Morgunblaðið - 16.09.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.09.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ STJÓRN Félags íslenskra bifreiða- eigenda leggur til að stjórnvöld hætti að innheimta skatta af bifreiðavara- hlutum. „Skattlagning þessi er vafa- söm þar sem hún stuðlar að því að gert sé á ófullkominn máta við bíla sem hafa bilað eða skemmst í umferð- aróhöppum,“ segir m.a. í ályktun stjórnarinnar sem samþykkt var á ársfundi hennar á Egilsstöðum í gær- morgun. Í greinargerð með ályktuninni kemur fram að samkvæmt könnun FÍB á varahlutaverði í þremur Evr- ópulöndum eru upprunalegir vara- hlutir í bíla alla jafna dýrastir á Ís- landi. „Skattar á bílahluti eru líka skattar á umferðaröryggi því hættan er sú að reynt sé að draga það að end- urnýja lélega eða ónýta varahluti sem eru dýrir,“ segir einnig í greinargerð- inni. Þá samþykkti fundurinn áskor- un á umhverfisráðherra að beita sér fyrir að enginn brennisteinn verði leyfður í bílabensíni og dísilolíu fyrir bíla eftir árið 2005. Vísað er til rann- sókna erlendra systurfélaga FÍB sem leitt hafi í ljós að bensín- og dís- ilbílar sem ganga fyrir brennisteins- lausu eldsneyti gefi frá sér um 20% minna af mengandi níturoxíðum og vetniskolefnasamböndum. Bílar sem ganga fyrir blýlausu eldsneyti geti einnig ekið á brennisteinslausu elds- neyti og engar breytingar þurfi að gera á þeim. Lagt hafi verið til við Evrópuráðið að hætt verði í áföngum að selja bílaeldsneyti sem inniheldur brennistein. Stjórn FÍB átelur þau vinnubrögð við nýskráningu bíla að hætt sé að skrá árgerð og framleiðsluár og telur illskiljanlegt hvers vegna „talin er þörf á að leyna bifreiðaeigendur þessum mikilvægu upplýsingum“. Segir í greinargerð stjórnar að fjöl- mörg vandamál skapist vanti þessar upplýsingar, m.a. vegna varahluta- kaupa, og að bíll geti verið nokkurra ára gamall en keyptur í þeirri trú að hann sé nýr af því að hann er ónot- aður. Bent er á að standi bíll óhreyfð- ur langtímum saman geti óhreinindi og ryð t.d. safnast á hemladiska, raki myndast í vélarrúmi sem haft geti áhrif á rafkerfi og olía nái ekki á legur eða vél þegar bíll er hreyfður á ný. Þá er mótmælt hugmyndum um að skattleggja notkun á nagladekkjum og skorað er á yfirvöld dóms- og við- skiptamála að setja fullnægjandi reglur um eftirlit með starfsemi bíla- sala. FÍB vill að skattar á bíla- varahluti verði lagðir af ATHUGANIR skoðunarnefnd- ar á vegum Vestmannaeyja- bæjar gefa ekki tilefni til sér- stakra athugasemda varðandi fjárhagsleg umsýslustörf Árna Johnsens, fyrrverandi alþing- ismanns, fyrir hönd bæjarsjóðs og stofnana hans. Í nefndinni voru löggiltur endurskoðandi og tveir skoðunarmenn Vest- mannaeyjabæjar. Þeim var fal- ið að kanna hvort Árni hefði með einhverjum hætti haft með höndum fjárhagsleg um- sýslustörf vegna verklegra framkvæmda eða annarra þátta sem snerta útgjöld úr bæjarsjóði og stofnunum hans. Í bréfi nefndarinnar til bæj- arráðs Vestmannaeyja kemur fram að framkvæmd könnun- arinnar hafi verið með þeim hætti að rætt var við ýmsa stjórnendur bæjarins og stofn- ana, svo sem bæjarstjóra, bæj- artæknifræðing, hafnarstjóra, aðalbókara, veitustjóra og framkvæmdastjóra Þróunar- félags Vestmannaeyja. Einnig voru bókhaldsgögn og önnur ytri gögn skoðuð eftir því sem þörf var talin á. Jafnframt var rætt við yfirmenn hjá Ríkis- endurskoðun vegna fram- kvæmda á Skanssvæði sem ríkissjóður og bæjarsjóður Vestmannaeyja komu sameig- inlega að. Nokkur verkefni skoðuð Meðal þeirra verkefna í Vestmannaeyjum sem horft var sérstaklega til má nefna framkvæmdir á Skanssvæði, verkefnið Hraun og menn, endurbygging vb. Blátinds VE, Herjólfsbæjarfélagið og undir- búningsframkvæmdir vegna fyrirhugaðs menningarhúss. „Athuganir okkar og kann- anir gefa ekki tilefni til sér- stakrar athugasemda um þá þætti sem okkur var falið að athuga,“ segir í bréfinu, sem undirritað er af Hafsteini Guð- mundssyni endurskoðanda og skoðunarmönnunum Arnari Sigurmundssyni og Jóni Haukssyni. Fjárhagsleg