Morgunblaðið - 16.09.2001, Side 1
MORGUNBLAÐIÐ 16. SEPTEMBER 2001
211. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Enginn veit nákvæmlega
hversu margar þjóðtung-
urnar eru, en talan 4000
er þó gjarnan nefnd. Þrátt
fyrir hinn mikla fjölda hef-
ur að auki í gegnum tíðina
komið fram mýgrútur af
svokölluðum planmálum
eða „tilbúnum málum“ og
er esperanto þekktasta
dæmið. Sigurður Ægisson
kannaði þessa merkilegu
sögu, í tilefni evrópska
tungumálaársins, og komst
að því að hún nær allt aft-
ur til 1. aldar e. Kr. og að
fjöldi planmála síðan þá er
á bilinu 500–1000. 10
Bölvun
Babels
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Sunnudagur
16. september 2001
B
26
Umræðan um
gagnagrunninn
22
Fjölskyldan
afneitar Bin Laden
10 Innflytjendur
í brennidepli
MINNINGARATHAFNIR um fórn-
arlömb árásar hermdarverkamanna
á Bandaríkin voru haldnar víða um
heim á föstudag. Milljónir manna í
43 löndum Evrópu, allt frá Íslandi til
Rússlands, lögðu þá niður vinnu
klukkan tíu f.h. að íslenskum tíma til
að minnast fórnarlambanna með
þriggja mínútna þögn. Víða var
flaggað í hálfa stöng og strætis-
vagnar í mörgum löndum námu
staðar.
Þúsundir manna söfnuðust saman
við St. Pálsdómkirkjuna í Lund-
únum þegar minningarathöfn fór
þar fram. Elísabet Bretadrottning
sótti athöfnina og sést hér þerra tár
af hvörmum sér þegar hún gekk út
úr kirkjunni.
Hundruð stjórnmála- og trúar-
leiðtoga sóttu minningarathöfn í
Þjóðardómkirkjunni í Washington.
Á myndinni til hliðar sjást George
W. Bush Bandaríkjaforseti og eig-
inkona hans, Barbara, fara með bæn
við athöfnina. Við hlið þeirra eru
foreldrar forsetans, George og
Barbara Bush, auk Bills Clintons,
fyrrverandi forseta, eiginkonu hans,
Hillary, og dóttur þeirra, Chelsea.Reuters
Fórnarlamba
árásarinnar minnst
Skriður kemst á rannsókn yfirvalda í Bandaríkjunum
BANDARÍSKA alríkislögreglan,
FBI, hefur handtekið mann í New
York sem lýst er sem mikilvægu
vitni í rannsókninni á árás hermd-
arverkamanna á Bandaríkin á
þriðjudaginn var, að sögn dómsmála-
ráðuneytisins í Washington í gær.
Er þetta í fyrsta sinn sem verulegur
skriður kemst á rannsóknina, hina
viðamestu í sögu Bandaríkjanna.
Alríkislögreglan handtók manninn
á föstudag eftir að hafa fengið heim-
ild til að hneppa hann í gæsluvarð-
hald sem mikilvægt vitni án þess að
ákæra hann. Ekki var skýrt frá nafni
mannsins.
Heimildarmaður í alríkislögregl-
unni sagði að maðurinn hefði verið
stöðvaður á John F. Kennedy-flug-
velli á fimmtudagskvöld eftir að hafa
sýnt öryggisvörðum flugmannsskírt-
eini sem reyndist tilheyra bróður
hans. Yfirvöld vildu ekki veita frek-
ari upplýsingar um handtökuna.
Tveir menn
handteknir í Texas
Alríkislögreglumenn handtóku
einnig tvo menn á lestastöð í Fort
Worth í Texas og fluttu þá til yfir-
heyrslu í New York. Þeir voru með
samskonar hnífa og hermdarverka-
mennirnir notuðu þegar þeir rændu
farþegavélunum fjórum á þriðjudag.
Mennirnir tveir voru í flugvél sem
fór frá Newark í New Jersey sama
morgun og árásirnar voru gerðar.
Vélin var á leiðinni til San Antonio í
Texas en ákveðið var að lenda henni í
St. Louis þegar fréttist af árásunum.
Þar tóku mennirnir lest áleiðis til
San Antonio.
Að sögn yfirvalda í Texas segjast
mennirnir vera frá Indlandi. BBC
hefur eftir embættismönnum að
mennirnir séu taldir hafa mikilvæg-
ar upplýsingar um þá sem aðstoðuðu
flugræningjana.
Alríkislögreglan hefur sent lista
yfir 100 menn, sem hún vill yfirheyra
vegna rannsóknarinnar, til allra lög-
reglustöðva, flugvalla og landa-
mærastöðva í Bandaríkjunum.
Vitni
hand-
tekið
Talið geta veitt
mikilvægar
upplýsingar
Washington. AP.
STJÓRN talibana í Afganistan hót-
aði í gær innrás í grannríkið Pak-
istan ef það aðstoðaði Bandaríkjaher
við að gera árásir á Afganistan til að
hefna árása hermdarverkamanna á
New York og Washington á þriðju-
daginn var. Fréttastofan AP hafði í
gær eftir heimildarmönnum sínum í
her og utanríkisþjónustu Pakistans
að þarlend stjórnvöld hefðu fallist á
beiðni Bandaríkjastjórnar um að fá
að nota pakistanskt landsvæði til
hugsanlegra árása á Afganistan.
Heimildarmenn AP sögðu að
stjórn Pakistans hefði m.a. fallist á
að fjölþjóðlegt herlið yrði sent til
landsins. Hún hefði einnig samþykkt
að loka landamærunum að Afganist-
an og heimila bandarískum herflug-
vélum að nota pakistanska lofthelgi.
Að sögn heimildarmannanna
skýrði Pervez Musharraf, forseti
Pakistans, sendiherra Bandaríkj-
anna frá þessari ákvörðun á föstu-
dag.
Talið er að Bandaríkjaher sé að
undirbúa árásir á Afganistan fallist
stjórn talibana ekki á að framselja
sádi-arabíska útlagann Osama Bin
Laden, sem bandarísk yfirvöld telja
að hafi staðið fyrir árás hermdar-
verkamannanna á Bandaríkin.
Stjórn talibana ítrekaði í gær að
hún myndi ekki framselja Bin Laden
og sagði að „heilagir stríðsmenn“
hennar myndu ráðast inn í grann-
ríkið og hernema það hjálpuðu Pak-
istanar Bandaríkjaher að gera árásir
á Afganistan.
Talibanar hóta innrás
Bandaríkjaher sagður fá heimild til árása frá Pakistan
Kabúl, Íslamabad. AFP, AP.
KÍNVERJAR náðu í gær sam-
komulagi við samningamenn
Heimsviðskiptastofnunarinnar
(WTO) um skilmála aðildar
landsins að stofnuninni. Sam-
komulagið greiðir fyrir því að
Kína, fjölmennasta ríki heims,
fái fulla aðild að WTO á fyrstu
mánuðum næsta árs.
Talið er að aðild Kína að
WTO hafi víðtæk áhrif á heims-
viðskiptin og stórauki bæði inn-
og útflutning Kínverja.
Samkomulagið komst í höfn
snemma í gærmorgun. Ráðgert
er að samningamennirnir und-
irriti samkomulagið formlega á
morgun, mánudag, og það verði
síðan samþykkt endanlega á
fundi viðskiptaráðherra aðild-
arríkjanna í nóvember.
Kína á
leið í
WTO
Genf. AP.