Morgunblaðið - 12.10.2001, Síða 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 27
SENDINEFND háttsettra
þýzkra embættismanna var stödd
hér á landi á dögunum í þeim er-
indagjörðum að eiga árlegan tví-
hliða samráðsfund með íslenzkum
starfssystkinum, en skipulagðir
samráðsfundir af þessu tagi hafa
verið haldnir allt frá því árið
1993, þegar samningurinn um
evrópska efnahagssvæðið (EES)
var gerður.
Fyrir þýzku sendinefndinni fór
dr. Christoph Jessen, sem er
deildarstjóri í utanríkisráðuneyt-
inu í Berlín og hefur þar m.a.
umsjón með málum er varða
stækkun Evrópusambandsins
(ESB), en einnig er varða þátt-
töku Þýzkalands í alþjóðlegum
stofnunum eins og Heimsvið-
skiptastofnuninni (WTO) og í
EES-samstarfinu.
Í samtali við Morgunblaðið
sagði Jessen að þýzk stjórnvöld
álitu þessar samráðsviðræður við
Íslendinga mikilvægar þar sem
Ísland væri með EES-aðildinni
nátengt Evrópusamstarfinu en
ráðamenn þess og embættismenn
væru ekki „á göngunum í Bruss-
el“ þar sem stór hluti samráðs
Evrópuríkja fer annars fram. Því
væru mættir hingað til Reykja-
víkur fjölmenn nefnd háttsettra
manna, ekki aðeins úr utanrík-
isráðuneytinu heldur einnig ráðu-
neytum viðskipta- og landbúnað-
armála sem og úr þýzka
seðlabankanum og fleiri stofnun-
um.
Dagskrá viðræðnanna spannaði
vítt svið. Nefndi Jessen gjaldmið-
ilsmál, milliríkjaviðskipti, fram-
tíðarþróun Evrópu, svo og afleið-
ingar hryðjuverkanna í
Bandaríkjunum.
Gagnast jaðarríkjum bezt
Spurður hvernig hann sjái
stöðu Íslands fyrir sér í breyttri
Evrópu, nú er stækkun ESB til
austurs stendur fyrir dyrum og
fleiri róttækar breytingar á Evr-
ópusamstarfinu, svarar hann að
Íslendingar þurfi, rétt eins og
aðrar Evrópuþjóðir, að gera sér
grein fyrir því hve mikil hreyfing
er á hlutunum í álfunni um þess-
ar mundir.
Evran, sameiginlegur gjald-
miðill 300 milljóna ESB-borgara,
kemur í umferð eftir næstu ára-
mót; fáein ár eru í að tíu ríki
Mið- og Austur-Evrópu með um
100 milljónir íbúa verði tekin inn
í Evrópusambandið og þar með
stærsta sameiginlega efnahags-
svæði heimsins gert að veruleika.
Með stækkun ESB stækkar sjálf-
krafa einnig Evrópska efnahags-
svæðið.
Og Jessen segir það sannfær-
ingu sína að þetta samstarf gagn-
ist bezt löndunum í jaðri svæð-
isins. Sem dæmi um þetta megi
nefna að vilji fyrirtæki í stóru,
miðlægu landi eins og Þýzkalandi
bjóða í verk í Póllandi – sem gert
er ráð fyrir að bætist í hóp ESB-
ríkja í fyrstu lotu stækkunar –
geri það það, hvort sem það hafi
við reglur hins sameiginlega innri
markaðar að styðjast eður ei, á
meðan t.d. fyrirtæki frá Portúgal
ætti mjög bágt með það nema
með því að hafa innrimarkaðs-
reglurnar sér til fulltingis.
„Þetta er eina leiðin fyrir Evr-
ópuríkin til að standast kröfur
hnattvæðingarinnar. (...) Annað-
hvort leggur hnattvæðingin okk-
ur lífsreglurnar eða við henni,“
segir Jessen. Segja megi að Evr-
ópusamruninn sé „hnattvæðing í
smærri stíl“; með samtakamætt-
inum í ESB geti Evrópuþjóðir,
stórar sem smáar, bæði viðhaldið
fullveldi sínu og notið góðs af
þeim tækifærum sem hnattvæð-
ingin hefur upp á að bjóða. Sem
dæmi um þetta megi nefna að
Pascal Lamy, sem fer með við-
skiptamál í framkvæmdastjórn
ESB, eigi mun auðveldara með
að fá t.d. bandarísk stjórnvöld til
að hlusta á það sem hann hefur
að segja en viðskiptaráðherra
einhvers eins ESB-ríkis.
„Í Evrópusambandinu vill hver
aðildarþjóð halda fullveldi sínu og
þjóðarímynd, og gerir það. Lúx-
emborg er gott dæmi um þetta,“
segir Jessen. Án ESB-aðildarinn-
ar hefði stórhertogadæmið, þar
sem litlu fleiri búa en á Íslandi,
ekki nándarnærri þau áhrif sem
það hefur.
