Morgunblaðið - 17.10.2001, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 17.10.2001, Qupperneq 22
LISTIR 22 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í dag opnum við lagersölu á Laugavegi 67 Kápur Úlpur Dragtir Kjólar Buxur Pils Toppar Skór Stærðir 36-52 Opið kl. 11-18 MYNDLISTARSÝNING á vegum WHO, Evrópudeildar Alþjóða Heil- brigðisstofnuninnar, verður opnuð í Aðalsal Hafnarborgar, menning- ar- og listastofnun Hafnarfjarðar, í dag kl. 18. Sýningin hefur yf- irskriftina ListVerkun og er sam- starfsverkefni Evrópudeilda um baráttu gegn tóbaksreykingum og hefur farið víða. 20 af framsæknustu listamönnum Evrópu hafa verið fengnir til starfa í því augnamiði að hvetja fólk til að leita sér aðstoðar við að hætta reykingum. Listamennirnir eru Stefano Arienti, Miroslaw Balka, Heike Baranowsky, Pedro Barb- eito, Jean-Marc Bustamante, Wim Delvoye, Milena Dopitova, Dom- inique Gonzalez-Foerster og Ange Leccia, Zuzanna Janin, Olav Christopher Jenssen, Komar og Melamid, Zofia Kulik, Lisa Milroy, Nakis Panayotidis, Thomas Ruff, Sarah Staton, Gavin Turk, Not Vit- al, Julian Walker og Chen Zhen. Listamennirnir hafa hver sinn hátt á því hvernig þeir takast á við verkefnið og vinna í ýmsa miðla, s.s. höggmyndir, myndbönd, mál- verk og ljósmyndir. Í verkunum takast þeir á við þann heilsuskaða sem reykingar valda, en einnig það hvernig tísku- heimurinn hefur fegrað ímynd reykingamannsins og hvernig aug- lýsingaherferðir tóbaksframleið- enda reyna að rugla fólk í ríminu. Hafnarborg er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11-17 og sýningunni lýkur 12. nóvember. Verk eftir Milenu Dopitovu. Myndlist gegn tób- aksreyk- ingum ♦ ♦ ♦ NORRÆNA húsið í Reykjavík stóð fyrir barnabókahátíðinni Köttur úti í mýri í síðustu viku. Meginmarkmið hátíðarinnar var að miðla norrænum bókmenntum og frásagnarheimi til barna og unglinga. Margvíslegir möguleikar voru nýttir til að setja fram sögur og leyfa börnum og full- orðnum að upplifa ævintýri þeirra. Þótt Norræna húsið væri gestgjaf- inn, naut það samstarfs ýmissa stofnana við undirbúning hátíðar- innar. Þar á meðal voru Borgar- bókasafn Reykjavíkur, Listasafn Gautaborgar, Samtök íslenskra barna- og unglingabókahöfunda, IBBY á Íslandi, Norrænir sendi- kennarar við Háskóla Íslands og Tante Andante frá Danmörku. Með- al viðburða á hátíðinni voru opnun sýningar á myndum úr barnabókum í Borgarbókasafninu, norrænt höf- undaþing og ráðstefna um norrænar barna- og unglingabókmenntir. Til ráðstefnunnar var boðið fræðimönn- um og barnabókahöfundum sem skiptust á skoðunum og leiddu gesti um heima barnabókmenntanna með fyrirlestrum og upplestr- um. Barnabókmenntir heimspekilegri en áður Dagný Kristjánsdóttir, prófessor við Háskóla Ís- lands, hélt fyrirlestur sem hún nefndi Barnet som en lille voksen – igjen? Hún rakti hvernig viðhorf manna til barnsins og bernskunnar hefur tekið breytingum í aldanna rás og endurspeglar breyting- ar á samfélaginu. Að henn- ar dómi er afstaðan til bernskunnar nú á dögum líklega flóknari en nokkru sinni fyrr og einkennist af óöryggi hvað varðar hlut- verk og ábyrgð barna og fullorðinna. Barnabók- menntir nútímans bera þessu einnig vott, þær eru til dæmis orðnar mun heimspekilegri en áður var og velta gjarnan upp erfiðum spurningum og ræða þær án þess endilega að halda fram eindregnum og óyggjandi lausnum. Åse Kristine