Morgunblaðið - 16.09.2001, Side 10

Morgunblaðið - 16.09.2001, Side 10
10 SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ „Grimmdin er sambæ FJÖLSKYLDA Osamas Bins Lad- ens fordæmdi hann í gær og vott- aði samúð vegna fórnarlamba hryðjuverkanna í Bandaríkjunum á þriðjudag. Sjeik Abdullah Awad Aboud Bin Laden er höfuð Bin Laden-fjölskyldunnar, sem er ein sú auðugasta í Sádi-Arabíu. Hann ræddi við fréttamann AP-frétta- stofunnar í síma og lýsti yfir mik- illi hryggð vegna árásanna í New York og Washington og þeirra þjáninga, sem hryðjuverkin hefðu valdið. „Fjölskyldan hefur áður lýst yfir því að leiðir liggja ekki saman með Osama og hún hefur fordæmt verknaði hans,“ sagði Abdullah. „Allir fjölskyldumeðlimir fordæma alla ofbeldisverknaði og hryðju- verk og gildir þá einu þótt Osama standi að baki þeim.“ Bandaríkjamenn segja að mest- ar líkur bendi til þess að Osama Bin Laden standi að baki ránunum á fjórum flugvélum, eyðileggingu World Trade Center og árásinni á bandaríska varnarmálaráðuneytið. Rannsóknarsjóðir og íbúðabyggingar Bin Laden-fjölskyldan á nokkur tengsl til Bandaríkjanna og þá einkum til Boston og nágrennis. Sjeik Bakr Mohamad Bin Laden, bróðir hans, hefur stofnað styrkt- arsjóði við Harvard-háskóla og ættingi hans á sex íbúðabyggingar í Charlestown, einni af útborgum Boston. Nokkrir fjölskyldumeðlim- ir hafa búið í Boston undanfarna áratugi. Bakr Mohammed Bin Laden gaf dágóða upphæð til lagadeildar Harvard-háskóla árið 1994 til að styrkja fræðimenn til rannsókna í íslamskri lögfræði. Ekki fékkst gefið upp hjá Harvard-háskóla hversu mikið fé bróðir hryðju- verkamannsins hefði látið af hendi rakna, en það kostar að jafnaði um eina milljón dollara eða hundrað milljónir króna að stofna rann- sóknarstyrk. Hann stofnaði annan rannsóknarstyrk við hönnunar- skóla Harvard. Embættismenn við Harvard lögðu þegar áherslu á að skólinn tengdist engan veginn Osama Bin Laden og var skýrt tekið fram að hann kæmi hvergi nærri styrkjakerfi skólans. „Þetta tengist Osama Bin Lad- en, sem hefur verið útskúfaður af fjölskyldu sinni og frá Sádi-Arab- íu, ekki á nokkurn hátt,“ sagði Michael Armini, talsmaður laga- deildarinnar. „Tilgangur þessarar gjafar er sá að hlúa að gagnkvæm- um skilningi í vestrænni og mús- limskri lögspeki.“ Stephen Walt, prófessor í al- þjóðastjórnmálum við John F. Kennedy-skólann við Harvard, líkti sambandi Bin Laden-bræðr- anna við eina þekktustu bræður Boston, William Bulger, forseta University of Massachusetts, sem áður var einn atkvæðamesti stjórnmálamaður ríkisins, og bróð- ur hans James, sem er nafntog- aður glæpamaður og einn þeirra, sem bandaríska alríkislögreglan vildi helst koma bak við lás og slá. „Ég held að Bin Laden sé ábyrgur gerða sinna, en ekki bróðir hans og öfugt.“ En Osama bin Laden getur ekki aðeins rakið fjölskyldutengsl til Boston. Svo virðist sem stuðnings- menn hans hafi einnig hreiðrað um sig þar í borg. Meðal annars hefur rannsóknin beinst að leigubílafyr- irtæki þar sem tveir þekktir sam- starfsmenn Bins Ladens störfuðu. Annar þeirra, Palestínumaðurinn Raid M. Hijazi, var settur í fang- elsi í Jórdaníu fyrir að hafa lagt á ráðin um að sprengja upp hótel þar sem var fjöldi Bandaríkja- manna og Ísraela. Hinn hét Bass- am A. Kanj og lét lífið í árás á líb- anska herinn í Norður-Líbanon. Bent hefur verið á að Boston hafi ýmsa kosti, sem kunni að laða að hryðjuverkamenn. Borgin sé stór og auðvelt að felast. Hún sé ná- lægt landamærum Kanada og síð- an má ekki gleyma því að þar er stór flugvöllur þar sem stórar flugvélar taka á loft með mikið eldsneyti um borð. Sá um allar framkvæmdir ríkisins að tilskipun Faisals konungs Bin Laden fjölskyldan auðgaðist á kaupsýslu og í byggingariðnaði. Faðir hans kom frá Hetremout í Suður-Jemen og fluttist til