Morgunblaðið - 12.10.2001, Side 12
FRÉTTIR
12 FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ORKUÞING var sett í gær en þetta
er í þriðja skipti sem þingið er hald-
ið. Þinginu lýkur á laugardag en ríf-
lega 100 fyrirlestrar verða haldnir á
þessum dögum um flest það sem
lýtur að orkumálum. Meðal þess
sem kom þar fram í gær var að
vindmyllur gætu orðið hagstæður
kostur og að olíunotkun fiskiskipa-
flotans minnkar þrátt fyrir aukna
sókn. Þá benti orkumálastjóri á að
allt benti til þess að ríkið myndi
draga sig út úr ákveðnum þáttum
orkumála og í framtíðinni einkum
sinna setningu almennra leikreglna
og eftirliti en draga sig út úr sam-
keppnisrekstri í orkumálum.
Í erindi Valgerðar Sverrisdóttur
iðnaðarráðherra kom fram að er-
lend stjórnvöld sýna sívaxandi
áhuga á samstarfi við Íslendinga
um rannsóknir og nýtingu á jarð-
hita. Þegar hafa verið gerðir við
stjórnvöld í Ungverjalandi, Kali-
forníu og Grænlandi samningar um
slíkt samstarf.
„Það er mikilvægt að hafa í huga
að með staðfestingu á Kyoto-bók-
uninni munu fjölmörg ríki þurfa að
nýta sér alla möguleika sem þau
hafa til þess að draga úr losun hefð-
bundins kolefnaeldsneytis og því
mun augljóslega verða mikil aukn-
ing á jarðhitanotkun í heiminum á
næsta áratug,“ sagði Valgerður.
Milljarðasparnaður
af jarðhitanotkun
Sagði ráðherra að sparnaður Ís-
lendinga af jarðhitanotkun næmi
milljörðum króna á ári og væri þá
ekki meðtalinn hagnaður við raf-
orkuframleiðslu, iðnaðarframleiðslu
og ylrækt.
Ráðherra sagði brýnt að halda
áfram að nýta orkulindir landsins
til þess að tryggja áframhaldandi
hagsæld á Íslandi. Ekki væri séð að
það yrði gert öðruvísi en með auk-
inni sölu til stóriðju.
„Hér á ég við byggingu 420.000
tonna álvers á Reyðarfirði, stækkun
Norðuráls á Grundartanga um
150.000 tonn og stækkun á álveri
ÍSAL um 200.000 tonn,“ sagði ráð-
herra. Þessar áætlanir væru háðar
því að hægt væri að virkja næga
raforku á samkeppnisfæru verði.
Í erindi Valgerðar kom fram að
Íslendingar hafa nýlega verið
minntir á að sjávarafli umhverfis
landið er takmarkaður og sveiflu-
kenndur. Ætli Íslendingar að
byggja velferð sína á varanlegum
grunni verða þeir að nýta allar auð-
lindir til lands og sjávar á sjálf-
bæran hátt.
„Verum minnug þess að orkulind
er ekki auðlind fyrr en virkjuð verð-
ur.“
Spurningar um
hlutverk ríkisins
Þorkell Helgason orkumálastjóri
gerði hlut ríkisins í orkumálum að
umtalsefni og sagði ætlunina með
þeirri nýskipan orkumála sem ráð-
gerð er vera að koma á samkeppni í
framleiðslu og sölu raforku og að
sérleyfisstarfsemi, þ.e. flutningi og
dreifingu raforku, yrði settur
starfsrammi.
Orkumálastjóri sagði þetta vekja
spurningar um hlutverk ríkisins í
orkumálum sem hefði verið meira
og beinna en í flestum öðrum geir-
um atvinnulífsins. Hann sagði hvat-
ann að breytingum hérlendis vera
af ýmsum toga en sagði tvennt
einkum ráða för:
„Annars vegar sú almenna þróun
sem er ráðandi í pólitískri stefnu-
mótun hérlendis líkt og víðast hvar
erlendis að draga beri úr ríkisum-
svifum og ríkisforsjá og treysta í
sem mestum mæli á markaðinn.
Þannig er sú þróun sem nú blasir
við af sama meiði og í bankarekstri
eða síma- og fjarskiptamálum, svo
dæmi sé tekið. Hinn meginhvatinn
eru þau fyrirmæli sem koma frá
Evrópusambandinu um fyrirkomu-
lag raforkugeirans,“ sagði Þorkell
og taldi þau þó rúm.