„Evrópusambandið verður
aldrei að eiginlegu ríki; það mun
ávallt verða samband þjóðríkja,“
segir Jessen spurður um framtíð
Evrópusamrunans, sem mikið
hefur verið rætt um á síðustu
misserum. En „í hinum hnatt-
vædda heimi munu lítil og með-
alstór Evrópuríki ekki geta stað-
izt kröfur tímans nema með aðild
að ESB,“ fullyrðir Jessen.
Standast ekki kröfur tím-
ans nema með ESB-aðild
Morgunblaðið/ÁsdísChristoph Jessen.
Fyrir sendinefnd þýzkra embættismanna,
sem hér var stödd á árlegum tvíhliða sam-
ráðsfundi á dögunum, fór dr. Christoph
Jessen, deildarstjóri í utanríkisráðuneyt-
inu í Berlín. Hann tjáði Auðuni Arnórs-
syni m.a. að á dögum hnattvæðingar
fengju minni Evrópuríki ekki staðizt kröf-
ur tímans nema með aðild að ESB.
VOPNAÐAR sveitir hægrimanna í
Kólumbíu myrtu allt að 30 landbún-
aðarverkamenn í suðausturhluta
landsins og 10 fiskimenn í norður-
hlutanum. Voru margir mannanna
skotnir þar sem þeir lágu á jörðinni.
Þá hafa vinstrisinnaðir skæruliðar
tilkynnt, að þeir hafi skotið tvo lög-
reglumenn, sem þeir rændu um síð-
ustu helgi.
Fernando Tapias, foringi í kól-
umbíska hernum, sagði, að vitað
væri, að 17 menn hefðu verið myrtir í
tveimur árásum í bænum Buga, en
fréttamenn segja, að talan sé nær 30.
Var haft eftir þeim, að morðingjarnir
hefðu sagst vera liðsmenn Samein-
uðu sjálfsvarnarsveitanna, en ýmis
mannréttindasamtök telja, að þær
njóti óbeins stuðnings kólumbíska
hersins. Þær og andstæðingar
þeirra, hinn vinstrisinnaði Bylting-
arher, skirrast ekki við að drepa
óbreytta borgara ef þeir eru grun-
aðir um að styðja fjandmennina.
Haft er eftir vitnum, að byssu-
mennirnir hafi rekið fjölskyldur út af
heimilum sínum, skilið karla frá kon-
um og börnum og flutt þá á annan
stað. Þar voru þeir skotnir liggjandi
á jörðinni. Sömu menn eru sakaðir
um að hafa drepið 10 fiskimenn í
bænum Magdalena.
200.000 manns í valnum
Tilkynning vinstrisinnaðra skæru-
liða um að þeir hafi tekið af lífi tvo
lögreglumenn, sem þeir höfðu rænt,
hefur vakið reiði stjórnvalda þar sem
talsmenn skæruliðanna sögðu sl.
föstudag, að þeir ætluðu að hætta
mannránum og morðum til að greiða
fyrir yfirstandandi viðræðum um
vopnahlé. Er nú jafn víst talið, að
þær fari út um þúfur. Lagt hefur
verið hart að Andres Pastrana, for-
seta Kólumbíu, að hætta þeim, eink-
um eftir að Consuelo Araujono-
guera, fyrrverandi menningar-
ráðherra og eiginkona núverandi
dómsmálaráðherra, var myrt í síð-
asta mánuði. Mikil óöld hefur verið í
Kólumbíu í 37 ár og hefur hún kostað
að minnsta kosti 200.000 manns lífið.
Tugir
manna
myrtir í
Kólumbíu
Bogota. AFP.
FORNLEIFAFRÆÐINGAR hafa
fundið rústir af fornu musteri í
Grikklandi og telja nú að á staðn-
um hafi verið áður óþekkt borg
fyrir um 2.300 árum. Um það leyti
var Alexander mikli frá Makedón-
íu við völd en ríki hans náði yfir
mikinn hluta Evrópu, Vestur-Asíu
og Norður-Afríku.
Rústirnar eru í um 1.200 metra
hæð yfir sjávarmáli í Pindus-fjöll-
um í norðurhluta Grikklands. Að
sögn Stellu Drougu, sem stýrir
rannsóknunum, er borgarinnar
ekki getið í fornum heimildum.
„Við teljum að við höfum fundið
mikilvæga borg,“ segir hún. Auk
húsarústa hafa fundist á staðnum
peningar og keramikleifar. Eru
sumar leifarnar í attískum stíl sem
bendir til verslunar við Aþenu í
suðurhlutanum.
Drougu telur að borginni hafi
hnignað þegar Rómverjar lögðu
svæðið undir sig um árið 150 f. kr.
en borgin hafi verið mikilvæg í
hernaði vegna legu sinnar.
Borg frá
tímum Al-
exanders
Aþenu. AFP.
Ungbarnafatnaður
Komdu í bæinn og skoðaðu úrvalið og
verðið. Allt fyrir mömmu.
Þumalína, Pósthússtr. 13, s. 551 2136.