Morgunblaðið - 12.10.2001, Blaðsíða 32
UM endalok tímans var tek-
in upp á tónleikum Kammer-
músíkklúbbsins í Bústaða-
kirkju í október 2000. Þar léku
Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleik-
ari, Einar Jóhannesson klarin-
ettuleikari, Richard Talk-
owsky sellóleikari og Folke
Gräsbeck píanóleikari.
Á disknum má heyra Kvart-
ett um endalok tímans eftir
Olivier Messiaen. Hann samdi
kvartettinn í fangabúðum Þjóð-
verja í Görlitz, og þar var hann
frumfluttur 15. janúar 1941.
Hljóðfæraskipanin réðst af því
hvaða hljóðfæraleikarar voru
meðal samfanga hans. Yrkis-
efnið er heimur mannsins/tím-
ans og tilvist krists/ eilífðarinn-
ar. Kaflar verksins eru átta.
Því næst er leikið sjaldheyrt
tríó, Tríó nr. 1, í einum kafla
fyrir píanó, selló og fiðlu eftir
Dmitri Sjostakovitsj.
Útgefandi er ÓMI klassík.
Edda – Miðlun og útgáfa.
Nýjar geislaplötur
Mörkin milli
nytjalistar og
myndlistar
HILDUR Bjarnadóttir opnar sýn-
ingu í gallerí@hlemmur.is, Þver-
holti 5, á morgun, laugardag, kl.
17. Á sýningunni eru verk sem flest
eru unnin á þessu ári og fjalla eins
og fyrri sýningar listamannsins um
mörkin milli nytjalistar og mynd-
listar. Hildur bjó í New York í 6 ár
en hefur núna flust til Portland,
Oregon á vesturströnd Bandaríkj-
anna. Með henni á sýningunni
verður Mark R. Smith myndlist-
armaður frá Portland. Þau hlutu
bæði verðlaun fyrir verk sín á The
Oregon Biennial í The Portland
Art Museum fyrr á þessu ári.
Verk Hildar Bjarnadóttur.
LISTIR
32 FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞETTA er 15. verðlaunabókin frá
því Íslensku barnabókaverðlaunin
voru sett á laggirnar af fjölskyldu
Ármann Kr. Einarssonar og forlag-
inu Vöku-Helgafelli árið 1986. Með
einni undantekningu hafa þessi
verðlaun verið veitt árlega fyrir
besta handritið að barna- og ung-
lingabók og á 10 ára afmælisárinu
1996 voru veitt tvenn verðlaun þeg-
ar besta handritið að myndabók var
einnig gefið út. Lengi framanaf
voru Íslensku barnabókaverðlaunin
veitt að vori, gjarnan sem næst
sumardeginum fyrsta, en þetta hef-
ur nú lagst af og verðlaunin veitt
sem næst skólabyrjun. Ennþá hafa
þó verðlaunin verið veitt á undan
hinu eiginlega jólabókaflóði og verð-
launabókin því haft dálítið forskot á
markaðnum.
Það er ekki ofsagt að þessi verð-
laun hafi gert íslenskum barnabóka-
markaði og íslenskri menningu mik-
ið gagn. Barnabókahöfundar hafa
átt undir högg að sækja að fá við-
urkenningu fyrir verk sín, en fáir
eiga samt jafntrygga lesendur og
barnabókahöfundarnir. Fátt er líka
mikilvægara til viðhalds
íslenskri bókmenningu
og tungu en að fram-
leiddar séu góðar
barnabækur á íslensku.
Í samkeppninni um
besta handritið hafa
nokkrir nýir höfundar
fengið sínar bækur út-
gefnar en einnig hafa
eldri og reyndari höf-
undar fengið þessa við-
urkenningu fyrir ný
handrit.
Gunnhildur Hrólfs-
dóttir sem hlaut Ís-
lensku barnabókaverð-
launin að þessu sinni er
enginn nýgræðingur í íslenskri
barnabókaritun. Allt frá árinu 1980
hefur hún auðgað íslenskan barna-
bókamarkað með verkum sínum svo
það var vonum seinna að hún skyldi
nú fá þessa vel verðskulduðu við-
urkenningu.
Hennar sterkasta einkenni er
hversu vel henni tekst að skyggnast
inn í líf unglinga og barna og greina
innri baráttu þeirra sem einstak-
linga oft við ofurefli og erfiðar ytri
aðstæður.
Verðlaunasagan í ár gerist í Vest-
mannaeyjum og allir staðhættir eru
sannferðugir. Sagt er fá örnefnum
og heitum húsa og umhverfinu lýst
af kunnugleika. Söguhetjan er
Katla sem flytur til Vestmannaeyja
með foreldrum sínum en þau hafa
fengið vinnu á staðn-
um. Í raun eru sögu-
þræðirnir þrír.