Vindmyllur gætu orðið
hagstæður kostur
Ásbjörn Blöndal hjá Selfossveit-
um fjallaði um nýtingu vindorkunn-
ar á Íslandi. Í erindi hans kom fram
að í Noregi eru uppi umtalsverð
áform um uppbyggingu vindorku-
stöðva og útlit fyrir að heildarfram-
leiðslan nemi um 3,5% af rafmagns-
notkun í Noregi innan tíðar.
Ásbjörn taldi að á Íslandi væri
hægt að hugsa sér að um 5–6% af
heildaraflgetu virkjana kæmu frá
vindmyllum eða um 75 MW. Ef gert
væri ráð fyrir að hver vindmylla
væri 800 kW þyrfti að reisa um 94
myllur. Ef notaðar yrðu öflugri
myllur myndu 50 slíkar nægja en þá
þyrfti væntanlega að reisa nokkrar
þeirra til sjávar. Ásbjörn sagði að
nýting vindorku færi eftir þróun
heildsöluverðs rafmagns en hann
taldi að vel staðsettar vindmyllur
gætu orðið hagstæður kostur fyrir
söluaðila í smásölu. Líklegt væri að
hér á landi væru mjög orkurík
svæði sem ekki væru viðkvæm frá
umhverfislegu sjónarmiði.
„Mikilvægt er þó að málið verði
skoðað af raunsæi og í samvinnu við
aðila innan raforkuiðnaðarins og
aðra sem áhuga hafa á nýtingu
þessarar einstöku orkulindar.“
Minni olíunotkun
fiskiskipa
Í erindi Guðbergs Rúnarssonar
hjá Fiskifélagi Íslands kom fram að
olíunotkun fiskiskipaflotans hefur
minnkað frá árinu 1996 þrátt fyrir
aukna sókn, fjölgun smábáta og
endurnýjun stærri skipa. Guðberg-
ur telur að olíunotkun fiskveiðiflot-
ans haldi áfram að minnka á næstu
árum. Helstu forsendur eru þær að
botnfiskaflinn minnki næstu ár,
veiðar verði sambærilegar og þær
eru nú, olíuverð fari hækkandi og
tækniþróun í veiðum minnki olíu-
notkun um 3% árlega frá 2003–
2011.
Guðni Axelsson gerði grein fyrir
niðurstöðum tilraunar á jarðhita-
svæðinu á Laugalandi í Eyjafjarð-
arsveit. Tilgangur tilraunarinnar
var að sýna fram á að unnt væri að
auka orkuvinnslu verulega með því
að dæla vatni niður í lághitasvæði
með sprungnu bergi.
Tilraunin fór þannig fram að bak-
rásarvatni, sem er vatn sem hafði
verið notað í hitaveitukerfi Akur-
eyringa, var dælt niður um borhol-
ur í jaðri jarðhitasvæðisins. Niður-
stöður tilraunarinnar benda til þess
að hægt sé að auka framleiðslu
heits vatns á Laugalandi um 60–
70% með þessari aðferð. Guðni
sagðist vonast til þess að niðurstöð-
ur tilraunarinnar stuðluðu að því að
þessi aðferð yrði notuð við rekstur
fleiri jarðhitakerfa í landinu.
Orkudagur á morgun
helgaður almenningi
Orkuþing er haldið á tíu ára
fresti og ber að þessu sinni yfir-
skriftina „Orkumenning á Íslandi –
grunnur til stefnumótunar“. Þingið,
sem haldið er á Grand hóteli í
Reykjavík, er öllum opið gegn
greiðslu þátttökugjalds en á laug-
ardag verður haldinn orkudagur
sem er sérstaklega ætlaður almenn-
ingi og er öllum opinn þeim að
kostnaðarlausu.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segir notkun jarðhita fara vaxandi í heiminum
Kyoto-bókunin skapar
færi fyrir Íslendinga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jakob Björnsson, fyrrverandi orkumálastjóri, Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur,
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra og Luc Werner frá framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins.
ÞRJÚ fyrirtæki, sem öll vinna að rann-
sóknum og þróun tengdri olíu- og gas-
framleiðslu í Noregi, voru stofnuð í kjöl-
far rannsókna sem Jón Steinar
Guðmundsson, prófessor í olíuverkfræði,
vann að við Tækniháskólann í Þránd-
heimi, NTNU.
Eitt fyrirtækjanna er Stamgass sem er í
eigu norskra, sænskra og finskra orkufyr-
irtækja. Stamgass hyggst leggja 1.000
kílómetra langa gasleiðslu frá Þrændalög-
um í Noregi til vesturstrandar Finnlands.
