Morgunblaðið - 12.10.2001, Qupperneq 53
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 53
EINS og frímerkjasöfnurum
er kunnugt, gaf brezka póst-
stjórnin út fyrsta frímerkið árið
1840 sem greiðslu fyrir póstsend-
ingar. Fljótlega tóku margar aðr-
ar póststjórnir að feta í fótspor
hinnar brezku. Af Norðurlöndum
urðu Danir fyrstir til að taka upp
þessa greiðsluaðferð árið 1851.
Norðmenn, Svíar og Finnar
tóku svo upp þennan
sið næstu ár á eftir.
Ísland bættist síðan
í hópinn með eigin
frímerki 1873.
Fyrsta frímerki í
Danmörku, 4 ríkis-
bankaskildinga-
merki, kom út 1. apr-
íl 1851. Eru því liðin
150 ár frá þessum
merka atburði í
danskri og norrænni
póstsögu. Danskir
frímerkjasafnarar
minnast hans nú í
samvinnu við
dönsku, grænlenzku
og færeysku póst-
stjórnirnar og eins í
samvinnu við Félag
danskra frímerkja-
kaupmanna. Al-
þjóðasýningin verð-
ur haldin með
veglegum hætti í stærsta sýning-
arsal í Danmörku, Bella Center,
undir vernd FIP, þ.e. Alþjóða-
sambands frimerkjasafnara.
Umboðsmaður HAFNIU 01 á Ís-
landi er Jón Aðalsteinn Jónsson,
en dómari af hálfu Íslands er
Hálfdan Helgason.
Einkunnarorð sýningarinnar:
„Við byggjum brú“ höfðar til
brúnna yfir Stórabelti og svo yfir
Eyrarsund, sem tengja saman
landssvæði og lönd. Þau eiga
einnig að vera táknræn fyrir
HAFNIU 01, sem á að vera brú
milli danskra safnara, brú milli
safnara um heim allan, brú milli
þjóða heims, brú milli ólíkra
áhugamála og brú, sem nær til
nýrra safnara og allra fjöl-
skyldna.
HAFNIA 01 er fjórða alþjóða-
sýningin með þessu nafni í Dan-
mörku frá 1976, en þær hafa allar
verið haldnar í Bella Center úti á
Amager í Kaupmannahöfn.
Um 2200 rammar verða á sýn-
ingunni með fjölbreyttu frí-
merkjaefni úr víðri veröld, en
ekki sízt frá Danmörku sjálfri og
öðrum Norðurlöndum. Því miður
er ekki unnt í stuttu máli að
greina frá því efni, sem verður
þarna til sýnis. Óhætt er einungis
að fullyrða, að enginn verður fyr-
ir vonbrigðum að skoða þá sýn-
ingu. Það þekki ég sjálfur af fyrri
reynslu.
Héðan að heiman verður einn-
ig margt áhugavert sýnt á
HAFNIU 01, sem snertir ís-
lenzka póst- og frímerkjasögu,
Þjóðskjalasafni Íslands hefur
verið boðið að sýna í heiðursdeild
hluta af safni sínu af skildinga-
bréfum, en í því eru margir fá-
gætir hlutir og sumir hvergi til
annars staðar..
Að vonum fer ekki mikið fyrir
íslenzkum þátttakendum á
NORDIU 01, en þar verða sýnd
fjögur mjög góð söfn, sem ís-
lenzkir frímerkjasafnarar þekkja
raunar vel frá fyrri sýningum.
Indriði Pálsson sýnir í átta
römmum í samkeppnisdeild hið
einstæða og skemmtilega safn
sitt af íslenzku frímerkjaefni frá
1836 til 1902.
Megintilgangur Indriða með
safni sínu er að sýna þróun póst-
þjónustunnar á Íslandi frá ofan-
greindu tímabili.
Fyrst eru svokölluð forfrí-
merkjabréf, en þau voru send
milli manna, áður en frímerki
komu til sögunnar á Íslandi. Þau
bera hins vegar ýmsar áritanir
og stimpla, sem þau fengu á leið
sinni til viðtakenda sinna. Þessi
bréf eru sjaldgæf og því hinir
mestu kjörgripir. Á árunum 1870
til 1872 voru notuð dönsk frí-
merki á póstsendingar héðan til
útlanda, en frá 1873 tóku íslenzk
frímerki við til burðargjalds.
