Morgunblaðið - 12.10.2001, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 11
ÍSLENSK ferðaþjónusta á í framtíð-
inni að byggjast á tveimur meginstoð-
um, íslenskri náttúru og íslenskri
menningu og samverkan þessara
tveggja þátta, að mati nefndar um
menningartengda ferðaþjónustu sem
samgönguráðherra skipaði og skilað
hefur af sér tillögum.
Í skýrslu nefndarinnar, sem kynnt
var á blaðamannfundi í gær, kemur
fram að skilgreina eigi menningar-
tengda ferðaþjónustu sem sérstaka
grein ferðaþjónustunnar, sem hafi
það að markmiði að kynna og auka
skilning á menningarlegri sérstöðu
þjóðarinnar í nútíð og fortíð. Í því
skyni verði afmarkað fimm ára aðlög-
unartímabil og sá tími notaður til þess
að vinna að breytingum á stoðkerfi
ferðaþjónustunnar, einkum með tilliti
til rannsókna- og þróunarstarfs og
markaðssetningar, kerfið lagað að
breyttum þörfum atvinnugreinarinn-
ar og samstarf við menningarstarf-
semina bætt og aukið. Verði meðal
annars horft til reynslunnar sem
fékkst af verkefninu Reykjavík,
menningarborg Evrópu árið 2000, um
hagnýtar aðgerðir í þessu sambandi.
Þá verði fjárhagslegt svigrúm Ferða-
málaráðs Íslands til að ýta undir
rannsóknar- og þróunarverkefni
hækkað í áföngum í allt að 20 milljónir
kr. á ári og ferðamálasetur Íslands
verði eflt á næstu fjórum árum með
beinum framlögum á fjárlögum sem
nemi 20 milljónum í lok þess tímabils.
Verði framlögin einkum nýtt til að
efla rannsóknir á tengslum nútíma-
menningar og menningararfs, sam-
starf listgreina og upplýsingatækni
við kynningu og miðlun á menning-
arverðmætum. Verði sérstaklega
hugað að því að virkja sjálfstæðar
stofnanir og einstaklinga til rann-
sókna- og þróunarstarfs.
Konungsbók Eddukvæða verði
tákn íslenskrar menningar
Hvað varðar ímynd og markaðs-
setningu er lagt til meðal annars að
hugað verði að því að beina athygli
ferðamanna sérstaklega að Konungs-
bók Eddukvæða sem menningar-
sögulegum minnisvarða. Handritið
verði gert að tákni íslenskrar menn-
ingar, aðgangur ferðamanna að því
tryggður og því búin umgjörð sem
hæfir því og hlutverki þess. Verði
hugað að þessu við nýbyggingarfram-
kvæmdir fyrir stofnun Árna Magnús-
sonar.
Einnig verði rithöfundar, lista- og
fræðimenn fengnir til þess að hug-
leiða menningarlega sérstöðu þjóðar-
innar í fortíð og nútíð og framtíðar-
möguleika íslenskrar menningar í
straumum samtímans í þeim tilgangi
að auðvelda ferðaþjónustunni að
byggja upp ímynd Íslands sem menn-
ingaráfangastaðar og markaðssetja
landið fyrir menningarferðir.
Þá er gert ráð fyrir að landinu verði
skipt í sérstök þróunar- og markaðs-
svæði hvað varðar menningartengda
ferðaþjónustu. Þannig verði á norð-
anverðu Vesturlandi lögð áhersla á
þjóðgarð undir Jökli, Eiríksstaði og
landafundi. Á Vestfjörðum verði lögð
áhersla á menningarsamfélagið á Ísa-
firði, friðlandið á Hornströndum, Jök-
ulfirði og Djúp. Á Norðurlandi vestra
verði lögð áhersla á Hóla, safnamenn-
ingu, vesturferðir, þjóðlagasetur,
hestamennsku og reiðlist. Í Eyjafirði
og Þingeyjarsýslu verði lögð áhersla á
söfn tengd sjósókn og strandmenn-
ingu, menningarstarfsemi á Akur-
eyri, vetraríþróttir, Gásir, Mývatns-
sveit og Jökulsárgljúfur. Á
Austfjörðum og Héraði verði lögð
áhersla á aldamótabæinn Seyðisfjörð,
umhverfi og landnýtingu, gróður-
vernd og endurheimt landgæða, há-
lendið norðan Vatnajökuls og orku-
nýtingu. Á Hornafirði og
Austur-Skaftafellssýslu verði lögð
áhersla á Vatnajökul og undir Eyja-
fjöllum og í Vestmannaeyjum verði
lögð áhersla á söguslóðir og sambúð
manns og náttúru á eldfjallaeyju.
