Morgunblaðið - 16.09.2001, Page 41

Morgunblaðið - 16.09.2001, Page 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 41 Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Ólafur Ö. Pétursson, útfararstjóri, s. 896 6544 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. S. 551 7080 Vönduð og persónuleg þjónusta. Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Blómaskreytingar við öll tilefni Opið til kl. 19 öll kvöld LEGSTEINAR Komið og skoðið í sýningarsal okkar eða fáið sendan myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík sími: 587 1960, fax: 587 1986 Matthías Gilsson lærði kjötiðnað fyrst hjá KRON, en lauk því hjá Goða og tók próf í greininni þar með miklum ágætum. Þegar Matti byrjaði námið komu fljótt í ljós góðir hæfileikar hans og smekkur. Sonur minn heitinn, Ósk- ar, hafði miklar mætur á Matta, hann var sérlega mikið fyrir dýr, en Matti átti allnokkra hesta, og Óskar var tíður gestur í hesthúsinu. Matti tók hann stundum með sér í smáút- reiðartúra. Hann var sérstakur og rausnarlegur eftir því, hann gaf Óskari einn hesta sinna, sem gladdi Óskar mikið, og varð til þess að hann eignaðist fleiri hesta. Þeir fóru oft smáútreiðarúra yfir læki og sprænur burt úr bílaskarkala borg- arinnar út í guðsgræna náttúruna í sólskini við fuglasöng. Matti átti ágæta æsku og glaðlegt umhverfi í nýbyggðu Smáíbúðahverfi og þar var mikið af sérlega hressum krökk- um sem héldu vel saman alla tíð. Þarna var íþróttafélag og Matti þótti ómissandi þar. Þar var líka skátafélag sem kallaði sig Herkú- lesa. Matti var líka í því. Þeir fóru í ferðalög og útilegur. Þetta voru ungir og frískir menn sem áttu eftir að halda vinskap alla ævi. Matthías var myndarlegur ungur maður og stórskemmtilegur þegar hann vildi það við hafa, og sá vel hinar skop- legu hliðar tilverunnar og fé- lagslyndur var hann með afbrigð- um. Matti fékk snemma áhuga á bíl- um. Þetta voru ekki venjulegir bílar, heldur eðalkerrur af stærstu gerð og flottir drekar, með flottar græjur sem heyrðist vel í. Það vakti athygli allra þegar Matti kom á lúxuskerr- unum í vinnuna. Við starfsmenn MATTHÍAS G. GILSSON ✝ Matthías G. Gils-son kjötiðnaðar- maður fæddist í Reykjavík 21. sept- ember 1949. Hann lést á Landspítalan- um í Fossvogi 2. apríl síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskapellu 11. apríl. höfðum gaman af þeg- ar hann lagði bílum sínum nærri bílum yf- irmanna sinna hjá SÍS, sem skiptu litum þegar þeir gerðu samanburð á sínum SISSUM og eðalkerru starfs- mannsins. Matthías var mjög góður fag- maður, og sérlega góð- ur reykmeistari, en það varð að hafa klár- an starfsmann í þessu vandasama og fjöl- breytilega starfi. Það kom að því að Matti tók sitt próf sem hann gerði með ágætum. Það mætti til gamans geta þess að í Goðanum voru notaðir sjálfvirkir linkerar, vélar sem sneru upp á pylsur. Það voru einu vél- arnar af þessu tagi hérlendis. Það höfðu engir varahlutir verið fengnir með þeim, það var eins og svo margt annað á þessum sérkennilega stað, en Matti gat látið þær ganga hvernig svo sem hann fór að því. Þá kom að því að tveir franskir sér- fræðingar áttu að koma og kippa þessu í lag. Þeir gátu ekki með nokkru móti ræst linkerana. Var þá Matti sóttur og ræsti hann vélarnar og vakti undrun fyrir meðal Frakk- anna. Tók þá svo á eftir á námskeið í biluðum vélum. Matthías var mjö vinsæll meðal starfsmanna hjá Goða eins og reyndar annars staðar þar sem hann vann. Matthías kvæntist yndislegri stúlku sem vann þarna, Kolbrúnu Hilmarsdóttur Roe. Þau eignuðust tvö börn. Matti missti dóttur sína sviplega, sem fékk mjög mikið á hann. Þegar Matthías hætti í