Morgunblaðið - 16.09.2001, Side 35
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 35
www.yogastudio.is
Auðbrekku 14, Kópavogi,
sími 544 5560 og 864 1445
Yoga Studio – Halur og sprund ehf., Umboðsaðili fyrir Custom
Craftworks nuddbekki og
Oshadhi ilmkjarnaolíur o.fl.
Þjálfunin er alls 6 helgar (auk mætingar í jógatíma):
5.-7. október, 9.-11. nóvember, 18.-20. janúar, 15.-17. febrúar, 12.-14. apríl og 3.-5. maí.
Kennt er föstud. kl. 20-22, laugardaga og sunnudaga kl. 9-15.
Vilt þú verða jógakennari?
Yoga Studio mun fara af stað með jógakennaraþjálfun í október nk. Kennari verður Ásmund-
ur Gunnlaugsson, eigandi Yoga Studio, þekktur fyrir námskeiðið „jóga gegn kvíða“. Þjálfunin
er haldin í níunda sinn og er fyllilega sambærileg við það besta sem í boði er erlendis. Þetta
er tækifæri til að nema af kennara með mikla reynslu og þekkingu á íslenskum starfsvettvangi. Þjálfunin er ekki
aðeins fyrir þá sem vilja gerast jógakennarar heldur einnig öflugt sjálfsþekkingar- og þroskanámskeið. Hún
hentar t.d. öllum sem eru í einhvers konar vinnu með einstaklinga eða hópa og/eða vilja gera breytingar á lífs-
háttum sínum. Ekki er krafist mikillar reynslu og ástundunar af jóga, mikilvægast er áhugi og jákvætt hugarfar.
Einhver grundvallarþekking á jóga er þó æskileg.
Kynningarfundur verður laugardaginn 22. september kl. 17—18.
Lokafrestur til að staðfesta þátttöku og ganga frá greiðslu er fimmtudagurinn 27. september.
Grunnnámskeið með Önnu Hermannsdóttur
hefst 18. september — Þri. og fim. kl. 19.00. Örfá pláss laus.
Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu spor í jóga. Anna mun leggja áherslu á jógastöður
(asana) og öndunaræfingar sem hjálpa að losa um spennu auk slökunar. Hentar fólki á
öllum aldri, reynsla af jóga ekki nauðsynleg.
Jóga gegn kvíða með Ásmundi Gunnlaugssyni
hefst 18. september — Þri. og fim. kl. 20.00. Örfá pláss laus.
Kvöldtímar hefjast 1. október og verða á mánud. og miðvikud. kl. 20-20.50.
Anna
Ásmundur
Safnaðarstarf í
Fella- og Hólakirkju
Vetrarstarf Fella-og Hólakirkju
er að fara í gang þessa dagana. Auk
öflugs barna- og æskulýðsstarfs er
boðið upp á margs konar safnaðar-
starf fyrir fullorðna. Þar ber fyrst
að nefna almennar guðsþjónustur
og messur hvern sunnudag kl. 11:00
í umsjón sóknarpresta safnaðanna
sr. Hreins Hjartarsonar og sr. Guð-
mundar Karls Ágústssonar. Organ-
isti kirkjunnar, Lenka Mátéová, sér
um tónlistarflutning og stjórnar kór
kirkjunnar. Einu sinni í mánuði, að
jafnaði, er altarisganga. Á sama
tíma á sunnudögum er barnaguðs-
þjónusta í safnaðarheimilinu í um-
sjón Elínar Elísabetar Jóhannsdótt-
ur.
Heimsóknarþjónusta Fella- og
Hólakirkja býður upp á kirkjulega
heimsóknarþjónustu þar sem mark-
miðið er að veita sálgæslu og við-
halda tengslum milli sóknarbarns og
kirjunnar. Djákni Fella- og Hóla-
brekkusafnaða, Lilja G. Hallgríms-
dóttir, tekur að sér að heimsækja
fólk í sóknunum sem ekki á heim-
angengt, t.d. vegna sjúkdóma, fötl-
unar eða af öðrum ástæðum. Hafi
sóknarbarn áhuga á því að djákni
heimsæki sig eða sína eða koma
sjálft á fund djákna þá hafi viðkom-
andi samband í s. 557. 3280.
