Morgunblaðið - 12.10.2001, Qupperneq 51
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 51
Háteigskirkja. Samverustund eldri borg-
ara kl. 13 í umsjón Þórdísar, þjónustufull-
trúa.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45-
7.05. Mömmumorgunn kl. 10-12 í
umsjá Eyglóar Bjarnadóttur, meðhjálpara.
Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun fyrir
börn.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Sam-
komur alla laugardaga kl. 11-12.30. Lof-
gjörð, barnasaga, prédikun og biblíu-
fræðsla þar sem ákveðið efni er tekið
fyrir, spurt og svarað. Barna- og unglinga-
deildir á laugardögum. Létt hressing eftir
samkomuna. Allir velkomnir.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 14.30
helgistund á Heilbrigðisstofnun í dags-
stofu á 3. hæð. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Sjöundadags aðventistar á Íslandi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu-
fræðsla kl. 10.Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Gavin Anthony.
Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut
2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður Brynjar
Ólafsson.
Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði
40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður Elías Theo-
dórsson.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður Eric Guð-
mundsson + ungmennafélagið.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði:
Guðsþjónusta/biblíufræðsla kl. 11.
Ræðumaður Maxwell Ditta.
Safnaðarstarf
kirkjusveiflu, en þess skal getið að
Guðni, sem andaðist á síðasta ári,
hafði lagt drög að tónleikum kórs-
ins í Vestmannaeyjum. Í Eyjum er
Guðni kenndur við Landlist, þar
sem hann var fæddur, en Landlist
stendur nú á Skansasvæðinu sem
hluti af Byggðasafni Vest-
mannaeyja. Guðni var lengi org-
anisti í Bústaðakirkju. Hann varð
landskunnur fyrir kórstjórn, hljóð-
færaleik og störf sín í þágu tónlist-
ar á Íslandi.
Sr. Kristján Björnsson.
Félagsstarf
eldri borgara
í Neskirkju
EINS og verið hefur mörg und-
anfarin ár verður opið hús fyrir
eldri borgara í Neskirkju á mið-
vikudögum kl. 16. Þá er ýmislegt
sér til gamans gert og fram bornar
góðar veitingar. Ýmist biblíu-
fræðsla eða upplestur er svo kl. 17.
Farið verður í Davíðssálma á haust-
misseri annan hvern miðvikudag og
hinn verður ævisaga sér Jóns Stein-
grímssonar lesin sem framhalds-
Grensáskirkju aðstoðar. Þessi ný-
breytni í helgihaldi er liður í því að
kirkjan fari út til fólks í dagsins önn
en láti sér ekki nægja að bíða eftir
þeim sem koma til kirkjunnar. Í
innkaupum að loknum vinnudegi er
kjörið að staldra við stundarkorn
og heyra uppbyggilegt orð Guðs í
tónum og tali.
Kirkjusveifla
í minningu Guðna
frá Landlist
KIRKJUSVEIFLA verður nk. laug-
ardag í Safnaðarheimili Landa-
kirkju á vegum Bústaðakirkju í
Reykjavík til minningar um Guðna
Þ. Guðmundsson organista frá
Landlist í Vestmannaeyjum. Kór
Bústaðakirkju flytur tónlistar-
dagskrá með organistanum Jónasi
Þóri og Helga Bragasyni kórstjóra,
en kirkjusveiflan hefst kl. 15:30.
