Morgunblaðið - 12.10.2001, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 12.10.2001, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 59 DAGBÓK JÓN Hjaltason og Hermann Friðriksson unnu Reykja- víkurmótið í tvímenningi sem fram fór í Hreyfilshús- inu á laugardaginn. 26 pör mættu til leiks og voru spil- uð 48 spil. Sigur Jóns og Hermanns var sannfærandi, þeir fengu 59,5% skor, en parið í öðru sæti, Guðjón Bragason og Vignir Hauks- son, hlaut 57,3% skor. Í þriðja sæti urðu Heiðar Sig- urjónsson og Þröstur Þor- láksson með 56,9%. Jón og Hermann gáfu tóninn strax í fyrsta spili: Suður gefur; enginn á hættu. (Áttum snúið.) Norður ♠ ÁK8 ♥ 10963 ♦ G10 ♣ ÁD98 Vestur Austur ♠ – ♠ 10976432 ♥ Á84 ♥ 5 ♦ Á976542 ♦ K8 ♣G52 ♣643 Suður ♠ DG5 ♥ KDG72 ♦ D3 ♣K107 Vestur Norður Austur Suður Jón Hermann – – – 1 hjarta 3 tíglar 4 tíglar * Dobl 4 hjörtu 5 tíglar 5 hjörtu Pass Pass Pass * Góð hækkun í fjögur hjörtu. Fimm tíglar fara tvo niður og það gaf NS ágæta skor að taka 300 í þeim samningi. En hér ákvað norður að reyna við fimm hjörtu, enda þótti honum sennilegt að suður væri með einspil í tígli. Jón kom út með tígul- níuna undan ásnum, sem var hávært hróp í spaða. Her- mann skildi hvað klukkan sló þegar hann átti slaginn á kónginn og sendi spaða til baka. Fimm hjörtu fóru þannig tvo niður og sigur- vegararnir hlutu að launum 100-kall. Það reyndist nóg í 22 stig af 24 mögulegum. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson LJÓÐABROT GRÍMR HJALTASON (13. öld) Eisandi veðr undan uður, nú er hvast ór suðri, stærir sterkar bárur, (starf era smátt) fyr Hvarfi; klökkr verðr kjölr, en rakkan kemr hregg í stað seggjum, nú eru fjöll á sæ sollin; súð gengr æ sem prúðast. Árnað heilla 50ÁRA afmæli. Á morg-un, laugardaginn 13. október, verður fimmtug Jenný Olga Pétursdóttir, Geithömrum 3, Reykjavík. Eiginmaður hennar er Veig- ar Már Bóasson. Í tilefni þess taka þau á móti gestum á heimili sínu á morgun milli kl. 17 og 20. Ljósmyndaverið Skugginn BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 16. júní sl. í Frí- kirkjunni í Hafn- arfirði af sr. Árna Bergi Sigur- björnssyni Guð- rún Jakobsdóttir og Svavar Sig- þórsson. Hlutavelta Morgunblaðið/RAX Þessir duglegu krakkar héldu tombólu til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðu kr. 4.950. Þau heita Anna Guð- laug, Íris Björk, Jóna Dóra, Adda Margrét og Stefán Óskar. 1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 b5 4. Rf3 g6 5. cxb5 a6 6. b6 d6 7. Rc3 Bg7 8. e4 O-O 9. Db3 Bb7 10. a4 a5 11. Rd2 Rbd7 12. Rc4 Rg4 13. Bg5 Rde5 14. h3 Rxc4 15. hxg4 Rxb6 16. Rb5 Bc8 17. Dg3 f6 18. Bd2 Hf7 19. Ha3 Bd7 20. Dh2 Bh8 21. Hh3 h5 Bosníumaðurinn Ivan Sokolov (2659) er íslenskum skák- áhugamönnum að góðu kunnur enda hefur hann ósjaldan telft á hérlendri grundu. Hann mun að öllum líkindum heiðra landann með nærveru sinni í Ís- landsmóti taflfélaga ásamt því að taka þátt í minningarmóti Jóhanns Þóris Jóns- sonar. Ivan er afar grimmur eins og hinn frægi nafni hans, en ólíkt nafnanum ein- skorðar Bosnímaðurinn sig við skákborðið. Þessu fékk andstæðingur hans, Jan Vidar Vestly (2109), svart, að kynnast. 22. Hxh5! gxh5 23. Dxh5 Bg7 24. Dh7+ Kf8 25. Bh6 e5 26. Rxd6! Be8 27. Rxf7 Bxf7 28. Bxg7+ Ke7 29. Bxf6+ Kxf6 30. Dh4+ Kg6 31. Dh6#. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik.      Ef ég væri forsætis- ráðherra þá væri mamma ekki alltaf að finna að við mig. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake VOG Afmælisbarn dagsins: Þú átt auðvelt með að um- gangast aðra og það tryggir þér aðgang að allskonar mönnum og málefnum. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú þarft að binda svo um hnútana að ekki verði hægt að koma þér á óvart með að- finnslum við starf þitt. Hlust- aðu á gagnrýni og reyndu að læra af henni. Naut (20. apríl - 20. maí)  Stundum á það við að fara eft- ir tilfinningunni en oftast er það nú tryggara að kanna málin fyrst áður en gripið er til einhverra aðgerða. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Hláturinn lengir lífið og þú skalt fyrir alla muni hlæja svolítið með samstarfsmönn- um þínum því það léttir ykk- ur bara vinnuna og tryggir betri árangur. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Láttu ekki þrýsta þér til ein- hverra aðgerða í fjármálum heldur farðu þér hægt og kannaðu alla valkosti áður en þú gerir upp hug þinn. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Láttu ekkert tækifæri ónotað til þess að tjá þig með ein- hverjum hætti því það er þér nauðsyn. Takist það ekki get- ur þú beðið tjón á heilsu þinni. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Ekki er allt gull sem glóir og mörg þau tilboð í gangi sem betra er að láta framhjá sér fara. Gömul hugmynd leitar á þig og þú ættir að gefa henni tækifæri. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú kynnist manneskju sem hefur mikil áhrif á þig með framkomu sinni. Það er samt ástæðulaust að þú fallir alveg í duftið fyrir viðkomandi. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Skemmtilegir atburðir á heimaslóð eru þér dýrmætir. Þú mátt ekkert gera til þess að eyðileggja þá hamingju. Sýndu samstarfsfólki þínu til- litssemi. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú færð tækifæri til þess að auka við þekkingu þína og þótt það virðist erfitt í fyrstu skaltu ekki láta það framhjá þér fara. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það hefur ekkert upp á sig að rembast eins og rjúpan við staurinn við að finna upp hjól- ið. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú þarft að sýna sérstaka þol- inmæði í samskiptum við vini og vandamenn. Leyfðu mál- um að hafa sinn gang og reyndu ekki að þrýsta á þau með neinum hætti. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú mátt eiga von á allskonar töfum af tæknilegum ástæð- um. Láttu þær ekki fara um of í taugarnar á þér því þótt tæknin sé góð er hún ekki óskeikul. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Fataverslun Garðatorgi, sími 565 6550. Danskar kvenúlpur kr. 12.990 Húfur, treflar og hanskar BÚÐIN Afrískar trommur Trommunámskeið 6 vikna námskeið frá 12. okt. - 25. nóv. Kennt er á föstudögum kl. 17.00 og sunnudögum kl. 14.00 í Gerðubergi Kennari er Alseny Sylla frá Gíneu, kennari í Kramhúsinu. Trommur á staðnum. Upplýsingar og skráning í símum 698 6272 og 690 0204. Nýjar vörur Heilsárskápur Ullarkápur, stuttar og síðar Stuttir kanínupelsar Ódýrir gervipelsar Úlpur — Jakkar Hattar — Húfur Silki — Sjöl — Slæður Kr. 21.900 Kamel Grátt Svart Mörkinni 6, 108 Reykjavík, sími 588 5518 Opið laugardag kl. 10-15 FRÉTTIR ÁSTA Magnúsdóttir og Björn Ingi Pálsson, Kvistum, og Hólmfríður Björnsdóttir og Jónatan Arnar Örlygs- son, Gulltoppi, náðu þeim árangri að komast í úrslit í danskeppninni Int- ernational Brentwood í Bretlandi. Með þessu hafa bæði pörin náð úr- slitum í báðum greinum, en Björn og Ásta urðu í þriðja sæti í suður-amerísk- um dönsum og fimmta sæti í þeim sí- gildu í aldursflokknum ellefu ára og yngri. Jónatan og Hólmfríður urðu í fjórða sæti í suður-amerísku dönsunum og sjötta sæti í þeim sígildu í flokki tólf til þrettán ára. Í undanúrslitum í báðum greinum voru: Karl Bernburg og Helga Soffía Guðjónsdóttir, Ásta Bjarnadóttir og Þorleifur Einarsson og Sandra Júlía Bernburg og Friðrik Árnason. Davíð Gill Jónsson og Helga Björnsdóttir komust í undanúrslit í suður-amerísk- um dönsum. Ásta Björg og Björn Ingi hlutu einn- ig 2. verðlaun í latindönsum í flokki 11 ára og yngri og 3. sæti í ballroomdöns- um í London open keppninni. Helga Soffía Björnsdóttir og Karl Bernburg lentu í 3. sæti í latindönsum og 2. sæti í ballroomsdönsum í sömu keppni. Þá náðu Ásta Björg og Björn Ingi 3. sæti í latindönsum í London interna- tional chamionship, en keppni fór fram sl. þriðjudag. Þar var afar hörð keppni milli para sem komu frá mörgum lönd- um. Hólmfríður og Jónatan urðu í 4. sæti í latindönsum í keppni 14 ára og yngri. Þau eru núverandi Norður- landamestarar. Karen og Adam Reeve unnu 2. verðlaun í latin flokki sem kall- aður er Professinal rising star. Þessi pör kepptu einnig í ballrooms- dönsum og náðu góðum árangri. Karen og Adam unnu sér rétt meðal 30 para til að dansa í Royal Albert Hall. Yfir 100 pör tóku þátt í þessum riðli. Keppn- in í Royal Albert Hall þykir afar virt og komast einungis 30 bestu dansarar heims í þá keppni. Ásta Björg Magnúsdóttir og Björn Ingi Pálsson. Góður árangur í danskeppnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.