Nefndin leggur ennfremur til í
þessu sambandi að opinberir styrkir
verði stórauknir. Lagt er til að stofn-
aður verði menningarsjóður ferða-
mála til að styrkja menningarstarf-
semi, uppbyggingu og vöruþróun,
sem hefur sérstakt gildi fyrir ferða-
þjónustuna og fellur að þróunaráætl-
unum um uppbyggingu atvinnugrein-
arinnar. Verði sjóðnum á fjárlögum
árlega úthlutað 200 milljónum króna
til styrkveitinga og verði starfsemi
sjóðsins nátengd áætlanagerð í ferða-
málum og starfi í tengslum við at-
vinnuþróunarfélög í héraði.
Einnig er lögð til stofnun annars
sjóðs sem styrki listamenn í því að
koma á neti listviðburða til að efla
ferðaþjónustu og verði sjóðnum ár-
lega úthlutað 30 milljónum króna.
Upplýsingavefur um
íslenskan menningararf
Þá leggur nefndin til að ráðist verði
í fjölda verkefna á sviði menningar-
tengdrar ferðaþjónsutu. Meðal þess
má nefna að lagt er til að kannaðir
verði möguleikar á gerð upplýsinga-
vefs um íslenskan menningararf sem
hafi það að markmiði að veita heild-
arsýn yfir flókið og þróað samfélag
þjóðveldistímans Til greina komi að
grunnur upplýsingavefjarins verði
tengdur ákveðnum sögustöðum, en
hluti hans vistaður á veraldarvefnum
sem markaðssetning.
Þannig verði í Skálholti miðstöð
kirkjutónlistar, á Þingvöllum verði
safn upplýsinga um lagasetningu,
stjórnmál, stjórnsýslu og dómsvald á
miðöldum, í Reykholti verði miðstöð
kynningar á íslenskum bókmenntum
og miðaldasagnfræði, á Hólum í
Hjaltadal verði kirkjusögusafn og á
Akureyri verði upplýsingasafn tengt
verslun, viðskiptum og siglingum og
lagasetningu þar að lútandi með skír-
skotun til verslunarstaðarins að Gás-
um.
Einnig er lagt til að Þingvellir verði
kynntir sem menningarsögulegur
vettvangur lýðræðisþróunar í heimin-
um og verði sem slíkir og vegna ein-
staks náttúrurfars teknir á heims-
minjaskrá.
Sturla Böðvarsson, samgönguráð-
herra, sagði að nefndin hefði verið
skipuð á grundvelli stefnuyfirlýsingar
ríkisstjórnarinnar, en auk hennar
hefði einnig verið skipuð nefnd til að
fjalla um heilbrigðistengda ferðaþjón-
ustu, sem þegar hefði skilað áliti.
Þakkaði hann fyrir vel unnið verk og
sagði að miklar vonir væru bundnar
við að efla mætti ferðaþjónustu á for-
sendum menningar okkar og sögu og
þannig gera enn betur en þegar hefði
verið gert í þessum efnum. Sagði
hann tillögur nefndarinnar hvað varð-
ar þróunaráætlanir á einstökum
svæðum byggðar á svæðisbundnu
mati mjög áhugaverðar.
Í nefndinni áttu sæti Tómas Ingi
Olrich, alþingismaður og formaður
Ferðamálaráðs, sem var formaður,
Dagný Emilsdóttir, framkvæmda-
stjóri Heimskringlu, Reykholti, Signý
Pálsdóttir, menningarmálastjóri
Reykjavíkurborgar, Sigríður Krist-
jánsdóttir, framkvæmdastjóri Vest-
urferða, Ísafirði, og Þorsteinn Gunn-
arsson, arkitekt og leikari, Reykjavík
Nefndin um menningartengda ferðaþjónustu skilar tillögum sínum til ráðherra
Ferðaþjónusta bygg-
ist á íslenskri nátt-
úru og menningu
Framlög til að efla
menningartengda ferða-
þjónustu verða stór-
aukin og áætlanir
um þróun hennar á
einstökum svæðum
landsins verða gerðar,
ef tillögur nefndar um
menningartengda
ferðaþjónustu ná
fram að ganga.
Morgunblaðið/Kristinn
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Tómas Ingi Olrich, formaður
nefndar um menningartengda ferðaþjónustu, kynntu ásamt nefndar-
mönnum skýrslu og tillögur nefndarinnar í gær.