Sóknarpresturinn sr. Pálmi Matth-
íasson verður með í dagskránni en
auk hans tekur hluti sóknarnefndar
og annað starfsfólk Bústaðakirkju
þátt í þessari heimsókn. Allir eru
hjartanlega velkomnir á þessa léttu
Á MORGUN, laugardaginn 13. okt.,
verður haldið í Grensáskirkju stutt
námskeið til þess ætlað að styðja
feður í að sinna trúarlegum þætti
uppeldisins. Að námskeiðinu standa
söfnuðir Grensáskirkju og Hall-
grímskirkju. Kannanir sýna að
mæður eru almennt mestu áhrifa-
valdar í lífi barnanna varðandi
trúarlegt uppeldi. Næstar koma
ömmurnar en feður hafa að jafnaði
mun minni áhrif á þessu sviði. Mik-
ilvægt er að breyta þessu og styðja
feður til virkrar þátttöku í að ala
börnin upp í kristinni trú eins og
eðlilegt er í framhaldi skírn-
arinnar. Námskeiðið hefst kl. 9:00
árdegis og því lýkur um kl. 12:40.
Fræðslu annast nokkrir feður, þeir
dr. Gunnar E. Finnbogason dósent
við KHÍ, Gunnar J. Gunnarsson
lektor við KHÍ, Hróbjartur Árnason
guðfræðingur og sr. Sigurður Páls-
son sóknarprestur í Hallgríms-
kirkju. Fjalla þeir m.a. um kristið
trúaruppeldi í íslensku nútíma-
samfélagi, hlut feðra í trúaruppeldi
íslenskra barna, uppeldi og föð-
urhlutverkið og föðurhlutverkið
tengt ímynd karlmennskunnar.
Umræðum stýrir sr. María Ágústs-
dóttir héraðsprestur. Þátttaka er
ókeypis og öllum heimil.
Kirkjan
í Kringlunni
Í DAG, föstudaginn 12. okt., verður
götumessa í Kringlunni kl. 17. Að
messunni standa Grensássöfnuður
og Reykjavíkurprófastsdæmi
vestra. Hinn góðkunni söngvari
Þorvaldur Halldórsson annast tón-
listina og sr. María Ágústsdóttir
leiðir stundina að öðru leyti en sr.
Ólafur Jóhannsson sóknarprestur í
saga. Að því loknu er fyrirbæna-
messa kl. 18. Miðvikudagsstarfið
annast prestarnir sr. Frank M.
Halldórsson og sr. Örn Bárður
Jónsson til skiptis. Á laugardögum
kl. 14 munu samverustundirnar
verða í umsjá sr. Franks til ára-
móta. Borinn verður fram léttur
málsverður á vægu verði. Leikir og
lærðir koma í heimsókn og farið
verður í stuttar kynnisferðir um
borgina og næsta nágrenni hennar.
Næsta laugardag 13. október mun
Einar Benediktsson, fyrrverandi
sendiherra, ræða um Ísland og ár-
þúsundamótafögnuð í Vesturheimi.
Þeir sem ætla að neyta matarins
þurfa að tilkynna þátttöku sína til
skrifstofu kirkjunnar í síma 511-
1560.
Prestarnir.
Á flugi með guði
HAUSTÁTAK KSS og KSF er dag-
ana 12.-14. október. Um er að ræða
líflegar samkomur með fjölbreyttri
dagskrá þar sem sérstaklega er
höfðað til ungs fólks. Engu að síður
eru allir aldurshópar innilega vel-
komnir. Samkomurnar eru haldnar
í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi
28, Reykjavík.
Föstudagskvöldið kl. 20.30: „Þor-
ir þú að fljúga?“ Ragnar Gunn-
arsson talar.
Laugardagskvöldið kl. 20.30:
Tveggja hæða breskur strætisvagn
KFUM og KFUK tekinn í notkun.
„Með hverjum ferðast þú?“ Ragn-
hildur Ásgeirsdóttir talar.
Sunnudagur kl. 17: „Kemstu á
áfangastað?“ Ragnar Gunnarsson
talar. Mikill söngur, fjölbreytt dag-
skrá. Allir innilega velkomnir.
Sunnudagskvöldið kl. 20.30: Mik-
il lofgjörð, vitnisburður og fyr-
irbæn. Allir innilega velkomnir.
Grensáskirkja
Feðrafræðsla í
Grensáskirkju
Merinó ullarpeysur
Persónuleg þjónusta
Laugavegi 63, sími 551 4422