Fjölskyldustundir á mánudög-
um. Á hverjum mánudegi milli kl. 10
og 12 yfir vetrarmánuðina hittast
aðstandendur barna undir grunn-
skólaaldri í safnaðarheimilinu og
oftast eru börnin með. Stundin hefst
með léttum hreyfingum og henni
lýkur með bæn. Boðið er upp á heita
og kalda drykki. Einu sinni í mánuði
er fyrirlestur eða fræðsla um ýmis
mál. Mæður, feður, afar og ömmur,
eða þeir sem heima eru og gæta
barnanna, eru velkomin í fjölskyldu-
stundirnar til að eiga notalega stund
saman. Umsjón með fjölskyldu-
stundunum hefur Lilja, djákni.
Kyrrðar-og bænastundir í há-
deginu á þriðjudögum. Klukkan 12
á hádegi er kirkjan opnuð og Lenka
Mátéová byrjar að leika á orgelið.
Kl. 12:10 hefst bæna- og kyrrðar-
stund í umsjón djákna. Þriðja
þriðjudag í mánuði er altarisganga í
umsjón sóknarprestanna. Bænaefn-
um má koma til djákna og presta.
Eftir stundina er boðið upp á léttan
hádegisverð í safnaðarheimilinu
gegn vægu gjaldi. Þeim sem ekki
komast að öðrum kosti til og frá
kirkju er boðið upp á ókeypis akstur
og eru þeir sem það þiggja beðnir að
hafa samband í s. 557 3280 eigi síðar
en kl. 10 á þriðjudögum.
Helgistund í Gerðubergi á
fimmtudögum. Í samvinnu við fé-
lagsþjónustuna í Gerðubergi býður
Fella-og Hólakirkja upp á helgi-
stundir í Gerðubergi hvern fimmtu-
dag kl. 10:30 í umsjón Lilju djákna.
Sungnir eru sálmar, farið með bæn-
ir og lesnir ritningarlestrar og guð-
spjall næsta sunnudags. Textarnir
eru ræddir og við reynum að finna
þeim stað í lífi okkar og samtíð. Boð-
ið er upp á kaffi eftir stundina þar
sem þátttakendur skiptast á að
koma með meðlæti.
Fella- og Hólakirkja
Safnaðarstarf
Vídalínskirkju
Um þessar mundir er allt vetr-
arstarf Garðasóknar að hefjast.
Kirkjutíðindunum hefur verið dreift
inn á hvert heimili í sókninni, en þar
er að finna helstu upplýsingar um
helgihald, námskeið, barnastarf og
fleira auk upplýsinga um símanúm-
er og viðtalstíma. Geymið tíðindin.
Helgihald. Sunnudagaskólinn
hefur sína starfsemi með fjölskyldu-
guðsþjónustu í Vídalínskirkju núna
á sunnudaginn. Þá verður efni vetr-
arins dreift, en við erum svo heppin
að hafa áfram sömu frábæru leiðtog-
ana bæði í barnastarfinu og æsku-
lýðsfélagi kirkjunnar. Fjölskyldu-
nefnd kirkjunnar býður upp á
pylsur í safnaðarheimilinu að lokinni
guðsþjónustu. Fjölskylduguðsþjón-
ustur eru mánaðarlega í Vídalíns-
kirkju og eru sunnudagaskólabörn-
in þá þátttakendur allan tímann, en
annars taka þau aðeins þátt í upp-
hafi guðsþjónustunnar og fara síðan
í hliðarsali með leiðtogum sínum
sem skipta börnunum í yngri og
eldri hóp. Í Garðakirku er að jafnaði
guðsþjónusta mánaðarlega. Sunnu-
daginn 23. september verður mess-
að þar kl. 14.00. Sú breyting verður
á bæna- og kyrrðarstundunum sem
verið hafa á fimmtudagskvöldum kl.
22.00 að þær færast fram til kl.
21.00. Vonandi verður það til að
koma til móts við þarfir enn fleiri
sóknarbarna en verið hefur, en
þessar stundir hafa notið traustrar
aðsóknar og aldrei fallið niður.
Fermingar- og æskulýðsstarf.