Um 10% af núverandi jarðgasframleiðslu
Noregs fer um leiðsluna sem mun kosta
jafnvirði um 68 milljarða króna.
Í Finnlandi verður gasið notað til að
framleiða rafmagn en með því fást um 30
teravattstundir. Til samanburðar, segir
Jón Steinar, nemur öll raforkuframleiðsla
á Íslandi nú 6,6 teravattstundum.
Kolaorkuverum
breytt í gasorkuver
Finnar hyggjast breyta kolaorkuverum á
vesturströndinni í gasorkuver og þannig
minnka útblástur gróðurhúsalofttegunda
frá þeim um 40%. Þetta er liður í viðleitni
þeirra til að uppfylla skilyrði Kyoto-
bókunarinnar. Jón Steinar flutti fyrirlestur
um þessar áætlanir á Orkuþingi sem hófst
í gær.
Jón Steinar hóf feril sinn hjá Orkustofn-
un, varð síðar framkvæmdastjóri jarð-
hitarannsókna í Stanford-
háskóla í Bandaríkjunum og
gegndi starfi skólastjóra Jarð-
hitaskólans áður en hann flutti
til Noregs árið 1989. „Ég fór
nú til Noregs af því að konan
mín vildi fara þangað,“ segir
Jón Steinar en eiginkona hans,
Sigrún Guðmundsdóttir, er
prófessor í uppeldisfræði við
sama skóla og hann.
„Olíuþefinn“ fann hann þeg-
ar hann vann í Stanford-
háskóla sem framkvæmda-
stjóri jarðhitarannsókna á ár-
unum 1981–1985. Þegar hann
er spurður um hvernig hafi
gengið að skipta um starfssvið
segir hann að þessar greinar
séu í raun alls ekki svo ólíkar.
„Það sem heitir jarðhitaverkfræði breyt-
ist mjög auðveldlega í olíuverkfræði.“
Vatn sé þannig á margan hátt
líkt olíu og gufa svipuð gas-
inu.
Annað fyrirtæki sem var
stofnað í kjölfar rannsókna
Jóns Steinars er Markland
sem framleiðir tæki sem mæl-
ir rennsli upp úr borholum
sem jarðgas og olía kemur
upp um samtímis. Þessi tækni
nýtist einnig í mælingum á
jarðhitavirkjunum en nú er
verið að kanna möguleika á að
nota þessa tækni hjá Hitaveitu
Suðurnesja og í Kröfluvirkjun.
Þróa nýja aðferð við að
geyma og flytja jarðgas
Þriðja fyrirtækið vinnur að
því, í samvinnu við fimm olíufyrirtæki, að
þróa nýja aðferð til að geyma og flytja
jarðgas. Aðferðin byggist á að blanda gasi
saman við vatn við ákveðinn þrýsting.
Áhrifin eru þau að gasið breytist í gashý-
dríð sem minnir helst á snjó eða slyddu.
Með þessu er hægt að minnka ummál gass-
ins 150-falt. Þannig verður mun ódýrara
að flytja gasið en helsti kostur aðferð-
arinnar er sá að ekki þarf að geyma gasið
undir þrýstingi.
Ekki minni framleiðslu-
kostnaður með vatnsafli
Jón Steinar segir að í Evrópu sé sífellt
meiri áhersla lögð á notkun jarðgass til
framleiðslu rafmagns en kostnaðurinn við
það sé svipaður og í vatnsaflsvirkjunum.
Þannig kosti hver kílóvattstund frá ga-
saflsvirkjun um 1,5–2 krónur en hér miði
Landsvirkjun við 1,6–2,4 krónur.
„Við erum því bara eins og hver annar
orkuframleiðandi og verðum að haga okk-
ur eftir því. Við getum ekki hagað okkur
eftir því að við séum með ódýrari raforku
og menn flykkist hingað til að nota þessa
ódýru raforku. Það er bara ekki þannig.
Þessu hafa menn ekki almennt gert sér
grein fyrir,“ segir hann.
„Ég held að þetta hljóti að hafa þónokk-
uð mikil áhrif á hvernig íslensk stjórnvöld
og fyrirtæki hugsa stöðu sína.“
Hann segir að þetta sé líklega ástæðan
fyrir því að ekki hefur verið enn meiri
uppbygging í stóriðjumálum á Íslandi en
raun ber vitni.
Þrjú fyrirtæki hafa verið stofnuð í Noregi í kjölfar rannsókna Jóns Steinars Guðmundssonar
Jón Steinar
Guðmundsson
Fann olíuþefinn
í Bandaríkjunum