Katla glímir við að
aðlaga sig í skólanum
sem gengur ekki
nógu vel þar til hún
eignast vinkonu og
sálufélaga og svo get-
ur hún sýnt fram á að
hún sé flink í fót-
bolta, afrek sem gerir
hana samstundis
gjaldgenga í bekkn-
um. Hún fær að
kynnast upplifun
fólks af Vestmann-
eyjagosinu með því
að taka viðtöl við fólk fyrir skóla-
verkefni. En Katla er líka skyggn
og með því að stinga tánum í gamla
skó hverfur hún 150 ár aftur í tím-
ann og hittir fyrir unga stúlku og
fær að kynnast lífi hennar að svo-
litlu leyti. Myndin sem dregin er
upp hér er af bæjarlífinu eins og
það var um 1850 og sagt frá ýmsu
sem tengist Vestmannaeyjum
gamla tímans. Þriðji söguþráðurinn
er svo alþjóðlegt glæpamál sem
tengist vinnu föður hennar.
Mér finnst þessir þrír söguþræðir
ekki alltaf falla nógu vel saman og
þar sem bókin er bundin nokkuð
staðlaðri lengd barna- og unglinga-
bóka, verða þessum ólíku þáttum
ekki gerð nægilega vel skil og sag-
an verður því nokkuð sundurlaus en
samt ofhlaðin. Sjálfri finnst mér
mest spennandi sá hlutinn þar sem
höfundur reynir að sýna nútíma-
stúlku hvernig lífið var í Vest-
mannaeyjum og fá hana til að skilja
aðbúnað og aðstæður á þessum
tíma.
Samt er þessi hluti ekki dreginn
nógu nákvæmlega enda varla hægt
þar sem koma þarf að í frásögninni
hversdagslegri hlutum úr daglega
lífinu.
Lakastur og langsóttastur er svo
þátturinn um glæpamálið sem er
heldur ósannfærandi og lítið und-
irbyggður.
Þótt mér finnist sagan ofhlaðin er
hún skemmtileg aflestrar enda er
Gunnhildur meistari að fara með
texta. Þessi saga gefur líka tilefni til
að halda að söguleg skáldsaga ætti
að verða höfundi létt viðfangsefni
og að nú eigi hún að spreyta sig á
að skrifa barnabók sem gerist að
öllu leyti í gömlum tíma. Hún er
augljóslega komin á strik og búin að
gera sögulega rannsókn á Vest-
mannaeyjum sem gefur henni
sterkan grunn til að byggja næstu
bók á. Undanfarin ár hafa höfundar
sótt nokkuð í gamlan íslenskan tíma
og skapað nokkrar frábærar barna-
og unglingabækur í þeim dúr. En af
nógu er að taka. Af hverju ekki að
reyna að skrifa unglingasögu um
Tyrkjaránið eða aðra stórfenglega
atburði úr Íslandssögunni?
Ævintýri í Vestmannaeyjum
BÆKUR
B a r n a b ó k
Eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur.
Vaka – Helgafell, 2001 – 176 s.
SJÁUMST AFTUR…
Gunnhildur
Hrólfsdóttir
Sigrún Klara Hannesdótt ir
BJARNI Hinriksson myndasögu-
höfundur fjallar um síðustu verk sín
í Listaháskóla Íslands, Laugarnesi,
kl. 12.30 á mánudag. Hann veltir
fyrir sér þeim áhrifum sem tölvan
hefur haft á vinnuferlið, bæði teikn-
inguna sjálfa og frásagnartæknina.
Síðast birtust myndasögur Bjarna í
tveimur tölublöðum TMM.
Nemendur hönnunardeildar í
textíl og á fatahönnunarsviði fjalla
um dvöl sína í París og reynslu í
fyrirlestrarsal hönnunardeildar,
stofu 113, Skipholti 1, nk. miðviku-
dag kl. 12.30. Nemarnir voru við
störf hjá þekktum tískuhúsum þar-
lendum.
Námskeið
Grafík – nýjar aðferðir, Image
On, grafísk ljósmyndatækni með
ljósnæmri filmu verður kennd á
námskeiði sem hefst á þriðjudag.
Einnig verður kynnt ný aðferð, stál-
æting. Kennarari er Ríkharður
Valtingojer myndlistarmaður.
