Morgunblaðið - 17.10.2001, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2001 43
DAGBÓK
LJÓÐABROT
HEIÐREKS GÁTUR
(13. öld)
UM ÖLDURNAR
Hverjar eru snótir,
er ganga syrgjandi
at forvitni föður,
mörgum mönnum
hafa at meini orðit,
við þat munu aldr ala.
Hverjar eru meyjar,
er ganga margar saman
at forvitni föður,
hadda bleika
hafa enar hvítföldnu
ok eigut þær varðir vera.
Hverjar eru ekkjur,
er ganga allar saman
at forvitni föður,
sjaldan blíðar
eru við seggja lið,
ok eigu í vindi vaka.
1. c4 Rf6 2. Rc3 c5 3. g3 e6
4. Rf3 b6 5. Bg2 Bb7 6.
O-O Be7 7. d4 cxd4 8.
Dxd4 d6 9. Hd1 a6 10. b3
Rbd7 11. Bb2
O-O 12. Rg5
Bxg2 13. Kxg2
Dc7 14. Rge4
Hfd8 15. f3 Re8
16. Hac1 Db7
17. Ba3 Re5 18.
De3 Rg6 19.
Bb2 b5 20. cxb5
axb5 21. Dd3
d5 22. Rf2 Rd6
23. a4 Re5 24.
Dd2
Staðan kom
upp í Evrópu-
keppni tafl-
félaga sem lauk
fyrir skömmu í
Krít. Svissneski stórmeist-
arinn, Yannick Pelletier
(2531) hafði svart gegn
austurríska alþjóðlega
meistaranum Nikolaus
Stanec (2530). 24... Rdc4!
25. bxc4 Rxc4 26. Df4 e5
og hvítur gafst upp enda
drottningin að falla í val-
inn.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
OFT er erfitt að segja
geim á fáa punkta þar sem
spilin koma vel saman. En
hitt er líka vandasamt að
sleppa punktaríkum geim-
um þegar punktarnir vinna
illa. Helgi Jónsson og Helgi
Sigurðsson – sigurvegarar
tvímenningskeppninnar á
Hótel Örk – fengu nánast
topp fyrir að stansa í þrem-
ur hjörtum í þessu spili:
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ 843
♥ D72
♦ K85
♣ KG95
Vestur Austur
♠ ÁD ♠ 10972
♥ 8 ♥ 1053
♦ Á97632 ♦ 104
♣D1087 ♣Á642
Suður
♠ KG65
♥ ÁKG964
♦ DG
♣3
Víðast hvar voru spiluð
fjögur hjörtu í suður, sem
fóru óhjákæmilega einn
niður. Helgarnir sögðu
þannig á spil NS gegn Ólafi
Lárussyni og Rúnari
Magnússyni:
Vestur Norður Austur Suður
Rúnar Helgi J. Ólafur Helgi S.
-- -- -- 1 hjarta
2 tíglar 2 hjörtu Pass 2 spaðar
Pass 3 lauf Pass 3 hjörtu
Pass Pass Pass
Þegar suður fær stuðning
við hjartalitinn verður
geimsögn mjög freistandi.
En Helgi Sigurðsson ákvað
að kanna spilið í rólegheit-
um og sagði tvo spaða. Sú
sögn biður um aðstoð í litn-
um, sem gæti verið hvort
heldur mannspil eða stutt-
litur. Þrír hundar er það
versta sem svarhönd getur
átt.
Eigi að síður er Helgi
Jónsson með hámarks-
hækkun í tvö hjörtu og
sýnir því laufstyrk á móti.
En það kemur afleitlega
við spil suðurs og Helgi
Sigurðsson slær því af í
þremur hjörtum. Níu slagir
og yfir 90% skor.
Hlutavelta
Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir
Þessir piltar héldu á dögunum hlutaveltu til styrktar tækja-
kaupum á Lundi, hjúkrunar- og dvalarheimili á Hellu. Þeir
heita Tómas Ingi Guðmarsson og Esra Ósmann Víglunds-
son. Á myndina vantar Steinu Guðbjörgu Tómasdóttur sem
aðstoðaði piltana, en þau söfnuðu kr. 2.500.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu kr.
10.563 til styrktar Umhyggju, félagi til stuðnings langveik-
um börnum. Þær heita Þórunn Jakobsdóttir og Hildur og
María Kjartansdætur.
Mynd, Hafnarfirði
BRÚÐKAUP: Gefin voru
saman 11. ágúst sl. í Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði af
sr. Einari Eyjólfssyni
Kristín Konráðsdóttir og
Einar Bjarnason. Heimili
þeirra er á Hjallabraut 35,
Hafnarfirði.
