Morgunblaðið - 16.09.2001, Page 29

Morgunblaðið - 16.09.2001, Page 29
sem spilaði þá í Glaumbæ. Um vorið 1964 fór hljómsveitin út tilKaup- mannahafnar og spilaði á EXALON á Strikinu í tvo mánuði og var úti þá um veturinn. EXALON var kunnur skemmtistaður og vinsæll. Vinnan var nokkuð erfið, við spiluðum sex kvöld vikunnar, frá átta til tvö og það sjöunda til hálf fimm. Þegar ég kom svo heim um vorið 1965 fór ég að vinna í garðyrkju hjá Finni Árnasyni. Þar var Ólafur Gauk- ur aðalmaðurinn. Ég man að þegar ég sótti um vinnuna spurði garðyrkju- maðurinn: ,,Þekkirðu Ólaf Gauk?“,,Já, já, ég þekki Ólaf Gauk,“, svaraði ég. ,,Hann er nefnilega alveg stórkostlegur,“ sagði garðyrkjumað- urinn! Hann hefur svo gott auga fyrir að búa til blómabeð!“ Við vorum að- allega að setja niður blóm í skrúð- görðum og í görðum hjá fína fólkinu t.d. við Bergstaðastrætið. Ég man að meðal vinnufélaga í garðyrkjunni var ,,Bóbó á Holtinu“, ungur og glæsileg- ur maður sem varð síðar þjóðsagna- persóna og fyrirmyndin að Badda í sögum Einars Kárasonar.“ En ekki ætlaðir þú að gera garð- yrkjuna að ævistarfi. Varstu ekki kominn fljótlega aftur í hljómsveit? ,,Ég var um tíma með hljómsveit Finns Eydal í Glaumbæ. Síðan byrj- aði ég með Lúdó sexett og var í þeirri hljómsveit í tvö ár eða þar til ég fór að spila með hljómsveit Ólafs Gauks í veitingahúsinu Lídó við Skaftahlíðina árið 1967 eða 1968. Hann hafði verið með hljómsveit um tíma og það urðu mannabreytingar. Hann fékk til liðs við sig yngri menn, ég kom inn í hljómsveitina ásamt Rúnari Gunnars- syni og Páli Valgeirssyni. Hljómsveit- in var gífurlega vinsæl og það var mikil aðsókn á staðinn þann tíma sem hljómsveitin spilaði í Lídó. Hljóm- sveitin gerði nokkra sjónvarpsþætti sem hétu ,,Hér gala Gaukar“, og fengu mikið áhorf og voru mjög vin- sælir. Það var oft mikið stuð á mann- skapnum og þegar ég lít til baka þá var þetta kannski ekki mjög bjart tímabil. Ég held að ég hafi lifað of hátt á þessum tíma, það var mikil spenna og keyrsla og þetta tók sinn toll. Ég var með hljómsveit Ólafs Gauks til 1970. Það var ómetanleg reynsla að vinna með Ólafi Gauk, sem er mjög vel skipulagður tónlistarmaður. Ég spilaði með hinum og þessum hljóm- sveitum allann áttunda og níunda ára- tuginn eftir að ég hætti í hljómsveit Ólafs Gauks. Ég var t.d. með hljóm- sveit Ragnars Bjarnasonar á Hótel Sögu 1978-79 og einnig var ég með Sumargleðinni á þessum árum. Það var oft mikið fjör og góð stemmning á skemmtunum Sumar- gleðinnar. Sumargleðin kom fram í öllum helstu bæjum og þorpum lands- ins og stundum var fundið upp nafn á fólki þar sem við komum fram, sem við vorum þá að gera tiltölulega mein- laust grín að. Það var oft svo troðið á skemmtunum hjá Sumargleðinni að það var stundum verið að selja fólki stæði inn á snyrtingu með áheyrn. Miðinn hét ,,Stæði með áheyrn “ Ég man að ég lék eitt sinn óperu- söngkonu sem var fræg úti í heimi og hafði komið heim fyrir tilviljun að heilsa upp á vini og ættingja, það var á skemmtun á Hellu frekar en Hvols- velli! Í hlutverki óperusöngkonunnar sagði ég fyrir fullum sal áhorfenda: ,,Ja, það hefur enginn kunnað að kyssa almennilega hér í sveitinni, nema hann,“ og svo nefndi ég ein- hvern bónda í sveitinni, við getum hann kallað hann Jón Jónsson! Það var þarna kona í salnum sem fór að hágráta og var leidd grátandi úr saln- um! Ég hafði þá nefnt nafnið á mann- inum hennar og hann var nýlega far- inn frá henni og var alræmdur kvennaflagari!“ Í tónmenntakennaradeild Tónlistarskólans ,,Ég kynntist konu minni, Ólöfu Kristínu Magnúsdóttur, árið 1978 og þá áttaði ég mig á því að það var kom- inn tími til að fara að huga að framtíð- inni, lífinu og láta ekki lengur berast með straumnum. Það var engin fram- tíð í þessari spilamennsku með dans- hljómsveitum.