Þá hefst námskeið í hraðteikn-
ingu á þriðjudag, með áherslu á
myndbyggingu, sjónarhorn, ljós og
skugga. Á síðari hluta námskeiðsins
verða teknir fyrir grunnþættir í
klassískum teiknimyndastílum.
Kennari Halldór Baldursson teikn-
ari.
Leturnotkun og munsturgerð
verða kennd á námskeiðinu Ill-
ustrator sem hefst föstudaginn 22.
október. Grunnþekking á Photos-
hop nauðsynleg. Kennari er Hösk-
uldur Harri Gylfason myndlistar-
maður.
Fyrirlestrar og
námskeið í LHÍ
Ljósmyndasýn-
ing í Stöðlakoti
MARGRÉT Margeirsdóttir opnar
sýningu á ljósmyndum í Stöðlakoti
við Bókhlöðustíg 6 á morgun, laug-
ardag, kl. 15. Margrét er áhugaljós-
myndari og hefur stundað ljósmynd-
un til fjölda ára. Helstu viðfangsefni
hennar eru ýmis fyrirbæri í náttúru
landsins. Á þessari sýningu eru flest-
ar myndirnar af klettum, hrauni og
steinum í ýmsum formum og litum.
Myndirnar eru teknar í Skagafirði, í
Breiðafjarðareyjum og víðar á sl.
þremur árum.
Margrét hefur áður haldið tvær
ljósmyndasýningar, aðra á Sauðár-
króki 1999 og hina í Hveragerði sama
ár. Ennfremur hafa birst myndir eft-
ir hana í bókum, tímaritum og dag-
blöðum á undanförnum árum.
Sýningin er opin daglega kl. 15-18
og lýkur sunnudaginn 28. október.
Sýningum lýkur
Listasafn Íslands
Þremur sýningum í Listasafni Ís-
lands, á verkum í eigu safnsins, lýk-
ur á sunnudag. Þorvaldur Skúlason,
Magnús Tómasson og Naumhyggja.
Sýningarnar eru opnar virka daga
10–18, laugardaga 11–16.
Næsta sýning í Listasafni Íslands
verður opnuð laugardaginn 27.
október, yfirlitssýning í öllu safninu
á verkum Gunnlaugs Schevings.
Listasetrið
Kirkjuhvoli, Akranesi
Sýningu Vignis Jóhannssonar
lýkur á sunnudag. Þar sýnir hann
litlar olíumyndir og glerverk.
Listasetrið er opið alla daga
nema mánudaga frá kl. 15-18.
Öndvegiskonur
af sviðinu
SÍÐASTA sýning á Öndvegiskon-
um á Litla sviði Borgarleikhússins
verður í kvöld.
Verkið er eftir Austurríkismann-
inn Werner Schwab. Það eru
Hanna María Karlsdóttir, Margrét
Helga Jóhanndóttir og Sigrún
Edda Björnsdóttir sem fara með
hlutverk öndvegiskvennanna
þriggja sem hittast hjá einni þeirra
til að fagna nýju loðhúfunni henn-
ar.
KÍNVERSKA sendiráðið færði
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í
erlendum tungumálum bókagjöf í
gær. Sendiherrann, Wang Rong-
hua, afhenti Vigdísi bækurnar í
húsnæði stofnunarinnar í Nýja
Garði við Háskóla Íslands. Gjöfin
inniheldur kennslubækur í kín-
versku, hljóðbönd um framburð og
safn af bókum um kínverska list,
s.s. dans, myndlist, leikhús, tónlist
og kvikmyndir.
Sendiherranum var jafnframt
greint frá starfsemi í húsinu. Við-
staddir voru einnig Pétur Knúts-
son, forstöðumaður stofnunar-
innar, Vilhjálmur Árnason,
deildarforseti heimspekideildar,
Þorleifur Jónsson frá Lands-
bókasafni Íslands, kennarar o.fl.
Morgunblaðið/Kristinn
Sendiherrann Wang Ronghua afhendir frú Vigdísi Finnbogadóttur
bókagjöfina. Með þeim eru Þorleifur Jónsson og Vilhjálmur Árnason.
Bókagjöf frá Kína
Norræna húsið
Föstudagur
Kl. 9–16: Tante Andante tekur á
móti leikskólabörnum og 5 og 6 ára
nemendum úr Ísaksskóla og verður
með uppákomu. Síðan verður þeim
boðið á ævintýrasýningu Sjöunda
himins – Köttur úti í mýri.