Goð- anum vann hann nokkur ár hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, og kom svo aftur til Reykjavíkur og vann hjá nokkrum kjötbúðum við góðan orðstír og vinsældir viðskiptavina. Matti var frábær kokkur og mat- reiðslumaður og var húsmæðrum vel innanhandar um matreiðslu. Síð- an gerðist Matti kokkur á varðskip- unum og tók þátt í æfingum þeirra. Hann stökk meira að segja í fallhlíf. Þá tók hann börnin sín með sér á sjóinn til mikillar ánægju fyrir þau í styttri ferðir. Seinna fór Matti á millilandaskip og sigldi um heims- höfin, m.a. til Afríku og þar um kring. Matthías átti í nokkrum erfiðleik- um með líf sitt um tíma, bakkus og hyski hans sá hann ekki í friði. Hann gerði ýmislegt í þessum vanda sínum með góðum árangri, og tókst loks að reka þetta af höndum sér áður en yfir lauk. Ég verð að geta þess að Matthías vann um nokkurra ára skeið hjá Kjarnafæði á Akureyri við góðan orðstír. Matthías var harðduglegur fag- maður, snjall og frumlegur og leysti margan vandann í faginu, sumt af því er notað um land allt í dag. Matthías lést langt um aldur fram. Hann hafði undirgengist hjartaaðgerð fyrir allnokkru. Ég vissi ekki af þessu en Matti bar ekki veikindi sín á torg. Kona mín og ég áttum von á heimsókn hans um þá helgina, og vorum að undrast að hann kæmi ekki, einmitt þann sama dag og kallið kom. Ég kveð góðan vin með söknuði og bið honum blessunar um leið og ég þakka honum tryggð við mig og mína, alla hjálpsemi hans sem hann sýndi okkur alla tíð. Lífið er oft skrítið og nær óskiljanlegt þegar dauðinn velur sér vini manns og vandamenn á ólíklegustu stundum. Nú er jarðlífi Matta lokið. Hann var lagður til hvílu í Kotstrandar- kirkjugarði við Hveragerði við hlið dóttur sinnar Hörpu. Presturinn sem jarðsöng Matthías var sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson, fyrr- verandi leikfélagi, skáta- og íþrótta- félagi Matthíasar. Matthías er nú örugglega í faðmi fjölskyldu sinnar í himnadýrð þar sem sannkristnir búa. Ég vil láta fylgja Matthíasi hinn fallega sálm og bæn Í bljúgri bæn, sem mér fannst eiga vel við hann: Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð leiddu mig og lýstu mér um ævistig. Ég reika oft á rangri leið, sú rétta virðist aldrei greið. Ég geri margt, sem miður fer, og man svo sjaldan eftir þér. Sú ein er bæn í brjósti mér, ég betur kunni þjóna þér, því veit mér feta veginn þinn, að verðir þú æ Drottinn minn. (Pétur Þórarinsson.) Marius Blomsterberg. Mínar fyrstu minn- ingar um Vigfús Ebe- nensersson móður- bróður minn, eða Fúsa eins og hann var oftast kallaður, eru þar sem hann situr í eldhúsinu í Tungu og reykir pípu. Hann er ekki margmáll og áður en hann tekur til máls sýgur hann örlítið upp í nefið. Yfir honum hvílir einhver sérstök ró og það sem hann hefur til málanna að leggja er ekki neitt innantómt hjal eða óþarfa orðagjálfur. Þessi mynd hefur ekki mikið breyst við nánari kynni, það fylgdi honum alltaf þessi heimspekilega ró sem gerði það að verkum að það var notalegt að vera návistum við hann. Og þó hann ætti engin börn sjálfur þá eru þau ófá sumardval- arbörnin í Tungu sem nutu sam- vista við hann og ég efast ekki um að þau samskipti hafi haft jákvæð áhrif á þau. VIGFÚS EBENESERSSON ✝ Vigfús Ebenes-ersson fæddist í Tungu í Valþjófsdal í Önundarfirði 2. des- ember 1920. Hann lést á Landspítalan- um 8. ágúst síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Kópavogs- kirkju 17. ágúst. Fyrstu árin eftir að Fúsi og Billa brugðu búi í Tungu og fluttust í Kópavoginn mátti iðulega sjá Fúsa á gangi um nágrennið. Eftir því sem heilsunni hrakaði urðu göngu- ferðirnar styttri og strjálli. Róin