Tveit, lektor við Høgskolen i Oslo, ræddi um stöðu barna- og unglingabókmennta í Noregi út frá þemanu ferðalög, bæði í bókstaflegum og yfirfærðum skilningi, en ferðin hefur bæði fyrr og síðar verið vinsælt og algengt þema í barnabókmenntum. Hún ræddi um það hvernig bæði innri og ytri ferðalög geta verið mismunandi hvað varðar afstöðuna til sam- ferðafólksins og þess ókunna sem við mætum og hvernig við sem lesendur komum aftur í heimahöfn ýmist söm og þegar lagt var af stað eða víðsýnni en áður, allt eftir því hvernig sagan leiðir okkur áfram. Hryggð og hlátur í finnskum sögum Janina Orlov, barnabókmennta- og slavneskufræðingur, leiddi gesti inn í heim finnskra barnabókmennta og skýrði frá sögu þeirra og stöðu í nútímanum. Raunsæislegar barna- og unglingabókmenntir standa styrkum fótum í finnskri hefð, ásamt með ævintýra- og ljóðahefðinni. Svo- lítið þunglyndislegt yfirbragð, en þó samofið kímni, virðist einkenna finnskar barna- og unglingabók- menntir, sem Janina lýsti á þann veg að hryggð og hlátur leiddist hönd í hönd. Torben Weinreich, prófessor við Center for børnelitteratur í Dan- mörku, lýsti stöðu barnabókmennta þar í landi á þann veg að ráðstefnu- gestir frá öðrum löndum gátu ekki leynt aðdáun sinni og jafnvel öfund! Eindreginn stuðningur yfirvalda við barnabókmenntir og barnabókaút- gáfu hefur leitt af sér að þær standa nú með miklum blóma, mikill fjöldi titla er gefinn út og þótt þar kenni að sjálfsögðu ýmissa grasa er mikið framboð á góðum barna- og ung- lingabókum. Í Danmörku kaupa al- menn bókasöfn og skólabókasöfn langstærstan hluta þeirra barna- bóka sem út koma, eða allt að 90% upplagsins. Nýr íslenskur barnabókavefur Þuríður Jóhannsdóttir, M.Ed. við Kennaraháskóla Íslands, kynnti ráðstefnugestum nýjan íslenskan vef um barna- og unglingabók- menntir, http://barnung.khi.is. Þar er safnað saman áhugaverðum upplýsingum og kynningum á bók- um og höfundum þeirra, hugmynd- um um notkun þeirra í kennslu, um- sögnum barna og fullorðinna með meiru og þar gefst ungum lesendum kostur á að tjá sig um bækur og bók- lestur. Kristin Hallberg, kennslu- fræðingur, sem um árabil hefur skrifað ritdóma um barnabækur í Svíþjóð, gerði grein fyrir stöðu barna- og unglingabókmennta þar í landi. Hún sagði umfjöllun um barnabókmenntir í fjölmiðlum hafa dregist nokkuð saman á síðastliðn- um áratug eða svo, enda væri nú meira greint frá barnaefni í öðrum miðlum, kvikmyndum, tónlist o.s.frv., án þess að heildarrými til umfjöllunar um barnamenningu hefði aukist. Hún ræddi um tengsl bókmenntanna við aðra menningar- geira og hvernig barnabókmennt- irnar vísa til dæmis í kvikmyndir, sjónvarp og tónlist. Milli þess sem ráðstefnugestir hlýddu á fræðilega fyrirlestra nutu þeir upplesturs rit- höfunda sem lásu úr eigin verkum. Nokkrir af fremstu barnabókahöf- undum Norðurlanda glöddu áheyr- endur með upplestri; færeyski rit- höfundurinn Rakel Helmsdal, Tor Åge Bringsværd frá Noregi, Bent Haller frá Danmörku, finnski rithöf- undurinn Hannele Huovi og Ulf Stark frá Svíþjóð. Þau leiddu gesti með sér um lönd goðsagna og æv- intýra og inn í draumkenndan raun- veruleika bernskunnar. Lestur þeirra leyfði áheyrendum að horfa um stund á veruleikann með augum barnsins. Á höfundaþingi barnabókahátíð- arinnar var fjallað um þemað ferðir og goðafræði í norrænum barna- bókmenntum. Þátttakendur voru norrænu rithöfundarnir Tor Åge Bringsværd frá Noregi, Bent Haller frá Danmörku, Rakel Helmsdal frá Færeyjum, Hannele Huovi frá Finnlandi, Ulf Stark frá Svíþjóð auk Guðrúnar Helgadóttur. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson stjórnaði um- ræðunum og lagði fyrst fram spurn- inguna hver væri tilgangur goð- sagna í barnabókmenntum. Fjör- ugar umræður spunnust um þemað. Tor Åge Bringsværd sagði að goð- sagnir höfðuðu bæði til höfuðs og hjarta. Í þeim fyndum við ekki að- eins menningarlegar rætur okkar heldur segðu goðsagnir og ævintýri okkur mikið um raunveruleikann og hversdagslífið. Bent Haller benti á að goðsagnirnar væru einskonar skrá um mannlegt eðli; heimsku, ást, hatur. Í goðafræðinni fælist viska. Í goðsögnunum mætti finna næstum því allt það sem hægt er að segja um mann- eskjurnar. Guðrún Helga- dóttir sagði að goðsagnir fjölluðu um ást, fegurð, hatur og illsku. Umbúðirn- ar væru endurnýjaðar, en kjarninn væri sá sami. Um- ræðurnar spunnust áfram með spurningum um það hvort munur væri á milli landa á því hvernig goð- sagnirnar væru notaðar og hvað norrænu þjóðirnar vissu um goðsagnir hverr- ar annarrar. Einu sinni var maður sem fór til Afríku Aðalsteinn Ásberg velti upp næsta umræðuefni, sem voru ferðalög í barna- bókum. Guðrún Helgadótt- ir benti á að ferðalagið væri upplagt viðfangsefni; lærdómsríkt og spennandi í sjálfu sér. Í ferðinni gæti aðalper- sónan þroskast og menntast og öðl- ast nýja sýn á viðfangsefni sín í fjar- lægð frá þeim. Guðrún sagði að henni fyndist það að skrifa bók vera einskonar ferðalag. Guðrún sagði sögupersónur sínar ekki hafa mjög mikinn ferðahug, en innri ferðin væri mikilvæg. Hannele Huovi benti á að allur lestur væri ferðlag inn í heim tungumálsins, skáldskaparins og táknanna. Ferðin væri ævintýra- leg. Sá sem ferðaðist þyrfti stundum að sigrast á eigin ótta, ekki síst nú á dögum hryðjuverka. Ulf Stark taldi það vera tvennskonar ferðir sem finna mætti í sænskum barnabók- menntum: Margar barnabækur fjöll- uðu um pínulítið ferðalag þar sem margt gæti gerst. Aðrar lýstu löngum ferðum eins og ferð Nilla Hólmgeirssonar. Í lok þingsins voru ræddar spurningar eins og: Hvað finnst Íslendingum um Dani og Dön- um um Íslendinga? Taka karlhöf- undar til heima hjá sér? Hversu langt er frá helvíti til Svíþjóðar? ... og svo framvegis. Niðurstaðan var sú að alltaf mætti leita svars, en stundum færi það eins í í stuttri ferðasögu Tors Åges Bringsværds: „Einu sinni var maður sem fór til Afríku til að finna sjálfan sig, en hann var þar ekki.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Kóngssonurinn mátar kórónuna sína á barna- og unglingabókahátíðinni Köttur úti í mýri. Úti er ævintýri Hvað finnst Íslendingum um Dani og Dön- um um Íslendinga? Taka karlhöfundar til heima hjá sér? Hversu langt er frá helvíti til Svíþjóðar? Þessar spurningar og fleiri komu fram á ráðstefnu á norrænu barna- og unglingabókahátíðinni Köttur úti í mýri. TÓNSKÓLI Sigursveins gengst fyr- ir hljómsveitartónleikum í Seltjarn- arneskirkju í kvöld kl. 20. Fram kemur Strengjasveit Tónskólans og Jysk ungdomsorkester, sem er þessa dagana í heimsókn hér á landi. Flutt verða verk eftir Mozart, Sibel- ius, Elías Davíðsson, Larsson og Purcell. Stjórnendur á tónleikunum eru Jan Matthiesen og Sigursveinn Magnússon. Æskuhljómsveit frá Jótlandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.