Sádi- Arabíu. Hann náði sérstöku sam- bandi við Faisal konung Sádi-Ar- abíu og sakaði ekki að konung- urinn gaf út tilskipun um að allar framkvæmdir ríkisins skyldu vera á könnu fyrirtækis Bins Ladens. Osama Bin Laden er 17. og yngsti sonurinn í röð 52 barna og reynd- ist hann hvorki hafa áhuga á fjöl- skyldufyrirtækinu né fjölskyldu- auðnum. Þegar faðir hans dó árið 1968 erfði Bin Laden hins vegar 300 milljónir dollara að talið er. Í þættinum Frontline á Public Broadcasting Service í Bandaríkj- unum á fimmtudag var fjallað um Bin Laden og kom þar meðal ann- ars fram að á áttunda áratugnum hefði hann verið búinn að tapa átt- um og ekki vitað hvað hann ætti að taka sér fyrir hendur. Hann hafði ekki alltaf áhuga á trú og stjórnmálum og hefur komið fram að hann hafi iðulega farið með sádi-arabísku aðalsfólki til Beirút þar sem hann drakk ótæpilega á börum og lenti í áflogum. Hann nam verkfræði við háskólann í Jidda og útskrifaðist 1979, en ákvað síðan að fara til Afganist- ans, 22 ára gamall. Liðu þrjú eða fjögur ár þar til eftir honum var tekið þar. Hetja vígvallarins eða peningamaður Afganistan hafði á þessum tíma sérstakt aðdráttarafl fyrir mús- lima. Það var trúarleg skylda að heyja heilagt stríð gegn hinum guðlausa, sovéska innrásarher. Það var útilokað að heyja heilagt stríð annars staðar á þessum tíma, en í Afganistan var það hægt. Í þættinum var talað við Milt Beard- en, sem starfaði fyrir bandarísku leyniþjónustuna, CIA, á árunum 1964 til 1994. Bearden segir í þættinum að Bin Laden hafi gert ýmislegt gott í Afganistan og veitt peninga á rétta staði. Í augum Bandaríkjamanna þótti hvorki mikill fengur að honum, né var hann talinn sérlega andvígur Bandaríkjunum. Bearden segir að Bin Laden hafi ekki verið mikill bardagamaður og telur að hann hafi aðeins tekið þátt í einni orr- ustu vorið 1987. Skömmu áður en stríðinu lauk stofnaði hann sam- tökin Al Qaeda, sem átti að nota til að heyja baráttuna. Þegar sigur vannst á Sovétmönnum drógu Bin Laden og skoðanabræður hans þá ályktun að ekkert gæti stöðvað ísl- am. Snerist gegn Bandaríkjunum Í þættinum er einnig talað við Saad Al-Fagih, andófsmann í Sádi- Arabíu, sem segir að Bin Laden hafi þvert á móti tekið virkan þátt í bardögum. Hann heldur því fram að Bin Laden hafi þau tvö per- sónueinkenni, sem þurfi til að ná til fólks. Hann hafi persónutöfra og auðmýkt til að bera. Bin Laden fór aftur til Sádi- Arabíu 1989, féll þar í ónáð vegna þess að hann var andvígur veru bandarísks hers í landinu í Persa- flóastríðinu og var sviptur vega- bréfi er hann náðist við að smygla vopnum frá Jemen. Var þrýst á hann að fara úr landi og fór hann til Súdan. Hann hafði barist við hlið Bandaríkjamanna í Afganist- an, en þoldi ekki að þeim skyldi boðið til Sádi-Arabíu til að eiga við Íraka og Saddam Hussein og sner- ist gegn þeim. Brátt fór hann að Ökumaður í Boston notar þau tæki sem hann ræður yfir til að lýsa skoðun sinni á því hvernig hefna beri árásarinnar: "Gerum kjarnorkuárás". Börn halda fána Bandaríkjanna á lofti við minningarathöfn um fórnarlömb Penh, höfuðborg Kambódíu í gær. Athöfnin fór fram við búdda-musteri í bor sprengjuárásir á Kambódíu á síðari stigum Víetnam-stríðsins í valdatíð Ric Fjölskyldan afneitar Bin Laden Osama Bin Laden er af einni auðugustu fjölskyldu Sádi-Arabíu og í gær sté höfuð fjölskyldunnar fram og afneitaði honum. Osama Bin Laden er sterklega grunaður um að standa að baki hryðjuverkunum í Bandaríkjunum á þriðjudag, en bróðir hans situr hinum megin við borðið og leggur fé í rannsóknarstyrki við Harvard. Reuters Abdul Salam Zaeef, sendiherra Af- ganistan í Pakistan, á blaðamanna- fundi í Islamabad í gær. Reuters Ringulreið hefur verið ríkjandi á flugvöllum í Bandaríkjunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.