Morgunblaðið - 12.10.2001, Qupperneq 50
50 FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Kennarar
Vegna forfalla vantar kennara til starfa á yngsta
og miðstigi við Brúarásskóla.
Upplýsingar í símum 471 1047, 471 1046
og 471 1912.
Skólastjóri.
ⓦ í Grafarholt og
í afleysingar
á Arnarnesi
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
TILKYNNINGAR
Handverksfólk athugið
Handverksmarkaður verður á Garða-
torgi laugardaginn 13. október.
Vinsamlega staðfestið básapantanir í
síma 692 6673 eða 861 4950.
Hefur þú séð þessa bifreið?
Bifreiðinni PF-251, sem er gul Renault
Clio 01 ´99, var stolið frá bílasölu við
Bíldshöfða 15. sept sl.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um bifreiðina,
vinsamlega látið lögregluna í Reykjavík vita.
Auglýsing um mat á umhverfisáhrifum —
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu
framkvæmda.
Dælu- og hreinsistöð við
svínabúið Brautarholti,
Kjalarnesi
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
dælu- og hreinsistöð við svínabúið Brautar-
holti, Kjalarnesi í Reykjavík, skuli ekki háð mati
á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/
2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofn-
un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er
einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnun-
ar: http://www.skipulag.is .
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til 9. nóvem-
ber 2001.
Skipulagsstofnun.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 1 18210128 Sk.
I.O.O.F. 12 18210128½ 9.I.
Haustdagskrá
þjóðgarðsins á
Þingvöllum
Laugardagur 13. október
Kl. 13.00 Urriðinn í Öxará. Í
þessari göngu verður saga Þing-
vallaurriðans rekin með áherslu
á Öxarárstofninn. Jóhannes
Sturlaugsson líffræðingur á
Veiðimálastofnun mun ræða um
rannsóknir á urriðanum sem
hann hefur staðið fyrir á undan-
förnum árum. Reynt verður að
hafa lifandi urriða til sýnis.
Gangan tekur um 2 klukkustund-
ir og hefst við Flosagjá. Þátttaka
í dagskrá þjóðgarðsins á Þing-
völlum er ókeypis og allir eru
velkomnir. Nánari upplýsingar
má fá í þjónustumiðstöð í síma
482 2660 og á heimasíðu þjóð-
garðsins www.thingvellir.is .
Í kvöld kl. 21 heldur Pétur
Gissurarson erindi „Er big bang
kenningin röng“ í húsi félagsins,
Ingólfsstræti 22.
Á morgun laugardag kl. 15
verður haldið sérstakt kaffisam-
sæti með dagskrá í tilefni nýs
starfsárs í húsi félagsins.
Á sunnudögum kl. 17—18 er
hugleiðingarstund með leiðbein-
ingum fyrir almenning.
Á fimmtudögum kl. 16.30—
18.30 er bókaþjónustan opin
með miklu úrvali andlegra bók-
mennta.
Starfsemi félagsins er öllum
opin.
www.gudspekifelagid.is
Aðalstöðvar KFUM og KFUK,
Holtavegi 28.
„Á flugi með Guði“
Haustátak KSS og KSF dagana
12.—14. október. Líflegar sam-
komur með fjölbreyttri dagskrá.
Sérstaklega er höfðað til ungs
fólks, engu að síður eru allir ald-
urshópar innilega velkomnir.
Föstudagskvöld klukkan
20.30.
„Þorir þú að fljúga?“ Ragnar
Gunnarsson talar laugardags-
kvöld kl. 20.30. Tveggja hæða
breskur strætisvagn KFUM og
KFUK tekinn í notkun. „Með
hverjum ferðast þú?“ Ragnhild-
ur Ásgeirsdóttir talar.
Sunnudagur klukkan 17.00.
„Kemstu á áfangastað?“ Ragnar
Gunnarsson talar sunnudags-
kvöld kl. 20.30, mikil lofgjörð,
vitnisburðir og fyrirbænir.
ILMREYNIRINN,
eða reyniviður eins og
hann er gjarnan kallað-
ur í daglegu tali, á ættir
sínar að rekja til Ís-
lands. Greinar ættar-
trés hans teygja sig um
tempraða beltið, um
Evrópu og austur í As-
íu, allt norður og austur
í Síberíu. Reynirinn
sýnir mikinn sveigjan-
leika í vali á vaxtarstað
og getur fundist allt frá
hlýjum, þurrum suður-
hlíðum yfir í rakar mýr-
ar. Hérlendis finnst
reynir einkum í birki-
skógum og þá helst inn-
an um birkikjarr þar sem reynirinn
nær að standa vel upp úr kjarrinu.
Hann myndar ekki samfelldar breið-
ur eða skóga heldur finnst helst stak-
stæður. Í öðrum löndum á hann þó til
að mynda þyrpingar af trjám.
Ilmreynir er beinvaxið, upprétt
tré sem verður um 8–12 m hátt.
Krónan er ávöl, jafnvel egglaga og
getur orðið ansi þétt. Blöð reynis eru
stakfjöðruð og talsvert stór. Blómg-
un á sér stað snemma sumars, í júní
og eru blómin stór, kremhvít og ilma
mikið og vel, eins og nafn plöntunnar
gefur til kynna. Blómin eru í stórum
hálfsveipum á endum greina og eru
því mjög áberandi. Fræflarnir í
blómunum eru nokkuð langir og gefa
því blómsveipunum loðið yfirbragð.
