Morgunblaðið - 02.10.2001, Side 40
MINNINGAR
40 ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Marianne Elisa-beth Vestdal
fæddist í Dresden í
Þýskalandi 22. ágúst
1909. Hún lést 24.
september síðastlið-
inn. Marianne giftist
Jóni Erlendssyni
Vestdal frá Breiða-
bólsstöðum á Álfta-
nesi árið 1932 og
flutti með honum til
Íslands árið 1934.
Jón lést 1979. Mar-
ianne og Jón eignuð-
ust tvö börn: Jóhann-
es, f. 19.3. 1937,
kvæntist Elínu S. Benediktsdóttur
og eignuðust þau
eina dóttur, Sól-
veigu, þau skildu; og
Elísabetu, f. 12.8.
1939, giftist Roger
Abéla og eignuðust
þau fjögur börn,
Pierre, Marianne,
Frederic og
Christine. Barna-
barnabörn Marianne
og Jóns Vestdal eru
sjö.
Útför Marianne
fer fram frá Foss-
vogskapellu í dag og
hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Fallin er frá á 93. aldursári Mar-
ianne Elisabeth Vestdal, fædd
Werner. Með fráfalli hennar lýkur
ekki aðeins lífshlaupi konu sem skil-
ur eftir sig stóran hóp afkomenda
heldur er einnig að vissu leyti að
ljúka heilli öld og lífshlaupi þeirrar
kynslóðar sem lifði lungann úr
henni.
Marianne fæddist í Dresden árið
1909, einkabarn vel stæðrar fjöl-
skyldu í stórborg sem lengi hafði
verið ein af háborgum lista og menn-
ingar í Evrópu. Árið 1932 giftist hún
Jóni E. Vestdal frá Breiðabólsstöð-
um á Álftanesi en þau voru samstúd-
entar í verkfræðinámi við Háskól-
ann í Dresden. Marianne og Jón
fluttu til Íslands árið 1934 þar sem
Jón starfaði í fyrstu við atvinnudeild
Háskóla Íslands og var síðar ráðinn
til að stjórna uppbyggingu og
rekstri Sementsverksmiðju ríkisins.
Þau hjónin byggðu sér hús við
Hávallagötu í Reykjavík og bjuggu
þar alla tíð. Marianne var um margt
einstæð kona og greinilegt er af
heimilinu á Hávallagötunni og öllum
þeim teikningum og hannyrðum
sem liggja eftir hana, að þar fór
kona sem hafði næmt auga fyrir fag-
urfræði með áherslu á vönduð
vinnubrögð þar sem saman fóru stíl-
hreinn glæsileiki og fágaður minim-
alismi.
Uppruni Marianne og lífshlaup
hennar gerðu það að verkum að hún
varð óhjákvæmilega mörkuð af at-
burðum síðustu aldar. Þeir atburðir
sem áttu sér stað á meginlandi Evr-
ópu og stóðu fram undir miðja öld-
ina voru hörmulegir. Það hugarang-
ur og þær aðstæður sem margir af
hennar uppruna máttu búa við í og
að loknu seinna stríði, sem og þær
aðstæður sem fönguðu heimahérað
hennar að því stríði loknu, hefðu
sjálfsagt einnig markað mjög hverja
þá manneskju sem tengdist þessu
tímabili jafnnáið og hún.
Marianne var í senn barn síns
tíma í Þýskalandi þar sem tilfinn-
ingasemi var ekki í miklum háveg-
um höfð, sem og að fá það hlutskipti
að verða nokkurs konar útlagi í nýju
landi þar sem hún varð í mörg ár að
halda sig til hlés í samfélaginu. Hún
ólst upp í heimsstyrjöldinni fyrri,
styrjöld sem menn vonuðust til að
markaði endalok allra styrjalda, og
hún upplifði einnig efnahagsöng-
þveiti, kreppu og óðaverðbólgu
millistríðsáranna. Eftir að hafa flust
til Íslands upplifði hún það að þjóð
hennar umturnaðist og kveikti það
ófriðarbál sem heimsstyrjöldin síð-
ari varð. Á árum seinni heimstyrj-
aldar á Íslandi mátti hún búa við
þann ótta að verða send í fangabúðir
hvenær sem var. Í lok stríðsins bár-
ust henni svo fregnir af gjöreyðingu
Dresden, þar sem margir ættingjar
og vinir hennar létu lífið og öll henn-
ar veraldlega fortíð í Þýskalandi
varð að ösku og hvarf. Landi hennar
var því næst skipt upp í austur og
vestur, á milli einhvers konar hug-
myndafræðilegra póla þar sem
manneskjan sjálf var, eftir sem áð-
ur, í rauninni bara aukatriði.
Uppeldi og bakgrunnur Marianne
stakk og mjög í stúf við hið nýja um-
hverfi á Íslandi, fjarlægðin frá
heimahögunum var erfið og hugtak-
ið fjölmenningarlegt samfélag var
einfaldlega ekki til. Hún sótti því í
öryggi heimilisins, verndaði það vel
og var ströng. Voru samskipti henn-
ar við aðra að miklum hluta til við
fólk innan fjölskyldunnar og aðila
tengda henni og átti hún m.a. marg-
ar stundir með mágkonum sínum.