Fjölbreytt kristilegt starf fyrir 9 til
12 ára drengi hefst mánudaginn 24.
september í safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli og daginn eftir fyrir
stúlkur á sama aldri. Þetta starf er í
umsjá KFUM og K og hefst kl. 17.30
báða dagana. Krakkar á þessum
aldri eru hvattir til að mæta. Fyrsti
fundur æskulýðsfélagsins verður
síðan þriðjudaginn 2. október kl.
19.30 með sömu leiðtogum og áður.
Fermingarstarfið hefst með sólar-
hringsnámskeiði í Vatnaskógi síð-
ustu vikuna í september. Spurning-
ar byrja í beinu framhaldi, en
innritun til fermingarfræðslunnar
hefur farið fram. Ef innritun hefur
farið framhjá einhverjum er sá hinn
sami beðinn að snúa sér til skrif-
stofu sóknarinnar.
Námskeið og Opið hús. Í vetur
verður boðið upp á ýmiskonar nám-
skeið á vegum kirkjunnar. Þar er að
finna námskeið fyrir hjónafólk og
verðandi brúðhjón, Alfanámskeið og
úrvinnsluhóp um sorg og sorgarvið-
brögð. Þá verður boðið upp á um-
ræðu- og leshóp á fimmtudögum kl.
20.00 – 21.00. Vaxandi áhugi er á
trúmálum og kirkjulífi og því ættu
margir að geta fundið áhuga sínum
farveg þar. Eins og verið hefur verð-
ur opið hús í safnaðarheimilinu fyrir
eldri borgara á þriðjudögum frá
13.30 – 16.00 á vegum Félagsstarfs
eldri borgara í Garðabæ. Því starfi
lýkur hverju sinni með helgistund í
kirkjunni kl. 16.00. Fyrsta helgi-
stund haustsins verður næsta
þriðjudag. Fjölmargar nefndir
starfa nú að eflingu safnaðarstarfs-
ins í Garðasókn og er spennandi að
fylgjast með því hvað út úr vinnu
þeirra kemur, en segja má að fjöl-
skyldunefndin ríði á vaðið með því
að bjóða í pylsur eftir fjölskyldu-
guðsþjónustuna. Á miðvikudögum
kl. 10.00–12.00 er opið hús fyrir for-
eldra ungra barna, svokallaðir
mömmumorgnar. Vinsældir þeirra
fara vaxandi, en allir foreldrar eru
velkomnir með eða án barna sinna.
Kórstarf. Söngæfingar kirkju-
kórsins eru á miðvikudögum kl.
20.00. Organistinn býður nýtt söng-
fólk velkomið til starfa, en kórnum
er skipt niður í hópa til að sinna
helgihaldinu. Fjölbreytt verkefna-
skrá liggur til grundvallar vetrar-
starfinu eins og verið hefur. Kirkju-
starfinu í heild sinni má sem best
líkja við símenntun. Mikill menning-
arauki er að þessu starfi, en þar er
stöðugt verið að kynna nýtt og nýtt
efni, kenna nýja söngva og opna ný
sjónarhorn á líf safnaðarins, lífið á
göngunni með Guði.
Safnaðarstarf
Fella- og Hólakirkja. Fjölskyldu-
morgnar mánudag kl. 10–12 í um-
sjón Lilju djákna.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl.
20. Tekið er við bænarefnum alla
virka daga frá kl. 09:00–17:00 í síma
587-9070. Mánudagur. KFUK fyrir
stúlkur 9–12 ára, kl. 17:30–18:30.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
mánudag kl. 6.45–7.05. 12 spora
fundur mánudag kl. 20. Kynningar-
fundur. Stjórnun í umsjá Margrétar
Scheving, sálgæsluþjóns.
Neskirkja. 6 ára starf mánudag kl.
14. Upphaf starfsins. Öll börn í 1.
bekk velkomin. Skráning í síma 511-
1560. Foreldramorgunn miðvikudag
kl. 10–12. Upphaf vetrarstarfsins.
Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg
Lárusdóttir.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Mánu-
dagskvöld kl. 20–22 eldri félagar.
Krossinn. Almenn samkoma að
Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir vel-
komnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía.
