Morgunblaðið - 16.09.2001, Side 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MIKIÐ var um dýrðir á Grafarvogsdeginum sem haldinn
var hátíðlegur í fjórða skiptið í gær, laugardag.
Dagskráin fór fram á ýmsum stöðum í hverfinu og
hófst á sögugöngu í gærmorgun í umsjá Jóhanns Páls-
sonar, fyrrverandi garðyrkjustjóra Reykjavík-
urborgar, sem er til vinstri á myndinni.
Morgunblaðið/Golli
Grafarvogsdagurinn haldinn hátíðlegur
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
teknar verði upp viðræður við fé-
lagasamtök og heilbrigðisráðuneytið
varðandi úrræði fyrir heimilislausa í
Reykjavík. Starfshópur sem skipað-
ur var um málið hefur skilað inn til-
lögum um að ráðist verði í að koma
á fót tveimur heimilum fyrir heim-
ilislausa, miðað við að 7 til 8 manns
dvelji í hvoru húsi.
Starfshópurinn telur að rétt sé að
umrædd heimili nýtist tveimur hóp-
um, annars vegar þeim sem eiga
hvergi höfði sínu að halla og hins
vegar einstaklingum sem eiga að
baki margar meðferðir og langa
sögu um félagslega erfiðleika en eru
ekki í neyslu, hafa nýlega lokið með-
ferð eða tekist að hætta neyslu með
öðrum hætti, eins og segir í skýrslu
hópsins.
Hjálpað til að ná tökum
á lífi sínu
Annað heimilið verður ætlað ein-
staklingum sem eiga ekki möguleika
á að dvelja í Gistiskýlinu í Þing-
holtsstræti vegna ástands síns en
þessir einstaklingar eiga oftar en
ekki við áfengissýki eða aðra fíkn að
stríða auk geðrænna kvilla. Mark-
miðið með dvöl einstaklinganna á
heimilinu er að auka lífsgæði þeirra
og möguleika á að ná tökum á lífi
sínu. Áhersla er lögð á að um heimili
sé að ræða en ekki stofnun. Hitt
heimilið er hugsað sem úrræði fyrir
einstaklinga sem hefur tekist að
hætta neyslu og er áherslan lögð á
félagslegan stuðning við heimilis-
menn og kennslu þar sem haft verð-
ur að leiðarljósi að einstaklingar
sem eru að koma úr mikilli neyslu
þurfa stuðning til að fóta sig í sam-
félaginu í lengri tíma.
Gert er ráð fyrir 7 stöðugildum
fyrir bæði heimilin og heildarkostn-
aði að upphæð rúmar 17,8 milljónir.
Eftir er að taka tillit til kostnaðar
vegna húsnæðis, kaupa á búnaði og
lagfæringa.
Félagsmálaráð samþykkir í meg-
inatriðum tillögur starfshópsins
með þeirri breytingu að í tengslum
við annað heimilið verði komið upp
nýju gistiskýli fyrir allt að 20
manns.
Stefnt að lausn á
vanda heimilislausra
MIKILL vöxtur hefur verið í trjá-
gróðri hérlendis undanfarin ár og
líta nytjaskógar mjög vel út, að
sögn Jóns Loftssonar, skógræktar-
stjóra ríkisins.
Jón Loftsson segir að þótt sum-
arið í ár hafi ekki verið það besta
sem komið hafi undanfarin ár, eink-
um austanlands, hafi nýliðin tvö ár
verið mjög góð og þau séu að ein-
hverju leyti að skila sér núna. Á
haustin áður en tré fella laufin séu
þau búin að undirbúa allt sem á að
gerast að sumri og fyrrnefnt góðæri
sé því að hluta til skýring á því hve
allur trjágróður sé nú fallegur og
góður og í miklum vexti um allt
land. Hins vegar hafi verið mikill
maðkur í stóru birkiskógunum á
Hallormsstað og Vöglum í Fnjóska-
dal og það sé líka að hluta til vegna
þessara góðu ára.
5-6 milljónir plantna
eru gróðursettar árlega
Ekki var byrjað að gróðursetja
tré hér á landi í einhverjum mæli
fyrr en eftir 1950. Jón segir að til að
byrja með hafi verið gróðursettar
um 100 þúsund trjáplöntur á ári en
þær hafi verið komnar upp í milljón
skömmu fyrir 1990 og nú séu gróð-
ursettar um fimm til sex milljónir
plantna á ári. Mikil aukning og
sprenging hafi því orðið í gróður-
setningu á undanförnum árum og
svæðið stóraukist, en um þrjú til
fimm ár taki fyrir plönturnar að
koma sér fyrir. Nú sé sýnilegur
árangur á þessum fimm til sex ára
plöntum, en hálfs til eins metra
langir sprotar séu á þeim.