Þegar líður að hausti birtast svo ald-
inin, reyniberin. Þau
eru yfirleitt hárauð á lit
en til eru afbrigði af
ilmreyni með appels-
ínugul og jafnvel gul
ber. Reyniber eru eft-
irsótt af fuglum og end-
urspeglast það í lat-
neska tegundarheitinu
,,aucuparia“ sem þýðir
,„sá sem laðar að sér
fugla“. Haustlitir reyn-
isins eru sérlega glæsi-
legir en þó eru til ein-
staka tré sem fá engan
haustlit heldur frjósa
græn.
Þótt reynirinn sé
þolgóður og geri al-
mennt ekki miklar kröfur til jarð-
vegs á vaxtarstað sínum er það stað-
reynd, að tré sem fá djúpan, frjóan
og vel rakaheldinn jarðveg sýna best
þrif. Rótakerfi reynisins er nokkuð
umfangsmikið og það getur gengið
alldjúpt niður í jörðina. Sumar reyni-
plöntur eiga það til að mynda heil-
mikinn flota af rótarskotum, litlum
plöntum sem vaxa þétt upp við stofn
móðurplöntunnar. Almennt er talið
að þetta sé merki um vanþrif á plönt-
unni en einnig eru einstaklingarnir
misjafnir hvað þetta varðar. Reyn-
irinn er ákaflega ljóselskur og það
þýðir lítið að gróðursetja hann á
skuggsæla staði, hann plumar sig
mjög illa við slíkar aðstæður. Hann
sómir sér vel hvort heldur sem er
stakstæður eða í stærri hópum svo
framarlega sem hvert
tré fær notið þeirrar
birtu sem það þarf á að
halda.
Ilmreyni er fjölgað
upp af fræi eða með ág-
ræðslu. Berin eru tínd á
haustin og kjötið
hreinsað af þeim áður
en fræjunum er sáð.
Fræin geta ekki spírað
fyrr en eftir kuldatíma-
bil þannig að það er
mjög gott að sá í bakka
og geyma bakkana ut-
andyra yfir veturinn.
Við það brotna niður
spírunarhindrandi
hormón í fræjunum en
hormón þessi tryggja að
fræið spíri ekki á óhag-
stæðum tíma. Talið er
hér um bil ómögulegt að
fjölga ilmreyni með
græðlingum þannig að
það er lítið reynt. Til
skamms tíma var reyn-
inum fjölgað með vefja-
ræktun og voru þá vald-
ir sérlega beinvaxin og
fagurlimuð tré til und-
aneldis. Val á móður-
plöntu er vissulega mik-
ið atriði, hvort sem
notuð eru af henni fræ
eða sprotar. Hún þarf að vera vel
vaxin, blómviljug, fá fallega haustliti
og hafa í sér mótstöðu gegn sjúk-
dómum sem herja á reyninn. Einna
algengastur er reyniátan sem getur
leikið mörg reynitré grátt, sérstak-
lega í röku loftslagi og þar sem trén
eru svekkt á annan hátt. Reyniviður
af íslenskum uppruna er líka betur
til ræktunar hérlendis fallinn en þar
skapast vandamál því að á fyrstu
áratugum síðustu aldar var mikið
magn reyniplantna flutt inn til lands-
ins frá Danmörku og Noregi og í dag
er erfitt að finna út hvaða tré eru
innlend og hver innflutt. Ilmreynir
þrífst vel um allt land og er það gleði-
efni að eftir nokkurra áratuga lægð í
útplöntun á reyni er hann að komast
í tísku aftur.
Reynirinn skipar sérstakan sess í
þjóðtrú margra landa. Hann var tal-
inn búa yfir sérstökum
verndarmætti og álitu
menn að ef þeir bæru á
sér dálítinn sprota af
ilmreyni væru þeir
verndaðir gegn hvers
kyns galdrafári. Það
þótti gott að planta
reynitrjám í grennd við
hýbýli manna til að
bægja frá illum öndum.
Samkvæmt íslenskri
hjátrú var álitið að
reyninum fylgdu níu
náttúrur góðar og níu
náttúrur vondar.
Reyniberin eru, sem
fyrr segir, eftirsótt af
fuglum. Þau eru ekki
bragðgóð til átu en það
er alveg tilvalið að sulta
úr reyniberjum. Best er
að berin hafi frosið að-
eins áður en þau eru
tínd en einnig má skella
þeim í ísskáp eða frysti-
kistu í svolitla stund áð-
ur en þau eru notuð.
Reyniberjahlaup er bú-
ið til á sama hátt og rifs-
berjahlaup, berin soðin
í svolitlu vatni og svo sí-
uð frá safanum. Sykri
er svo bætt í safann í
hlutföllunum 1:1. Slíkt
hlaup er mjög gott með svínakjöti og
villibráð. Ef hlaupið þykir of bragð-
sterkt má milda það með því að hafa
epli í því og er þá magn berjanna
minnkað í réttu hlutfalli við magn
eplanna. Rétt er að geta þess að það
þarf að hafa hraðar hendur við ber-
jatínsluna áður en fuglarnir hafa
klárað berin.
Guðríður Helgadóttir
garðyrkjufræðingur.
VIKUNNAR
BLÓM
Um s j ó n S i g r í ð u r
H j a r t a r
463.
ILMREYNIR
Sorbus aucuparia
Ilmreynir.