölfarið félagið út af
markaðnum til þess að geta setið eitt
að sölu á pylsum í landinu. Forsvars-
menn þeirra einkamiðla sem keppa
við Ríkisútvarpið á auglýsingamark-
aði, hljóta í upphafi að hafa gert sér
grein fyrir þeim leikreglum sem giltu
á íslenskum fjölmiðlamarkaði, það er
að Ríkisútvarpið væri og yrði áfram á
auglýsingamarkaði. Þetta er meðal
annars bundið í fjárlögum og útvarps-
lögum og hefur verið þannig frá því
löngu fyrir tíma einkarekinna ljós-
vakamiðla í landinu.
Í umræðunni hefur meðal annars
komið fram að skuldir Norðurljósa
ehf., eiganda Stöðvar 2 og Bylgjunn-
ar, nemi um það bil 8 milljörðum
króna. Hver dagur í sögu félagsins
hefur því þýtt skuldasöfnun af áður
óþekktri stærð í íslenskri fjölmiðla-
sögu. Meðal annars hefur félagið ver-
ið iðið við að kaupa upp alla sam-
keppni sem hefur orðið á vegi þess og
það hefur augljóslega kostað skilding-
inn. Fjöldi meðeigenda var einnig
keyptur út úr Stöð 2 fyrir hundruð
milljóna. Þar var illa farið með fé
áskrifenda stöðvarinnar. Það þarf
engan rekstrarsérfræðing til þess að
álykta, að annaðhvort er rekstur af
þessu tagi ekki arðbær eða þá að eitt-
hvað er verulega ábótavant við rekst-
ur félagsins. Hæpið er
síðan að skella skuldinni
á Ríkisútvarpið, þó allt-
af sé handhægast að
finna aðra sökudólga en
sjálfan sig – ,,Árinni
kennir illur ræðari“.
Samtök auglýsenda
(SAU) og Samtök ís-
lenskra auglýsingastofa
(SÍA) hafa margoft látið
þá skoðun í ljós, meðal
annars við ráðherra, að
þau vilji ekki að Ríkisút-
varpið hverfi af auglýs-
ingamarkaði. Við það
hyrfi öll samkeppni af
markaðnum og einok-
unarstaða gæti skapast
sem er engum holl. Einnig hafa SAU
og SÍA bent á að aðgengi auglýsenda
að neytendum minnki verulega við
þessa aðgerð. Hvort tveggja myndi
óhjákvæmilega leiða til aukins kostn-
aðar fyrir auglýsendur sem á endan-
um yrði velt út í verðlagið þegar fá-
keppnin eða einokunin yrði alger.
Að auki verður það að teljast mót-
sagnakennt, að sömu aðilar og krafist
hafa frjálsrar samkeppni á fjölmiðla-
markaði, skuli nú vilja skapa sjálfum
sér einokunarstöðu í sölu auglýsinga.
Einnig verður það að teljast vafa-
samt, á þeirri upplýsingaöld sem við
lifum á, að loka fyrir auglýsingar í
þeim miðli sem best nær til lands-
manna. Slíkt kæmi sér til dæmis mjög
illa fyrir landsbyggðina, sem svo oft
vill gleymast í umræðunni um Rík-
isútvarpið og einkarekna ljósvaka-
miðla. Þeir sem taka þátt í slíkri um-
ræðu verða að sjá lengra en nef þeirra
nær. Það er ljóst að þær raddir sem
vilja Ríkisútvarpið út af auglýsinga-
markaði, tala hvorki máli opins upp-
lýsingaþjóðfélags né auglýsenda.
Einkahagsmunir liggja því augljós-
lega að baki.
Þorsteinn
Þorsteinsson
Höfundur er forstöðumaður
markaðssviðs RÚV.
Fjölmiðlamarkaðurinn
Það er mótsagnakennt
að þeir sem krafist hafa
frjálsrar samkeppni
skuli nú vilja skapa
sjálfum sér einokun-
arstöðu í sölu auglýs-
inga, segir Þorsteinn
Þorsteinsson.
Árinni
kennir illur
ræðari
GÁMAHÚS BYGGINGAKRANAR STEYPUMÓT
Færanleg
einingahús
í ótal útfærslum.
ÓTRÚLEGT VERÐ!
GÁMAHÚS
Fullkomnaðu
verkið
með
þakrennukerfi
þakrennukerfi
BLIKKÁS EHF.
SKEMMUVEGUR 36
200 KÓPAVOGUR
SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111
Fagm
enns
ka
í
fyrir
rúmi
Söluaðilar um land allt
FRÉTTIR
mbl.is