Kl. 12–13.30: Norrænt höfunda-
þing í sal Norræna hússins. Efni:
Ferðir og goðsögur sem þema í nor-
rænum barna- og unglingabók-
menntum. Fundarstjóri: Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson. Höfundar: Bent
Haller, Danmörku, Guðrún Helga-
dóttir, Íslandi, Hannele Huovi, Finn-
landi, Rakel Helmsdal, Færeyjum,
Tor Åge Bringsværd, Noregi, Ulf
Stark, Svíþjóð.
Kl. 14–17: Ráðstefna um norrænar
barna- og unglingabókmenntir í sal
Norræna hússins. Fyrri hluti. Efni:
Staða bókarinnar í barna- og ung-
lingamenningu samtímans. Fundar-
stjóri: Ragnheiður Gestsdóttir.
14–14.45: Dagný Kristjánsdóttir,
dr. phil. prófessor við Háskóla Ís-
lands. 14.45–15: Færeyski rithöfund-
urinn Rakel Helmsdal les úr verkum
sínum. 15.15–16: Åse Kristine Tveit
lektor við Høgskolen i Oslo. 16–
16.15: Norski rithöfundurinn Tor
Åge Bringsværd les úr verkum sín-
um.
Kl. 18–19.30: Borgarbókasafn
Reykjavíkur: Myndir úr íslenskum
barnabókum. Opnun og móttaka í
boði safnsins. Sýnendur eru: Anna
Cynthia Leplar, Áslaug Jónsdóttir,
Björk Bjarkadóttir, Brian Pilking-
ton, Erla Sigurðardóttir, Freydís
Kristjánsdóttir, Guðjón Ketilsson,
Guðrún Hannesdóttir, Gunnar
Karlsson, Halla Sólveig Þorgeirs-
dóttir, Halldór Baldursson, Jean An-
toine Posocco, Margrét Laxness,
Ragnheiður Gestsdóttir, Sara Vil-
bergsdóttir, Sigrún Eldjárn, Sigur-
borg Stefánsdóttir, Tryggvi Ólafsson
og Þóra Sigurðardóttir. Sýningin
stendur til 26. október.
Kl. 20–21.30: Rithöfundakynning í
sal Norræna hússins. Kynntir verða
höfundarnir Ulf Stark frá Svíþjóð og
Tor Åge Bringsværd. Umsjón: Lars
Göran Johansson og Gro Tove Sand-
smark, sendikennarar í sænsku og
norsku við Háskóla Íslands. Sjá
http://www.nordice.is/islenska/
barnabokkynn.html.
Veitingar í boði sendiráða Noregs
og Svíþjóðar.
Sýning á myndum úr sænskum
barnabókum í anddyri Norræna
hússins. Stendur til 28. október.
Hægt er að bóka hópa á Ævintýra-
sýningu Sjöunda himins í sýningar-
sölum Norræna hússins, virka daga
kl. 9–16. Sýningin stendur til 9. des-
ember.
Meðan á hátíðinni stendur munu
liggja frammi upplýsingar um nor-
rænu barnabókmenntastofnanirnar
og auk þess geta gestir nálgast bækl-
ing þar sem búið er að taka saman
lista yfir norrænar barna- og ung-
lingabækur sem hafa „ferðina“, í víð-
asta skilningi þess orðs, sem þema.
Ókeypis aðgangur á alla dagskrár-
liði hátíðarinnar.
Hauststemmn-
ing í Handverk
og hönnun
SÝNINGIN Ljóslifandi verður
opnuð í sýningarsal Handverks og
hönnunar í Aðalstræti 12, á morg-
un, laugardag, kl. 16. Markmiðið
með sýningunni er að skapa haust-
stemmningu með því að sýna ann-
ars vegar margvíslega lampa,
kertastjaka og kerti og hins vegar
púða og ábreiður.
Sýningin er öllum opin og val-
nefnd valdi úr innsendum munum.
Valdir voru munir frá 18 aðilum.
Þeir sem sýna eru: Arndís Jó-
hannsdóttir, Áslaug Höskuldsdótt-
ir, Fríða S. Kristinsdóttir, Guð-
björg Kr. Ingvarsdóttir, Guðlaug
Halldórsdóttir, Guðrún Indriða-
dóttir, Guðrún J. Kolbeins, Halla
Ásgeirsdóttir, Vaxandi, Hulda B.
Ágústsdóttir, Inga Elín, Margrét
Guðnadóttir, Nostra, Ólöf Erla
Bjarnadóttir, R3 & T9, Ragnheiður
Ágústsdóttir, Sigríður Örvarsdótt-
ir og TÓ TÓ. Sýningarstjóri er
Birna Kristjánsdóttir.
Sýningin stendur til 4. nóvember
og opið er alla daga nema mánu-
daga kl. 12-17. Aðgangur er ókeyp-
is.