HANNES Hólmsteinn
Gissurarson, prófessor í
stjórnmálafræði við Há-
skóla Íslands, og Björn
Þrándur Björnsson,
prófessor í fiskilífeðl-
isfræði við Gautaborg-
arháskóla í Svíþjóð,
hittu keisarahjónin í
Japan, Akihito og Mich-
iko, óvænt að máli er
þeir sóttu nýlega ráð-
stefnu í Japan sem að-
alfyrirlesarar. Ráð-
stefnan var haldin í
borginni Yokohama í
tilefni af 70 ára afmæli
Japanska fiskveiðivís-
indafélagsins. Hittu
þeir keisarahjónin í
sérstakri móttöku sem
haldin var fyrir fram-
sögumennina. Gestir
ráðstefnunnar, sem stóð yfir í fimm daga,
voru um eitt þúsund af ýmsu þjóðerni.
Umfjöllunarefni Hannesar í sínum fyr-
irlestri á afmælisráðstefnunni í Yokohama
var íslenska kvótakerfið og notkunar
möguleikar þess í alþjóðlegum fiskveiðum.
Vöktu fyrirlestrar þeirra Hannesar og
Björns nokkra athygli
og fengu þeir fjölmarg-
ar fyrirspurnir. Björn
Þrándur fjallaði í sín-
um fyrirlestri um hlut-
verk vaxtarhormóns í
líffræði fiska, einkum í
ferskvatni.
„Eitt af því sem ég
vakti athygli á er
stjórnun og veiðirétt-
indi á fiskveiðistofnum
eins og síld, loðnu,
karfa og úthafsrækju
sem ganga inn og út úr
lögsögum einstakra
ríkja. Ég lýsti því
hvernig við Íslendingar
höfum leyst þetta með
samningum við ná-
grannaríkin. Ég fékk
margar fyrirspurnir og
þær voru svipaðar og
annars staðar þar sem ég hef flutt fyr-
irlestra um þessi mál erlendis, þ.e. um
brottkastið, félagslegar afleiðingar kvóta-
kerfisins og hvort það nær í reynd að
stjórna fiskveiðunum,“ sagði Hannes.
Hannes og Björn sögðu við Morg-
unblaðið að það hefði verið óvænt ánægja
að fá að hitta keisarahjónin en koma
þeirra hefði ekki verið í boðaðri dagskrá.
Þeir sögðu hjónin hafa komið vel fyrir,
þau verið afar alþýðleg og fróð um Ísland.
Þess má geta að Akihito Japanskeisari er
lærður fiskifræðingur líkt og forveri hans
og faðir, Hirohito, og skýrir sú staðreynd
að nokkru viðveru hans í móttökunni.
„Keisarahjónin voru þarna drykklanga
stund, spjölluðu við okkur, lyftu glasi og
samfögnuðu þannig afmælisbarninu. Ég
sagði keisaranum að nú hefðu Íslendingar
stofnað sendiráð í Japan en hann gaf í
sjálfu sér ekki mikið út á það. Hann sagði
okkur Íslendinga vera fræga fyrir okkar
fiskveiðar og við Björn tókum heilshugar
undir það,“ sagði Hannes.
Í stuttu spjalli þeirra við Japanskeisara
bar kvikmyndagerð einnig á góma eftir að
Hannes benti Akihito á að Íslendingar
væru undir nokkrum áhrifum frá Japönum
í kvikmyndagerð. Kvikmyndir um Sam-
uraja og íslenska víkinga væru um margt
svipaðar þar sem fornu hetjuskipulagi
væri lýst og þannig hefði Kurosava haft
mikil áhrif á íslenska kvikmyndaleikstjóra.
„Þá hló Japanskeisari dátt. Við skipt-
umst á nokkrum kurteisisorðum og síðan
sneri hann sér að næsta manni. Framkoma
þeirra gagnvart gestum var greinilega
samkvæmt ströngum reglum og hirðsiðum.
Við urðum samt ekki varir við miklar ör-
yggisráðstafanir þrátt fyrir að þetta hafi
verið skömmu eftir hryðjuverkin í Banda-
ríkjunum. En þessi viðvera þeirra var
óvænt og þótti talsverð tíðindi. Japanskeis-
ari hefur áreiðanlega úr tugum ef ekki
hundruðum ráðstefna að velja til að mæta
á en hefur eflaust valið þessa vegna sinnar
menntunar," sagði Hannes.
Reuters
Japönsku keisarahjónin Akihito og Mich-
iko mættu óvænt á fiskveiðiráðstefnu í
Japan þar sem þau hittu m.a. að máli tvo
íslenska prófessora í hópi fyrirlesara.
Tveir íslenskir prófessorar meðal aðalfyrirlesara á fiskveiðiráðstefnu í Japan
Hittu japönsku keisarahjónin óvænt að máli
Hannes Hólmsteinn Gissurarson á
ráðstefnunni í Yokohama í́ Japan.