Plönturnar á umræddum reitum
eru búnar að koma sér fyrir og eru í
miklum vexti. Jón segir að auk hag-
stæðara veðurfars hafi orðið mikil
breyting á t.d. áburðargjöf. Áður
hafi bara verið gróðursett og beðið
eftir því að eitthvað gerðist, jafnvel í
10 til 20 ár, en rannsóknir og þekk-
ing á t.d. jarðvinnslu og áburðargjöf
skili árangri miklu fyrr.
Að sögn Jóns er ekki farið að
reikna með svona ástandi á hverju
ári því sveiflur séu á þessu sviði sem
öðrum, en útlitið sé engu að síður
bjart varðandi þessa nýju auðlind,
sem verið sé að byggja upp. Skóg-
arhögg eigi sér stað í marga mánuði
á hverjum vetri í 30 ára gömlum
reitum og fjöldi manns hafi af þessu
atvinnu. Úr afurðunum séu m.a.
unnir girðingarstaurar, en alvöru-
timbur komi ekki úr þessum skóg-
um fyrr en þeir séu orðnir 40 til 50
ára gamlir. Þótt kúrfan stefni beint
til himins sé því fyrst og fremst um
grisjun að ræða.
Mjög mikill vöxtur í
trjágróðri í sumar
MEÐ Morgunblaðinu í dag fylgir
„Basic tölvur og tæki“. Blaðinu verð-
ur dreift á höfuðborgarsvæðinu.
AFLRAUNAKEPPNIN Suð-
urnesjatröllið stendur um helgina
þar sem nokkrir sterkustu manna
landsins reyna með sér. Krafta-
karlinn Jón Valgeir Williams lét
ekki meiðsli á fæti, sem hann
hlaut í fyrstu greininni á föstu-
dag, aftra sér frá því að ráðast í
síðari greinina þann daginn.
Fyrsta greinin var skógarhögg
og henti Jón Valgeir það óhapp
að höggva sig í annan fótinn
þannig að sin skaddaðist. Varð að
setja það í gifs en það náði ekki
að þorna almennilega áður en
hann var kominn til keppni á ný
og tók þátt í síðari grein föstu-
dagsins. Var það svonefnd kross-
festulyfta, þegar aflraunamenn-
irnir halda þungum hlutum í
hvorri hendi beint út frá
skrokknum. Jón Valgeir stóð þá í
annan fótinn og lagði frá sér
hækjuna rétt á meðan.
Hjalti Úrsus Árnason sagði í
viðtali við Morgunblaðið að þessi
flokkur manna hefði í heiðri hin
fleygu orð að eigi skuli haltur
ganga meðan báðir fætur eru
jafnlangir og því hefði Jóni fund-
ist eðlilegt að taka síðari grein-
ina þrátt fyrir meiðslin. Bjóst
Hjalti jafnvel við að hann myndi
einnig taka þátt í síðari degi
keppninnar í gær sem ljúka átti
síðdegis.
Hjalti sagði að nýliðinn í hópn-
um, Grétar Björnsson, hefði verið
efstur eftir fyrri daginn.
Hjó sig í fótinn
í kraftakeppni
Keppti
áfram
þrátt fyr-
ir meiðsli
LÍÐAN tólf ára stúlku, sem
slasaðist alvarlega er ekið var á
hana á gangbraut á Háaleitis-
braut í Reykjavík að morgni
föstudags, er óbreytt. Stúlkan
hlaut mikla höfuðáverka og
liggur á gjörgæsludeild Land-
spítala í Fossvogi þar sem hún
er sofandi og í öndunarvél.
Stúlkan gekkst undir aðgerð
á skurðdeild Landspítalans í
fyrradag. Hún er nemandi í
Hvassaleitisskóla og var á reið-
hjóli á leið yfir gangbraut, en
þar eru gangbrautarljós með
hnappi.
Líðan
stúlk-
unnar
óbreytt
HÁLFÞRÍTUGUR karlmaður var
dæmdur í tveggja mánaða fangelsi í
Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudag
fyrir tilraun til þjófnaðar í auðgunar-
skyni.
Maðurinn játaði að hafa reynt
árangurslaust innbrot í verslunina
ACO í Reykjavík með því að brjóta
upp útidyrahurð. Þá þótti dómara
hann hafa gerst sekur um vopnalaga-
brot með því að hafa við innbrotið
haft í vörslu sinni úðabrúsa með tára-
gasi.
Maðurinn hefur nokkrum sinnum
sætt refsingum fyrir auðgunarbrot
auk annarra hegningarlagabrota og
brota gegn lögum um ávana- og fíkni-
efni. Síðast var hann dæmdur í mars
sl. í fjögurra mánaða fangelsi vegna
umferðarlagabrots og brots gegn
lögum um ávana- og fíkniefni. Auk
þess að vera dæmdur í fangelsi var
táragasbrúsinn gerður upptækur.
Jón Finnbjörnsson héraðsdómari
kvað upp dóminn.
Dæmdur
fyrir
þjófnaðar-
tilraun