Morgunblaðið - 12.10.2001, Síða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Stórir sigrar hjá yngri knattspyrnu-
landsliðunum / C1
Íslandsmótið í körfuknatt-
leik hófst með fimm leikjum /C2
8 SÍÐUR Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á FÖSTUDÖGUM
TVEIMUR Hollendingum var kom-
ið til bjargar á Sprengisandi síðdeg-
is í gær og höfðu þeir þá beðið
björgunar í svartabyl á Sprengi-
sandi í sólarhring. Mennirnir voru
heilir á húfi en kaldir og fegnir
björguninni. Þeir voru ágætlega
búnir og gerðu það hárrétta, að
sögn björgunarmanna, biðu átekta í
bílnum eftir björgun.
Björgunarsveitir norðan og sunn-
an heiða voru kallaðar út og fóru
fimm bílar til leitar upp úr hádeg-
inu í gær, en síðast hafði spurst til
mannanna í Hrauneyjum á hádegi
daginn áður. Þeir höfðu ætlað að
fara niður í Bárðardal og þaðan til
Akureyrar og lét vinur þeirra lög-
reglu vita þegar mennirnir skiluðu
sér ekki á tilsettum tíma. Um 10 km
sunnan við Nýjadal festist jeppinn í
skafli og meðan þeir reyndu að losa
hann gaf vélin sig.
Frank Aarnink, annar mannanna,
segir að þeir hafi séð að þá hafi þeir
ekkert getað gert. Þeir settust því
inn í bílinn og biðu þar í sólarhring
þar til Hjálparsveitin Dalbjörg kom
að þeim. „Við bara biðum og töl-
uðum um hvað gæti gerst. Við héld-
um að við þyrftum að vera aðra
nótt, því ég hélt að við myndum ekki
finnast fyrr en í fyrsta lagi á morg-
un [í dag],“ segir Frank. Hann hefur
búið hér á landi síðan í mars, en
hann leikur á slagverk og pákur í
Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Héldu aldrei að þeir
myndu frjósa í hel
Frank og ferðafélagi hans Bart
de Vrees, sem er í tveggja mánaða
heimsókn hér á landi, voru vel bún-
ir, með svefnpoka og íslenskar ull-
arpeysur. Frank segir að þeir hafi
einnig haft nokkuð af brauði og
vatni, en eftir að vatnið kláraðist
hafi þeir borðað snjó.
„Vandamálið var hvað það var
kalt og allt varð svo blautt inni í
bílnum.“ Frank segir að þeir hafi
verið mjög fegnir og ánægðir þegar
þeir sáu björgunarbílinn nálgast.
Hann segir að nóttin á hálendinu
hafi verið mjög erfið. Þar sem vélin
hafði gefið sig gátu þeir ekki notað
miðstöðina. „Maður náði að dotta í
20–30 mínútur í einu en svo vökn-
uðum við alltaf aftur. Það fór illa
um okkur og svo var mjög kalt. Við
vorum í rauninni ekki hræddir því
ég vissi að vinur minn á Akureyri,
sem átti von á okkur, myndi láta
vita að við hefðum ekki skilað okk-
ur. Við vissum bara ekki hvenær við
myndum finnast, við héldum aldrei
að við myndum frjósa í hel.“
Aðspurður hvort þeir hafi hugsað
um að fara út úr bílnum og ganga
áfram, segir Frank að þeir hafi ekki
vitað hversu langt þeir væru komn-
ir. „Ef við hefðum verið aðra nótt
hefðum við hugsanlega reynt að
ganga, en við vissum ekki hversu
langt var í skálann í Nýjadal þannig
að það var frekar áhættusamt. Við
ákváðum að það væri betra að bíða í
bílnum rólegir.“
Frank segir að svartabylur hafi
verið á hálendinu í gær, þeir félagar
hafi t.d. ekki séð til sólar nema í
tæpan klukkutíma vegna snjókomu.
„Ég spurði um ástand veganna í
gær og þá var mér sagt að þeir
væru fínir. Ég bjóst aldrei við svona
veðri, ég hélt að kannski yrði snjór
en ekki svona mikill.“ Frank hefur
ferðast töluvert um hálendið en
aldrei í svona veðri. Björg-
unarsveitin Dagrenning tók bílinn í
tog til Hvolsvallar og gistu þeir þar
í nótt.
Fimm björgunarbílar tóku þátt í
útkallinu og fóru þeir mismunandi
leiðir upp á sandinn. Björg-
unarsveitarmennirnir voru um það
bil að klára að leita á því svæði sem
ákveðið hafði verið að hefja leitina á
þegar mennirnir fundust. Lands-
stjórn hafði verið kölluð út til að
skipuleggja frekari leit og voru aðr-
ar sveitir í startholunum.
Hollendingar biðu björgunar í sólarhring á Sprengisandi
Nóttin erfið, en þeir
voru aldrei hræddir
Ljósmynd/Jón Hermannsson
Björgunarmenn mokuðu jeppann úr skaflinum sunnan við Nýjadal og drógu hann síðan til Hvolsvallar.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Hollendingarnir Frank Aarnink og Bart de Vrees við bíl björgunar-
sveitarinnar Dagrenningar á Hvolsvelli í gærkvöldi.