og yfir- vegunin voru þó ætíð á sínum stað. Hann öfundaðist ekki út í velgengni annarra og alltaf hafði hann það ágætt þó svo á hann herjaði illvígur sjúkdómur. Síðustu vikurnar sagð- ist hann að vísu vera orðinn ansi lé- legur. Þar átti hann ekki við eigin líðan heldur starfsorku. Þó skólaganga Fúsa væri ekki löng var hann víðlesnari en margir okkar sem hafa langa skólagöngu að baki. Hann var einn þeirra sem bar uppi merki Íslendinga sem bókaþjóðar og mér er mjög til efs að við sem fyllum komandi kyn- slóðir náum að standa undir þeim merkjum. Þó svo ég þykist þess fullviss að Fúsi sé hvíldinni feginn, þá vildi ég svo gjarnan hafa hann lengur á meðal okkar. Eitt er víst að skötu- veislan á Þorláksmessu verður ekki sú sama án hans. Eiríkur Jensson. Elsku afi minn er horfinn frá okkur án þess að ég fengi að kveðja hann. En allt hefur víst sinn tilgang. Ein af mínum fyrstu minningum eru frá ömmu og afa á Hornafirði. Í hvert skipti sem ég kom í heimsókn átti afi alltaf til Smarties handa mér sem mér þótti svo gott. Það sem okkur vinkon- unum þótti samt merkilegast var dolla sem hann geymdi niðri í skúffu, fulla af smápeningum. Það þótti okkur sko flott. Ósjaldan gaf BJÖRN KARL GÍSLASON ✝ Björn Karl Gísla-son fæddist á Grímsstöðum á Höfn í Hornafirði 8. febr- úar 1925. Hann lést á heimili sínu á Höfn 28. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hafnar- kirkju 5. september. hann okkur örlítinn aur til að skjótast út í kaupfélag að kaupa smá gotterí eða eitt- hvert dót sem við höfð- um augastað á. Það er allt svo ein- falt þegar maður er lít- ill og nógur tími til alls. Eftir því sem ég varð eldri fækkaði heim- sóknunum á Höfn og afi var nú ekki allt of hrifinn af því að ferðast mikið til Reykjavíkur. Ég var ekki alltaf sátt við allt sem hann sagði eða gerði, en ég vissi og veit að honum þótti mikið til mín koma og vona að hann hafi vitað að mér þótt líka af- skaplega vænt um hann. Elsku afi, hvíldu í friði. Bið að heilsa Kristínu frænku og Gísla afa. Þín, Ýrr. Nú er hann elsku afi dáinn og farinn á lang- þráðan fund við Ömmu og Lalla. Afi var fæddur í torfbæ við upphaf síð- ustu aldar og hefur lifað ótrúlega tíma. Hver getur nú ímyndað sér hvernig lífið var á þessum árum? En þótt lífsbaráttan hafi oft verið erfið hefur afi alltaf fundið tíma til þess að gefa af sér fyrir aðra. Hann hafði yfir að búa mætti bænarinnar og gat með henni hjálpað fólki sem til hans leit- aði. En þó saga hans sé merkileg hef- ur hann lítið um hana rætt. Þetta held ég að lýsi honum best, hann tók öllu sem sjálfsögðum hlut og því var gott til hans að leita. En þegar rætt er um afa verður að GUÐMUNDUR LÁRUSSON ✝ Guðmundur Lár-usson fæddist á Skarði í Skarðs- hreppi í Skagafirði 23. apríl 1903. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 17. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Áskirkju 27. júlí. ræða um ömmu í sama orði því eins og segir í hjúskaparsáttmálan- um, þau voru eitt. Það var gott að fá að koma á Snorrabrautina til afa, ömmu, Lalla og Kidda. Amma var alltaf með kökur tilbúnar og þar sem afi vann í Ölgerð- inni lengur en elstu menn muna fengum við alltaf Spur Cola eða Appelsín. Líklega eiga margir enn í dag öl- kassa úr timbri smíðað- an af afa. Elsku afi. Ég veit að þú ert kom- inn á fallegan stað til ömmu, Lalla og Fríðu Rósar, en við eigum eftir að sakna þín sárt því þú varst einn besti drengur sem þetta land hefur alið. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Hávamál) Guðmundur. ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minn- ingargreina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.