Indriði sýnir mismunandi prent-
anir þeirra og eins stimpla á þeim
eftir póstafgreiðslustöðum, bæði
stökum og á heilum umslögum.
Svo oft hefur þessa frábæra og
einstæða safns verið getið í þátt-
um mínum, að óþarft er að fjöl-
yrða um það að þessu
sinni.
Sigurður R. Pét-
ursson sýnir í sam-
keppnisdeild safn sitt
af Tveggja kónga frí-
merkjum, sem út
komu á árunum 1907
- 15. eru þau með
vangamyndum af
þeim feðgum Krist-
jáni IX. Og Friðriki
VIII. Er safnið í
fimm römmum. Hér
eru öll frímerki og
bréfspjöld með
tveimur kóngum og
helztu afbrigði þeirra
í tökkun og vatns-
merki. Eins er sýnd
póstnotkun þeirra,
meðan þau giltu til
burðargjalds. Þá
sýnir Sigurður
notkun svonefndra
upprunastimpla, kórónustimpla,
númerastimpla og brúarstimpla
á þessum frímerkjum. Eins má
sjá erlenda stimpla á frímerkjum
þessum og auk þess, hvernig þau
voru notuð á tollskýrslum.
Umsjónarmaður þessara frí-
merkjaþátta tekur einnig þátt í
sýningunni, en með dönskum frí-
merkjum. Eru þau svonefnd tví-
lit merki, sem út komu frá 1870 -
1905. Þessi frímerki hafa löngum
þótt látlaus, en falleg og því verið
áhugamál margra danskra safn-
ara. Ekki sízt þess vegna þykir
umsjónarmanni gaman að sýna
Dönum, að áhugi sé einnig á þeim
hér á Fróni. Í þessu safni eru
bæði skildinga- og aurafrímerki í
margs konar prentunum og einn-
ig með fjölmörgum afbrigðum,
sem upp komu við prentun
þeirra. Þá eru hér fjölmörg bréf
og bréfspjöld með þessum frí-
merkjum á til Íslands og annarra
landa, bæði vestan hafs og austan
og það allt austur til Kína.
Guðni Friðrik Árnason er
yngstur íslenzku sýnendanna,
Hann sýnir hér í fimm römmum
mótífsafn sitt, sem fjallar um
Kristófer Kólumbus og fund Am-
eríku. Þetta safn hefur verið á
allmörgum sýningum og hlotið
góða dóma, m.a. gyllt silfur í
Kína og í Svíþjóð. Við hér heima
þekkjum þetta safn Guðna vel, en
ég hygg hann sé enn að bæta við
það milli sýninga.
Heyrt hef ég, að nokkrir ís-
lenzkir frímerkjasafnarar og
kaupmenn muni sækja HAFNIU
01 heim. Fer vel á því, að við sýn-
um dönskum frímerkjasöfnurum
þannig virðingu okkar á þessu
merkisári í sögu danskra frí-
merkja og póstsögu.
Þá verða að venju margir
kaupmenn á sýningunni með alls
konar frímerkjaefni, sem getur
komið söfnurum að góðum notum
í söfnum sínum.
Hafa safnarar eimitt oft fengið
áhugaverða hluti í söfn sín á al-
þjóðasýningum.
Að lokum má segja, að þetta sé
nokkuð viðráðanleg ferð fyrir ís-
lenzka frímerkjasafnara, því að
HAFNIA 01 er næstum við bæj-
ardyr okkar, eins og samgöngu-
málum er háttað nú á dögum.
HAFNIA 01
FRÍMERKI
K a u p m a n n a h ö f n
ALÞJÓÐAFRÍMERKJA-
SÝNING
Dagana 16.–21.
október nk.
Kjörorð sýning-
arinnar er „Við
byggjum brú“.
Jón Aðalsteinn Jónsson
262 HUNDAR af 40 tegundum voru
til sýnis á alþjóðlegri sýningu
Hundaræktarfélags Íslands, sem
haldin var í reiðhöllinni Ingólfshvoli
í Ölfusi um síðustu helgi. Sýningin
er einskonar uppskeruhátíð yfir árið
fyrir Hundaræktarfélagið.
