Morgunblaðið - 12.10.2001, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 63
betra en nýtt
Sýnd kl. 6. Ísl tal.
Nýr og glæsilegur salur
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 8, 10 og 12.
Sýnd kl. 8, 10.15 og 12.30.
FRUMSÝNING
Frá leikstjóra
Romeo &
Juliet.
Stórkostleg
mynd með
mögnuðum
leikurum og
frábærum
lögum
Moulin Rouge er án efa besta mynd
ársins hingað til...
E.P.Ó. Kvikmyndir.com
FRUMSÝNING
FRUMSÝNING
KRAF
T
Sýnin
g
í THX
DIG
ITAL
Kl. 1
2.30
.
i
í
l
KRAFTSýningí THX DIGITALKl. 12.
Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit 245
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 269
Kurt Russell, Kevin Costner, Courteney Cox,
Christian Slater, David Arquette og Jon Lovitz í
hörkuspennandi mynd um rán á spilavíti
í glansborginni Las Vegas.
Konugur glæpanna er
kominn!
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 8 og 10.B.i.16áraVit 280. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 269
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 10.
FRUMSÝNING
Stór fengur
Tveir þjófar
Hverjum er
hægt að
treysta
Í glæpum áttu enga vini
Robert De Niro fer hér á kostum í frábærri
spennumynd ásamt Edward Norton sem er á hraðri
leið með að verða einn besti leikari samtímans
MAGNAÐ
BÍÓ
Sýnd. 5.30, 8 og 10.30.
Hrikalega flott ævintýramynd með hinum sjóðheita og sexý
Heath Ledger (Patriot). Hugrakkar hetjur, fallegar meyjar,
brjálaðar bardagasenur og geggjað grín. Búðu þig undir
pottþétta skemmtun! Cool Movie of the Summer! Rolling
Stone Magazine Hann Rokkar feitt!
Sýnd. 5.30, 8 og 10.30.
Frá leikstjóra
Romeo &
Juliet.
Stórkostleg
mynd með
mögnuðum
leikurum og
frábærum
lögum
Moulin Rouge er án efa besta mynd
ársins hingað til...
E.P.Ó. Kvikmyndir.com
Empire
FRUMSÝNING
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 8 og 10.10.
Kvikmyndir.com RadioX
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 6. Ísl tal.
Stór fengur
Tveir þjófar
Hverjum er
hægt að
treysta
FRUMSÝNING
Kvikmyndir.com
HK. DV
Sprenghlægileg mynd
frá sama manni og
færði okkur Airplane og
Naked Gun myndirnar.
Hér fara á kostum
Rowan Atkinson, hinn
eini sanni Mr. Bean, og
John Cleese, úr Monty
Python, ásamt fleiri
frábærum leikurum.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
HÉR á landi er staddur franski
kvikmyndagerðarmaðurinn Rachid
Bouchareb í boði Fransk-íslenska
verslunarráðsins. Tilgangur Bouch-
areb með ferðinni er að hitta ís-
lenska starfsbræður sína og aðra
aðstandendur íslenskrar kvik-
myndagerðar en hann er alvarlega
að íhuga að taka sína næstu mynd
hér á landi.
Bouchareb þykir einn af athygl-
isverðustu leikstjórum Frakka í
dag og hafa myndir hans verið
valdar til sýningar á nokkrum af
helstu kvikmyndahátíðum heims.
Hann vann til sérstakra dómnefnd-
arverðlauna á Cannes-kvik-
myndahátíðinni árið 1991 fyrir
myndina Cheb, en þau eru veitt
ungum og efnilegum frönskum
kvikmyndagerðarmönnum, og
næsta mynd hans á eftir, Poussièr-
es de vie, var bæði tilnefnd til Gold-
en Globe- og Óskarsverðlauna sem
besta erlenda myndin.
Bouchareb er með nýjustu mynd
sína, Litla Senegal, með-
ferðis en hún var tilnefnd
til Gullbjarnarins í Berlín
fyrr á árinu.
