Morgunblaðið - 16.09.2001, Page 57
„ÞAÐ var hann Gunni Þórðar, Gunni
í Trúbrot sem hafði samband við
mig,“ segir Helgi brosandi og segir
frá aðdraganda þess að hann var
fenginn til að klæðast vörum Mick
Jagger í Stones-sýningunni bráð-
komandi.
„Hann spurði mig hvort ég væri til
í að syngja Stones og ég hef alltaf
verið hrifinn af þeirri sveit. Stones
hafa alltaf verið nálægt mér. Í mér
býr Stones! Þannig að ég þurfti ekk-
ert að hugsa mig mikið um.“
Helgi hefur rennt sér í gegnum
nokkra Stones-slagara á ferlinum og
er því heldur en ekki tilbúinn í stuð-
ið.
„En til að gera langa sögu stutta,“
segir Helgi og lítur kímileitur upp.
„Þá ákvað ég einfaldlega að slá til.“
Á Broadway hafa verið sýningar
tileinkaðar Queen, Shadows og Bee
Gees m.a. Var þetta ekki bara tíma-
spursmál með rokkhetjurnar öldnu?
„Svona sýningar tíðkast mikið er-
lendis og það er mikill markaður fyr-
ir þessu,“ segir Helgi. „En fyrir mig
felst skemmtunin aðallega í því að fá
að upplifa alla þessa tónlist „lifandi“.
Þar fæ ég mína útrás.“
Að velja lög á Stones-sýningu
hlýtur að hafa verið martröð.
Ferillinn spannar næstum
fjóra áratugi og nóg er til af
smellum. Á sýningunni verða
um 20 lög, allt sígild lög úr
smiðju glimmertvíburanna.
„Það verður alveg rosa-
lega mikið af fólki sem á eftir
að verða fyrir vonbrigðum
þar sem það fær ekki sitt
lag,“ segir Helgi. „Þetta er
svo mikið. Ég renndi yfir
lagalista og merkti við sjálf-
sögð lög. Áður en ég vissi var
ég kominn með fimmtíu lög og ferill-
inn ekki nema hálfnaður!“
Reynt verður að stikla á stóru í
gegnum feril Stones á sýningunni.
Helgi segir þó að ekki verði farið
mikið fram yfir 1980.
„Þarna verða ballöður eins og
„Angie“ og „Ruby Tuesday“,“ segir
hann. „Svo eru hundarnir þarna auð-
vitað, „Jumpin’ Jack...“ og „Honky
Tonk...“.“
Gaman að pæla í Stones
„Aðalmálið er að flytja tónlistina
og reyna að ná fram stemningu og
andrúmsloftinu sem hún býr yfir,“ útskýrir Helgi.
„Svo verða þarna auðvitað dansarar og bakradda-
söngvarar auk þess sem það verður eitthvað
óvænt fyrir augað. Þetta er auðvitað skemmtun
en fyrst og fremst verður það tónlistin sem talar.“
Það er meistari Gunnar Þórðarson sem stýrir
henni með styrkri hendi og Helgi lætur vel af
samstarfinu.
„Gunni er helv... skemmtilegur. Hann er vand-
virkur og mikill stuðbolti.“ Helgi neitar því þó að
Gunni ætli að trylla lýðinn sem Keith Richards.
„Nei, það held ég nú ekki. Öll sú byrði lendir nú
á mér (hlær). En ætlunin er ekki sú að reyna að
líkja eftir hljómsveitinni Rolling Stones á sviði.
Þetta er náttúrulega fyrst og fremst tónlistin.“
Helgi lítur skyndilega til mín og spyr: „Þú ert Stónsari?“.
Ég muldra eitthvað fyrir munni mér, humma og jamma
(Ókei, ég viðurkenni það. Ég er Bítill! Sorrí Helgi.).
En nú tekur Helgi sig til og setur sig í stellingar
aðdáandans.
„Þú átt að byrja á þríleiknum. Beggars Ban-
quet, Let It Bleed og Exile On Main Street,“ seg-
ir Helgi ákveðinn. „Þá er þetta komið sko.“
Helgi er kominn á flug. „Það er mjög gaman
að pæla í Stones. Þetta band er skemmtilega
óheflað, skítugt og laust í reipunum. En samt
læsist þetta allt einhvern veginn saman.
Það er alltaf þessi ögrun í gangi.“
En nú eru Stones búnir að hjakka
áfram að því er virðist endalaust. Er ekki
kominn tími á þessa kalla?
„Þetta er svolítið snúin spurning,“ seg-
ir Helgi og er hugsi. „Það getur auðvitað
verið þreytt ef menn eru endalaust að
hjakka í sama farinu. Og þeir koma ekki til
með að finna upp eitthvað hjól núna. En ég
held hins vegar að þeir hafi rosalega gaman
af þessu. Og það náttúrulega er mjög mikils
virði. Maður hugsar bara um þessa gömlu
djass- og blúsleikara. Það er rosalega gaman
að sjá t.d. John Lee Hooker með gömlu stemm-
urnar sem svínvirka ennþá. Og hann hefur spilað
þetta í fimmtíu ár. En í hverri nótu er einhver svaka-
leg tilfinning. Ástríðan er enn til staðar. Á maður ekki
að líta þetta sömu augum?“
Sýningin hefst eins og áður segir næsta föstudag.
Húsið opnar kl. 19.00 fyrir matargesti en sýningin sjálf
hefst kl. 22.00. Stónsarar – teljið niður.
„Ert’ekki Stónsari!?“
Mick Jagger
arnart@mbl.is
Föstudaginn 21. september verður sýning,
tileinkuð Rolling Stones, frumsýnd
á Broadway. Og auðvitað er það Helgi
„Jagger“ Björnsson sem syngur, hver
annar! Arnar Eggert Thoroddsen
ræddi við kappann.
Helgi
Jagger.
Morgunblaðið/
Jim Smart
Rolling Stones sýning á Broadway
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 57
KVIKMYNDASTJÖRNURNAR
vinsælu Nicole Kidman og George
Clooney munu leika saman í kvik-
mynd sem hafinn er undirbúningur
að. Um er að ræða gamansama
spennumynd sem gengur undir
vinnuheitinu Confessions Of A
Dangerous Mind og allt útlit er fyr-
ir að þar fari fyrsta leikstjórn-
arverkefni Clooney.
Hann mun leika leyniþjónustumann
en Kidman ástkonu hans. Handritið
gerði Charles Kaufmann, sem kom
að handritum að myndum Spike
Jonze Being John Malkovich og
nýju mynd hans, Adaptation.
Kidman og Clooney
leika saman
Kidman Clooney