“ Og fórstu þá aftur í tónlistarnám? ,,Já, og hóf nám í tónmenntakenn- aradeild Tónlistarskólans í Reykjavík hjá Jóni Nordal skólastjóra árið 1979 . Ég var í skólanum í fjögur ár og út- skrifaðist 1983 með tónmenntakenn- arapróf. Ég hef réttindi til að kenna tónlist í grunnskóla og framhalds- skóla. Ég kenndi í nokkur ár í Fella- skóla eftir að ég lauk prófi og hef und- anfarin ár kennt djasspíanóleik í Tónlistarskóla FÍH. Skólinn hafði starfað í eitt ár þegar ég byrjaði. Ég tók við af Karli heitnum Sighvatssyni og ég er enn við kennslu í skólanum, en aðalstarf mitt núna er að ég kenni á hljómborð í Tónlistarskóla Hafnar- fjarðar. Ég hef kennt þar undanfarin sautján ár og er aðallega að kenna ungu fólki á hljómborð og einnig á píanó. Það er erfitt fyrir mig að lifa ein- göngu á launum tónlistarskólakenn- ara og ég hef því tekið að mér ýmiss konar verkefni. Ég hef verið að spila í prívatveislum, við brúðkaup, afmæl- isveislur, í þorrablótum og við ýmis tækifæri. Ég hef verið að spila með hinum og þessum djassböndum og hef spilað undanfarin tvö til þrjú ár með danshljómsveitinni Furstunum, en hljómsveitina skipa auk mín Árni Scheving, Guðmundur Steingríms- son, Jón Páll Bjarnason, og Þorleifur Gíslason. Hljómsveitin ásamt stór- söngvaranum Geir Ólafssyni hefur verið að taka upp plötu nú í sumar .“ Tónsmíðar og útsetningar Útgáfufyrirtækið Smekkleysa gaf út disk fyrr á þessu ári með tónlist eftir þig. Hvað ertu helst að fást við núna? Er nýr diskur væntanlegur? ,,Diskurinn Októberlauf kom út í vor á vegum Smekkleysu og á diskn- um er tónlist sem ég samdi við ljóð ýmissa skálda. Ég er búinn að klára annan disk með útsetningum á ís- lenskum þjóðlögum sem kemur út núna í haust. Ég hef svolítið verið að vinna við tónsmíðar og þá aðallega við ljóð skálda. Ég samdi t.d. tónlist árið 1996 við sálm sem forsætisráðherra, Davíð Oddsson samdi, Hin fyrstu jól. Upphafið að þessum tónsmíðum má rekja til árins 1970. Þá byrjaði ég að vinna að tónlist við ljóð Þorsteins frá Hamri og Steinunnar Sigurðardóttur, við gerðum sjónvarpsþátt.“ Og þú hélst síðan áfram að vinna með skáldunum. Samdir tónlist við ljóðaupplestur skáldanna t.d. í Nor- ræna húsinu og víðar. ,,Já, og sú tónlist var öll frumsamin og fleiri skáld komu í hópinn og þetta hélt áfram næstu árin. Ég samdi líka fyrir strengjakvartett sem ég kom fram með á Háskólatónleikum. Í mars á þessu ári samdi ég tónlist við bók Jóhanns Hjálmarssonar, Hljóð- leikar, sem flutt var á ljóðadagskrá. Því miður hefur þessi viðleitni ekki mætt miklum skilningi. Ég sótti fyrir ári síðan um styrk, starfslaun úr starfslaunasjóði til þriggja mánaða, en fékk synjun. Það voru nokkur einkafyrirtæki, t.d. Sjóvá-Almennar, sem styrktu okkur við gerð disksins, Októberlauf. Ég er í ýmiss konar verkefnum. Núna er ég að undirbúa dagskrá þar sem ég spila með Skálholtskórnum og kórinn kemur til með að flytja ásamt einsöngvurum síðar í sumar og verð- ur líklega búið að flytja þegar þetta viðtal birtist. Það er trúarleg tónlist. Þá er þriðji diskurinn í undirbúningi þar sem ég spila frumsamda tónlist. Ég hef haft mikla ánægju af að starfa að verkefnum hjá leikhúsun- um. Það var mér mikill heiður þegar Guðrún Ásmundsdóttir fékk mig á sínum tíma til að sjá um músíkina í revíunni Spanskflugunni í Borgar- leikhúsinu. Þá spiluðum við þrír, ég, Árni Scheving og Guðmundur Stein- grímsson og fengum að vera svolítið inni á sviðinu og taka þátt í leikritinu. Þá var ég einnig með í annarri sýn- ingu árið 1997 í Kaffileikhúsinu sem hét Revían í den – gullkorn úr gömlu revíunum, í leikstjórn Guðrúnar Ás- mundsdóttur.“ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 29

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.