Litla Senegal fjallar
um 65 ára gamlan Sene-
gala sem starfað hefur
um árabil sem leiðsögu-
maður í heimalandi
sínu. Þegar hann er orð-
inn ekkill og fremur
einangraður ákveður hann í skyndi
að skella sér vestur um haf, nánar
tiltekið til New York, í leit að ætt-
ingjum sínum. Ekki gengur það
eins auðveldlega og hann hafði gert
ráð fyrir en á leit sinni kynnist
hann nýjum og framandi heimi og
fær innsýn í þá útskúfun sem fyrsta
kynslóð afrískra innflytjenda þarf
að þola, jafnvel frá þeim sem hann
taldi bræður sína og velunnara,
„afrískum Bandaríkjamönnum“.
Litla Senegal verður sýnd, að
Bouchareb viðstöddum, í Regnbog-
anum í kvöld klukkan 18.30.
Athyglisverð frönsk mynd í Regnboganum
Litla Senegal
Sotigui Kouyaté í hlutverki
Senegalans sem fer í víking.
BANDARÍSKA síðrokk-
sveitin Trans Am er
stödd hér á landi og hefur
nú þegar leikið á tvenn-
um tónleikum, í Mennta-
skólanum við Sund í
fyrradag og á Gauki á
Stöng í gærkvöld. Nú
geta þeir sem misstu af
einhverri ástæðu af þess-
um ágætu tónleikum
andað léttar því vegna
mikils áhuga hefur Trans
Am ákveðið að bæta hin-
um þriðju við. Verða þeir
haldnir á Spotlight í
kvöld. Fucking Champs
hitar upp líkt og á
Gauknum en þar að auki
mega viðstaddir eiga von
á óvæntum gestum.
Aðgangseyrir er 2.000
krónur og húsið verður
opnað kl. 23.00.
Enn meiri Trans Am
Trans Am
við arineld.
VINSÆLASTA ballsveit Íslands í
seinni tíð er efalaust Stjórnin, með
þau Grétar Örvarsson og Siggu
Beinteins í broddi fylkingar. Í fjög-
ur ár lék sveitin helgi eftir helgi á
Hótel Íslandi fyrir fullu húsi og síð-
ar í Þjóðleikhúskjallaranum við
ekki síður
miklar vin-
sældir.
Sveitin
hefur nú
ákveðið að
koma sam-
an á nýjan leik og verður vettvang-
urinn veitingahúsið Broadway, sem
hýsti einmitt Hótel Ísland hér í eina tíð.
Föst sæti í Stjórn hafa ávallt átt þau
Grétar Örvarsson og Sigga Beinteins
en aðrir Stjórnarmenn í þetta sinnið
eru þeir Jóhann Ásmundsson á bassa,
Sigfús Óttarsson á trommur, Kristján
Grétarsson á gítar og
Kristinn Svavarsson á
saxófón og slagverk.
„Við tókum að
okkur að spila á
átta kvöldum fram
til áramóta og ætl-
um að rifja upp
gömlu stemmn-
inguna,“ segir
Grétar Örv-
arsson.
Hann segir ástæðuna fyrir end-
urkomunni m.a. liggja í þrýstingi frá
húsinu.
„Það er mikill utanaðkomandi
áhugi fyrir þessu. Við ætluðum auð-
vitað að koma einhvern tíma saman
aftur til að spila. Við erum ekki þetta
yfirlýsingaglaða fólk og höfum aldrei
komið með stórar yfirlýsingar í blöð-
unum um að við værum endanlega
hætt.“
Grétar segir að sveitin hafi ekkert
spilað í tvö ár.
„Okkur fannst því allt í lagi að
snúa vélinni aftur í gang enda frábær
mannskapur með í för núna.“
Þessi nýjasta útrás Stjórnarinnar
hefst í kvöld á Broadway í kjölfar
uppskeruhátíðar KSÍ. Fylgist með
frá byrjun!
Stjórnin á Broadway
Verði stuð!
Þau Grétar Örvarsson og Sigga Beinteins
munu halda uppi feiknastuði á Broadway í
kvöld ásamt öðrum Stjórnarliðum.