Stigahæsti hundur ársins, sá
hundur sem hefur náð bestum ár-
angri á sýningum félagsins síðustu
12 mánuði, var boxer-hundurinn
Bjarkeyjar-Patrick Joe, sem Finna
Birna Steinsson á. Besti hundur
sýningarinnar var íslenskur fjár-
hundur að nafni Hektor og er eig-
andi hans Jóninna Hjartardóttir.
Besti hvolpur sýningar var Leiru-
Runa Gunn, sem einnig er íslenskur
fjárhundur en hún er dóttir Hek-
tors. Eigandi er Guðríður Valgeirs-
dóttir. Besti öldungur sýningarinn-
ar var border collie sem heitir
Fenacre Blue Azil og eru eigendur
Björn Ólafsson og Lára Birgisdótt-
ir.
Stór hópur barna og unglinga tók
þátt í keppni ungra sýnenda, þar
sem samband milli sýnanda og
hunds skiptir höfuðmáli. Besti sýn-
andi í eldri flokki, 14–17 ára, var
Steinunn Þóra Sigurðardóttir með
hundinn Bio Bios Rambo af tegund-
inni tíbet spaniel. Steinunn Þóra var
jafnframt stigahæsti ungi sýnandi
ársins og fer hún næsta vor til Bret-
lands þar sem hún mun taka þátt í
heimskeppni ungra sýnenda fyrir
hönd Íslands. Í yngri flokki, 10–13
ára sýnenda, var Stefanía Kristjáns-
dóttir með hundinn Ævintýra-
Þyrnirós er besta barn, af tegund-
inni shih tzu. Þórður Rafn Guð-
mundsson var stigahæsti sýnandi
ársins í yngri flokki.
Besti ræktunarhópur sýningar-
innar var Nettu-Rósar ræktun, cav-
alier king charles spaniel í eigu
Halldóru Friðriksdóttur, hún fékk
jafnframt verðlaun fyrir besta af-
kvæmahóp sýningarinnar fyrir
sömu tegund, fyrir tíkina Nettu-
Rósar Pandóru með fjögur af-
kvæmi. Besta par sýningarinnar
voru Bio Bios Rambo og Silfur
Delores af tegundinni tíbet spaniel.
Á fjórða tug hunda fékk
alþjóðlegt meistarastig
Þetta var alþjóðleg sýning, þar
sem hundar geta fengið alþjóðlegt
meistarastig. Hundarnir þurfa að fá
stig frá fjórum dómurum frá mis-
munandi löndum til að fá slík verð-
laun og segir Emilía Sigursteins-
dóttir, sýningarstjóri sýningar-
innar, að á fjórða tug hunda hafi
fengið alþjóðlegt meistarastig að
þessu sinni.
Tveir erlendir dómarar dæmdu á
sýningunni, Ole Staunskjær frá
Danmörku og Leif Herman Wilberg
frá Noregi og segir Emilía að þeir
njóti báðir mikillar virðingar á vett-
vangi alþjóðlegra hundasýninga, en
Staunskjær hefur t.d. dæmt talsvert
á heims- og Evrópusýningum.
Alþjóðleg sýning Hundaræktarfélags Íslands
Feðgin í efstu sætunum
Ljósmynd/Sigurgeir Birgisson
Steinunn Þóra, besti sýnandi í eldri
flokki og stigahæsti ungi sýnandi
ársins, með hundinn Bio Bios
Rambo af tegundinni tíbet spaniel.
Íslenski fjárhundurinn Hektor var valinn besti hundur sýningarinnar og dóttir hans, Leiru-Runa Gunn, besti
hvolpurinn. Til vinstri má sjá Jóninnu Hjartardóttur með Hektor, ásamt dómurunum Leif Herman Wilberg og
Ole Staunskjær. Á myndinni til hægri er Auður Sif Sigurgeirsdóttir með besta hvolpinn.
Þórður Rafn Guðmundsson,
stigahæsti sýnandi ársins í yngri
flokki, með Papillon-hund.