Brauðsbrotning kl. 11:00. Ræðu-
maður Mike Fitzgerald. Almenn
samkoma kl. 16:30, lofgjörðarhópur
Fíladelfíu syngur. Ræðumaður
Vörður L. Traustason.
Vegurinn. Fjölskyldusamkoma kl.
11. Léttur hádegisverður á eftir.
Bænastund kl. 19.30. Samkoma kl.
20. Högni Valsson prédikar. Lof-
gjörð og fyrirbænir. Allir hjartan-
lega velkomnir. Kynningarkvöld
Alfa námskeiðsins nk. miðvikudag
12. sept. kl. 10. Fjölskyldubæna-
stund fimmtudag 13. sept. Matur og
fræðsla á eftir.
Frelsið, kristileg miðstöð. Almenn
fjölskyldusamkoma sunnudaga kl.
17.
Með haustinu færist meira líf í
kirkjuna okkar, margvíslegir þætt-
ir starfsins vakna á ný eftir hæglátt
sumar og taktur starfsins breytist.
Í vetur verða barnamessur kl. 11.00
og almennar guðsþjónustur kl.
14.00.
Kirkjan er sameiningartákn
hverfisins og er opin öllum íbúum
og eru sóknarbörnin hvött til þess
að taka þátt í starfi hennar.
Hér á eftir er minnt á nokkra
þætti í starfi Bústaðakirkju.
Í barnamessum annast organisti
ásamt hópi ungra hljóðfæraleikara
allan tónlistarflutning og söfnuður-
inn syngur. Léttir söngvar eru fyr-
ir börnin, biblíusögur, bænir, um-
ræður og leikir. Leiðtogar í
starfinu verða Helena Marta Stef-
ánsdóttir, Ásrún Atladóttir og Bára
Elíasdóttir, ásamt sóknarpresti.
Almennar guðsþjónustur eru
hvern helgan dag kl. 14:00. Kirkju-
kór Bústaðakirku og organisti ann-
ast tónlistarflutning ásamt ein-
söngvurum. Guðsþjónustan er
þungamiðja safnaðaris, en þar má
einnig finna þá þögn og kyrrð, sem
þarf til að heyra, hugsa og biðja.
Foreldramorgnar eru samverur
foreldra og barna alla fimmtudags-
morgna milli kl.10:00 og 12:00.
Skipst á skoðunum og foreldrum er
boðið upp á te og kaffispjall ásamt
margskonar fræðslu á meðan börn-
in dunda sér. Fyrsta samveran
verður fimmtudaginn 20. sept-
ember.
TTT, æskulýðsstarf fyrir tíu til
tólf ára, er vaxtarbroddurinn í
kirkjulegu starfi. Undir stjórn leið-
toga vinna börnin að margskonar
verkefnum og m.a. verður farið í
kynnisferðir og börnunum kynntar
ólíkar aðstæður fólks í lífinu.
Æskulýðsstarf verður meira
tengt kórastarfinu en áður, og unn-
ið verður að sérstökum verkefnum.
Markmiðið er að efla jákvæða og
heilbrigða unglingamenningu þar
sem boðskapur Jesú Krists er tek-
inn með í daglegum aðstæðum lífs-
ins.
Starf aldraðra. Á hverjum mið-
vikudegi koma aldraðir saman í
safnaðarheimili kirkjunnar. Þar
bíður þeirra hópur kvenna, sem
kallaður hefur verið Kærleikshóp-
urinn, en þær aðstoða við hann-
yrðir, veitingar og félagslíf. Sigrún
Sturludóttir í forsvari fyrir kær-
leikshópinn. Í hverri samveru er
helgistund og þar sem ýmist gestir
flytja sinn boðskap í máli, myndum
og tónlist. Sú nýjung verður í vetur
að nokkrar samverur munu hefjast
kl. 11.00. Þá verður helgistund í
kirkjunni og síðan sameiginleg
máltíð í hádeginu áður en venju-
bundið starf hefst kl. 13.00. Fyrsta
samvera í starfi aldraðra er mið-
vikudaginn 26. september, þá verð-
ur farið í haustlitaferð og sem fyrr
er ákvörðunarstaður ókunnur þar
til lagt verður af stað kl. 13:00 frá
kirkjunni. Á leiðinni verður áð og
notið góðra veitinga. Skráning í
ferðina er hjá kirkjuvörðum í síma
553-8500 alla daga til þriðjudagsins
25. september.