DAVÍÐ Oddsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, sagði í ræðu við
setningu landsfundar flokksins í
gær að nauðsynlegt væri að gera
án tafar gagngerar breytingar á
stjórnfyrirkomulagi Háskóla Ís-
lands. „Það er fullveikt og stirt og
ekki fyllilega í takt við nútíma-
stjórnarhætti, þótt þar haldi marg-
ir ágætir menn um tauma,“ sagði
formaðurinn.
„Við sjálfstæðismenn teljum
þjóðarnauðsyn að búa við öflugan
meginháskóla í landinu og við telj-
um Háskóla Íslands rísa vel undir
því,“ sagði Davíð. Hann kvað
skorta á að háskólamenn tækju
sjálfir stjórnunarlega veikleika
Háskóla Íslands til alvarlegrar um-
ræðu og sagði fjölda dæma frá liðn-
um árum sýna að nauðsynlegt væri
að gera gagngerar breytingar ætti
háskólinn að hafa í fullu tré við al-
þjóðlega samkeppni.
Davíð Oddsson sagði Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
hafa haft forystu fyrir myndarleg-
um og framsæknum umbótum á
menntakerfinu undanfarin ár svo
og á umhverfi og skipulagi rann-
sókna og vísindaþáttar íslensks
þjóðfélags.
Björn Bjarnason gerði þennan
kafla í ræðu Davíðs að umtalsefni á
heimasíðu sinni í gærkvöldi og get-
ur þess þar að ný lög um Háskóla
Íslands hafi komið til sögunnar fyr-
ir rúmum tveimur árum en með
þeim hafi meðal annars verið stigið
það skref að gjörbreyta skipan há-
skólaráðs og fá þar menn utan há-
skólans til starfa.
Verðugt að bregðast við harð-
ari alþjóðlegri samkeppni
„Þótti ýmsum innan háskólans
þetta goðgá og einnig, að mennta-
málaráðherra skyldi skipa rektor,
þótt ráðherrann væri við það bund-
inn af tillögu háskólaráðsins. Nú
telur forsætisráðherra nauðsyn-
legt að stíga stærri skref til að
styrkja stjórnarhætti háskólans og
segir réttilega, að til hans sé varið
miklu opinberu fé og það eigi að
tryggja með öllum skynsamlegum
ráðum, að það nýtist sem best, því
að ekkert skili þjóðinni betri arði
en öflugur háskóli sem veiti góða
menntun. Það er verðugt verkefni
fyrir alla, sem vilja Háskóla Ís-
lands vel að bregðast við kalli
þeirra, sem telja nauðsynlegt að
styrkja stöðu hans í öllu tilliti og
ekki síst með vísan til alþjóðlegrar
samkeppni, því að hún harðnar á
þessu sviði ár frá ári,“ segir á
heimasíðu menntamálaráðherra.
Ekki náðist í Pál Skúlason há-
skólarektor í gærkvöldi.
Stjórnfyrir-
komulag
Háskólans full-
veikt og stirt
Davíð Oddsson forsætisráðherra
Í UMRÆÐUM um frumvarp til
fjáraukalaga fyrir árið 2001 benti
Einar Már Sigurðarson, fulltrúi
Samfylkingarinnar í fjárlaganefnd,
meðal annars á mikinn kostnað um-
fram fjárveitingar sem fallið hefur
á ríkið vegna skrifstofubyggingar
Alþingis við Austurstræti.
Af því tilefni kom Halldór Blön-
dal (D), forseti Alþingis, í ræðustól
og gagnrýndi bæði fjárlaganefnd og
framkvæmdavaldið, einkum þó
Framkvæmdasýsluna. Sagði hann
framúrkeyrsluna til marks um að
Alþingi gæti ekki treyst verklegu
og fjármálalegu eftirliti Fram-
kvæmdasýslu ríkisins. Fjárlaga-
nefnd þingsins hefði svo brugðist að
því leyti að hún hefði ekki lagt til
nægilegar viðbótarfjárheimildir í
fjáraukalögum fyrir þetta ár, enda
þótt hún hefði kannað málið sér-
staklega.
Forsætisnefnd Alþingis hefur
skipað sérstakan eftirlitsaðila með
framkvæmdum sem nú standa yfir
við þjónustuskála Alþingis en stefnt
er að því að taka hann í notkun eftir
eitt ár.
Ummæli forseta Alþingis vöktu
mikla athygli og kölluðu Einar Már
og Margrét Frímannsdóttir (S) eft-
ir nánari skýringum á þeim en bæði
sitja þau í fjárlaganefnd. Kom Mar-
grét m.a. á framfæri óskum um
skriflegar skýringar en Einar Már
leitaði eftir umsögn fjármálaráð-
herra um skoðanir forseta Alþingis.
Halldór Blöndal, forseti Alþingis
Hvorki fjárlaganefnd
né framkvæmda-
valdinu treystandi