Árnað heilla
FRÉTTIR
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
VOG
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert nákvæmnismaður og
vilt því hafa allt í röð og reglu
í kringum þig. Þolinmæði er
þó ekki þín sterka hlið.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gættu þess að missa ekkert út
úr þér sem þú þarft að iðrast
síðar meir. Það er góð regla að
telja upp að tíu áður en þú tek-
ur til máls.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú mátt eiga von á miklum erli
í dag og skalt því búa þig undir
talsvert stress. En huggaðu
þig við að þessi hryðja gengur
yfir og þú kemst á lygnari sjó.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Sýndu öðrum þolinmæði og
sérstaklega börnunum sem
eiga stundum bágt með að
átta sig á því hvað fullorðna
fólkið er að fara. Einlægni
barnsins er aðdáunarverð.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það reynir oft á þolinmæðina
að tala við samstarfsmenn
sem ekki eru með á nótunum.
Reyndu að sýna þeim þolin-
mæði meðan þeir eru að ná því
sem að þarf að gera.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er ekki sama hvernig þú
segir fólki fyrir verkum og
hreint engin spurning um
hversu valdsmannslegur þú
getur orðið. Skilningur er lyk-
ilorðið.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Einhver þér nákominn veldur
þér vonbrigðum en taktu það
ekki nærri þér og mundu að
það hefur komið fyrir að þú
hafir sjálfur valdið viðkom-
andi vonbrigðum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ættir að fresta því að fitja
upp á erfiðum málum í dag og
reyna þess í stað að halda sjó.
Þetta er ekki þinn dagur í
samskiptum við aðra.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Veltu fyrir þér þeim áætlun-
um sem þú hefur gert og
kannaðu sérstaklega hvort
áhugi þinn er raunverulegur
eða hvort þú ert að þessu bara
til þess að gera eitthvað.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú mátt ekki láta nokkurn
mann notfæra sér greiðvikni
þína. Láttu þá leggja öll spilin
á borðið og ræddu svo við þá
um sanngirni hlutanna.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það gæti lyft þér upp að hefja
einhverskonar líkamsrækt því
áreynslan er ekki aðeins góð
fyrir skrokkinn heldur bætir
hún líka sálarlífið.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Farðu hægt í öllum umræðum
um trúmál og vertu algjörlega
viss um það sem þú vilt segja.
Mundu að aðrir eru álíka fast-
ir fyrir og þú í þessum efnum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Vita skaltu að það dugir ekki
að sitja með hendur í skauti og
halda að lífið leiti þig uppi.
Gakktu glaður á móti því og þá
opnast þér allir möguleikar.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnudags-
blað. Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100,
sent í bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
DAGANA 11.–12. apríl á næsta ári
munu tvær stúlkur og tveir piltar úr
9. bekk íslensks skóla halda til Fro-
lands í Suður-Noregi til að taka þátt
í KappAbel-stærðfræðikeppninni
ásamt jafnöldrum sínum frá Norð-
urlöndunum. Keppnin hefur verið
haldin í Noregi í nokkur ár en á
næsta ári eru 200 ár liðin frá fæð-
ingu stærðfræðingsins Niels Hen-
riks Abel sem keppnin er kennd við.
Norska ríkisstjórnin samþykkti af
því tilefni að leggja fram 200 millj-
ónir norskra króna sem stofnfé al-
þjóðlegra Abelsverðlauna í stærð-
fræði sem er ætlað að verða hlið-
stæða Nóbelsverðlaunanna.
KappAbel-keppnin er bekkja-
keppni og geta allir 9. bekkir á Ís-
landi freistað þess að komast í loka-
keppnina í Frolandi. Fyrst er haldin
forkeppni hér heima og í janúar
mun liggja fyrir hvaða bekkur sigr-
ar og mun vinna að bekkjarverkefni
til þátttöku. Fjórum nemendum úr
þeim bekk verður síðan boðið til
lokaviðburðarins í apríl á næsta ári.
Markmiðið með KappAbel-
stærðfræðikeppninni er að hafa
áhrif á nemendur og vekja áhuga
þeirra á stærðfræði. Þessu tak-
marki er reynt að ná með því að
leggja fram verkefni sem bjóða upp
á skemmtun, fegurð og gagnsemi
auk umræðna og samstarfs innan
bekkja og einnig er lögð áhersla á
rannsóknir í stærðfræðináminu.
Kennurum bekkja sem hafa áhuga á
að taka þátt er bent á netfangið
ak@khi.is og www.kappabel.com.
Íslenskum nemendum
er boðin þátttaka
KappAbel-stærðfræðikeppnin