um- sýslustörf Árna Johnsens fyrir hönd bæjarsjóðs Ekki til- efni til athuga- semda FORMLEGT samstarf uppgræðslu- samtakanna Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs, Flensborgarskól- ans í Hafnarfirði og Krýsuvík- ursamtakanna um uppgræðslu og öflun þekkingar um vaxtarskilyrði gróðurs í Krýsuvík hófst á fimmtu- dag. „Með samstarfinu erum við að- ganga inn í Skil 21 sem er verkefni sem var ýtt úr vör í tilefni af því að Reykjavík var menningarborg árið 2000,“ segir Einar Birgir Stein- þórsson, skólameistari Flensborg- arskólans, og bætir við að fjölmjörg fyrirtæki séu í þessu samstarfi þar sem sjálfbær þróun er sett í önd- vegi. Það byggist á nýtingu úr- gangs af lífrænum uppruna til upp- græðslu og ræktunar í landnámi Ingólfs. „Þátttakendur í Skilum 21 skila úrgangsefnum aftur inn í hringrás náttúrunnar. Það er Gámaþjón- ustan sem sér um það með moltu- gerð. Flensborgarskólinn gengur inn í þetta verkefni sem fyrsti skól- inn á landinu og þetta er hluti af umhverfisstefnu okkar,“ segir Ein- ar og bætir við að þetta muni tengj- ast umhverfisfræðslu innan skól- ans. Aðspurður segir hann um fram- kvæmdina að skólinn muni nú fara út í flokkun á pappír og lífrænum úrgangi innan skólans. „Þetta fer síðan í moltugerð og við fáum moltu á móti sem við nýtum til upp- græðslu í Krýsuvík en þar erum við búin að taka landspildu í fóstur rétt hjá Krýsuvíkurskóla.“ Upplýsingar í sérstakan gagnabanka Nemendur á fyrsta ári í Flens- borgarskólanum, í kringum eitt hundrað talsins, voru allan fimmtu- daginn við uppgræðslustörf í Krýsuvík en að sögn Einars er það í tengslum við áfanga skólans sem heitir lífsleikni. Samtals voru gróð- ursettar um fimm hundruð trjá- plöntur. Þá munu þeir sem fara í þennan áfanga á vorönn fara þangað í maí- mánuði og halda up græðslu- störfum áfram. Einar segir sam- starfið um leið vera rannsóknarverkefni í skólanum sem og í Krýsuvík. „Nemendur setja niður nokkrar trjátegundir sem eru mismunandi gamlar. Þetta setja þau niður í afmörkuð svæði sem hafa verið sérstaklega staðsett með GPS-tækni. Hver planta hefur síðan verið merkt,“ segir hann og nefnir í því sambandi að þar komi fram upplýsingar eins og tegund plöntu, hvaða áburð hún fékk, hvaða aðferð var notuð við gróð- ursetningu, hæð og hversu gildur stofninn er. Þetta er allt saman skráð á sérstök eyðublöð og verður síðan fært inn í sérstakan gagna- banka skólans. „Ætlunin er að fylgja þessu eftir á næstu árum. Þetta er því framtíðarverkefni,“ segir hann og bætir við að fyrst í stað fái nem- endur fræðslu um það sem snýr m.a. að útplöntun og moltugerð en umræddur samningur feli í sér að skólinn gróðursetji fyrir upp- græðslusamtökin Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs og samtökin komi á móti með fræðslu fyrir alla nýnema í Flensborgarskólanum áð- ur en farið verður á vettvang. Jafn- framt munu samtökin stýra verk- efninu í Krýsuvík. Á næsta ári, segir Einar Birgir, er síðan gert ráð fyrir áframhald- andi plöntun sem og að skoða mæl- ingar á því hvernig til hafi tekist með tilliti til plantna sem fengu moltu. „Þarna byggist smám saman upp gagnabanki um það hvernig gróðri vegnar á svæðinu. Í framtíð- inni getum við notað þetta til að reikna kolefnisbindingu og fleira,“ segir hann. Aðspurður segir Einar Birgir að ástæðan fyrir því að farið var út í þetta samstarf sé að með því sé hægt að tengja saman umhverf- isstefnu skólans og vinnu við hag- nýtt verkefni, svo og að tryggja fræðslu nemendanna frá sérfræð- ingum á þessu sviði. Þá er gert ráð fyrir að Krýsuvík- ursamtökin komi jafnframt inn í þetta samstarf, að sögn Einars Birgis, með því að sjá um vöktun og veðurathuganir á svæðinu sem síð- an verður keyrt með gagnabanka skólans. Morgunblaðið/Árni Sæberg Nemendur á fyrsta ári í Flensborgarskólanum. F.v. Hermann Örn Sigurðsson, Hallgeir Jónsson, Jón Óskar Þorsteinsson og Valur Ísak Aðalsteinsson. Samstarf um uppgræðslu í landnámi Ingólfs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.