Kvenfélag Bústaðasóknar hefur
unnið kirkjunni betur og meir en
flestir aðrir. Fundir félagsins eru
annan mánudag í hverjum mánuði
og fyrsti fundur 8. október. Dag-
skrá fundanna er fjölbreytt og
metnaðarfull.
Félagskonur taka virkan þátt í
safnaðarstarfi kirkjunnar og er það
einn af grundvallarþáttum í starfi
þeirra. Formaður félagsins er
Kristín Eiríksdóttir.
Kammerkór, stúlknakór, barna-
kór og Englakór starfa í Bústaða-
kirkju í vetur. Kórarnir syngja í
messum einu sinni í mánuði auk
þess að taka þátt í öðrum þáttum
kirkjustarfsins. Á síðasta ári voru
yfir 100 syngjandi börn við kirkj-
una og var starfið mjög líflegt.
Stúlkna- og Kammerkórinn fóru í
söngferð til Ítalíu og Engla-,
Barna- og Bjöllukórinn sungu og
spiluðu á Akranesi. Starfað verður í
5 hópum í vetur. Englakórinn æfir
á mánudögum kl. 16.00 og er fyrir
5–6 ára börn sem hafa ekki sungið
áður í kirkjunni. Barnakórinn æfir
kl. 17.00 á mánudögum og er fyrir
6–9 ára börn. Stúlknakórinn æfir á
þriðjudögum og fimmtudögum kl.
16.00 og er fyrir 10- 12 ára stúlkur
og Kammerkór æfir á þriðjudögum
og fimmtudögum kl. 17.00 og er
fyrir 13–17 ára stúlkur. Fram-
undan er fjölbreytt vetrardagskrá.
Stjórnandi þessara kóra er Jó-
hanna V. Þórhallsdóttir og undir-
leikari er Pálmi J. Sigurhjartarson.
Bjöllukór hefur verið starfandi í
Bústaðakirkju um árabil og hefur
hann haldið tónleika víða um land.
Nú hefur fjórði aldurshópurinn
tekið við af hinum eldri, en stjórn-
andi er Jóhanna V. Þórhallsdóttir.
Kirkjukór Bústaðakirkju syng-
ur við guðsþjónustur og kirkju-
legar athafnir og æfir á þriðjudags-
kvöldum kl. 20:00. Í vetur munu
fleiri en einn organisti koma að
starfinu, því organisti kirkjunnar
er að ljúka námi, svo sem Sigrún
Steingrímsdóttir, Helgi Bragason
ásamt fleiri hjálparhellum úr stétt
organista. Formaður kórsins er
Jón Helgason. Þeir sem hafa huga
á þátttöku í kórnum eru beðnir að
snúa sér til organista kirkjunnar og
formanns kórsins.
Fermingarstarfið er nú að hefj-
ast og stendur skráning ferming-
arbarna yfir í kirkjunni. Börn úr
Réttarholtsskóla hafa þegar verið
skráð en önnur börn eru beðin að
skrá sig í kirkjunni.
Hjónakvöld eru haldin í kirkj-
unni og þar er starfandi hjónahóp-
ur, sem kemur saman nokkrum
sinnum á vetri. Hægt er að skrá sig
hjá kirkjuvörðum. Fyrsta samvera
vetrarins verður fimmtudaginn 11.
október kl. 20:00.
Fræðslukvöld verða í kirkjunni í
vetur. Gestafyrirlesarar halda ýmis
erindi, svo sem um unglinga og eit-
urlyf. Næsta samvera er í sam-
vinnu við Íþróttafélagið Víking og
verður fimmtudaginn 22. nóvember
kl. 20.00 í safnaðarheimili kirkj-
unnar.
Það er von sóknarnefndar og
sóknarprests að sóknarbörn standi
saman að öflugu starfi í Bústaða-
kirkju og efli þannig betra mannlíf
undir kjörorðinu Betra líf í Bú-
staðahverfi.
Pálmi Matthíasson
Bústaðakirkja.
Vetrarstarf í
Bústaðakirkju