Eftir óvænt fráfall eiginmanns
Marianne árið 1979 virtist sem ver-
öldin utan veggja heimilisins yrði
einhvern vegin enn meira óaðlað-
andi og hún sótti í auknum mæli til
dóttur sinnar í Frakklandi sem og til
kunningja annars staðar í Evrópu.
Það voru því fáir sem kynntust
Marianne náið. Hún viðhafði ekki
mörg orð um sjálfa sig eða ævi sína,
en þó geislaði hún er talið barst að
mannlífi, menningu og fegurð Dres-
den æskuáranna. Einnig voru lýs-
ingar hennar á komunni til Reykja-
víkur og því menningarlega áfalli
sem hún varð fyrir innihaldsríkar og
lýsandi staðfesting þess að heimur-
inn hefur ekki mikið breyst, nöfn
landanna eru einfaldlega önnur.
Á afmæli Marianne hinn 22. ágúst
síðastliðinn átti ég samverustund
með henni, börnum hennar, nokkr-
um barnabörnum og barnabarna-
börnum á heimili dóttur hennar að
Breiðabólsstöðum. Það voru 92 kerti
á tertunni. Marianne var miðdepill
alls, höfuð stórfjölskyldu. Það var
augljóst að þrátt fyrir allt sem hún
hafði upplifað var hún mjög gæfu-
söm. Vonandi munu afkomendur
hennar, sem og við öll, ná að kynnast
þess konar gæfu í stað þess að lifa
samskonar brjálsemisöld áróðurs og
hernaðarhyggju sem nýliðin öld var.
Votta ég að lokum öllum afkom-
endum, ættingjum og vinum Mari-
anne mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Þór Saari.
MARIANNE E.
VESTDAL
2 3
.
'9
! *
$
-
$ 4.$ ,
(%**
5 $
-
$' 4.$ )! "
$) +3 ) $ 3 !$ "
# 4 !$
) 4 :, $
7 $$, "
$&$ " A+3 $
, " ; !)& 7 $$$
+ + + + +
")+ + + +
; ! $) " !! ! )$ ,
6$
#
3
# 7
8 8 '
#
6B-
"!)<=
B $C3 /4,
9!
#
6
9
$
/ / (" ) "
3,/ / " 6 ! (,$) $
$) )&$ #,/ / " ( 24 $
(" )5$! -,/ / $
(& )!$/ / $
")+ + ,
2 3
6(6;
+
;& &23
(
& '
"
$ :
.$
1
(*)*
5 $
6
8
(& )/$ / +3 )")'& .+
")3!2! ,
2 3
-
7:D'.
2 /,! 3 $
" + 0
&23 /4
$
;
$ #
$ (%**
(3 )#" &$$
: !!- $" .E9 $ $ D $
"
(3 ) $
($ )$ #" &$- $"
-&$
!+" )($ )$$
(3 )&2($ )$$ ,
D?
'9 !4 !$<
&2 $
! #
$ %
$
<
.
$ )
())*
/&$)D) $ # $ $"
! D) " 4 #" &$$
# $D) " #" +3 )#" &$$
)$+3 )D) $ 6 !$) (& )/$"
+ ")! ) + ,
=3
'
''
#. $!5&$$!$ ! &$!
&$!+ $)$" #$)&2$)
! #
$ %
$
68
$
)
(,**
-.
'
#" ) 4 !)&$ "
; !+" ) !)&$ $ ,
& '
'
'
,9 76. 2 /& $2$ !A$
A ) $@1
&23 /4
! +
" "
-
$
' %
(%**
5 $
9 .
$
$8
8 -
)&+" )6$ "
7$ &9 $ $$ $) )/ "
!! 9 $ $" 7 $ :* $
6 !$) 9 $ $" ; !)& $) 3$
$! 9 $ $$ (3 $ !! "
+ + ")! ) + ,
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmæl-
is- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Greinunum er
veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í
Kringlunni 1, Reykjavík, og á
skrifstofu blaðsins í Kaupvangs-
stræti 1, Akureyri. Þá er enn frem-
ur unnt að senda greinarnar í sím-
bréfi (569 1115) og í tölvupósti
(minning@mbl.is). Nauðsynlegt
er, að símanúmer höfundar/send-
anda fylgi.
Um hvern látinn einstakling
birtist formáli, ein uppistöðugrein
af hæfilegri lengd, en aðrar grein-
ar um sama einstakling takmark-
ast við eina örk, A-4, miðað við
meðallínubil og hæfilega línulengd,
- eða 2.200 slög (um 25 dálksenti-
metra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma
eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú
erindi. Greinarhöfundar eru beðnir
að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gild-
ir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára og
eldra. Hins vegar eru birtar af-
mælisfréttir ásamt mynd í Dagbók
um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit
séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er
æskilegt, að disklingur fylgi út-
prentuninni. Það eykur öryggi í
textameðferð og kemur í veg fyrir
tvíverknað. Auðveldust er móttaka
svokallaðra ASCII-skráa sem í
daglegu tali eru nefndar DOS-
textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect einnig auð-
veld í úrvinnslu.
Birting afmæl-
is- og minning-
argreina